Fréttablaðið - 03.02.2009, Side 10
10 3. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
FJÖLMIÐLAR Sjálfstæðisflokkurinn
var oftast tilgreindur í fréttum
á síðasta ári, eða 12.799 sinnum.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
Creditinfo - Fjölmiðlavaktinni á
greiningu á 118.036 fréttum síð-
asta árs. Samfylking kemur þar
á eftir og var nefnd nefnd 9.740
sinnum í vöktuðum fréttatímum
eða í fréttagreinum dagblaðanna.
Reykjavíkurborg var í þriðja sæti
og tilgreind 7.242 sinnum.
Capacent Gallup gerði könnun
fyrir Fjölmiðlavaktina, þar sem
30,6 prósent töldu að Baugur hefði
verið það fyrirtæki eða aðili sem
nefnt var oftast í fjölmiðlum á síð-
asta ári. Baugur var hins vegar í
28. sæti yfir þá aðila sem oftast
voru nefndir. Þá töldu 16,7 pró-
sent að Seðlabankinn hefði oftast
verið nefndur, en Seðlabankinn
var í fjórða sæti yfir þá sem oft-
ast voru nefndir.
Geir H. Haarde var oftast við-
mælandi í fréttum á síðasta ári,
eða 685 sinnum. Hann var sérstak-
lega oft viðmælandi síðustu fjóra
mánuði ársins. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir var viðmælandi 372
sinnum og Steingrímur J. Sigfús-
son var viðmælandi 249 sinnum.
Af þeim nítján einstaklingum
sem oftast voru viðmælendur voru
sautján stjórnmálamenn. Aðrir
voru Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, sem var í tíunda sæti og
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
sem var í 14. sæti.
Viðmælendur í fréttum ljósvak-
anna eru kyngreindir og kemur þá
í ljós að konur eru oftast viðmæl-
endur hjá Sjónvarpinu, eða í 24,5
prósent tilfella. 21,8 prósent við-
mælenda hjá Rás 1 og 2 eru konur
og 20,0 prósent viðmælenda hjá
Stöð 2 – Bylgjunni.
Mikill meirihluti, eða 83 prósent,
frétta síðasta árs birtust í dagblöð-
um. Af dagblöðunum birti Morg-
unblaðið flestar innlendar fréttir,
eða 36 prósent þeirra. Fréttablað-
ið birti næstflestar, eða 28 prósent
þeirra.
Flestar ljósvakafréttir voru hins
vegar á samtengdum rásum Rásar
1 og 2 í Ríkisútvarpinu, tæplega
41 prósent innlendra frétta sem
fluttar eru í ljósvakamiðlum. Rúm
38 prósent frétta eru á Stöð 2 og
Bylgjunni en rúmlega 21 prósent
frétta ljósvakamiðlanna eru flutt-
ar í Sjónvarpinu.
svanborg@frettabladid.is
Sjálfstæðisflokkur
var oftast í fréttum
Stjórnmálaflokkar voru oftast nefndir og stjórnmálamenn voru oftast viðmæl-
endur í fréttum síðasta árs, samkvæmt samantekt Fjölmiðlavaktarinnar. Konur
voru um fimmtungur viðmælenda, oftast viðmælendur hjá Sjónvarpinu.
KÁTUR HUNDUR Þessi hundur réði sér
varla fyrir kæti í nýföllnum snjónum
fyrir utan Hvíta húsið í Washington,
þar sem hann hafði það hlutverk að
gæta forseta Bandaríkjanna ásamt
öryggisverði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MÓTMÆLI Páll Hilmarsson ljós-
myndari hefur beðið ríkissak-
sóknara um að rannsaka atvik,
þar sem lögreglukona á að hafa
úðað piparúða í andlit hans.
Páll hefur lýst því hér í blað-
inu að konan hafi að ástæðulausu
úðað yfir fólk, sem var í nokkurri
fjarlægð og hinum megin girð-
ingar, í Alþingisgarðinum þriðju-
daginn 20. janúar. Þetta hafi
gerst oftar en einu sinni.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
segir lögreglu hafa farið yfir
atvikið. „En við teljum ekki neina
ástæðu til að gera neitt í tengsl-
um við það eða önnur mál,“ segir
hann. - kóþ
Piparúðaður ljósmyndari:
Saksóknari líti
yfir mótmælin
ÚÐABRÚSINN MUNDAÐUR Hér sést
dreift úr piparúðabrúsa niður í garðinn
og yfir fólk sem var þar.
MYND/PÁLL HILMARSSON
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
20% verðlækkun
KARBOBLOKKER Kolvetnabani, 120 töflur.
Minnkar hungurtilfinningu og hindrar upptöku
kolvetna í líkamanum.
2.518 kr. 1.998 kr. Gildir til 8. 2. 2009
20% verðlækkun
VOLTAREN EMULGEL
2.280 kr. 1.824 kr.
15% verðlækkun
MICROLIFE BLÓÐÞRÝSTINGSMÆLIR
Sjálfvirkur blóðþrýstingsmælir, einfaldur í notkun
og nákvæmur. Minni: 30 niðurstöður.
11.678 kr. 9.926 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
4
48
30
0
1/
09
Af hverjum seldum mæli renna
500 kr. til Hjartaheilla.
Fréttablaðið 28,2%
Morgunblaðið 36,1%
Viðskiptablaðið 8,1%
DV 13,7%
Blaðið / 24 stundir
13,9%
Hlutfall frétta í dagblöðum árið 2008
Hlutfall frétta í ljósvakamiðlum árið 2008
Ríkisútvarpið - Rás 1
og 2 40,7%
Sjónvarpið 21,1%
Stöð 2 - Bylgjan
38,2%
HEIMILD: CREDITINFO-FJÖLMIÐLAVAKTIN
HEIMILD: CREDITINFO-FJÖLMIÐLAVAKTIN
SAMFÉLAGSMÁL „Í janúar hafa um
þrjú til fjögur hundruð gestir
komið í hverja úthlutun,“ segir
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir,
formaður Mæðrastyrksnefndar.
„Það er gríðarleg fjölgun miðað
við árið í fyrra, allt að tvö hundr-
uð prósent. Á bak við flesta sem
koma er fjölskylda. Það eru því
nálægt þúsund manns á mánuði
sem reiða sig á okkur. Við leggjum
allan okkar metnað í að sinna þeim
sem koma eftir bestu getu.“
Samsetning hópsins hefur
breyst verulega. „Fjölskyldum
hefur fjölgað, við höfum meðal
annars fengið til okkar hjón sem
bæði eru atvinnulaus með fjögur
til fimm börn. Hópur útlendinga
hefur líka farið stækkandi og við
höfum fengið túlk til okkar svo við
getum aðstoðað þá.“
Enn sem komið er gengur starf-
semin þó ágætlega og enginn fer
tómhentur frá nefndinni. „Við
erum sparsamar og förum vel
með svo við búum ágætlega enn
þá, enda húsmæður sem kunna vel
til verka. En ef aukningin heldur
áfram segir það sig sjálft að við
þurfum að skoða stöðuna.“
Einstaklingar, félagasamtök,
fyrirtæki og stéttarfélög hafa verið
liðtæk að styrkja Mæðrastyrks-
nefnd. Ragnhildur segir þó þörf
fyrir meira og því séu peninga- og
matargjafir vel þegnar. Tekið er á
móti framlögum á þriðjudögum frá
klukkan tíu til þrjú. - hhs
Hjón með fimm börn meðal þeirra sem leituðu til Mæðrastyrksnefndar í janúar:
Þúsund fengu mataraðstoð
KONUR ÚR MÆÐRASTYRKSNEFND Egg
eru algeng í matarskömmtun Mæðra-
styrksnefndar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SEÐLABANKINN Aðaldyr Seðla-
banka Íslands voru lokaðar og
læstar upp úr klukkan þrjú í gær
þegar ljósmyndara Fréttablaðs-
ins bar að garði.
Á þeim tíma hafði verið boðað
til mótmæla sem báru yfirskrift-
ina „Davíð út!“ Til stóð að safna
mynt í bauk handa Davíð Odds-
syni seðlabankastjóra „til að
seðja græðgi hans og auðvelda
honum að hætta“ eins og sagði í
tilkynningu á Fésbók.
Stefán Jóhann Stefánsson hjá
Seðlabanka gat ekki útskýrt
hvers vegna bankanum hefði
verið lokað. Starfsemi hefði verið
með eðlilegum hætti um daginn.
- kóþ
Starfsemin sögð óskert:
Dyrnar læstar í
Seðlabankanum
LOK LOK OG LÆS Svona var aðkoman að
Seðlabanka Íslands klukkan þrjú í gær.
Þá hafði verið boðað til mótmæla.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUMÁL Stolnir gróðurhúsa-
lampar ganga kaupum og sölum,
að því er fram kemur í gæslu-
varðhaldsúrskurði Héraðsdóms
Suðurlands yfir sautján ára pilti.
Félagi piltsins viðurkenndi
fyrir lögreglu að þeir hefðu farið
þrír saman og brotist inn í gróð-
urhús í Árnessýslu. Þar stálu þeir
þrjátíu gróðurhúsalömpum sem
þeir seldu síðan á 250 þúsund
krónur. Félagi piltsins fékk 175
þúsund en hann sjálfur 75 þús-
und. Lögregla fékk ekki uppgefið
nafn kaupanda.
Pilturinn er nú laus úr gæslu-
varðhaldi. - jss
Þjófnaður úr gróðurhúsi:
Stálu 30 lömp-
um og seldu þá
Ungverjar vilja Ísland í ESB
Kinga Goncz, utanríkisráðherra
Ungverjalands, hefur lýst stuðningi
við að Ísland fái aðild að Evrópusam-
bandinu.
UNGVERJALAND
Lækka laun
Norsk fyrirtæki óska nú eftir því við
starfsmenn sína að lækka launin til
að hjálpa fyrirtækinu að halda öllum
starfsmönnunum í vinnu. Í sumum
tilfellum hefur starfshlutfallið verið
minnkað. Sum fyrirtæki ætla að
greiða launaskerðinguna til baka
þegar vel árar ef ekki þarf að nota
peningana.
NOREGUR
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu haldlagði sam-
tals 530 kannabisplöntur í jan-
úar.
Plönturnar, sem flestar voru
á lokastigi ræktunar, fundust
við húsleitir á ýmsum stöðum í
umdæminu.
Um er að ræða allnokkur aðskil-
in mál.
Samhliða hefur verið lagt
hald á ýmsan búnað sem tengist
starfseminni, þar á meðal nokk-
urt magn gróðurhúsalampa.
Þess má geta að allt árið 2008
lagði lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hald á um 700 kanna-
bisplöntur. - jss
Höfuðborgarsvæðið:
Heilu gróður-
húsin tekin