Fréttablaðið - 03.02.2009, Síða 12
12 3. febrúar 2009 ÞRIÐJUDAGUR
PALESTÍNA, AP Flugskeyti frá ísrael-
skri herþotu var í gær skotið á bif-
reið sem var á ferð á sunnanverðu
Gasasvæði, með þeim afleiðingum
að einn Palestínumaður lést.
Daginn áður höfðu Ísraelar
hótað Palestínumönnum á Gasa
hörðum hefndaraðgerðum vegna
sprengjuflaugaárása frá svæðinu
yfir landamærin til Ísraels.
Vopnahléið, sem bæði Hamas-
hreyfingin og Ísraelsstjórn lýstu
yfir einhliða 18. janúar síðastlið-
inn, hangir á bláþræði. Hamas-
liðar hafa haldið áfram sprengju-
flaugaárásum sínum og Ísraelar
hafa einnig haldið áfram loftárás-
um sínum.
Egyptar sögðust engu síður í
gær vonast til þess að samkomu-
lag um vopnahlé milli Ísraels-
stjórnar og Hamashreyfingarinn-
ar á Gasaströnd verði komið í höfn
á fimmtudag.
Sendinefnd frá Hamas hélt
til viðræðna við Egypta í gær.
Leiðtogar Hamas vilja að vopna-
hlé standi í eitt ár og feli í sér að
landamæri Gasastrandar verði
opnuð.
Ísraelar krefjast þess á móti að
sprengjuflaugaárásum á Ísrael
linni og vilja tryggingu fyrir því
að Hamas safni sér ekki vopnum.
Hamasmenn hafna þessu skilyrði:
„Við erum andspyrnuhreyfing og
hersetin þjóð og það er réttur
okkar að eiga vopn,“ sagði Abu
Zuhri, talsmaður Hamas.
Hann segir Hamas einnig hafa
hafnað því að tengja örlög ísra-
elska hermannasins Gilads Schalit
við vopnahléssamkomulag. Schalit
hefur verið í gíslingu á Gasasvæð-
inu síðan 2006.
Egyptar hafa gegnt lykilhlut-
verki í viðræðum um vopnahlé.
Hamasliðar og Ísraelar hafa ekki
viljað ræðast við beint, en Egyptar
hafa átt fundi með hvorum tveggja
til að finna sameiginlega fleti.
Nicolas Sarkozy Frakklandsfor-
seti átti í gær fundi í París með
bæði Mahmoud Abbas, forseta
Palestínustjórnar, og George Mit-
chell, nýjum erindreka Baraks
Obama Bandaríkjaforseta í Mið-
Austurlöndum. Einnig hitti Sar-
kozy forsætisráðherra Katars,
Sheik Hamad bin Jassem al-Thani,
sem átti þátt í að leysa harðvítug-
ar deilur í Líbanon á síðasta ári.
Ísraelar ganga til kosninga í
næstu viku og velja sér nýtt þing.
Samkvæmt skoðanakönnunum
eiga harðsnúnir hægrimenn von
á stórsigri. Benjamin Netanyahu,
leiðtogi Likudflokksins, gæti því
hæglega orðið forsætisráðherra
landsins á ný. gudsteinn@frettabladid.is
Viðræður í
Egyptalandi
Vopnahlé Ísraela og Hamas hangir á bláþræði.
Egypt ar reyna að miðla málum og segjast bjartsýn-
ir. Sarkozy Frakklandsforseti einnig í viðræðum.
Markaðurinn fylgir Fréttablaðinu á morgun
Hvað má búast við að kreppan verði
löng eða djúp?
Markaðurinn fer yfir helstu samkomu
auð- og áhrifamanna sem nýlokið er
í Davos í Sviss.
Fréttir og fróðleikur úr viðskiptalífinu
Í Markaðnum á morgun
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
TIL BRÁÐABIRGÐA Í TJALDI
Palestínumenn höfðu nokkrir
komið sér fyrir til bráðabirgða í
tjöldum í flóttamannabúðunum
Jebaliya á Gasaströnd.
ÚRSKURÐUR MÚRMELDÝRSINS Ben
Hughes heldur á Punxsutawney Phil,
sem Bandaríkjamenn fylgjast grannt
með 2. febrúar ár hvert. Hughes sá
skugga dýrsins í gær, og telur því full-
víst að vetur standi í sex vikur enn.
NOREGUR Miðflokkurinn í Nor-
egi ætlar ekki að taka ESB-málin
á dagskrá þó að Framsóknar-
flokkurinn, systurflokkur hans á
Íslandi, sé hættur andstöðu sinni
við inngöngu í ESB. Miðflokkur-
inn er að móta sér nýja stefnuskrá
fyrir 2009-2013, að sögn norska
dagblaðsins VG.
Liv Signe Navarsete, formað-
ur flokksins, segir óhugsandi
að stefnubreyting Framsóknar-
flokksins hafi nokkur áhrif á Mið-
flokkinn. „Það er óhugsandi að það
verði nokkur breyting á afstöðu
flokksins til ESB meðan ég er for-
maður flokksins,“ segir hún.
- ghs
Norski miðflokkurinn:
Skoðanaskipti
óhugsandi
BYGGINGARIÐNAÐUR Stjórn Íbúða-
lánasjóðs hefur samþykkt að lána
Búmönnum 750 milljónir króna til
fyrsta áfanga framkvæmda á mið-
svæði Álftaness. Þetta upplýsti
Sigurður Magnússon bæjarstjóri
á bæjarstjórnarfundi.
Um er að ræða lán til tíu fyrstu
íbúðanna og þjónustumiðstöðv-
ar. „Áformað er að þessar fram-
kvæmdir geti hafist í sumar og því
þurfi að semja sem fyrst um vega-
framkvæmdir,“ segir í fundagerð
bæjarstjórnarinnar.
Bæjarfulltrúar minnihluta Sjálf-
stæðisflokks sögðu að ekki lægju
fyrir samningar bæjarfélags-
ins við Búmenn um afnot og nýt-
ingu þess húsnæðis sem eigi að
byggja.
„Ekkert liggur fyrir um leigu-
verð til bæjarfélagsins og ætl-
aðra íbúa. Ekki liggur fyrir
framkvæmdaáætlun eða rekstr-
aráætlun fyrir mannvirkið. Hver
verður fjárhagsleg skuldbinding
bæjarsjóðs vegna verkefnisins,
meðal annars vegna gatnagerðar,
nú þegar ljóst er að bæjarsjóður
er þegar alvarlega skuldsettur?“
segir í bókun sjálfstæðismanna
sem sátu hjá þegar meirihluti Á-
listans samþykkti, í ljósi þreng-
inga á lánamarkaði, að kanna
möguleika á því að fjárfestar eða
framkvæmdaaðilar gætu tekið við
byggingarétti á miðsvæðinu af
sveitarfélaginu sem hlutagreiðsl-
um vegna framkvæmda. - gar
Búmenn fá fyrirgreiðslu hjá Íbúðalánasjóði vegna nýs miðbæjarkjarna:
Lána 750 milljónir á Álftanes
Á ÁLFTANESI Fulltrúar Á-listans segja
þrengingar á lánamarkaði valda því að
þeir vilja skipta á byggingarrétti fyrir
framkvæmdir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SJÁVARÚTVEGUR Stjórn Félags vél-
stjóra og málmtæknimanna, VM,
samþykkti einróma á fundi sínum
í gær að lýsa yfir stuðningi við
ákvörðun sjávarútvegsráðherra
um að heimila veiðar á langreyði
og hrefnu til ársins 2013.
„Ég er nýsestur í þennan stól
eftir 27 ár á sjónum,“ segir Guð-
mundur Ragnarsson, formaður
VM.
„Áður fyrr þótti það mikil upp-
lifun að sjá hval en síðustu sjö til
tíu árin er allt morandi í þessu.
Sérfræðingar hafa sagt að hval-
ur hér við land éti um sex millj-
ón tonn af fiski. Ég skil ekki af
hverju umhverfisverndarsinnar
og þeir sem vilja veiða geta ekki
mæst á miðri leið, við þurfum
líka á störfunum að halda sem
fylgja veiðunum svo nú ríður á.“
- jse
Stjórn VM ályktar um hvalinn:
Styðja hvalveið-
arnar einróma