Fréttablaðið - 03.02.2009, Side 27

Fréttablaðið - 03.02.2009, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 3. febrúar 2009 23 FÓTBOLTI Blikinn Magnús Páll Gunnarsson hefur gert fimm mánaða samning við þýska C- deildarliðið Wuppertaler SV Borussia en hann hefur verið við æfingar hjá félaginu síðustu daga. Wuppertaler er sem stendur í fallsæti þýsku C-deildarinnar en þjálfari liðsins var rekinn eftir að liðið vann ekki í átta leikjum í röð fyrir áramót en Magnús Páll er einn þriggja nýrra leikmanna sem er ætlað að styrkja liðið í seinni hlutanum. Fyrsti leikur Magnúsar er á móti Bayern München II á föstu- dagskvöldið og þá er spurning hvort hann geti hjálpað til að enda markaþurrð liðsins sem skoraði ekki í síðustu fjórum leikjum sínum fyrir vetrarfrí. - óój Magnús Páll til Wuppertaler: Fyrsti leikurinn er gegn Bayern FRAM Á VOR Magnús Páll Gunnarsson leikur í þýsku C-deildinni næstu mánuði. KÖRFUBOLTI Pétur Guðmunds- son, þjálfari Grindavíkur í Ice- land Express-deild kvenna, hefur gefið það út að hann ætli ekki að styrkja liðið með erlendum leik- manni fyrir lokasprettinn í vetur. Þetta verður þá fyrsta tíma- bilið síðan 1999-2000 að Grinda- vík verður ekki með bandarískan leikmann innan sinna raða. Grindavíkurliðið hefur nú unnið tvo fyrstu leiki sína í neðri hlutanum og er á góðri leið inn í úrslitakeppnina með sex stiga forskot á Snæfell þegar tíu stig eru enn í pottinum. - óój Þjálfari Grindavíkurkvenna: Mun treysta á sínar stelpur STIGAHÆST Petrúnella Skúladóttir er í lykilhlutverki í Grindavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Búum við á besta stað blessa skyldum kúna Íslendingar eiga það sem aðra vantar núna Öllum standa opnar dyr andans kraft skal virkja þá er best að borða skyr búkinn til að styrkja H ÍV T A H Ú S IÐ / S ÍA FRJÁLSAR ÍR vann yfirburðasig- ur í heildarstigakeppni félaga á Meistaramóti unglinga 15-22 ára sem fram fór um helgina. ÍR hlaut alls 354 stig, FH varð í öðru sæti með 198 stig og Fjöln- ir í þriðja sæti með 124 stig. ÍR ingar sigruðu stigakeppnina í þremur aldursflokkum eða í meyj-a, drengja- og ungkvenna- flokki. Breiðablik vann í flokki sveina, FH í flokki stúlkna og Fjölnir í flokki ungkarla. Helga Margrét Þorsteinsdótt- ir úr Ármanni varð sigursælust á mótinu um helgina en hún vann allar sex keppnisgreinarnar sem hún tók þátt í í stúlknaflokki. - óój MÍ unglinga í frjálsum: Helga Margrét vann sex greinar FÓTBOLTI Það var líf á lokadegi félagsskiptagluggans í gær og mesta fjörið var í kringum Andrei Arshavin og kaup Arsenal á honum frá Zenit St Petersburg. Á tímabili skiptust netmiðlar á að segja að kaupin á Arshavin væru gengin í gegn eða að ekk- ert yrði af því að rússneski lands- liðsmaðurinn kæmi til Lundúna- liðsins. Á endanum komu fréttir af því að Arsenal hafi í raun náð samkomulagi við rússneska liðið og að félagið muni kaupa hann á rúmleg tólf milljónir punda. Það kemur þó ekki endanlega í ljós fyrr en í dag. Fram að kaupum Arsenal á Arshavin var endurkoma Robbie Keane til Tottenham stærsta frétt dagsins. Tottenham keypti Keane aftur frá Liverpool fyir 12 milljón- ir punda eftir að hafa selt hann til Bítlaborgarinnar fyrir 20 milljón- ir punda í sumar. Keane skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Spurs en hann viðurkenndi að það hafi ekki verið rétt ákvörðun að yfirgefa White Hart Lane. Harry Redknapp hefur verið duglegur að ná í gamla Tottenham síðan hann tók við stjórastöðunni hjá Tottenham en hann hefur líka keypt þá Jermain Defoe (frá Port- smouth) og Pascal Chimbonda (frá Sunderland) til liðsins. Meðal annarra frétta dagsins þá lánaði ítalska liðið Internazionale tvo leikmenn til enskra úrvals- deildarliða. Chelsea fékk Ricardo Quaresma að láni og Oliver Dac- ourt mun spila með Fulham út leiktíðina. Everton fékk Jo á láni frá Manchester City Newcastle seldi Charles N’Zog- bia til Wigan sem að sama skapi seldi varnarmannnn Ryan Tayl- or til Newcastle og lánaði Henri Camara til Stoke. Þá fékk Port- smouth gríska landsliðsfyrirliðann Angelos Basinas frá AEK. - óój Lokadagur félagsskiptagluggans var fjörugur en fresturinn var framlengdur um nokkra tíma vegna veðurs: Arshavin fór til Arsenal eftir allt saman FRÁBÆR Á EM Andrei Arshavin. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.