Tíminn - 17.04.1983, Blaðsíða 18
18
SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983
bókafréttir
Nýbókum samband Nóbelshafans Isaac Bashevis Singer við bróður sinn:
Eins dauði er annars brauð
Clive Sinclair:
Thc Brolhers Singer
Gctin úl af Allison & Busby
Jiddíska rithöfundinum Isaac Bashcv-
is Singer.'sem hlaut Nóbelsverðlaunin í
bókmenntum árið 1978, hefur vcrið lýst
sem „mesta skáldsagnahöfundi sem nú
er uppi“. Hann er einnig, 78 ára gamall,
einn af þeim afkastamestu. „Hann skrif-
ar alla morgna, hvern einasta dag lífs
síns,“ segir útgefandinn hans, „og afköst
hans eru ótrúleg."
I bók sinni, sem fjallar um samband
nóbelshafans og eldri bróður hans, held-
ur Sinclair því fram að Singer hafi verið
svo sleginn af bókmenntalegum hæfi-
leikum bróður síns og eldri systur að
hann hafi ekki getað skrifað fyrr en
hann var orðinn fertugur. En skyndi-
legur dauði Israel Joshua Singer árið
1944 hafi leyst skáldsagnahöfundinn Is-
aac úr læðingi. Allison & Busby eru nú
einnig að gefa út bestu skáldsögu eldri
Singerbróðurins, The Brothers Ashken-
azi, sem fjallar um samkeppni milli syst-
kina.
Þar að auki mun (kvenna-)forlagið
Virago gefa út sjálfsævisögulegu skáld-
söguna Deborah eftir systur Singers,
Esther Krietman, sem bjó í London þar
til hún lést a'rið 1954. Saman mynda
þessar þrjár bækur flókinn vef tilfinninga
sem sameinuðu og sundruðu hinni at-
hyglisverðu Singer fjölskyldu - og eru
enn að verki.
Sinclair eyddi tveimur dögum með
lsaac Bashevis Singer í New York árið
1979 til þess að ræða við hann um eldri
bróðurinn: „Hann var herra minn og
hetja, eina manneskjan sem ég hef
dýrkað“, sagði Isaac. „Hörmulegasti
dagur Iífs míns er dagurinn sem hann
dó.“
Það var Israel Joshua sem fór mcð
Isaac frá Póllandi til Ameríku árið 1935,
útvegaði honum vinnu og kynnti hann
fyrir fyrsta útgefanda sínum „Án hans“,
sagði Isaac, „var ég gjörsamlega úrræða-
laus.“ En Isaac hafði ungur náð góðum
árangri í Varsjá og brátt fannst honum
velgengni bróður síns í Ameríku hindra
sig. Þá fór einnig í taugarnar á honum
• að félagar hans á meðal innflytjendanna
héldu því fram að hann ætti áhrifum
fjölskýldunnar að þakka hvaðeina sem
honum gekk vel. Sinclair segir að Isaac
hafi ekki byrjað á neinu umtalsverðu
sja'lfstæðu verki í Bandaríkjunum fyrr
en að bróðir hans dó áratug síðar.
Þegar hann svo loks hófst handa líktist
bygging fjölskyldusagna hans, eins og
The Family Moskat ogThe Estate, mjög
skáldsögum Israels Joshua, The Broth-
ers Ashkenazi og The Family Carnov-
sky, að gerð. „Þær fjalla allar um
sundurleitni", segir Sinclair. „Ég geri
ráð fyrir því að allar fjölskyldusögur geri
það. En á meðan Joshua gerir öllum jafn
hátt undir höfði einbcitir Isaac sér að
Orlofshús V.R.
Dvalarleyfi
Auglýst er eftir umsóknum um dvalarleyfi í orlofshús V.R. sumarið 1983
Umsóknir á þar til gerð eyðublöð þurfa að berast skrifstofu V.R., Húsi
Verzlunarinnar 8. hæð í síðasta lagi föstudaginn 29. apríl 1983.
Orlofshúsin eru á eftirtöldum stöðum:
að Ölfusborgum
að Húsafelli í Borgarfirði
að Svignaskarði í Borgarfirði
að lllugastöðum í Fnjóskadal
að Laugarvatni
að Einarsstöðum, Norður-Múlasýslu
í Vatnsfirði, Barðaströnd
Aðeins fullgildir félagar hafa rétt til dvalarleyfis.
Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsunum á tímabilinu 15. maí til 15.
september sitja fyrir dvalarleyfum til 20. maí n.k.
Leiga verður kr. 1.200.- á viku og greiðist við úthlutun.
Hafi ekki verið gengið frá leigusamningi fyrir 2. júní n.k. fellur úthlutun úr gildí.
Dregið verður milli umsækjenda ef fleiri umsóknir berast en hægt er að verða
við. Verður það gert á skrifstofu félagsins laugardaginn 14. maí n.k. kl. 14.00
og hafa umsækjendur rétt til að vera viðstaddir.
Orlofsstyrkir
Auglýst er eftir umsóknum um orlofsstyrki sumarið 1983.
Ákveðið hefur verið að úthluta allt að 175 styrkjum að fjárhæð kr. 2.000.-
hverjum.
Þeir sem verið hafa fullgildir félagsmenn í V.R. í 10 ár eða lengur hljóta forgang
við úthlutun fyrstu 100 styrkjanna.
Fullgildir félagar í a.m.k. 5 ár hljóta þá styrki sem enn verður óráðstafað.
Skilyrði fyrir úthlutun styrkja eru þau sömu og við úthlutun dvalarleyfa í orlofshús
V.R., þ.e. þeir sem dvalið hafa í orlofshúsum V.R. s.l. 5 ár eiga ekki rétt á
orlofsstyrk.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknir verða að berast skrifstofu V.R.
í síðasta lagi föstudaginn 29. apríl n.k.
Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu V.R., Húsi Verzlunarinnar 8. hæð.
Ekki verður tekið á móti umsóknum símleiðis.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
aðalpersónunni.
Hann hefur mestan áhuga á því að
komast að sjálfinu í gegnum skáldskap-
inn, en Joshua notaði skáldsöguna til að
túlka söguna, sérstaklega það sem henti
gyðinga í Evrópu. Ég er ekki viss um að
Joshua hefði skrifað fleiri skáldsögur
hefði hann lifað, honum var farinn að
finnast skáldskapurinn of léttvægur til
að geta komið hryllingi sögunnar til
skila."
Á meðan bræðurnir kepptu vinsam-
lega sín á milli í New York bjó systir
þeirra Hinde Esther í ömurlegu hjóna-
bandi í Hampstead í London. „Hún átti
fyrsta bókmenntalega neistann í okkar
fjölskyldu", sagði isaac um systur sína.
„Hún hafði hæfileika en hún dó of ung.“
Esther hafði flúið aftur til fjölskyldu
sinnar í Varsjá eftir nokkurra ára hjóna-
band en neyddist síðan til að snúa aftur
til eiginmanns síns. Þegar hún kom aftur
til London skrifaði hún skáldsögu sem
hún byggði á bernskureynslu sinni sem
dóttir fátæks gyðingaprests. Það um-
hverfi fegruðu þeir bræður síðan mjög í
ævisögum sínum, en sem kona í rétttrún-
aðarfjölskyldu buðust Esther ekki sömu
tækifæri og bræðrum hennar og reynsla
hennar var öll önnur.
Esther gaf sögu sína út á jiddísku árið
1936. Sonur hennar Maurice Carr, þýddi
hana síðan tíu árum síðar, en hún vakti
ekki mikla athygli. Það gerðu önnur
skáldsaga hennar og smásagnasafn held-
ur ekki. Carr, sem nú býr í Tel Aviv og
hefur gefið út skáldsögu undir dulnefn-
inu Martin Lea, fræddi Sinclair um það
að Isaac hefði engan áhuga á fjölskyldu
sinni og því sem meðlimir hennar tækju
sér fyrir hendur á bókmenntasviðinu.
En það er ýmisiegt. Brett Singer,
dóttir Josephs sonar Joshua, gaf út
■ Singer-bræðurnir - Israel Joshua
t.v. og Isaac Bashevis t.h. Isaac dáðist
svo mjög að eldri bróður sínum að það
stóð honum fyrir þrifum sem rithöfundi.
fyrstu bók sína, The Petting Zoo, fyrir
fjórum árum og seldi kvikmyndaréttinn
að henni nýlega. Eiginkona Josephs,
June Flaum Singer, skrifaði bókina „The
Debutantes" sem nú er á meðal mest
seldu bóka í Bandaríkjunum. Ekki er
vitað til þess að rithöfundar fjölskyld-
unnar hafi þegið neina aðstoð frá Nóbels-
verðlaunahafanum. „Hann kærir sig
ekki um að tilheyra neinni fjölskyldu,“
sagði Carr biturlega við Sinclair.
Vinir Singers segja að hann sé svo
upptekinn við skriftirnar að hann hafi
ekki tíma fyrir neitt annað. „Um þessar
mundir er ég með tíu skáldsögur í
höfðinu,“ sagði hann þeim nýlega.
Næsta bók hans, The Penitent, er
væntanleg í janúar, en hún er fyrsta
skáldsaga hans sem fjallar um Israels-
ríki. Útgefandinn segir að hún sé póli-
tískt ádeiluverk: „Isaac hefur mjög
blendnar tilfinningar til þess hvernig
Zionisminn hefur vikið frá lögmálum
gyðingatrúarinnar."
„Hann er einfaldlega rekinn áfram við
skriftirnar", segir útgefandinn. Sinclair
álítur að þau áhrif sem gyðingaofsóknir
nasista höfðu á Singer séu orsök hinna
feykilegu afkasta. „Hann er sakbitinn
yfir því að hann skuli hafa lifað þegar
aðrir fórust og að uppspretta listar hans
sé heimurinn sem lagður var í eyði.
Hann bara verður að halda áfram að
skrifa um hann.“
Frá Hússtjórnar-
skólanum á
Varmalandi
Næsta ár gefur skólinn kost á námi í handíð og
hússtjórn.
Fyrri önn hefst í byrjun september 1983.
Væntanlegir nemendur skulu hafalokið grunnskóla-
námi.
Nánari upplýsingar í skólanum.
Skólanefnd.
B.S.A.B.
Aðalfundur almennrar deildar
Byggingasamvinnufélagsins Aðalbóls verður
haldinn þriðjudaginn 19. apríl kl. 20.30 í
mötuneyti félagsins að Miðleiti 1-3 í Reykja-
vík.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn almennrar deildar
B.S.A.B.
Frá Fósturskóla
íslands
Umsóknir um skólavist næsta skólaár þurfa aö
berast skólanum fyrir 1. júní n.k.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans.
Skólastjóri.
Notuð rafstöð
Vil kaupa 8-10 kW notaða rafstöð (helst Lister).
Tilboð sendist blaðinu, merkt: Þ.S. -412.