Tíminn - 17.04.1983, Page 27

Tíminn - 17.04.1983, Page 27
SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1983 —♦ ■» ^ " 1 .± ■ Þetta er þjónustumiðstöðin í Ferienpark Daun sumarhúsahverfinu. Þórey Einarsdóttir, blaðamaðurá Vikunni og Anders Hansen blaðamaður á Morgunblaðinu eru fremst á myndinni. ■ Hér sést yfir nokkur sumarhúsanna, en því miður var skyggni ekki það gott, að fallegt landslagið njóti sín sem skyldi á myndinni. Sumarhnsin í Ferienpark Daun slógu í gegn hjá blaðamönnum Nýr sumardvalarstaður, sem Flugleiðir bjóða upp á ferðir til í sumar ■ Þó svo að Bitburger Pilz brugghúsið dragi ferðamennina til borgarinnar, þá er ýmislegt annað hægt að gera sér til dundurs þar, ss. að skreppa í siglingu á Bitburger See, sem er reyndar stöðuvatn sem Bitburgerbúar bjuggu til fyrir nokkrum árum, og þá einkum með það í liuga að laða að sér ferðamenn. .Umhverfi Bitburg er einnig mjög aðlaðandi, og ábyggilega vel til göngu- ferða fallið. Stutt er til lítilla sveitaþorpa í kringum Bitburg, og hefur hvert þeirra um sig sinn ákveðna „sjarma." Þá býr Bitburg yfir talsverðu af sögulegum menjum, svo sem í bygg- ingarlist. Þar eru leifar Rómarmúrsins, kirkjan Liebfrauenkirche, sem er mjög falleg og ráðhús þeirra Bitburgbúa er fornt, en því er vel viðhaldið. I aðeins 5 kílómetra fjarlægð frá Bitburg er Otran, sem er rómversk villa frá 1. öld eftir Kristburð, og Bitburgbúar segja þegar þeir lýsa því sem þar er að finna: „Þarna má finna fallegar mósaík- myndir, sem sýna að þegar á fyrstu öld eftir Krist voru Rómverjar „gestir" okkar!“ Yfir ferðamannatímann, sem stendur frá því í maí og út október, þá eru einnig alls konar skemmtanir haldn- ar í Bitburg. Þeirra vinsælust og stærst er „Evrópulandamærasamkoman" sem er alþjóðleg þjóðlagahátíð, sem alltaf er sótt af gífurlegum fjölda fólks. Hátíð þessi er ávallt haldiri aðra helgina í júlímánuði. Þá syngja þúsundir manna og dansa . á götum úti í Bitburg, og teyga Bitburg Pilz óspart. Stutt frá Bitburg, nærri þorpinu Gond- orf er villidýragarður, þar sem landeig- endur úr því umhverfi hittast og skjóta dýrin. Þetta geta ferðamennirnir horft á, og dýr þau sem aðallega eru veidd þarna eru villisvín, hirtir, gemsur og steingeit- ur, en þeir sem heppnir eru, geta hugsanlega fylgst með bjarndýraveiðum. Þá má geta þess að hægt er að stunda útreiðar í Bitburg, leika tennis, fara á sjóbrettum á vatninu, og fleira og fleira. snyrtistofu, barbecuekofa, minigolfi o.fl. Hjá Sæmundi fengum við þær upplýs- ingar að verðlag er ntismunandi, eftir því á hvaða tíma ntaður vill leigja sér hús cða íbúð. Háannatíminn, frá 2. júlí til 2().ágúst er dýrastur. Þá kostar ein vika í stúdíó 630 mörk, ein vika í íbúð (miðað við 4) 770 mörk og vika í sumarhúsi á sama tíma 045 ntörk. 9. apríl til 2. júlí og 20,ágúst til 8. októbcr kostar dvölin í Ferienpark Daun mun minna, en í stúdíóíbúðunum sem eru 36 fermetrar kostar vikan þá 455 mörk í íbúðunum sem eru 50 fermctrar, 665 mörk og í sumarhúsunum sem eru 75 fermetrar 735 mörk. Innifalið í verði eru rúmföt, hand- klæði, borðbúnaður, aðgangur að inni- sundlaug, sauna, borðtennis, barnarúm, sjónvarp, sími og bílastæði. Aukalega greiðist fyrir rafmagn og hreingcrningu að lokinni dvöl. Þá sakar ekki að geta þess að sérstök leikstofa fyrir börnin er í þjónustumiðstöðihni, þar scm sérmenntaðar fóstrur annast börnin ef þess er óskað, en ekki vissi leiðsögumaður okkar í Daun, forstöðu- maður Ferienpark hvernig það myndi ganga fyrir þýskar fóstrurnar að gera sig skiljanlcgar við íslensku börnin sem að líkindum eiga eftir að dveljast þarna í sumar. Það er nú mín skoðun, að börn gcti fundið svo margt við sitt hæfi að gera í Daun, að það eigi ekki að þurfa að loka þau inni með þýskum fóstrom. Þeir sem vilja skoða sig ttm, og ferðast frá Ferienpark geta fundið sér ýmislegt að gera, svo sem að skcða ómældan fjölda fornra kastala, skreppa til Frankfurt, Kölnar, Bonn, Koblénz og Trier, ^vo einhverjar borgir séu nefndar, en allar þessar borgir eru í radíus sem er innan við 120 kílómetra frá Daun. Þetta er aðeins til þess að gefa ykkur lesendur góðir einhverja vísbendingu um hvað verður boðið upp á, á þessum nýja sumardvalarstað Flugleiða. ■ Þessi yfirlitsmynd af Daun sumarhúsasvæðinu ætti að gefa nokltuð góða mynd af skiplagningu svæðisins. Sumarhúsin dreifast út frá bogagötunni, en fyrir ofan eru stærri mannvirki eins og íþróttaaðstaðan, íbúðahúsin og þjónustumiðstöðin. Sumarhúsin í Daun heilludu okkur Er við kvöddum Bitburg og ókum sem leið lá í áttina til Cochem, sem átti samkvæmt áætlun að vera okkar næsti gististaður, þá fékk fararstjóri okkar héðan að heiman, Sæmundur Guðvins- son, fréttafulltrúi Flugleiða því svo fyrir- komið að við fengum að skoða sumar- húsadvalarstað, sem Flugleiðir munu nú í sumar selja aðgang að. Er þetta sumarhúsaþorp á mörkum Daun og Eifel og nefnist einfaldlega Ferienpark Daun. Er skemmst frá því að segja að við íslensku fréttamennirnir, og Sæ- mundur örugglega líka, vorum svo heill- uð af þessum sumarhúsakomplex, að Georg Ebeling, þýski fararstjórinn okk- ar þurfti næstum að beita okkur hörðu til þess að við fengjumst til þess að leggja af stað til Cochem. Ferienpark Daun virðist bjóða upp á allt það sem hugurinn getur girnst, þegar maður hugleiðir hvað mann langar að gera af sér í sumarfríi. Boðið er upp á þrenns konar gistingu í Daun. í fyrsta lagi í stúdíó-íbúðum, fyrireinn til tvo, í öðru lagi í íbúðum fyrir fjóra, og í þriðja lagi í stærri sumarhúsum, sem rúma a.m.k. fimm. Húsin eru einstaklega fallega innréttuð, auk þess sem þau standa mjög fallega. Það er hreint ótrú- legt hvað þetta svæði býður upp á varðandi alla skemmti- og íþrótta- aðstöðu. Þú getur leikið tennis innan dyra sem utan, synt í innilaug eða útilaug, lært reiðlistina, farið á veiðar, farið á skíði, synt í vatninu, farið þar á sjóskíðum, siglt, o.fl. o.fl. Þá ersauna á staðnum, borðtcnnis, sjónvarp og sími í hverri íbúð. Stór þjónustumiðstöð veitir þér alla þá þjónustu sem þig dreymir um, ss. matsölu, aðgang að bar, bjórstofu, ■ Innisundlaugin er bæði stór og björt. Eiríkur S. Eiríksson, blaðamaður Dags á Akureyri er með á í rrtr*9sp - rwT'fi . myndinni. ■ Tennishöllin, þar sem hægt er að leika innanhústennis er engin smásmíði enda margir vellir, sem ekki sjást á þessari mynd,. Tímamyndir - AB

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.