Tíminn - 14.08.1983, Blaðsíða 10

Tíminn - 14.08.1983, Blaðsíða 10
HÚN HEFUR SAUMAD PRESTA KRAGANA Í40ÁR Á heimili Jóns biskups Helgason- ar lærði ung vinnukona, Anna Kristmundsdóttir, þetta seinlega og vandasama verk ■ „ÞENNAN HÉRNA ÁTTI SÉRA ERLENDUR HEITINN í ODDA. HANN ER SAUMAÐUR ÚR „CAMBRIDGE,“ ENSKU EFNI, SEM NÚ ER EKKI LENGUR FÁANLEGT. JÁ, LÍKLEGA HEF ÉG SAUMAÐ ÞENNAN KRAGA Á SÍNUM TÍMA. ÞETTA EFNI VAR MIKLU FÍNNA OG BETRA EN LÉREFTIÐ SEM NÚ ER NOTAÐ, EN UM ANNAÐ EFNI ER EKKI AÐ RÆÐA.“ SÚ SEM HÉR TALAR ER FRÚ ANNA KRIST- MUNDSDÓTTIR, 75 ÁRA GÖMUL, SEM FRÁ ÞVÍ Á STRÍÐSÁRUNUM HEFUR SAUMAÐ PÍPU- KRAGANA Á ALLA ÍSLENSKA PRESTA. ÞESSA IÐN LÆRÐI HÚN SEM UNG STÚLKA OG HEFUR EIN KUNNAÐ LISTINA HÉR Á LANDI ÁRA- TUGUM SAMAN. EN HVAR LÆRÐI HÚN ÞETTA OG HVERS VEGNA FÓR HÚN AÐ LÆRA ÞETTA. ER HÚN KANNSKI PRESTSDÓTTIR? „Nei, ég er fædd noröur í Stranda- sýslu, í Goðdal í Bjarnarfirði og átti þar heima til 1937, þegar ég fluttist til Reykjavíkur og gerðist vinnukona hjá herra Jóni Helgasyni biskup, og hans ágætu konu Mörtu Maríu l lelgason að Tjarnargötu 26. Já, þetta var mikið gott fólk og vel tóku þau á móti ungri og fátækri stúlku sem aldrci hafði farið út fyrir sveit sína, þegar hún í fyrsta sinn hélt til höfuðstaðarins. Þarna voru fimm manns í heimili,' þvf dæturnar voru þá enn þá heima og ég vann þarna öll hússtörf og annaðist matseldina ásamt Þórhildi Helgason, dóttur hjónanna. Þarna var ég þar til þau hjónin létust, eða til 1948.“ Varö það á biskupsheimilinu scm þú læröir að sauina kragana? „Já, ég lærði það þar. Þá voru kragarn- ir innfluttir, en á stríðsárunum hættu þeir að fást og þá fór ég að læra þetta og naut hjálpar Þórhildar. Hún hafði þó aldrei saumað kragana sjálf, en hún hafði hins vegar hreinsað þá. Það er mikið og vandasamt verk. Kragarnir eru þvegnir, en svo þarf að strauja þá og stífa og til þess er notað alveg sérstakt stífelsi, sem ég lærði af Þórhildi að búa til. Hún lærði þetta í Kaupmannahöfn. Hérna sérðu efnin sem eru notuð í stífelsið. í það þarf svonefnt rísstífelsi og tvær tegundir af vaxi. Þetta er allt soðið saman og þá verður til stífelsið sem ég nota, - eða á að verða það, því stundum getur þetta misstekist, það er svo vanda- samt. Getur þú lýst því nánar hvernig kraginn er saumaöur? „Já, þó það nú væri. Ég nota í hann þrjár lengjur, sem hver er 1.80 mctrar á lengd, en einnig þarf í þetta sérstaka breidd af bendlum, til þess að nota í líningu. Því miður fást þeir bendlar ekki hér í búðum í réttri breidd, svo ég verð að fá þá annarsstaðar frá. Einnig þarf ég í þetta sérstaka teina. þeir eru úr kopar og systursonur minn hefur smíðað þá fyrir mig. Kragann strauja égþ.e. pífurn- ar, með sérstökum lóðbolta og meðan ég strauja nota ég sérstakt strekkibretti, sem kraginn er festur á. Jú, þetta er seinlegt vcrk. Það tekur einn dag að meðaltali að sauma kragann og þá er stífingin eftir, sem getur tekið 2-4 klukkutíma eftir atvikum." Hvaö kostar svona kragi, Anna? „Ég hef selt þá á 200 krónur. Já, það gctur vel verið að það þyki lítið í verðbólgunni, cn hvað ætli gamalt fólk geti líka verið að fylgjast með svoleiðis. Nei, ég sel þá auðvitað ekki hverjum sem er, því þetta er hluti af embættisbún- ingi. Svo endast þeir yfirleitt mjög lengi, allt of lengi, segi ég stundum. Samt eru það líklcga nokkur hundruð kragar sem ég er búin að sauma í áranna rás og auðvitað eiga sumir prestar nokkra kraga, þrjá eða fleiri. Þeir verða að vera í sérstökum stærðum, alvcg eins og skyrtukragar, því prestarnir cru auðvit- að misjafnlega hálsbreiðir. Þarna sérðu nokkra mjög litla kraga. Þeir eru handa kvenprestunum. Jú, mér finnst alveg sjálfsagt að það séu til kvenprestar. Erum við konurnar ekki að krefjast jafnréttis á öllum sviðum og hvers vegna þá ekki líka þarna? Ég hef saumað kragana í ýmsum breiddum og þarna er einn mjög breiður kragi sem ég gerði fyrir sjónvarpið, þegar þeir voru að mynda Jómfrú Ragnheiði." Hvert lá leið þín cftir aö þú fórst frá heimili Jón Helgasonar? „Þá fór ég að vinna á saumastofum og vann á þremur saumastofum, nær tíu ár á hverjum stað, því mér hefur alltaf þótt gaman að vinna og þótt heldur dauflegt eftir að ég hætti vegna heilsubrests fyrir 3 árurn. Síðast var ég hjá Model Maga- sín.“ En ekki saumar þú kragana að eilífu, verður farið aö flytja þá inn að nýju? „Nei, ég var oft búin að segja við þá prestana að ef þeir kæmu með einhvern eða einhverja sem vildi læra þetta af mér, þá skyldi ég kenna viðkomandi það. Nýlega kom svo til mín kona, Hcrdís Pálsdóttir, fósturdóttir séra Sveinbjarnar Sveinbjörnssonar í Hruna og viidi læra þessa sauma. Hún er nú byrjuð í námi hjá mér og gengur bara ágætlega." -AM. SUNNBDAGUR 14. AGUST 1983 ■ Fjórir kragar. sem Anna hefur saumað. Fremst til vinstri er kragi Brynjólfs biskups úr sjónvarpsgerð leikritsins Jómfrú Ragnheiður en til hægri við hann gamall kragi úr cnsku „cambridge". Að ofan eru þeir kragar sem prestar vorir bera (lestir nú. (Tímamynd G.E.) ■ Anna með léreftslengjurnar þrjar sem þarf i hvern (Tímamynd G.E.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.