Tíminn - 14.08.1983, Page 17

Tíminn - 14.08.1983, Page 17
SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1983 17 kristna trú og sannfæring mín. Eg hataði aldrei fangaverði mína, og nú óska ég þess í bænum mínum að þeir fái að iðrast gjörða sinna. Einu sinni tókst mér að komast yfir litla Biblíu, en hermenn fundu hana fljótlega og rifu hana í tætlur í ofsareiði. í ágúst 1974 var ég enn á ný kominn í La Cabana fangelsið. Þá voru fangar þar sviptir fæði í 46 daga. Þegar það tímabil var á enda runnið gat ég, og fimm aðrir fangar, aðeins farið ferða minna í hjólastól. Beiðni okkar um læknishjálp var ekki sinnt árum saman. Árið 1976 gáfu kúbönsk yfirvöld mannréttindasamtökunum Amnesti Int- ernational þær upplýsingar að ég þjáðist af hörgulsjúkdómi vegna taugabilunar og ætti erfitt með að hreyfa hendur og fætur af þeim sökum. í meira en fjögur ár varð enginn árangur af viðleitni minni til að afla læknishjálpar eða annarrar aðstoðar. ENDURHÆFING HAFIN Árið 1979 sneri Kastró hins vegar við blaðinu og lýsti því yfir að hann ætlaði að létta nokkrum föngum vistina. Farið var með mig á venjulegt sjúkrahús þar sem endurhæfing mín var hafin. Um það leyti kom út á frönsku bók mín Fangi Kastrós og þá var ákveðið að hætta meðferðinni á sjúkrahúsinu. Ég var sendur í fangelsi á ný, í þetta sinn í Combinadi del Este, þar sem ég dvaldi þangað til ég var látinn laus í fyrra. í apríl 1981 fluttu hermenn mig í sérstakan refsiklefa, /as œldas de castigo, cn í honum voru þá 67 manns sem höfðu verið dæmdir til dauða, ýmist fyrir glæpaverk eða af pólitískum ástæðum. Ég sá unga menn og verkamenn leidda til aftöku fyrir það eitt að hafa með friðsamlegum hætti látið í ljós andúð á stjórninni. Fjórum mánuðum síðar voru aðeins 13 af þessuni 67 föngum enn á lífi. í ágúst var búið að byggja sérstakan klefa þar sem ég var hafður í algjörri einangrun. Veggirnir voru málaðir mjallahvítir og loftið einnig, og þar uppi var komið fyrir tíu Ijóskösturum sem alltaf var kveikt á. Þessi skæru ljós í klefanunt hafa valdið skemmdum á sjón minni. Við hliðina á klefa mínum var leikfimisalur með öllum venjulegum endurhæfingartækjum. Ég var nú látinn æfa mig af kappi og ekkert slakað á, en undir ströngu eftirliti. Yfirvöld höfðu þá þegar í huga að láta mig lausan, en ætluðu fyrst að afmá öll merki um þá harðneskju sem ég hafði verið beittur á meðan á fangavistinni stóð. Kastró hafði sjálfur sagt við marga sendiherra og stjórnmála- menn, er áhuga höfðu á máli mínu, að ég mundi ekki fara frá Kúbu fyrr en ég gæti gengið á eigin fótum. Liðsforingjarnir í öryggislögreglunni sögðu mér að ég væri eini fanginn sem ekki gæti yfirgefið landið í hjólastól. Margir aðrir fangar höfðu fengið að fara burt þannig á sig komnir, og tveir slíkir, sem enn eru lamaðir, búa nú í Bandaríkjunum. VALLADARES ENDURHEIMTIR MÁTT Smám saman endurheimti ég mátt í fótleggina. Ég fékk fæði sem skortur var á, mjólkurlítra á hverjum degi, mikið kjöt, ávexti, grænmeti, og fjörefni. Að nokkrum mánuðum liðnum gat ég gengið á milli grindanna, fyrst hægt og haltrandi, en síðar af meiri hraða og festu. Þannig var líkamlegt ástand mitt mánuðum saman. Fangaverðir neituðu mér um að ganga utan veggja endurhæfingarsalarins. Ég komst að því seinna að þeir vildu halda endurhæfingu minni fullkomlega leyndri. Þeir sáu fyrir sér hvílíkt áróðursbragð það yrði þegar ég kæmi úr fangelsi og þyrfti ekki á hjólastól að halda eins og flestir áttu von á. Um þær mundir hvarflaði hins vegar ekki að mér að endurhæfingin væri aðdragandi að því að ég yrði látinn laus. Ég var í algerri einangrun. Ég hélt að framkoman við mig væri liður í viðleitni stjórnvalda til að halda aftur af mótmælahreyfingu sem krafðist þess að ég fengi læknishjálp. í hverri einustu viku kom fulltrúi frá öryggislögreglunni á fund minn og reyndi að sannfæra mig um að allir hefðu brugðist mér, og meira að segja fjölskylda mín vildi búa áfram á Kúbu. Ég trúði ekki einu einasta orði af þessum málflutningi, en ég hafði heldur ekki hugmynd um hve öflug og umfangsmikil baráttan utan fanga- veggjanna fyrri frelsi mínu var orðin. Meðferðin hélt áfram. En að loknum hverjum endurhæfmgar- tíma varð ég samt enn að setjast í hjólastólinn til að komast í klefann minn eða á salerni. REYNT AÐ FLEKKA MANNORÐ VALLADARESAR UTAN KÚBU Stjórnvöld á Kúbu höfðu þegar reynt að flekka mannorð mitt erlendis með því að sýna falsað kort þar sem fram kom að ég hefði verið starfsmaður öryggislögreglu Batista, og gefið var í skyn að ég hefði þá pyntað fólk. Þegar ég var látinn laus ■ Teikning sem Valladares gerði meðan á fangavist hans stóð. TRÚHNEIGÐIR OFSÓTTIR I Combinado del Este sá ég cinnig fjóra Votta Jehóva, sem líklega eru þar enn. Á Kúbu hefur mörgum kirkjum kaþólikka vcrið lokað og hefð- bundnar guðsþjónustur bannaðar. Menn geta varla fagnað jólunum, og jafnvel lítil jólatré eru litin hornauga sem vottur um gagnbyltingarhugar- far. Aðcins örfáir, og þá oftast eldra fólk, taka þá áhættu að sækja guðsþjónustur. Ungt fólk sem þær sækir fær á sig stimpilinn „óvinir byltingarinn- ar" og á á hættu að vera.rekið úr skóla. Ég hitti mann í fangclsinu sem dæmdur hafði vcrið í sex ára fangavist fýrir að skrifa upp kafla úr Biblíu fyrir vini sína og samstarfsmenn. Á Kúbu er mjög erfitt aö vcrða sér út um Heilaga ritningu. Einu sinni fluttu nokkrir prestar frá Jamaíka cintök af Biblíunni til Kúbu. Þær voru teknar af þeim og ekið til verksmiðju sem endurvinnur úrgangspappír. Einu sinni þegar José María Rivera Díaz, scm cr mótmælcndatrúar og fyrrum ráðherra, var staðinn að því að lesa litla Biblíu sem smyglað hafði verið inn í klefa hans, var hann barinn á hrottalegan hátt af forstjóra fangelsisins og öðrum yfirmönnum þess. Þegar þcir fóru frá honum lá hann í blóði sínu. Jafnvcl þcgar verið cr að leiða fanga fyrir aftökusvcit fá þcir ekki fyrst að tala við prest. NÁKVÆMT EFTIRLIT MEÐ FJÖLSKYLDUM FANGA Nánir ættingjar fanga hafa ekki leyfi til að koma einum eða öðrum óskum um aðbúnað þeirra á framfæri við yfirvöld. Ef þcir fara að forvitnast kemur öryggislögreglan í heimsókn, og þeim er sagt að óheimilt sé að spyrjast fyrir um heimsókn- ir til fanga. Þeim er heldur ekki leyft að hitta fjölskyldur annarra fanga. Ef þrír eða flciri ættingjar pólitísks fanga koma saman gcta þeir átt von á að verða ákærðir fyrir samsæri. Nákvæmt eftirlit er haft með fjölskyldum fanga. í maí 1979 var fjölskyldu minni neitað um leyfi til að fara frá Kúbu og svili minn missti vinnuna. Ástæðan var sú að ég neitaði að skrifa undir bréf þar sem stóð að ég væri ekki höfundur ljóða minna og fordæmdi útgefendur og aðra þá sem fjallað höfðu um fangclsisvist mína erlendis. Vinum mínum og ættingjum var bannað að heimsækja mig. MÓÐIR OG SYSTIR VALLADARESAR OFSÓTTAR Öryggislögreglan hafði í hótunum við móður mína - háaldraða - og systur. Dag nokkurn þröngvuðu þeir móður minni til að skrifa undir skjal þar sem stóð að ég væri óvinur alþýðunnar og að ég verðskuldaði einangrun og annan slíkan aðbúnað í fangelsinu, og ætti að vera byltingar- mönnum þakklátur. Móðir mín skrifaði undir til að forða því að systir mín yrði einnig dæmd til fangavistar. ) W, irrn ■ V 1 \-T «... TTT r i rr~i i ■ í .1 1 ... .... It' i t L L-J. L1 ’, 1 TTi i 1 » f ] írpr 1 l • K ■ " T7- J í 1.. ' T i • fi * < • J » Íl:é '1 : ‘ ■' r— 1 £(*’1 I 1 t V . ! L i T i r ' [f'ii- 7 V ' «rrr-t ‘r— .X —A,,,. ...X, ... >w.. ■ Horft á fugla fljúga frjálsa úr fangagarði. Teikning eftir Valladares, gerð í fangclsi. átti ég auðvelt með að sýna fram á að þetta sönnunargagn var einskis virði. Ef ég hefði verið einn af pyntingamönnum öryggislögreglunnar hefði ég verið tekinn af lífi eða hnepptur í varðhald strax og byltingarmenn náðu völdum. í stað þess hlaut ég stöðuhækkun í upplýsingamálæ ráðuneytinu, og var orðinn fullgildur starfsmaður þegar ég var handtekinn. ORLOG ROBERTO Á Kúbu er ungt fólk og ófullveðja sent í fangabúðir fyrir afbrot sem í fæstum löndum er tilefni fangelsisdóms. í Combinado del Este fangelsinu hitti ég tólf ára gamlan dreng, Roberto að nafni. Á nóttunni heyrði ég hann gráta og kalla á móður sína. Til að þagga niður í honum skvettu verðirnir á hann köldu vatni eða hentu í hann flöskum, og stundum hýddu þeir hann með reipi. Afbrot Robertos var ekki merkilegt. Eitt sinn þegar hann var á gangi sá hann byssu liggja í sæti bifreiðar sem háttsettur embættismaður í innan- ríkisráðuneytinu átti. Hann tók byssuna og skaut úr henni upp í loft til að vera sniðugur. Þegar Roberto kom í fangelsið var hann settur með venjulegum afbrotamönnum. Nokkrum dögum seinna varð að fara með hann á sjúkrahús því fjórir fangar höfðu tekið sig saman um að nauðga honum. Þegar hann kom aftur var litið á hann sem kynvilling og hann var sendur í þá deild fangelsisins sem vistaði samkynshneigt fólk. Margoft aftur varð hann að fara á sjúkrahús vegna kynsjúkdóma. Á Kúbu eru margir hans líkar. Systir mín var margsinnis yfirheyrð og varð að búa við sífelldar hótanir. Einu sinni kom liðsfor- ingi á heimili hennar og sýndi henni dómsskjal þar sem stóð að hún hefði verið dæmd í tólf ára fangelsi. Systir mín hafði ekki sætt neinni ákæru og aldrei verið leidd fyrir rétt. Liðsforinginn skipaði henni að koma mcð sér í kvennafangelsi. Eftir tólf stunda stapp var henni sagt að eftir væri að ganga frá nokkrum formsatriðum og hún gæti farið heint á meðan og beðið þar. Yfirvöld vonuðu að nteð hótunum af þessu tagi gætu þeir skclft fjölskyldu mína. Þeim tókst það líka. Systir mín er núna í Bandaríkjunum og verður að sæta þar meðferð geðlækna. HÆGT AÐ SÝNA SKÁLDIÐ Viku áður en ég yfirgaf Kúbu var farið með mig á fund dr. Alvarez Cambra í höfuðstöðvum öryggislögrcglunnar, en hann hafði yfirumsjón með endurhæfingu minni. Það var Cambra sem hafði látið þau orð falla í viðtölum við tímarit að færustu sérfræðingar á Kúbu hefðu rannsakað mig og komist að því að ég þjáðist af hörgulsjúkdómi vegna taugabilunar. Farið var með mig á íþrótta- leikvang og Cambra gerði mér grein fyrir því að innan mjög skamms tíma mundi ég geta gengið óstuddur og ég yrði að venja ntig á það. í heila viku voru þrotlausar æfingar þar sem ég var látinn ganga upp og niður stiga, þjálfa mig í leikfimisaln- um og jafnvel fara í gönguferðir í mikilli hita- svækju. Loks var mcðfcrðinni lokið og nú gátu yfirvöld á Kúbu sýnt öllum heiminum mig. Farið var nteö mig um borð í flugvél sem flaug til Parísar. En ráðabrugg Kúbustjórnar með endurhæfingu mína heppnaöist ekki. Strax og ég var frjáls greindi ég frá því að ástæðan fyrir þvi að ég væri ekki lengur í hjólastól væri sú aö ég hefði á endanum hlotið þá læknishjálp sem beðið haföi verið um. HÓTANIR Frá því í dcsember á síðasta ári hafa mér borist margar nafnlausar hótanir, en þær breyta í engu þeirri staðföstu ætlun minni að afhjúpa grimmdar- verk stjórnarinnar á Kúbu. Þegar ég var staddur í París var hringt í mig og maður sem kvaðst starfa í kúbanska sendiráðinu þar hcimtaði að fá að hitta mig vegna þess að hann hefði í fórum sínuni „sönnunargögn" sent mundu verða gerð opinber ef ég hætti ekki „gagnbyltingarstarfi" mínu. Svar mitt varö til þess að liann lagði á. Nokkru síðar var hringt og því hótað að kvikmynd sem tekin var af mér viö æfingar yrði sýnd opinberlega. Ég býsl við að þeir hafi verið að vonast til að gcta þaggaö niður frásagnir mínar um lömunina. Loks skrifaöi Fídel Kastró Georges Marehais formanni franska kommúnistaflokksins brcf þar sem hann staðhæfði aö ég væri moröingi og hótaði að birta sannanir fyrir því. Ég hvatti Kastró til þess opinbcrlcga að birta þessi sönnunargögn. Ég hcf ckkcrt að óttast. ANDÓF ER AÐ HEFJAST ÁKÚBU Almenningur á Kúbu er smám saman að vakna til vitundar um ástandið. Þúsundir vcrkamanna eru byrjaðir að skipuleggja óháð verkalýðsfélög. Nýlcga voru fimm andspyrnumcnn í verkalýðs- hrcyfingunni dæmdir til dauða og lífi þeirra var aðcins þyrmt vcgna alþjóðlcgra mótmæla. Tugir verkamanna hafa verið scndir til fangavistar, og ellcfu vcrkamcnn ciga von á dauðadómi fyrir að brenna uppskcru sína fremur en sclja hana yfirvöldum á málamyndarverði. Hundruö • samlanda minna eru geymdir bak við lás og slá vcgna þess að þeir ncita að fallast á „pólitíska cndurhæfingu". Árum saman hefur þctta fólk lifað klæðalítið, án læknisaðstoðar, án heimsókna cða annarra samskipta við fólk utan fangelsisveggja. Amnesti International og mann- réttindanefnd Samtaka Ameríkuríkja hafa tekið málstað þcssa fólks en fá ekki við ráðið. Nýlega hef ég haft frcgnir af hefndaraðgerðum gcgn mörgum kúbönskum menntamönnum sem árum saman hafa dvalist í fangelsum eða í vinnubúðum. í lok maí var Andrés Vargas Gómcz, skáld fyrrum sendifulltrúi - sonarsonur Máxímo Gómczar lciðtoga sjálfstæðisbaráttunnar á Kúbu - látinn laus úr fangelsi illa á sig kominn. Hann hafði hlotið mjög slæma meðferð og var sagt að hann fengi aldrei að yfirgefa landið. Sömu sögu cr að segja af framkomu yfirvalda við skáldið Angel Cuadra, sósíalistann Ricardo Bofill, fé- lagsfræðinginn Enrique Hernández, stærðfræðing- inn Adolfo Rivero og marga fleiri. Ríkisstjóminni á Kúbu hefur tekist að framfylgja kúgunaraðgerðum sínum árum saman; hún hefur pyntað andófsmenn og grafið þá afskiptalaust. Nú þegar kommúnistar hafa farið með völd á Kúbu í aldarfjórðung er ekki lengur hægt að áfsaka glæpi þeirra með tali um byrjunarerfiðleika stjórnskipunarinnar. Engin heimspeki og engin tákn geta réttlætt að Kastróismi fái óáreittur að drepa óvini sína.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.