Tíminn - 05.06.1983, Side 8

Tíminn - 05.06.1983, Side 8
I 8 Útgefandi: Framsoknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elias Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Odður V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Guðmundur Magnússon, Heiður Helgadóftir, Jón Guðni Kristjánsson, Kristin Leif sdóttir, Samuel Örn Erlingsson (iþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir. Útiitsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir, Sigurður Jónsson. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86392. Verð í lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 210.00. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent hf. Sjómanna- dagurinn ■ Sjávarútvegur er áhættusamur atvinnuvegur. Þaö er sjaldan á vísan að róa hvað aflabrögð snertir og vinnu- umhverfi sjómanna er oft óblítt á norðurslóðum og krefst sinna fórna. En sjóinn verður að sækja og afli að berast á land því ella verður ekki Iifað á íslandi. Það eru margtuggin sannindi að sjósókn er undirstöðu- atvinnuvegur íslensku þjóðarinnar. Lífskjör allra lands- manna byggjast á aflabrögðum. Það eru ekki einvörðungu hagsmunamál sjómanna og útgerðarmanna að vel veiðist. Það njóta allir góðs af miklum afla og sömuleiðis verður minna til skiptanna þegar illa gengur á sjó. Þessu finna íslendingar áþreifanlega fyrir um þessar mundir. A síöasta ári veiddist engin loðna, sem um mörg undangengin ár var mikil búbót og loðnuafurðir umtals- verð útflutningsafurð. Jafnframt fór þorskafli þverrandi. Af þessum sökum komu upp alvarleg efnahagsvandamál, sem ekki verða leyst með öðru móti en að skerða lífskjör allra landsmanna. Vetrarvertíð í ár var léleg í flestum verstöðvum og síst bætir það úr þeim vandræðum sem fyrir voru. Það segir fljótt til sín á öllum sviðum þjóðlífsins þegar afli bregst eða minnkar. Útflutningur dregst saman, viðskiptajöfnuður verður óhagstæður, gjaideyrir verður af skornum skammti. Atvinna dregst saman, fyrst hjá þeinr er við fiskvinnslu starfa og síðan á öðrum sviðum og framkvæmdir dragast saman. Á sama hátt færist fjörkippur í allt efnahagslífið þegar afli glæðist. Þá hækkar ekki aðeins hlutur sjómanna heldur er óhætt að segja að hlutur okkar allra fari batnandi. Oft er því haldið fram, að óhæft sé að treysta á einhæfan og stopulan atvinnuveg og að skjóta beri stoðum undir fjölbreyttara atvinnulíf. Mikið er til í því, en þótt hér rísi stóriðjufyrirtæki og smærri iðnaðarfyrirtæki þá er og verður sjávarútvegurinn höfuðatvinnuvegur íslendinga. Það hefur líka sýnt sig, að marglofuð stóriðja getur verið stopul og brugðið til beggja vona um afraksturinn af henni ekki síður en af útgerðinni. Sjómannastéttin er tiltölulega fámenn sé miðað við öll þau störf sem unnin eru í þjóðfélaginu. En skipin eru þeim mun betur mönnuð. Það hefur löngum verið harðsótt sókn á íslandsmið og er það enn. Skip hafa stækkað og veiðitækni fleygt fram og aðbúnaður um borð er orðinn miklu betri en áður var. En vetrarveðrin á miðunum eru hin sömu og áður fyrr, og það er ekki fyrir neinar liðleskjur að sækja björgina í Ægisfang. Því er það, að þeir einir sem hafa dug og kjark ílengjast á sjónum. Það er eðlilegt að miklu sé kostað til sjávarútvegsins. Endurnýja veröur flotann skipulega og sjómenn eiga kröfu á að skip þeirra séu eins góð og kostur er á og aðbúnaður og vinnuaðstaða samkvæmt ströngustu kröfum. Það er óþarfi að sjá eftir því fjármagni sem fer í uppbyggingu flotans, því það skilar sér margfaldlega aftur sé á heildina litið, þótt benda megi á mörg dæmi um miður grundaða fjárfestingu í sjávarútvegi. En hún er miklu víðar en þar, sé betur að gáð. Auk fiskiskipaflotans eiga íslendingar mörg og góð kaupskip og eru sjálfum sér nægir með flutninga frá landinu og til. Það er mikilvægasta líftaug okkar til umheimsins og hefur löngum ráðið úrslitum um sjálfstæði þjóðarinnar. Sá hluti sjómannastéttarinnar sem á þeim flota starfar vinnur einnig mikilsverð störf fyrir þjóðar- heildina og er ómissandi hlekkur í atvinnu- og framleiðslu keðjunni. Sjómönnum eru og færðar þakkir fyrir störf þeirra og óskað allra heilla á sjómannadaginn, og íslensku þjóðinni óskað til hamingju með sjómannastétt sína. oó. „Við erum í álögum ógnarjafnvægisins” • • A.LDREI í SÖGUNNI HAFA MANNSLÍFIN VER- IÐ METIN JAFN LÍTILS OG Á ÞESSARI ÖLD. Hundruð þúsunda Armena í Tyrklandi 1915. Skotgrafir og eiturgas fyrri heimsstyrjaldarinnar, sem hrifu á brott heila kynslóð ungra manna. Ógnartími Stalíns, sem kostaði milljónir Iífið. Seinni heimsstyrjöldin, sem kostaði meir en fimmtíu milljónir manna lífið, þar á meðal sex milljónir Gyðinga, tuttugu niilljónir Rússa og hundruð þúsunda Sígauna. Ótal fórnarlömb, sem nýlendustyrjaldirnar kröfðust að seinni heimsstyrjöldinni lokinni, þegar nýlendurnar börðust fyrir sjálfstæði. Borgara- styrjöldin í Kína. Tvær til þrjár milljónir létu iífið í styrjöldinni í Kóreu. Hundruð þúsunda fórnarlamba í „violencia" í Kólumbíu. Fjöldamorð í Alsír. Milljónir fallinna í Indókína. Hundruð þúsunda fórnarlamba kommúnista í Kambódíu. Og morðöldurnar í Úganda. Og „rauða skelfing- in“ í Eþíópíu. Og þá höfum við ekki minnst á þær milljónir manna, sem ekki hafa fallið fyrir vopnum, heldur vegna óréttlætis í skiptingu valds og velferðar. En nútímatæknin getur gert allt þetta að smámunum á nokkrum klukkustund- um. Hvers eigum við að vænta það sem eftir er af þessari öld?“ Þetta er kafli úr bók, sem kom út hér á landi fyrir fáeinum dögum. Hún nefnist „Kirkja og kjarnorkuvígbúnaður - Friðarumræðan af sjónarhóli kirkju og kristinna safnaða", og er þýðing á bók, sem kom út árið 1979 á vegum Samkirkjulega friðarráðsins í Hollandi. í henni er margt forvitnilegt ekki bara um vígbúnaðarkapphlaupið og kjarnorkuvopnin, heldur líka um hina siðfræðilegu afstöðu kristinna manna til þeirrar ógnar við tilveru mannkynsins, sem hangir yfir okkur öllum í formi kjarnorkuvopna. Hollenska kirkjan þurfti þegar á árum HEIMSSTYRJALDARINNAR SÍÐARI AÐ TAKA AF- STÖÐU TIL PÓLITÍSKRA MÁLEFNA. Um það segir m.a. í bókinni: „Þetta framlag til umræðunnar um kjarnorkuvopnin (þ.e. bókinjer framhald þeirrar umræðu, sem kalvínska kirkjan í Hollandi hefur reynt að halda uppi allt frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Á þann hátt leitast hún við að vera kirkja, sem lætur sig mikilvægustu vandamál samtímans varða. Árin 1933-1945 opnuðust augu okkar fyrir einkennum guðlausra valda. Þá laukst upp fyrir mörgum, hvað traustið á vonina um guðsríki getur þýtt. Næstu ár á eftir var oft fjallað um stríð og frið, en síðan vaknaði spurningin um gereyðingar- vopnin. Tvö orð vísa til skelfinga þessara tíma: Auschwitz og Hírósíma. Auschwitz er tákn einnar þjóðar - gyðingaþjóðar- innar - sem markvisst var unnið að útrýmingu á, en nasistar töldu einnig aðrar þjóðir og þjóðarbrot til óæðri kynstofna og leituðust við að útrýma þeim skipulega. Hírósíma er tákn hömlulausrar útrýmingar á óbreyttum borgurum en útrýming af því tagi varð eðlilegur liður í gangi stríðsins þegar á leið. Hvort tveggja leiðir í Ijós ótrúlega fyrirlitningu á mannlegu lífi. Og bæði sýna þessi tákn, hversu langt mennirnir geta og leyfa sér að ganga. Það er ekki með nokkru móti hægt að ímynda sér allt það sem mennirnir gerðu hverjir öðrum á þessum árum, og því kann sú freisting að gera vart við sig, að setja þessa óhugnanlegu atburði innan sviga í mannkynssögunni sem óvenjulega atburði, er manninum séu framandi. En það er óhugsandi; fyrst og fremst vegna þess að fórnarlömbin voru venjulegt fólk, það var venjulegt fólk sem vann ódæðisverkin og venjulegt fólk, sem fylgdist með þeim. Ungu kynslóðinni reynist einkum erfitt að skilja þetta, en á meðal okkar eru enn margir sjónarvottar. Framvinda sögunnar eftir 1945 gefur ekki tilefni til að álíta, að Hírósíma og Auschwitz heyri fortíðinni til. í rúma þrjá áratugi hefur öryggi okkar hvílt á gereyðingar- mættj og ógnunum." Og af reynslunni hefur kirkjan í Hollandi dregið sínar ályktanir, eða svo vitnað sé til bókarinnar á öðrum stað: „Á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar leiddu árekstrar við ■nasismann af sér nýja meðvitund innan kirkjunnar- mismikla eftir aðstæðum - um það, að pólitísk ábyrgð og andleg ábyrgð verða ekki ætíð auðveldlega aðgreindar. Þegar við lítum aftur til þessara tíma finnst okkur það svo sjálfsagt að kirkjan léti pólitísk málefni til sín taka, að maður getur ekki annað en lesið um það með hryllingi, að leiðtogar kirkjuþings kalvínsku kirkjunnar í Hollandi sinntu ekki beiðni, sem þeim barst á fjórða áratugnum, um að mótmæla gyðingaofsóknum í Þýskalandi. Nú hefur hún lært sína lexíu. Hver einasti predikari og sérhver prestur lærði þá lexíu á stríðsárunum, að þær aðstæður geta myndast að hin trúarlega ábyrgð hlýtur að koma fram í pólitískri virkni“. s I BÓKINNI ER FJALLAÐ NOKKUÐ ÍTARLEGA UM VÍGBÚNAÐARKAPPHLAUPIÐ SÍÐUSTU ÁRATUG- INA FRÁ ÝMSUM HLIÐUM. Einnig er gerð grein fyrir því, hvað af notkun kjarnorkuvopna leiðir. Þetta eru auðvitað upplýsingar, sem víða liggja fyrir, en þeim er þarna komið fyrir í stuttu og aðgengilegu máli. Minnt er á það, að nú eru minnst 40 þúsund kjarnavopn í heiminum, og heildareyðing- armáttur þeirra er um 1.2. milljón sinnum sprengiafl Híró- símasprengjunnar. Sprengjurnar sjálfar eru sennilega fleiri en 50 þúsund. „í kjarnavopnaverksmiðjunum er unnið af kappi. í Bandaríkjunum bætast 3 kjarnasprengjur við daglega. Bandaríkin eru að hrinda metnaðarfyllstu kjarnorkuvopnaá- ætlun sinni í 20 ár í framkvæmd. Sovétríkin leggja sífellt drög að fleiri vopnakerfum. SALT og aðrir sáttmálar hafa ekki bundið enda.á áframhaldandi þróun og fullkomnun gereyðing- arvopnanna", segir þar. Um vígbúnaðarkapphlaupið segir m.a.: „Nýjungarnar eru oft á tíðum afleiðingar framfara í cigin tæknikunnáttu fremur en viðbrögð við nýjustu gerðum andstæðingsins, jafnvel þótt háttalag hans sé alltaf látið réttlæta eigið framtak. Það segir því öðru fremur eitthvað um ameríska tæknikunnáttu að Bandaríkin hafa verið fyrri til með nær allar mikilvægar nýjungar. Stóri vandinn - og hér rekumst við á enn eitt lögmál vígbúnaðarkapphlaupsins - felst í því, að það tekur 7-15 ár að þróa og framleiða nýtt vopnakerfi. Bíði annar aðilinn eftir því að hinn sé búinn að koma sér upp sams konar kerfi, hefur hann þegar dregist mörg ár aftur úr'. Aukin tæknikunnátta og hæfni eigin vísindamanna ýtir líka á eftir nýjum landvinning- um í vígbúnaði. Á þeirri stundu, sem smíði nýs vopns er lokið, er það tæknilega löngu orðið úrelt.Jafnframt rekur löngunin til að ná andstæðingnum eða fara fram úr honum á eftir tækniþróuninni, og þar með lokast vítahringurinn. Rökin eru ekki bara: annars verður andstæðingurinn fyrri til, heldur líka: við verðum að gera okkur í hugarlund, hvað andstæð- ingnum gæti dottið í hug, og byrja svo að vinna að því. Stóru vopnaframleiðendurnir hafa sérstakar deildir til þess arna. Með því að smíða eitthvað nýtt sýna þeir, að þetta gætu Rússarnir hugsanlega líka gert, og sanna þar með um leið nauðsyn nýjungarinnar." Hér er birt yfirlit úr bókinni um helstu tækninýjungar í vígbúnaði frá árinu 1945 og hvenær hvort risaveldanna um sig náði tökum á þeirri tækni. Yfirlit um helstu tækninýjungar í vígbún- aðinum: Hnndnrikin Sovétrikui kjarmirku>prcn«ya i<n.\ 1949 \ rtnissprrnwja 1 952 I95.Í l.anj'(lra,«:ar >prcn«yu!lii‘:vclar I9öl 1956 U,i}'inlr«ia lú.vll Lanjidra-'iar landcldllaujiar I9.'>7 1057 kjarmirkukalliatar i‘r>4 1058 l.aiifidra-}: kafliátacldflau;: I'WiO I96t MK\ i>já «:rcin 2 aA ulani I‘Xf) l<K>H (ia«'ncldflau«'akcrfi io::> I96>9 MIKN isja •'rcin 2» l‘)7U 1975 Nilh*inda>prcn«ya (>«*nnilc«:ai l'IHtl M\K\ i a tilrauna>ti«:ii K)KS i>ja licr aA nctVini pmfaA l‘X>6-107 1 ■ MRV=I1eiri en einn kjarnaoddur á hverri eldflaug. MIRV=kjarnaoddarnir á sömu eldflaug eyða mismunandi skotmörkum. MARV=hver kjamaoddur er stýranlegur. FOBS=vopn sem eru send á braut um jörðu og sem hægt er að beina gegn skotmarki á jörðu áður en fyrstu umferð er lokið. Bönnuð skv. SALTII samningnum. Hvaða ályktanir draga SVO HOLLENSKIR KIRKJUNNAR MENN AF VÍGBÚNAÐARKAPP- HLAUPINU? Þær eru auðvitað margar, en látum hér nægja eina tilvitnun úr bókinni í viðbót: „Fyrsta ályktunin er sú, að áhrif ógnarjafnvægisins á líf okkar séu mun meiri en þorri manna hefur hugboð um. Við erum í álögum þess. Áhrif þess á fjölmörg svið lífs okkar munu ekki þverra, því það hefur í sér fólgna skýlausa kröfu um vald sjálfu sér til handa: það er ekki um neitt að velja, það grillir ekki í neina aðra leið til þess að tryggja öryggi. Þarfir kerfisins eru óþrjótandi vegna þess, að grundvöllur þess er óttinn. Og samkvæmt Hebreabréfinu dæmir óttinn manninn til ævilangr- ar þrælkunar. Önnur ályktunin er á þá leið, að aðeins verði sigrast á þessu „samfélagi óttans" - en þannig er komist að orði um ógnarjafnvægið í „áliti“ kirkjunnar frá 1962 - með því að bjóða því birginn með samfélagi hugrekkisins, sem hefur losað sig undan lögmáli kerfisins". Sem þýðir með öðrum orðum hvatningu til virkrar baráttu. -ESJ Elías Snæland Jónsson, ritstjóri, skrifar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.