Tíminn - 23.10.1983, Síða 26
■ Verðlaununum fagnað í Gdansk.
Snemma að morgni þann 12. október sl.
hélt Lech Walesa heiman að frá sér í Gdansk
í þeim tiigangi að renna ffyrir fisk og tína
sveppi. Hann iést ekki heyra köli konu sinnar
sem sagði honum að það væri maður í
símanum með áríðandi skilaboð, heldur fflýtti
hann sér upp í hvita Volksvagninn sinn.
Tveimur stundum síðar höffðu erlendir frétta-
ritarar, sem sitja um „Samstöðu“-leiðtogann
uppi á honum og ffærðu honum fréttirnar:
„Hann haffði fengið friðarverðlaun Nóbels
1983“. Þegar fagnandi vinir söfnuðust í kring
um hann gerðist það að þessum manni sem
haffði haldið ræður klukkustundum saman
ffyrir verkfallsmenn varð orða vant: „Nú, þegar
ég veit að þetta er sannieikur, þá veit ég
ekkert hvað ég á að segja,“ stamaði hann.
Þessi verðlaunaveiting til Walesa varð
ómetanlegur stuðningur fyrir „Sam-
stöðu“-forystuna og óteljandi Pólverja
sem voru orðnir kjarklitlir og svartsýnir
eftir langvarandi herlög. Þetta kom sem
reiðarslag yfir stjórnina í Póllandi og
höfðingjana í Kreml. Á sama tíma og
pólsk yfirvöld gerðu hvað þau gátu til
þess að dreifa óhróðri um Walesa, þá
urðu forsendurnar sem gefnar voru fyrir
verðlaunaveitingunni, “ - miklar
persónulegar fórnir í þágu þess að pólsk-
ir verkamenn mættu hafa með sér frjáls
samtök," ótvíræð viðurkenning á að-
ferðum og stefnumiðum „Samstöðu".
Ekki er þó líklegt að verðlaunaveiting-
in muni verða til þess að frelsi „Sam-
stöðu“ til athafna verði aukið. Líklega
mun Walesa sjálfur verða í minni hættu
fyrir handtökum og hrellingum. En það
er eins víst að stjórnin muni beita sér af
meiri hörku en fyrr gegn öllum aðgerð-
um áf hálfu fylgjenda frjálsra verkalýðs-
samtaka. Sumir Pólverjar segja meira að
segja að verðlaunin skipti minna máli
nú, en ef þau hefðu komið fyrr. Hefðu
þau komið 1981 eða 1982, þegar Walesa
kom einnig til álita, þá hefði hann
líklega haft sterkari stöðu í samningum
við stjórnvöldin.
Heillaóskir úr öllum
áttum
En þessar bölsýnu athugasemdir
hljóðnuðu í kjölfar þess mikla fjölda
heillaóska sem nú streymdi að úr öllum
áttum. Páll páfi annar sagði verðlaunin
verða til þess að vekja athygli á baráttu
Walesa við að leysa vandamál verkalýðs-
hreyfingar og stjórnvalda í Póllandi með
friðsamlegum og skynsamlegum við-
ræðum. Reagan forseti fagnaði verð-
laununum sem sigri siðmenningarinnar
yfir ofbeldi og sagði að þau sýndu að
„ekkert stjórnvald fær kæft þær þrár sem
brenna í brjóstum þegnanna.“ Aftur á
móti steinþögðu menn í Kreml um
atburðinn og létu þeim í Varsjá það eftir
að gera sem núnnst úr verðlaunum
Walesa. Fréttastofur í Póllandi for-
dæmdu verðlaunin og töldu það merki
um vaxandi þunga áróðursherferðar og
áreitni í garð Póllands og annarra sósíal-
ískra ríkja. Fréttafulltrúi stjórnarinnar
sagði að verðlaun sem „ætlað væri tákn-
rænt gildi, yrðu minni að gildi fyrir
vikið.“
„Laglega óðir á
áróðursskrifstofunni
núna!“
En engar úrtölur fengu unnið bug á
hrifningu fólksins. í Gdansk þyrptust
hundruð Pólverja í kring um Walesa og
köstuðu blómvöndum á bílinn hans,
þegar hann var á leið heim að húsi sínu.
„Leszek, Leszek," kallaði fólkið og bar
hann á gullstól heim að útidyrunum. Þá,
er stuðningsmenn hans fórnuðu höndum
í sigurvímu, kölluðu þeir háttbundið:
„Sol-i-dar-nosc,“ „Sol-i-dar-nosc.“
„Þetta eru vitanlega okkar verðlaun og
hugsjón okkar,“ sagði Walesa í ræðu til
fjöldans. „Það er alltaf auðveldast að
gera hlutina saman og alltaf með friði. “
Stjórnvöldin reyndu hvað af tók að
slá á hrifninguna á verðlaununum.
■ Ásamt konu sinni og dóttur: „Þegar ég veit að þetta er satt, veit ég ekki hvað ég á að segja."
NdBELS-
VERÐLAUNA-
HAFI
PÓLVERJA
Hvaða gildi hafa friðarverðlaun
Lech Walesa fyrir baráttu Pólverja?
Pólska útvarpið skýrði ekki frá fréttun-
um fyrr en sex stundum eftir að tilkynnt
hafði verið um veitinguna í Osló. Að
kvöldi dags þess er verðlaununum var
úthlutað, sagði pólskur blaðamaður
nokkur, og það hlakkaði í honum: „Þeir
eru víst laglega óðir á áróðursskrifstof-
unni núna.“
Viðbrögð pólskra
fjölmiðla
Daginn eftir nefndu stærstu pólsku
blöðin verðlaunaveitinguna vart á nafn.
„Zycie Wardzawy" skýrði frá henni í
þrem málsgreinum neðst á forsíðu og
blað kommúnistaflokksins „Trybuna
Ludu“ faldi fréttina á síðu 2. í þeim
tilgangi að koma ekki af stað stuðnings-
aðgerðum við Walesa með fjandsam-
legum árásum á hann, beindu þessi blöð
skeytum sínum nú að Nóbelsnefndinni.
Þessi viðbrögð voru mjög ólík því sem
gerðist í fyrra þegar pólskir fjölmiðlar
fögnuðu því ákaflega er þau Alva Myr-
dal og Alfredo Garcia Robles fengu
verðlaunin fyrir friðarbaráttu sína.
En þessar aðferðir stjórnvalda höfðu
engin áhrif á pólskan almenning, og þau
sýndust ruddaleg í Ijósi nýlegrar aðfarar
að mannorði hans. Fyrir tveimur vikum
var í Varsjá útvarpað og sjónvarpað
þætti sem hét „Peningar.“ Þar var Wa-
lesa lýst sem milljónamæringi sem einsk-
is sveifst.
í þessum þætti var útvarpað viðtali
sem Walesa hafði átt að eiga við bróður
sinn, meðan hann var í varðhaldi í
fyrrahaust. í þessu samtali er Walesa
hinn orðljótasti og er með vangaveltur
um það hvernig hann eigi að koma úr
landi einrii milljón dollara, sem hann
hefði safnað saman hjá ýmsum sam-
tökum sl. þrjú ár. Fáir Pólverjar litu á
þetta öðru vísi en sem klunnalegan
samsetning. í síðustu viku ræddi Walesa
fjármál hins vegar nokkuð þegar hann
tilkynnti að hann mundi nota þau 192
þúsund dollara, sem verðlaunaféð
nemur, til þess að stofna landbúnaðar-
sjóð fyrir pólska bændur. Skal kirkjan
og ríkið sjá um ráðstöfun fjár úr
sjóðnum.
Samlandar
Enn er það á huldu hvort Walesa muni
fara til Osló að taka á móti verðlaunun-
um og fari hann, mun hann þá fá leyfi til
þess að koma heim aftur? Einn mögu-
leiki er sá að hann sendi konu sína í sinn
stað til Osló í desember, líkt og Andrei
Sakharov gerði, þegar hann fékk friðar-
verðlaunin 1975. Þessi pólski verkalýðs-
leiðtogi hefur sagt að það sé ekki rétt af
sér að fara til Osló að taka á móti
verðlaunum, meðan fjöldi samlanda
hans situr í tugthúsum.
Sú athygli sem beinst hefur að Walesa
nú undirstrikar óneitanlega hve staða
„Samstöðu" er orðin veik. Meira að
segja sá atburður er yfirvöldin afléttu
herlögum í desember sl. hefur orðið til
þess að veikja samtökin enn. Margir
forystumannanna hafa farið í felur eða
eru í fangelsum. Á tveimur mánuðum
hafa fjórir félagar andspyrnusamtak-
anna KOR og sjö félagar „Samstöðu"
verið leiddir fyrir rétt fyrir athafnir
sínar. Þegar páfinn kom í heimsókn í
júní sl. var sem létti á kúguninni í bili en
eftir það hefur mara undirokunarinnar
aftur sett sama þreytusvipinn á þjóðlífið.
Þessar örðugu aðstæður virðast hafa sett
sín mörk á Walesa. Þegar hann kom úr
11 mánaða varðhaldi sínu var svo að sjá
um skeið sem hann vildi taka upp
þráðinn þar sem frá var horfið, en hann
hefur orðið að viðurkenna að allar
tilraunir í þá átt hafa verið árangurslaus-
ar. Samt virðist Walesa og fylgjendur
hans ekki dauðir úr öllum æðum. „Þeir
hafa hrækt á Walesa," segir Anna Wal-
entynowicz, sem var kranastjóri í Lenin-
skipasmíðastöðinni, en brottrekstur
hennar varð til þess að hleypa af stað
verkföllunum í ágúst 1980. „En umheim-
urinn hefur hafið hann svo til skýjanna
að þeir verða að hætta þessum árásum,“
bætir hún við. Annar verksmiðjuverk-
amaður í Gdansk sagði að friðarverð-
launin mundu láta Pólverjum „líða
miklu betur og færa þeim sjálfstraust í
baráttu sinni." Faðir Henryk Jankow-
sky, prestur Walesa og nánasti ráðgjafi
segir að verðlaunin séu ekki aðeins til
Walesa, „heldur til allra þeirra sem eru
eins sinnaðir og hann...“
Nóbelsverðlaun Walesa urðu forsíðu-
efni allra dagblaða á Vesturlöndum og
var það fagnaðarefni fyrir alla pólska
útlagahópa. „Það hefur aldrei verið
augljósara en núna að Walesa er maður-
inn sem er persónugervingur friðsam-
legrar baráttu í stríði gegn alræðisöfl-
unum,“ segir Krzysztos Pomian, pólskur
sagnfræðingur, sem býr í París. „Hann
er Martin Luther Kingsovét-blakkarinn-
ar.“ Talsmenn „Samstöðu“ víða um
lönd segjast nú munu eiga auðveldara