Tíminn - 04.12.1983, Blaðsíða 17

Tíminn - 04.12.1983, Blaðsíða 17
bækur Cassino eftir Sven Hassel. Svo segir á baksíðu bókarkápu. Monte Cassino er talin ein sú besta af bókum Sven Hassel. í hersveit hinna fordæmdu sem samansett var af úr- hraki þýska hersins voru líka „menn" er vildu lifa en ekki deyja. Þeir fórnuðu öllu til þess, en þeir virtu ekki reglur hersins og létu illa að stjórn. Þeir voru ætíð í fremstu víglínu og þar með í návígi... Halldór Laxness Gerska ævintýrið Minnisblöð Komin er út hjá Helgafelli önnur útgáfa af Gerska ævintýrinu eftir Halldór Laxness, en fyrri útgáfan kom út hjá Heimskringlu 1938. Höfundur skrifar sjálfur formála að 2. útgáfu oe seeir bar m.a. að Gerska ævintýrið hafi verði einna fljótust bóka sinna bæði að verða til og hverfa, og eftir hvarfíð hafi verið látlaust falast eftir því um 45 ára skeið, að hún yrði endurprentuð, og því hafi hann nú gefið „plaggið laust til annarrar prentunar“. Sven Hassel Sven Hassel Monte Cassino Ægisútgáfan hefur gefið út bókina Monte Halldór fFD Ql/'A Laxn&ssxJfílj l\k31VTk VANTAR ÞIG JÓLAGJÖF? ÞAÐ ERU 4750 BÓKATITLAR í MARKAÐSHÚSI BÓKHLÖÐUNNAR Laugavegi 39 Sími 16180 OPIf) ÖLL KVÖLIJ T1LKL.8. SHNDUM í PÓSTKKÖKU I M ALLT LA.M) r(= okhLaðan L A* 11 JLX J SS-foringinn Ægisútgáfan hefur gefið út SS-foringjann eftir Sven Hassel. Á bókarkápu segir svo: Þeir sem komust lifandi frá bardögum í fremstu víglínu eiga enga viðurkenningu skilið. Þeir sem féllu eiga allan heiðurinn (Adolf Hitler) Fyrir þýska herinn er sat um Stalingrad voru hvatningarorð Hitlers „berjist til síðasta manns, þar til síðasta skot hefur verið notað", staðfesting á því að þeir væru dauðadæmdir. Hungraðir, útkeyrðir og niðurbrotnir biðu leyfar þýska hersins dauða síns, þar til SS-foringinn, einn af hetjum Hitlers kom. Sven Hassel Barist til síðasta manns Hjá Ægisútgáfunni hefur komið út bók Sven Hassel Barist til síðasta manns. Bókin er kynnt á baksíðu bókarkápu á þennan veg: Þeir voru hersveit hinna fordæmdu. Öllum var sama um hvort þeir lifðu eða dæju. Þeim var líka sama hver mundi vinna stríðið, það eina, sem þeir stefndu að, var að lifa hörmungarnar af til stríðsloka. Þeir börðust eins og dýr, ekki bara við óvininn, heldur líka hvor við annan. Hitler kom þeim ekkert við, Þýskaland kom þeim ekkert við, enda kærði sig enginn um þá. MARTRÖÐ UNDANHALOSINS Sven Hasscl Martröð undanhaldsins Ægisútgáfan hefur gefið út bók Svens Hassel um bardagana í Rússlandi í síðari heimsstyrj- öldinni, sem heitir Martröð undanhaldsins. Svo segir á bókarkápu: Og þeir voru sendir.í hina brjálæðislegu orustu á víglínunni í Rússlandi. Yftrmenn þýska hersins vildu hafa þá fremsta því enginn hafði áhyggjur af þeim. Þeir voru meðhöndlaðir eins og dýr og höguðu sér eins og dýr. Þegar undanhaldið hófst þjáðust þeir mest því síðast var hlúð að þeim. Hér er lýst hrikalegum en sönnum atburðum frá loka- átökunum í Rússlandi. .

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.