Tíminn - 04.12.1983, Blaðsíða 22

Tíminn - 04.12.1983, Blaðsíða 22
SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 1983 Dúkkuvagnar og kerrur í miklu úrvali Póstsendum Kreditkortaþjónusta Leikfanga húsið Sími 14806 SkólavörðustíglO KAUPMENN KAUPFÉLÖG VIÐ BJÓÐUM EFTIRTALDAR VÖRUR: SUBSTRAL blómaáburð Z-brautir, trékappa, plastkappa og tilheyrandi !§| newell kappastangir, þrýstistangir og yfirstangir dan-lflt ömmustangir HAR^fON lamir, rennilokar, huröar- jfgggQ) stopp, snaga og fieira á spjöldum og í lausu •EVOSTIM lím Jowafc lím STORMKING þéttiefni EINNIG BJÓÐUM VIÐ EFTIRTALDAR SMÁVÖRUR fÚbgÍIil..SUPER GLUE“ tonnatak DEVCON 2ton lím GARDÍNUGORMA, KRÓKAOG LYKKJUR REX steinbora FIX-SQfatalím_______________________ BÆTT OG AUKIN ÞJÓNUSTA HAFIÐ SAMBAND REYNIÐ VIÐSKIPTIN ÍSLErtZKA VERZLUnARFÉLACiln HP VV UMBOÐS- & HEILDVERZLUN ÁRMÚLA24-P.0. BOX 1391 <=ST — 77 SÍM119943 105 REYKJAVlK ■ Freddie í Queen ■ Danska kvennastórsveitin HEXEHYL hefur mikinn áhuga á að koma til íslands og spila hér seinnipart vetrar 1984 og er nú verið að kanna möguleikana á þessu. Hljómsveitina skipa 26 kvenmenn þar af eru þrjár af íslenskum ættum Nína Björk Elíasdóttir básúnuleikari yst til vinstri á myndinni, Marianne Rottböll trommuleikari yst til hægri og Lindís Mikkelsen bassaleikari næstyst til hægri. HEXEHYL hefur verið starfandi undanfarin 4 ár og er tónlist þeirra blanda af ýmsu, inniheldur m.a. jazz, rokk, fönk o.fl. og þær hafa komið fram í Montmarte, Vognporten, Roskildefestival 79, Copenhagen Jazz Festival 81 og s.l. sumar voru þær á hátíðum á Miöfjóni, Mön og í Gilleleje. Fyrir utan það hafa þær komið fram bæði í danska útvarpinu og sjónvarpinu. -FRI Úr erlendu popppress- unni ■ Við höfum vín, við höfum for- drykki, við höfúm snittupinna, já hljómsveitin Queen hélt partý í Holly- wood, ekki eina af þessum þekktu drykkjuveislum hljómsveitarinnar þar sem þjónarnir voru alltof önnum kafnir við að gefa nafnspjöld sín ljósmyndur- um og fulltrúum karl-módelsamtaka til að geta staðið mikið í að bera fram áfengið. Veislan var haldin í tilefni þess að Queen hefur sagt upp samning sínum hjá Elektra Records og samið í staðinn við Capitol. Meðal gesta voru Roy Thomas Baker, Fast Eddie Clark, Howie úr Heart og Lita Ford, en allt gestaliðið var langt á undan gestgjöfunum hvað drykkjuna snertir því flestir þeirra voru að koma beint úr AC/DC tónleik- unum í Forum þar sem þeir renndu úr glösunum í stríðum straumum í hópi manna á borð við Slim Jim, og Britt, Mötley Crúe og Glen Hughes. • Hvað er að gerast. Hefur Bob Dylan uppgötvað kaþólikka. Hann hefur að undanfömu starfað með Austur L.A. sveitinni The Plugz og virðist hafa frett af henni í gegnum Bill Graham. Trommuleikari hljómsveit- arinnar hefur þegar komið fram í nýju Dylan videói og gítarleikarinn vinnur við nýju lp plötu Dylans. • Svo við komum aftur að Forum þá lék Robert Plant þar nýverið og hefur víst aldrei verið betri. Því í anskotan- um hékk þá eftirtalið lið á barnum í gegnum alla tónleika hans, hinir seku: Pat Benatar, Rod Stewart og sveit (NT vill skjóta því inn í hér að nafn númer tvö kemur honum síður en svo á óvart), Alex Van 'Halen, flestir úr Queen og Mötley Crúe en strákarnir þar virðast í méira lagi félagslyndir. • Bæði BBC og ITV sjónvarpsstöðv- arnar í Bretlandi hafa bannað vídeó- mynd Rolling Stones sem fylgja átti í kjölfar nýju smáskífu þeirra „Under Cover Of The Night“. Myndinni er leikstýrt af Julian Temple og tekin upp í Mexíkóborg. í henni sést maður með andlitshulu tekinn af lífi og bíl er ekið í gegnum kirkju og mun myndin vera innblásin af tilfinningum Mick Jagger gagnvart politísku ofbeldi í Suður- Ameríku. Þar sem meðal löggumynd í sjónvarpi hefur að geyma meira of- beldi en þetta videó telur NME tíma- ritið að ástæður bannsins séu fremur pólitískar en vegna innihaldsins. Hvar eru skotin af Jagger að drepa í sígar- ettustubbum á nöktum líkama Keith Richards...? •Boy George er víst fjúkandi vondur út í gamlan vin þessa dagana þar sem sá mun hafa selt gamla mynd af Hetjunni til Scum tímaritsins. Á mynd- inni mun „Strákurinn" víst vera án andlitsfarða og flest annars sem söku- dólgurinn er víst Jeremy Fantayzee og myndin fór á 250 pund. • Svar Kim Fowley við Goth-City Rockers at the Cave of Bats er „Fra- nkenstein And The All Star Monster Band“ (hann er að grínast - hann hlýtur að vera að grínast). Samkvæmt heimild- armanni NME „á staðnum" mun sveit þessi vera einhverskonar blendingur at Bobby „Boris“ Pickett And The Crypt Kickers og Kraftwerk. Nokkrar stað- reyndir: Þeir hafa fimm ára gamla stelpu, Dorothy Dinosaur sem étur skriðdýr á sviðinu, Frankenstein sjálfur er 167 ára gamall og þau hafa nýlega tekið upp videómynd í Houdini húsinu í L.A. Þau komast aldrei út úr Bandaríkjunum. Allavega vonum við það. Annað mundi þýða alltof mikið verkefni fyrir Helgar- Tímann. • Eftir yfirlýsingar Johnny Rotten - Lydon um að ný tækni hefði stórlega bætt kynlíf hans, það er nú fimm mínútur af stunum í stað tveggja og hálfrar áður, kemur uppljóstrunin um að „þýska ljóskan með stóru tútturnar“ sem hefur víst æft hann í nýju tækninni, er engin önnur en móðir Ári Upp söngvara Slits nefnilega hin fertuga Nora Maier. Hin vellauðuga Nora byrjaði á föstu með Johnny strax á Sex Pistol dögunum og þá á hann að hafa stolið henni af Steve Jones þar sem hann var heillaður af skrýtnum uppátækjum hennar eins og að fara á hjólaskautum um London á svipuðum tíma og skemmtistaðir hér- lendis loka um helgar. • Og hvert hefur pólitísk meðvitund Gang Of Four farið. Þeir áttu nýlega að koma fram á tónleikum í British Col- umbia háskólanum. Er þeir komu þang- að beið þeirra varðlína verkfallsmanna en háskólastarfskraftar voru í verkfalli. Þeir fóru í gegnum línuna og héldu tónleikana og meðan verkfallsfólkið breytti kröfuspjöldum sínum í „Gang Of Scabs...“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.