Tíminn - 23.12.1983, Blaðsíða 7

Tíminn - 23.12.1983, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1983 ■ Heidi Bohay sagðist hafa haft gaman af að leika í auglýs- ingum, en þetta væri stórtstökk fvrir sig, að vera nú komin í kvikmynd. „Bette Davis er dásamleg“ sagði Heidi Bohay, sem „hoppaði“ úr augiýsingamynd — í hlutverk í sjónvarpsþáttunum HOTEL með Bette Davis o.fl. frægum leikurum ■ -Ég á frama minn því að þakka, að stjórnandi „Hotels“ sá tannkremsauglýsingu, þar sem ég kom fram sem hin „ekta. ameríska stúlka" - og svo því, að Bette Davis leist vel á mig“, sagði Heidi Bohay nýlega í blaða- viðtali. Hún hreppti hlutverk í sjónvarpsþáttum sem nefnast HOTEL, en framleiðandi og stjórnandi þeirra er Aaron Speiling. Heidi Bohay sem er 22ja ára Ijóshærð og lagleg fyrirsæta leikur þarna unga afgreiðslu- stúlku í móttöku hótels, sem heitir Megan Kendall. Megan þessi er kynbomba hin mesta í myndinni, og er Heidi nú allt í einu orðin fræg hjá sjónvarps- áhorfendum sem slík. Sjálf segir Heidi, að hún sé engin „sex- bomba“ - eða það fínnst mér ekki sjálfri. Ég lít í spegil á morgnana og hugsa sem svo: Jú, þú ert alls ekki sem verst, og ég er alveg ánægð með það. Fyrsta atriðið, sem Heidi lék í, var með Bette Davis, sem átti að vera að hella skömmunum yfir hana fyrir einhver mistök í afgreiðslu. ■ Bette Davis er ótrúleg leik- kona, og augu hennar, vá... sagði hin fyrrv. tannkremsaug- lýsandi Heidi. -Ég átti að vera „alveg í rusli“ sagði Heidi, - og ég var það líka, því ég skalf í hnjáliðunum og varð að hafa mig alla við að muna hvað ég átti að segja. Þið munið eftir laginu “ Bette Davis Eyes“ (Augu Bette Davis) það kom í huga mér þegar þetta atriöi var leikið, þið hefðuð átt að sjá augun í henni! En hún er dásam- leg að vinna með, og ég tel mig hólpna að hafa fengið þetta tæki- færi, sagði hin nýbakaða stjarna ánægð. „Ég efast um að þeirra þáttur sé stór. Hitt er annað að þau koma til með að hækka vöruverð í framtíðinni. Þarna er kominn nýr milliliður, sem krefst hárrar þóknunar, sem neytandinn verður að borga. Ég held að það hafi verið misráðið hjá stjórnvöldum að gefa þetta frjálst - að minnsta kosti hvað almenna verslun varðar.“ - Ert þú með greiðslukorta- þjónustu í þinni verslun? „Ég hef ekki tekið hana upp ennþá. Enda er mér óheimilt að hækka mína vöru í samræmi við það sem þessi nýi milliliður krefst. Svo finnst mér alls ekki sanngjarnt að sumir kúnnar fái greiðslufrest í allt að 40 daga meðan aðrir þurfa að stað- greiða“, sagði Sigurður. - Heldurðu að fólk fari flatt á greiðslukortunum-eyði um efni fram? „Ég veit það satt að segja ekki. Það fersjálfsagt mikið eftir þeim reglum sem greiðslukorta- fyrirtækin setja sér. Ég held til dæmis að VISA-ÍSLAND fari varlega af stað. Gefi til dæmis ekki misferlismönnum kost á að komast yfir kort.“ - Ber meira á búðahnupli fyr- ir jólin en á öðrum árstímum? „Ösin er náttúrulega meiri og þess vegna þarf verslunarfólk að vera varkárara gagnvart hnupli. En tilfellið er að það eru aðeins örfáir sem leggjast svo lágt að hnupla úr búðum. Vandamálið er kannski aðallega það að erfitt er að þekkja þá úr,“ sagði Sig- urður. - Nú hafið þið, kaupmenn við Laugaveginn bundist samtökum um að hafa opið lengur fram á kvöld í nokkra daga fyrir jólin? „Fólk hefur tekið því mjög vel. Það hefur verið talsvert um að vera hjá mér milli 6 og 8 á kvöldin. Enda hefur veðurblíðan verið með eindæmum það sem af er mánuðinum og margt fólk á ferli hér við Laugaveginn“. -Sjó ■ Forsetarnir þrír, sem hafa veríð ákærðir; (talið frá vinstri) Leopoldo Galtieri, Jorge Videla og Roberto Viola Alfonsin kærir þrjá for- seta fyrir réttarfarsbrot Málaferli gegn þeim munu vekja mikla athygli ■ MIKIL hátíðahöld voru víða í Argentínu um fyrri helgi, en þá tók hinn nýkjörni forseti, Paul Alfonsin, við forsetaembættinu. Margir erlendir þjóðarleiðtog- ar voru viðstaddir, þegar Alfons- in vann forsetaeiðinn og tók formlega við forsetaembættinu. Meðal þeirra voru forsætisráð- herra Spánar, Portúgals og ítal- íu, Bush varaforseti mætti fyrir hönd Reagans forseta. Frá löndum rómönsku Amer- íku mættu forsetar Kólombíu, Perú, Costa Rica, Bolivíu og Equador, en þeir hafa allir verið kosnir á lýðræðislegan hátt. Þá mætti formaður þeirrar stjórnar- nefndar, sem fer með völdin í Nicaragua. Einnig mætti Mejia Victores hershjöfðingja, sem er forseti Guatemala, en hann tók völdin fyrr á þessu ári, þegar annarri hershöfðingjastjórn var velt af stóli. Hershöfðingjastjórnirnar í Chile, Brasilíu og Uruquay sendu háttsetta fulltrúa, en eng- inn af leiðtogunum mætti. Senni- lega hefur það stafað af því, að einhverju leyti, að Alfonsin hafði boðið sérstaklega leið- togum stjórnarandstöðunnar í þessum löndum. Þótt allir þessir gestir vektu vissa athygli, beindist þó athygl- in mest að einum fyrrverandi forseta Argentínu, Isabel Peron. Hershöfðingjarnir höfðu steypt henni af stóli 24. marz 1976 og farið með völd síðan. Fyrst hafði Isabel verið höfð í stofufangelsi, en síðar dæmd til fangelsisvistar. Þeim dómi var þó ekki fullnægt, heldur fékk hún leyfi til að dveljast í útlegð á Spáni. Þaðan kom hún í boði Alfonsins forseta og var sýnd öll sú virðing, sem fyrri stöðu hennar hæfði. Isabel vildi þó ekki setjast að í Argentínu að sinni, heldur hélt aftur til Spánar eftir fáa daga. Hún er enn formlegur leiðtogi flokks Peronista, þótt hún hafi ekki tekið opinberlega þátt í störfum flokksins um skeið. Isabel virðist ekki hafa áhuga á að taka við fullri forystu flokks- ins að sinni. Hún mun ætla að bíða átekta og sjá hvernig Al- fonsin vegnar. Gangi honum illa er líklegt, að hún hverfi heim aftur og reyni stríðsgæfuna í næstu kosningum. ( Yfirleitt eru fréttaskýrendur sammála um, að hún sé eini leiðtoginn, sem geti sameinað Peronista og tryggt þeim sigur í kosningum. Svo sterk eru áhrif Perons enn í Argentínu. ■ Isabel Peron óskar Alfonsin til hamingju eftir að hann hefur unnið forsetaeiðinn. ALFONSIN lét þess ekki lengi bíða eftir að hann tók við forseta- embættinu að grípa til róttækra aðgerða. Hann fyrirskipaði strax margháttaðar ráðstafanir í verð- lagsmálum og launamálum, sem miða að því að draga úr verð- bólgu og bæta kjör þeirra, sem lakar eru settir. Frekari ráðstaf- anir í þessa átt bíða þingsins, en Alfonsin hyggst leggja róttækar tillögur fyrir það. Af þeim víðtæku og róttæku ráðstöfunum, sem Alfonsin hef- ur boðað hefur mest athygli beinzt að þeim, sem eiga að stefna að því að koma á réjtlátu stjórnarfari í landinu. Segja má að ráðstafanimar séu tvíþættar. í fyrsta lagi á að koma fram refsingu á hendur þeim, sem hafa gert sig seka um mannréttindabrot og löglausar hefndaraðgerðir í tíð hershöfð- ingjastjórnarinnar. í öðru lagi verða lagðar fyrir þingið víðtæk- ar breytingar á hegningarlög- gjöfinni, sem eiga að koma í veg fyrir misbeitingu á henni. Langmesta athygli vekja að- gerðir þær, sem Alfonsin boðaði í sjónvarpsræðu, sem hann flutti á miðvikudaginn í síðastliðinni viku. Samkvæmt þeim verður höfð- að mál á hendur þeim níu hers- höfðingjum, sem sæti áttu í hershöfðingjanefnd þeirra, sem var eins konar yfirstjórn landsins frá 24. marz 1976 og þangað til á síðasiliðnu sumri, þegar ný nefnd tók við til að undirbúa kosningar. Þeir, sem áttu sæti í henni, sleppa við málshöfðanir. Meðal hershöfðingjanna níu, sem mál verður höfðað gegn, eru þrír menn, sem hafa gegnt forsetaembættinu til skiptis. Þeir eru Jorge Videla, Roberto Viola og Leopoldo Galtieri, sem stjórnaði innrásinni á Falklands- eyjar. w Þorarinn Þorarinsson, ritstjori, skrifar KtM Allir eru þessir menn ákærðir fyrir margvísleg réttarafbrot. Herdómstóll mun í fyrstu fjalla um mál þeirra, en ætlun Alfons- ins er að fá þingið til að gera þær breytingar á lögunum, að úr- skurðir herdómstóla verði ekki endanlcgir. heldur megi vísa þeim til hæstaréttar, sem fellir þá endanlegan dóm. Jafnhliða þessu tilkynnti Al- fonsin að mál yrði höfðað gegn sjö tilgreindum leiðtogum vinstri sinnaðra skæruliða, scm hafi gert sig seka um hryðjuverk. Flestir þessara manna eða jafnvel allir dvelja enn í útlegð og er talið hæpið að þeir hverfi heim að svo stöddu. Þá tilkynnti Alfonsin að hafin yrði víðtæk rannsókn til að upp- lýsa hvarf þúsunda manna, sem hurfu á tímum hershöfðingja- stjórnarinnar og yfirleitt er talið að hafi veriö myrtir. Þessi rann- sókn getur leitt til fjölda máls- höfðana. ALFONSIN hefur að sjálf- sögðu gcrt sér Ijóst, að þessar ráðstafanir hans myndu mælast misjafnlega fyrir innan hersins. Hann lét það því verða eitt fyrsta verk sitt að skipta um menn í öllum æðstu stöðum hersins. Þar sitja nú menn, sem eru taldir honum hliðhollir og hafa ekki tekið þátt í þeim réttarbrotum, sem hershöfðingjarnir níu hafa verið ákærðir fyrir. Það þykir sennilegt, að þessar ráðstafanir Alfonsins mælist vel fyrir og þyki merki um, að hann vilji standa við loforð sín fyrir kosningarnar. Margir töldu þó vafasamt, að hann myndi efna þau. Sennilega verða það þó efna- hagsmálin, sem ráða mestu um, hvernig stjórn Alfonsins farnast. Þau eru í kalda koli eftir sjö ára stjórn hershöfðingjanna, sem höfðu að mestu látið markaðs- lögmálið ráða ferðinni. Bæði ríkisbúið og þjóðarbúið eru sokkin í botnlausar erlendar skuldir. Alfonsin hefur óskað eftir að fá sex mánaða greiðslu- frest meðan verið er að semja um greiðslu á þeim. Lánardrottnarnir hafa sagt, að þeir séu tilbúnir að veita greiðslu- frest á afborgunum en ekki á vöxtum. Það nægir Alfonsin hins vegar ekki, því að útflutnings- tekjurnar munu vart nægja fyrir vöxtunum. Slíkur var viðskilnaður hers- höfðingjanna og markaðshyggj- unnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.