Tíminn - 01.04.1984, Blaðsíða 2

Tíminn - 01.04.1984, Blaðsíða 2
SUNNUDAGUR 1. APRIL 1984 ■ Frá undirskrift samþykktar Neytendasamtakanna og Félags Ferðaskrifstofa um kvörtunarþjón- ustu fyrir neytendur, á Naustinu í gærdag. Böðvar Valgeirsson fulltrúi ferðaskrifstofanna til vinstri og Jón Magnússon frá Neytendasamtökunum til hægri. Kvörtnnarnefnd neytenda og ferðaskrifstofa komið á fót Flugleiðir læra tölt ■ Límmiðar þeir sem Flugleiðir hafa dreift víða um lönd hafa notið mikilla vinsælda í Þýskalandi. Límmiðinn er með mynd af íslenska hestinum, reist- um mjög, með íslensku fánalitina sem þverskurð um sig. Er íslenski hestur- inn litinn hýrum augum af Þjóðverj- um, eins og alkunnugt er, enda segja Þjóðverjar að hin reisulega töltstelling hestsins á myndinni sé stelling sem sérhver sannur hestamaður vilji sjá hesti sinn í. Hafa Þjóðverjarnir hent því á lofti i góðlátlegu gríni, að með þessum hætti hafi Flugleiðir lært tölt. Arnar- flug fær Boeing 737 ■ Á mánudaginn kemur, kemur hingað til lands þota af gerðinni Boeing 737 frá Noregi, sem Arnarflug hefur gert kaupleigusamning um við norska flugfélagið Braathen. Arnarflug hyggst nota þotuna í áætlunarflug félagsins til Evrópu og einnig í leiguflug, en þessari þotu er ætlað að leysa af hólmi samskonar vél og Arnarflug hefur verið með á leigu hjá hollenska félaginu Transavia. Þotan er ekki af nýjustu gerð, því hún er frá árinu 1971, en að undan- förnu hafa verið gerðar á henni ýmsar endurbætur, ný sæti verið sett í hana, eldhúsi verið breytt og fullkomnum flugleiðsögutækjum verið komið fyrir. Vélin hefur verið máluð í einkennis- litum Arnarflugs og hun verður skráð hér á landi undir einkennisstöfunum TF-VLT. ■ Fulltrúar Neytendasamtakanna og Félags íslenskra ferðaskrifstofa hafa undir ritað samning um kvörtunarnefndt þess- ara aðila. LJm er að ræða sáttadómstól sem ætlað er að sinna kvörtunum neyt- enda vegna ferða sem skipulagðar eru af aðilum innan Félags íslenskra Ferða- skrifstofa og leysa þau mál á skjótari og fyrirhafnarminni hátt en réttarkerfið get- ur boðið upp á. Eftir sem áður geta málsaðilar þó leitað úrskurðar dómstóla. Kvörtunarnefndin mun einungis sinna málum sem snerta ferðaskrifstofur innan Félags íslenskra ferðaskrifstofa en utan þeirra samtaka eru nokkrar minni ferða- skrifstofur sem flestar vinna eingöngu að ferðum til Islands og er fyrirtækið Sólar- ferðir líklega sú eina þeirra sem stendur fyrir ferðum íslendinga til annarra landa. Að mati Neytendasamtakanna er hér um mjög þarflegan hlut að ræða þar sem mál af þessu tagi snertu oft árssparnað heillar fjölskyldu og því brýnt að þau fái skjóta og góða úrlausn. Kvörtunarnefndin tekur til meðferðar þau kvörtunarmál sem komið er á framfæri við Neytendasamtökin innan mánaðar frá lokum viðkomandi ferðar og ekki tekst að leysa úr á annan hátt. Þá þarf kærandi að greiða 500 krónur til nefndarinnar sem er óendurkræft kvörtunargjald. - b Frankfurtarflugvöllur: Gríðarleg upp by gging síðustu þrjá áratugi ■ Þessi skemmtilega loftmynd er af flugvellinum í Frankfurt, en þangað leggja nú stöðugt fleiri Islendingar Ieið sína ár hvert. Myndin er tekin úr ca. 3000 metra hæð, í vesturátt. I forgrunni má sjá hluta þess hraðbrautarkerf- is Þýskalands sem tengir Frankfurtarflugvöll við vega- kerfl landsins, en þarna mætast einmitt aðalæðar norður/ suðurhraðbrautarkerflsins og austur/vesturhraðbrautar- kerfísins. Þjóðverjar hafa varið geysi- lega miklum fjármunum í bygg- ingu Frankfurtflugvallar síðustu árin því frá árinu 1951 hafa þeir varið yfir þremur milljörðum þýskra marka í uppbygginguna og þar af hefur yfir 2.5 milljörð- um verið varið í hana frá 1968. Flugvöllurinn er Frankfurtarbú- um mikil tekju- og atvinnulind, því þar starfa um 32 þúsund manns og yfir 44 þúsund manns á Frankfurtarsvæðinu hafa at- vinnu sína vegna beinna tengsla við starfsemi flugvallarins. Rokkókösýning í London: 500 18. ald- ar dýrgripir — að andvirði liðlega 15 milljóna punda ■ Lundúnafarar og aðdáendur fagurra muna frá 18. öldinni geta glaðst yfir því að nú um miðjan maí opnar stórglæsiieg rokkókósýning í Victoria og Albert Museum í London, þar sem um 500 dýrgripir frá 18. öldinni verða til sýnis, og eru þeir hvorki meira né minna en 15 milljón punda virði. Sýningin stendur til septemberloka. Sýningargripirnir koma víðs- ina. en jafnframt munu 36 bresk vegar að, en þeir eru flestir og erlend söfn lána gripi, auk lánsgripir. Að mestum hluta þess sem einhverjir gripir koma mun það verða bréska konungs- frá fegurstu óðalsetrum fjölskyldan sem lánar dýrgrip- Bretlands.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.