Tíminn - 01.04.1984, Síða 10

Tíminn - 01.04.1984, Síða 10
SUNNUDAGUR 1. APRÍL 1984 10 <gabam. Hann nakkrum árum krakkann, borg- r^arlæknir'líafði fmislegt vjð y úþpeldið að athuga en'bor- garráð tímdi ekki að greiða /Eh hvað verður svo um 0 & þennan unga í fraititíðinni og ITverfhg standa fjölskyldumál- in í ‘dag? Verður hann að óskabarni eða eigum víð eftir að hlusta á útburðarvæl úr þurrum farvegi hans á kom- andiámm? WW • JL • Heiti lækiixinn Óskabarn eða Lækur þessi á fáa sína líka og hefur smám saman oröið eitt af útivistarsvæð- um borgarinnar. Reyndar á staðurinn sér langa sögu sem slíkur þar sem víkin var ein af aðalbaðstöðum þeirra sem vildu synda í söltum sjó. Eftir að farið var að láta heitt vatn renna þarna til sjávar, leið þó ekki á löngu þar til fólk fór að flykkjast suður gamla flugvallar- veginn til að baða sig í læknum og láta streituna líða úr sér í ylvolgu vatninu. Margir notfærðu sér það að hægt var að fara í lækinn á hvaða tíma sólarhringsins sem var en af einhverjum undarlegum ástæðum eru sundlaugar borgarinnar ekki opnar að kvöldi til, hvað þá að næturlagi. Úti í guðsgráu náttúruleysinu gerðust ævintýrin og gerast vonandi enn þ.e.a.s. þegar þama er að finna heitan læk. Fyrirbæri þetta er nefnilega þannig að það kemur og fer. í dag getur lækurinn runnið eins og hann hefði aldrei gert annað en á morgun kann svo að vera að aðeins sé um að ræða þurran lækjarfarveg og lítið sem minni á forna frægð og skvettugang. En hvaða máttar- völd eru svo duttlungafull að vera að argast í því að blessað vatnið leiti eðlilega leið sína til sjávar? Við hringd- um í Hitaveitu Reykjavíkurborgar og 1 spurðum eftir æðstapresti þeirra veitu- manna Jóhannesi Zoéga. „Ég get ekki sagt neitt ákveðið um framtíð þessa fyrirbæris en heitilækurinn er einfaldlega yfirfallsvatn frá bak- rennslisgeymunum svo kölluðu og þegar við þurfum ekki að nota þetta vatn er það látið renna þarna til sjávar. Okkur þykir sjálfsagt að gefa fólki kost á því að nota þetta vatn en við höfum því miður enga möguleika eins og er að hafa þetta reglulegra rennsli en verið hefur undan- farin ár. 7 vetur stóðu yfir boranir eftir heitu vatni hjá okkur en það er óvíst hvort að þær holur 'komi til með að breyta miklu hvað heita lækinn snertir. í rauninni var "þetta heita vatn aðeins leitt ofan í skurðinn til bráðabirgða því upphaflega hafði verið ráðgert að leiða það ofan í Nauthólsvíkina og nota það þar til að hita upp sjóinn í víkinni. Það varð þó ekki úr því að um líkt leyti var víkin dæmd ónothæf sem baðstaður vegna mengunar sjávarins og svo mun vera enn. En sem sagt frá okkar hálfu er það bæði gott og sjálfsagt að borgarbúar njóti góðs af þegar um er að ræða vatn sem hitaveitan þarf ekki á að halda. Annars færi þetta vatn einfaldlega niður í holræsin", sagði Jóhannes Zoéga að lokum. Lækurinn góður fyrir gigtarskrokka „Ég gerði tillögur um notkun þessa svæðis fyrir mörgum árum og þarna þyrfti að vera mun betri aðstaða en nú er fyrir fólk að búa sig og þar fram eftir götunum", sagði Skúli G. Johnsen borg- arlæknir, þegar við spurðum hann um heita lækinn. „Þetta er það góð aðstaða frá náttúrunnar hendi að það má ekki vera með neinn kotungsbúskap í kring- um það og þarna þyrfti líka að vera varsla og einhvers konar þjónusta við það fólk sem nota vill lækinn. Ég kynnti þessi sjónarmið á sínum tíma í borgar- ráði en það var þá ekki fallist á þau. í staðinn var mér og borgarverkfræðingi falið að gera tillögur að smávegis lagfær- ingum á svæðinu, sem voru svo fram- kvæmdar. Ef ég væri spurður að þessu í dag mundi ég leggja það sama til og ég lagði til á sínum tíma. Þarna þyrfti að koma upp mun betri aðstöðu en nú er. Það var bent á að þarna væri að finna t.d. almenningssalerni hinum megin við ■ Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri: ■ Skúli G. Johnsen „Ekki faltist á „Lækurinn er einfaldlega yfirfalls- mín sjónarmið.“ vatn sem við þurfum ekki að nota“.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.