Tíminn - 01.04.1984, Síða 11
SUNNUDAGUR 1. APRIL 19X4
11
útburðiir
götuna en sannleikurinn er sá að um-
gengni við þau er ekki nógu góð, það er
enginn vörður þarna Svo var lækurinn
líka opinn að nælurlagi jafnt sem á
daginn og þetta endaði með því að það
urðu slys þarna þegar drukknir menn
■ Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri:
Það verður að fara að taka til
höndum".
voru að baða sig að næturlagi. Eftir það
varð það að samkomulagi milli mín og
hitaveitustjóra að láta ekki renna heitt
vatn þarna að nóttu til. Lækurinn sem
slíkur er mjög sniðugt fyrirbæri og gott
fyrir heiisu manna að baða sig í heitu
vatni t.d. alla þá gigtarskrokka sem hér
er að finna. Pað er full ástæða tii þess að
útbúa þarna góða aðstöðu fyrir fólk til
að notfæra sér lækinn. Það virðast þó
ekki vera til peningar í þetta, a.m.k.
hefur það ekki sýnt sig hingað til. í
fjárhagsáætlun borgarinnar er ekki svo
ég viti til gert ráð fyrir neinum fram-
kvæmdum þarna þetta árið.“
Aðspurður um framtíð Nauthólsvík-
urinnar sagði borgarlæknir að eins og
ástandið væri í dag væri víkin aiveg
vonlaus sem baðstaður þar sem svo og
svo mikið væri af sýklum í fjörunni.
„Staðurinn fullnægir einfaldlega ekki
þeim kröfum sem gerðar eru til sund-
staða."
„Ha, hvort ég hef baðað mig í
læknum. Já ég hef nú reyndar gert það
einu sinni." sagði Skúli Johnsen, „og
mér líkaði það mjög vel, alveg frábær-
lega verðég aðsegja. En einsogégsagði
áðan þá þyrfti að gera mikiu meira fyrir
staðinn en nú er gert.
Landbrot og mengun
Þegar við höfðum samband við Haf-
liða Jónsson garðyrkjustjóra sagði hann
að brýna nauðsyn bæri til að fara að
skipuleggja Nauthólsvíkursvæðið með
tilliti til framkvæmda í framtíðinni. Það
þarf líka að gæta að því að þarna er um
töluvert landbrot að ræða vegna ágangs
sjávar. Hinn. nýi flugmálastjóri okkar
gerði gangskör að því að rífa ýmsa skúra
og bragga á þessu svæði og lét fjarlægja
drasl sem þarna var til mikilla lýta. Hann
hefur svo í framhaldi af því afhent okkur
svæðið fyrir austan flugvallarveginn
gamla þannig að við höfum nú umsjón
með því. Þarna væri hægt að framkvæma
ýmsar þær hugmyndir sem fram hafa
komið varðandi þetta skemmtilega
svæði. Við þurfum líka að fara að gera
einhverjar róttækar aðgerðir varðandi
mengunina í Nauthólsvíkinni en hún
mun að stórum hluta vera frá Kópavogs-
kaupstað komin en þetta er nú orðið eitt
af öflugustu bæjarfélögum landsins
þannig að þeir ættu nú að geta ráðið við
það. Það eru margar skemmtilegar hug-
myndir uppi um nýtingu þessa svæðis og
það verður að fara að taka til höndum
við að framkvæma eitthvað af þeim
þannig að staðurinn geti orðið til enn
meiri nota fyrir fólk“, sagði Hafliði að
lokum og við tökum svo sannarlega
undir þau orð hans.