Tíminn - 01.04.1984, Page 19
SUNNUDAGUR I. APRIL 1984
„Undir teppinu hennar ömmu“
á Loftleiðum
Vorkonur Alýðuleikhússins sýna um þessar
mundir á Hótel Loftleiðum, „Undir teppinu
hennar ömmu“, nýtt íslenskt leikverk eftir
Nínu Björk Árnadóttur.
Átta leikkonur og tveir hljóðfæraleikarar
koma fram á sýningunni. en aðalhlutverk eru
leikin af Sigurjónu Sverrisdóttur, Sólveigu
Halldórsdóttur, Sigrúnu Eddu Björnsdóttur
og Kristínu Bjarnadóttur.
Leikstjóri er Inga Bjarnason, tónlist er.
eftir Mist Þorkelsdóttur, en leikmynd og
búninga hannaði Guðrún Svava Svavarsdótt-
ir.
Verkið er þrískipt, og lýsir tilvist og
nærvist þriggja kvenkynslóða og áhrifum
bælingar og ótta á líf þeirra, MEÐ KÓM-
ISKU ÍVAFI.
Vorkonur bjóða upp á umræður við leik-
húsgesti að loknum sýningum.
Næstu sýningar verða: Föstudaginn 30.
mars, og laugardaginn 31. mars kl. 21.00.
Frá Leikfélagi Akureyrar
Um helgina eur síðustu sýningar á „Súkku-
laði handa Silju", eftirNínu Björk Árnadótt-
ur í Sjallanum á Akureyri. Leikurinn fjallar
um iðnverkakonuna Önnu (Sunna Borg) og
unglingsdóttur hennar Silju (Guðlaug María
Bjarnadóttir) ást þeirra og samskipti við
kunningja sína.
Alls taka 9 leikarar þátt í sýningunni og
auk þess flytja tónlistarmennirnir Inga og
Ingimar Eydal tónlistina, sem er eftir Egil
Ólafsson. Leikstjórn Haukur Gunnarsson,
leikmynd Guðrún S. Haraldsdóttir. Sýningar
verða í Sjallanum kl. 20.30 á föstudags- og
laugardagskvöld. Og þá er allra síðasta
sýning á leiknum.
Um næstu helgi frumsýnir Leikfélag Akur-
eyrar barnaleikritið Kardemommubæinn í
leikstjórn Theódórs Júlíussonar.
Kvikmyndir um Prokofév
og Ulanovu í MÍR-salnum
Nk. sunnudag, 1. apríl kl. 16, verða tvær
heimildarkvikmyndir sýndar í MÍR-salnum,
Lindargötu 48, önnur um tónskáldið Sergei '
Prokofév og hin um dansmeyna Galinu
Ulanovu. Þau Prokofév og Ulanova voru
góðir kunningjar, hann var mikill aðdáandi
ballerínunnar og hún tónskáldsins. Reyndar
dansaði Ulanova aðalhlutverkin í flestum
þeim ballettum, sem samdir voru við tónlist
Prokofévs, t.d. Rómeó og Júlia og Ösku-
busku. Þegar tónskáldið samdi síðarnefnda
ballettinn, sem nú er verið að sýna í
Þjóðleikhúsinu, hafði hann Galínu Ulanovu
í huga í titilhlutverkinu.
Sýningar Þjóðleikhússins
um helgina:
Sveyk i síðari heimsstyrjöldinni eftir Brecht
og Eisler er að sjálfsögðu á dagskrá um
helgina. Tvær sýningar verða á þessari stór-
brotnu uppfærslu, á föstudags- og laugar-
dagskvöld. Það er Bessi Bjarnason sem
leikur Sveyk. óborganlega góðdálann sem
leikur á alla þýsku hermaskínuna. Meðal
annarra leikenda eru Gunnar Eyjólfsson,
Þóra Friðriksdóttir, Sigurður Sigurjónsson,
Gísli Rúnar Jónsson og Baldvin Halldórsson.
Amma þó! eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur á
greiða leið að börnunum, sem hafa sótt
sýninguna mjög vel. Því miður getur aðeins
orðið ein sýning á þessu vinsæla barnaleikriti
nú um helgina og verður sú sýning á
sunnudag kl. 15.00.
Skvaldur eftir Michael Frayn verður sýnt í
50. og allra síðasta sinn á sunnudagskvöld.
Aukasýningar verða engar. Þessi farsi hefur
notið gífurlegra vinsælda í allan vetur og eru
áhorfendur orðnir 20.000. Leikstjóri er Jill
Brooke Árnason. en í hlutverkunum eru
Þóra Friðriksdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Sig-
urður Sigurjónsson, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Bessi Bjarnason, Sigríður Þorvaldsdóttir,
Rúrik Haraldsson, Þórhallur Sigurðsson og
Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Túmasarkvöld, dagskrá byggð á Ijóðum og
æviatriðum Tómasar Guðmundssonar, verð-
ur frumsýnd á Litla sviðinu á sunnudags-
kvöld. Herdís Þorvaldsdóttir hefur umsjón
með dagskránni, en auk hennar koma fram
Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar
Jónsson, Edda Þórarinsdóttir, Guðrún Þ.
Stephensen, Helgi Skúlason og Róbert Arn-
finnsson; undirleikari á píanó er Bjarni
Jónatansson. Þetta er Ijúf skemmtun með
upplestri og söng, flutt verða lög eftir Sigfús
Halldórsson og Gylfa Þ. Gíslason. Létt
máltíð er innifalin í verðinu, en því er mjög
stillt í hóf.
Nú qetur
husbyqqjandi í Hafnarfirði
verslað í BYKO
án þess að fara í Kópavoq
BYKO verslun opnuö
í Hafnarfirði
Við bjóðum ykkur velkomin í nýja byggingavöru-
verslun BYKO í Hafnarfirði.
Þar ætlum við okkur að þjóna húsbyggjendum og
öðru ágætu athafnafólki í Hafnarfirði og ekki síður
Garðabæ, Álftanesi, af Suðurnesjum og víðar.
Markmið okkar er að BYKO í Hafnarfirði verði
í engu eftirbátur BYKO í Kópavogi sem er rómuð
fyrir glæsilegt vöruval, vörugæði, sanngjarnt verð og
góða þjónustu.
Þeir sem búa á þessu svæði og standa í stórum
sem smáum framkvæmdum geta nú sparað sér um-
talsverðan tíma og fyrirhöfn með heimsókn í BYKO
í Hafnarfirði.
VIÐ VONUMST TIL AÐ SJÁ YKKUR
BYKO
BYGGINGAVÖRUR
HAFNARFIRÐI
DALSHRAUN115
SiMAR: 52870/54411
Þar sem fagmennirnir versla er þér óhætt
Ritari
Utanríkisráöuneytiö óskar aö ráða ritara til starfa
í utanríkisþjónustunni.
Krafist er góörar kunnáttu í ensku og a.m.k. einu
öðru tungumáli auk góörar vélritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun í utanríkisráöuneytinu má gera ráö
fyrir aö ritarinn veröi sendur til starfa í sendiráðum
íslands erlendis.
Eiginhandarumsóknir meö upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist utanríkis-
ráöuneytinu, Hverfisgötu 115, Reykavík, fyrir 10.
apríl n.k.
Utanríkisráðuneytið
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Siðumúli 13 — P.O. Box 5295 — 125 Reykjavik
Laus er til umsóknar staða
Upplýsinga- og
fræðslufulltrúa
Viökomandi skal hafa staögóöa menntun og
starfsreynslu á sviði upplýsinga- og fræöslumála
eöa hliðstæðra starfa.
Umsóknir meö upplýsingum um menntun og
starfsreynslu skulu sendar Vinnueftirliti ríkisins,
Síðumúla 13 Reykjavík, eigi síðar en 24. apríl nk.