Tíminn - 01.04.1984, Síða 24
24
SUNNUDAGUR 1. APRÍL 19X4
M l«,l I U.IS.KINOK
Riíssntski-íslenskl
SKÁKORÐASAFN
Rússneskt-íslenskt
skákorðasafn
Komiö er út rússneskt-íslenskl skákoröasafn
sem Sergei Alisjonok, rússneskukennari
Ml R tók saman með aðstoð Jóns L. Árnason-
ar skákmeistara og fleiri nemenda sinna.
Hugmyndin að þessu skákorðasafni varö
til í tengslum viö rússneskukcnnslu, sem
Menningartengsl (slands og Ráðstjórnarríkj-
anna hafa gengist fyrir undanfarin ár, en
kennarar á þeim síðustu árin hafa veriö
hjónin Olga og Sergei Alisjonok. Hafa þau
bryddað upp á ýmsum nýjungum í kennsl-
unni og t.d. efnt til sérhæfðrar kcnnslu fyrir
áhugamenn í einstökum fræðigreinum, svo
sem stærðfræði og eðlisfræði, sem og fyrir
skákáhugamenn. I Sovétríkjunum er sem
kunnugt er mikill og almennur áhugi á skák
og fjöldinn allur af blöðum og tímaritum
gefinn út þar í landi um skák. Sum þcssara.
rita fást í bókaverslunum hér á landi og ætti
þessi orðabók að koma áhugamönnum að
miklu gagni við að stauta sig fram úr þeim.
Utgefandi skákorðasafnsins eru Menning-
artengsl íslands og Ráðstjórnarríkjanna.
Máígagn ísH;nij^ra hastamanng • i nm hwrjom rfiánuö'>
flytur £lðía#f 8feina>.vlðte!, tféttifog írésa.gr,ir af imtum
og hefSlamftnnurn
Eiðfaxi
2. tbl. '84 Eiðfaxa er nýkomið út. Meðal efnis
í blaðinu eru: Ritstjóraspjall eftir Hjalta Jón
Sveinsson ritstjóra, Úrval náttúrunnar. Hitt
og þetta eru smáfréttir um hestamennsku.
Grein er eftir Hyjólf.fsólfsson, sem nefnist
Vetrarþjálfun. Páll S. Pálsson skrifar: Hestar
lög og saga, grein með mörgum myndum.
Mótun þjálfunartímabilsins er eftir Maja
Loebell, og grein sem nefnist Frjósemi eftir
Kristin Hugason, kennara á Hólum. Viðtal
er við GunnarTryggvason, frá Skrauthólum,
Réttlætanlegt að selja út ódýr hross, segir
Reynir Aðalsteinsson. Úr ýmsum áttum eru
pistlar eftir Sigurð A. Kristinsson. Ýmsar
aðrar fréttir eru í blaðinu.
. .....
ÍSLANDSMÓT
í vaxtarrækt
fBFOSfp^z^
sunnudaginn 25. mars 1984
Úrslit kl. 20.30
Miðavcrð kr. 250,00
Nr 012S1
ATH. Midfnn gildii « Happadractti, f,já hakhfið
HBísí. mstxmwtí
Æfingakerfi í vaxtarrækt
Vaxtarræktin hf. hefur hafið útgáfu æfinga-
kerfa á íslensku og dönsku eftir fyrirmynd og
leyfi frá líkamsræktarfrumkvöðlinum Ben
Weider.
Ástæðan fyrir danska textanum er samstarf
við danska Weider umboðið og verður haldið
áfram með sameiginlega útgáfu.
Þegar eru komin út sex æfingakerfi ásamt
upplýsingum um mataræði í formi vegg-
spjalda, en þau fást einnig í broti.
Æfingakerfi þessi má kaupa í lausu, en
annars fylgja þau þeim áhöldum sem þau
hafa verið samin fyrir.
Nýju Rafha-neysluvatnshitararnir eru hannaðir með orku-
sparnað i huga Þessar nýju gerðir spara allt að 45% i
orkunotkun miðað við hefðbundnar gerðir. Astæðan er
meðal annars mjög fullkomin einangrun sem skilar ser i
óvenju lágu tómganstapi. Þar við bætist nytt hitald sem
minnkar rafmagnsnotkun verulega.
Ratha-neysluvatnshitarinn er gæðavara með ymsa goða eiginleika
- Nylonhúðaður (rilsonhúðaður) kutur að innan. Nylon-
húðin er sterk, höggvarin og góð vörn gegn tæringu.
- Yfirhitavar sem hægt er að stilla inn aftur.
- Termostat sem er auðvelt og nákvæmt í stillingu. stig-
laust frá 5°-85°C.
- Sérstakt frostöryggi,
- Barnaöryggi á termostatrofa
Tenging fyrir allar roragerðir. -s
- Engin bragð- eða lyktaróþægindi. |
- Auðveldur að setja á vegg/sokkul eða standandi. 1
- Góð þjónusta §
Verslunm Rafha. Austurveri Haaleitisbraut 68 Rvik Simi 84445
Rafha Hafnarlirði. simar 50022. 50023. 50322
m
Útboð
Tilboð óskast í gerð 70 m stoðveggs og stigahúss
vestan félagsheimilis að Fannborg 2.
Útboðsgögn verða afhent átæknideild Kópavogs-
bæjar Fannborg 2, 3. hæð.
Tilboðum skal skila á sama stað mánudaginn 9.
apríl 19984 kl. 11. fh.
og verða þau þá opnuð að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þar mæta.
Bæjarverkfræðingur.
Forstaða leikskóla
Forstöðumaður óskast hjá leikskóla Ólafsvíkur
frá 1. júní 1984.
Til greina kemur að ráða í 50% starf sé þess
óskað. Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur til 20. apríl 1984.
Bæjarstjórinn Ólafsvík
HÓPFERÐARBIFREIÐ
TIL SÖLU
Pessi velmeðfarni og
huggulegi Mercedes
Benz 309árg. 1977
er til sölu n ú þegar.
Sæti fyrir 21 farþega,
stórar hurðir, vökva■
stýri, kúlutoppur o.fi.
Upplýsingar í síma
74488 á vinnutíma.
Orðsending
til félagsmanna
Mjólkurfélags
Reykjavíkur
Aðalfundur félagsdeilda M.R. fyrir árið 1983
verða haldnir sem hér segir:
Mosfells- og Kjalarnesdeildir:
Þriðjudaginn 10. apríl kl. 14.00 ífélagsheimilinu
Fólkvangi.
Innri-Akranes-, Skilmanna-, Hvalfjarðar-
strandar-, Leirár- og Melasveitardeildir.
Miðvikudaginn 11. apríl kl. 14.00 í félagsheimil-
inu Fannahlíð.
Reykjavíkur-, Bessastaða-, Garða- og Hafnar-
fjarðardeildir.
Fimmtudaginn 12. apríl kl. 20.30 í skrifstofu
félagsins Laugavegi 164.
Vatnsleysustrandar-, Gerða- og Miðnesdeildir.
Laugardaginn 14. apríl kl. 14.00 í Stóru-Voga-
skóla, Vogum.
Kjósardeild.
Mánudaginn 16. apríl kl. 14.00 í félagsheimilinu
Félagsgarði.
Aðalfundur Félagsráðs
verður haldinn laugardaginn 28. apríl kl. 12.00
á hádegi að Hótel Sögu.
Stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur