Tíminn - 01.04.1984, Page 27
Danskar kon
ur fæda börn
sín í vatni
■ Á amtssjúkrahúsinu í Gentofte í.
Danmörku hefur nú verið tekinn upp sá
siður að gefa verðandi mæðrum kost á
því að fæða börn sín liggjandi í heitu
vatni. Að vísu hefur ekki skrefið verið
stigið til fulls þar sem sjálf fæðingin fer
fram á þurru en konurnar eru látnar
slappa af í volgu vatninu áður en mestu
hríðarverkirnirbyrja. Hérmunvera um
að ræða anga af því fyrirbæri sem kallast
frönsk fæðing þar sem reynt er að mýkja
fyrstu sporin í lífshlaupi einstaklingsins.
Hinar verðandi mæður hafa tekið þessari
nýbreytni vel og nú þegar eru orðnir
langir biðlistar á fæðingadeildinni í
Gentofte með nöfnum verðandi mæðra
sem vilja fá að fæða börn sín á þennan
hátt. Hluti af starfsliði sjúkrahússins
hefur verið sendur til Frakklands til að
kynna sér fæðingar þar sem konur liggja
allan tímann í vatni á meðan á
fæðingunni stendur í því skyni að taka
þann sið upp að fullu í Gentofte. Bent
hefur verið á að fæðingin gangi fljótar
fyrir sig með þessu móti þar sem volgt
vatnið gerir það að verkum að
vöðvaspenna verður ekki eins mikil og
minna þurfi á lyfjum að halda við
fæðinguna. Konurnar sjálfar eru þó
látnar ráða því hvort þær velja þessa leið
eða hinar hefðbundnu aðferðir en eins
og áður segir hefur þetta mælst svo vel
fyrir að færri komast að en vilja.
Vatnskerið sem notað er hefur
sérstaklega verið hannað í þessum
tilgangi og er um tveir metrar að
þvermáli og liðlega 70 sentimetra djúpt.
Vatnið hefur sama hitastig og líkami
konunnar og á því er hringrennsli þannig
að stöðugt rennur í kerið hreint vatn.
Þær konur sem fætt hafa með þessu móti
eru yfir sig hrifnar og telja að vatnið hafi
góð og slakandi áhrif á þessari erfiðu
stundu. Heilbrigðisyfirvöld vilja þó fara
hægt í sakirnar og vatnsaðferðin er
aðeins notuð í þeim tilvikum þar sem allt
útlit er fyrir það að fæðingin gangi
eðlilega fyrir sig.
■ Danir hyggjast ríða á vaðið með það að gefa verðandi mæðrum kost á því að fæða börn sin í vatni. Best er
talið að konan missi ekki vatn fyrr en hún er komin ofan í ylvolgt vatnið i fæðingarkerinu.
■ Michael, einn hinna landskunnu Jackson bræðra, gerði garðinn frægan
en hann hlaut nú nýverið 8 Grammy verðlaun fyrir hljómplötu sina.
AMERISKUR
UNDRADRENGUR
■ Bandaríski söngvarinn Michael
Jackson gerir það ekki endasleppt en
fyrirskömmu voru honum úthlutuð átta
Grammy verðlaun í hinni árlegu
úthlutun verðlaunanna en þau eru innan
tónlistarinnar svipuð og Oscars
verðlaunin í kvikmyndahcifninum.
Jackson skaut þar með Paul Simon
ianda sínum ref fyrir rass en hann fékk
á sínum tíma sjö verðlaun af þcssu tagi
fyrir plötuna „Bridge Over Troubled
Water." Platan sem slika feikna athygli
hefur vakið nefnist „Thrillcr" og hefur
þcgar síðast fréttist, selst i rúmlega 30
milljónum eintaka. Aðrír sem verðlaun
hlutu að þessu sinni voru
hljómsveitirnar Police og Culture Club
auk hljómsveitarstjórans George Solti
fyrir stjórnun á 9. sinfóníu Mahlerssem
Sinfóníuhljómsveit Chicagoborgar
laðaði fram. Þó svo að
verðlaunaafhending þessi hafi á
undanförnum árum verið gagnrýnd fyrir
það að vera hið mesta augiýsingaskrum
þar sem stóru plötuútgáfufyrirtækin séu
að verðiauna velgengni „kolleganna"
verður þó ekki framhjá því litið að í
þetta skiptið cr á ferðinni listamaður
sem ýmsan annan heiður hcfur hlotið
fyrir söng sinn. Hin þekktu popprit
Rolling Stone og Village Voicc hafa
t.d. bæði valið plötuna sem þa
frambærilegustu árið
1983
í skipín
í ferðalögín
Lð
4^
I sumarhúsin
Á afskekkta staði
ALDREIAFTUR MTÓLKURSKORTUR.
G-MTÓIKIN GEYMISr VELOGLENGI
en það er einmitt helsti kostur hennar þegar kaupa þarf mjólkurbirgðir
til langs tíma - um borð í skipin, á afskekkta staði sem einangrast oft
hluta úr árinu vegna samgönguerfiðleika, eða í sumarhúsin.
Með þetta í huga henta einmítt eins lítra umbúðimar einkar vel.