Tíminn - 08.04.1984, Síða 2

Tíminn - 08.04.1984, Síða 2
SUNNUDAGUR X. APRÍI. 19X4 ■ Myndin sýnir Sir James Murray ásamt dætrum sínum og aðstoðarmönnum í bóka- herberginu á heimili hans í Oxford. „Ég tel að skráning orðabókarinnar taki ekki meira en 12 ár“, sagði Sir Murray á sínum tíma þegar hann tók að sér að ritstýra verkinu. Það starf tók þó öllu lengri tíma og varð að lokum ævistarf hans. Hundrað ára og enn að f æðasf ■ Þeir eru orðnir ófáir sem hafa byrjað enskunám sitt með orðabókina „The Oxford English Dictionary“ sér við hlið en það eru e.t.v. færri sem vita það að í febrúar sl. á orðabók þessi hundrað ára afmæli. Við munum hér á eftir rekja í stuttu máli tilurð þessarar merku bókar og segja örlítið frá „föður“ hennar, Sir Henry Murray. A NEW ENGLISH DICTIONARY ON HISTORICAL PRINCIPLES: FÓUKOED MAINI.Y ON THE MATERIALS COLLKCTEO HY íllt ^iiilologitil Socittí. JAMES A H. MURRAY. LL.D„ rorAtDKNT or tni, rKiiot«ciCAi. *ocir.TY, wnn THt ASSI&'TANCL OF UASY SCJIOlAJfS A.Y/> V£X <‘T sc/F.U/.. PAHT I. A - ANT. OXl'ORI): A T T H K CLARli Nl)0 N 1’ R f-: SS. k. - "" Price Twolve ShiUlng* xnd Sixpence. ■ Titilsíða fyrstu útgáfu orðabókarinnar. Bókin var þó svo mjög tengd nafni Murrays að hún var oftast kölluð „orðabók Murrays“. ■ Fyrsta febrúar sl. voru ná- kvæmlega hundrað ár frá því að fyrsti hluti ensku orðabókarinnar „The Oxford English Dictionary“ leit dagsins ljós. Þessi fyrsti hluti orðabókarinnar bar nafnið A til Ant og það verður að segjast að margar bækur hafa heitið nöfnum sem hafa verið meira krassandi en óvíst að þær hafi verið eins mikil- vægar fyrir enska tungu og sú bók sem hér um ræðir. Bókfróðir menn telja að orðabókina megi setja á sama stall og Biblíuna og rit Shak- espeare hvað varðveislu enskrar tungu snertir þó svo að hún hafi ekki haft jafn tilfinningarík áhrif og síðarnefndu ritin. Það tók 44 ár að fullgera fyrstu heildarútgáfuna sem síðan hefur verið í stöðugri endurskoðun og í rauninni mun því verki verða hald- ið áfram svo lengi sem ensk tunga verður töluð. Ritstjóri fyrstu útgáf- unnar var sjálfmenntaður maður að nafni James Augustus Henry Murray frá Denholm í Roxburgs- hire. Sir James Murray eins og hann löngum var nefndur fékk þó ekki að lifa þann dag að sjá orðabókina útgefna í heild sinni því hann lést löngu áður en verkið var fullunnið en undir ritstjórn hans mun rúmlega helmingur að fyrstu heildarútgáfunni hafa orðið til Upphaflega mun Sir Murray hafa talið að það tæki u.þ.b. 12 ár að skrá orðabókina en verkið hlóð stöðugt utan á sig og eins og fyrr segir lifði hann ekki þann dag að sjá bókina fullunna. Til að gera orðabókina sem vandaðasta mun Sir Murray hafa staðið í bréfa- skriftum við höfunda samtímans til að inna þá eftir merkingum orða sem var að finna í verkum þeirra. Þannig hefur t.d. varðveist bréf frá Sir Murray til Robert Browning þar sem hann er að grafast fyrir um merkingu eins orðs sem Browning notaði í bók sinni „ Aurora Leigh“. Þó að til þess hafi ekki staðið í upphafi varð orðabókin ævistarf Sir Murrays og svo mikið var hún tengd nafni hans að hún var löngum nefnd manna. í millum orðabók Murrays. Utgefendur bókarinnar Oxford University Press mun hafa verið farið að lengja eftir því að bókin yrði tilbúin til prentunar en smám sam- an varð mönnum ljóst eftir því sem á leið að hér væri á ferðinni bók sem hefði nánst endalausa sölu- möguleika og sú hefur orðið reynd- in.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.