Tíminn - 08.04.1984, Side 8

Tíminn - 08.04.1984, Side 8
SUNNUDAGUR 8. APRIL 1984 a Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstjórar: Magnús Ólafsson (ábm) og Þórarinn Þórarinsson Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar: Síöumúli 15, 105 Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verö í lausasölu 20 kr. en 22 kr. um helgar (2 blöö). Áskrift 250 kr. Setning og umbrot: Tæknideild Timans. Prentun: Blaðaprent ht. Afturhald á undanhaldi ■ Illmúraðar byggingasamþykktir og skipulagsreglur sem eru meira í ætt við trúarbrögð en eðlilegar takmarkanir á framkvæmdagleði þeirra sem við húsbyggingar fást, hafa lengi staðið allri eðlilegri byggingaþróun fyrir dyrum. En skörð hafa brotnað í þann múr sem strangtrúarmenn á sviði skipulagsmála hafa staðið dyggan vörð um. Þeir hafa alltof lengi komist upp með að svínbeygja aðra undir trúarsetningar sínar. Samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur um að leyfa að breyta Hamarshúsinu við Tryggvagötu í íbúðahúsnæði er gleðilegur vottur um þá stefnubreytingu sem er að verða. Þar var áður rekin umsvifamikil atvinnustarfsemi, en húsnæðið hentaði ekki lengur til þess brúks. Nýr eigandi ákvað að breyta því í íbúðir og mun veitingastofa hafa fengið inni á neðstu hæð. Mörg ljón í formi reglugerða og strangtrúnaðar voru í veginum en nú hefur borgarstjórn tekið af skarið. Vel má vera að Hamarshúsið við höfnina henti ekki öllum til að búa í og þar mun lítið um útivistarsvæði og bílastæði af skornum skammti. En þeim sem telja að hús þetta sé óhæft til íbúðar og miða þá við eigin þarfir eða einhvers konar kjarnafjölskyldu, kemur hreint ekkert við hvaða kröfur þeir 20-30 aðilar sem þarna munu kaupa íbúðir gera fyrir sig. Varla dettur nokkrum manni í hug að barnmargar fjölskyldur sækist eftir að búa þarna. En fyrir þá sök er fráleitt að meina barnlausu fóki og einhleypingum að búa um sig í miðborginni við höfnina ef það kærir sig um. Og víðar eru vandræði með geymslurými fyrir bíla en við Tryggvagötu. Bent hefur verið á að þarna sé umferð, mengun og hætta á skarkala frá höfnini. En beint á móti og enn nær höfninni eru Hafnarbúðir, hjúkrunarheimili fyrir aldraða, og þaðan heyrist aldrei kvörtun hvorki frá vistfólki né starfsfólki. Gerður Steinþórs- dóttir boruarfulltrúi Framsóknarflokksins, benti á í umræðum um málið að fólkið í Hafnarbúðum væri þvert á móti mjög ánægt með umhverfi sitt sem er óvenju líflegt. Því má bæta við að hljóðmengun við Tryggvagötu er svipuð og á Miklubraut. Eftir Hringbrautinni vestanverðri er gífurleg bílaumferð og eru þar stórar íbúðablokkir við akbrautirnar og mannmargt elliheimili í ofnaálag og kvartar ekki nokkur maður úr sértrúarsöfnuði skipulagsfrömuða, þrátt fyrir að þarna eykst umferð jafnt og þétt vegna aukinnar byggðar vestar á nesinu. Sú kenning að allir eigi að búa í afmörkuðum hverfum og vel einangruðum frá öllu athafnalífi með stöðluðum þjónustukjörnum fær ekki staðist nema fyrir þá sem vilja búa um sig í þorpskjarna. Aðrir eiga að fá frelsi til að búa í miðborginni eða við höfnina ef þeir svo kjósa og er gefið tækifæri til þess. Það er nú einu sinni svo að mannlífið er ekki eins staðlað og þeir harðstjórar, sem ávallt eru að skipuleggja líf samborgara sinna, vilja vera láta. Miðborg Reykjavíkur er á góðri leið með að verða líflaus ruslakista. Reynt er nteð öllum tiltækum ráðum og þrýstingi að koma í veg fyrir allar breytingar aðrar en þær að fjölga bílastæðum. En hér er að verða breyting á og vonandi munu öskutunnuraðir og skúrahröngl hverfa sjónum vegfarenda einhvern tíma á næstu 50 árum og miðborgin byggð að siðaðra manna hætti. Það er víðar í gömlu Reykjavík en í miðbænum sem eitthvað í ætt við þróun á sér stað. Óti úlega víða hafa fundist lóðir og stærri spildur sem farið er að byggja hús á, þar sem áður var lagt blátt bann við hvers konar framkvæmdum. Kyrrstöðumennirnir í skipulaginu hafa aldrei skilgreint að neinu skiljanlegu gagni þau sjónarmið að hvergi megi byggja né neinu að breyta nema í margra kílómetra fjarlægð frá því bæjarstæði sem höfuðborgin stóð á t.d. 1930 eða 1940. Verndun einstakra menningarverðmæta kemur þessu máli ekkert við. Torfusamtökin unnu gott verk og nýtilegt með því að koma í veg fyrir glerhallarbyggingu en endurbæta og lífga upp gömlu húsin í Bakarabrekkunni. Nú hafa þau einnig riðið á vaðið með góðu fordæmi. Mikið hús er að rísa þar sent áður voru mjöl- og mógeymslur á sjálfri torfunni. Svo reisuleg bygging hefur aldrei verið þar áður, en hún verður ekki fyrir neinum, þvert á móti. Þetta er ánægjuleg hugarfarsbreyting hjá verndarsinnunum. Það á ekki aðeins að líta aftur í tímann heldur einnig fram á við. -O.Ó. horft í straumirm Að þora að lifa I frelsi og sjálfstæði í viðsjálum heimi B Um s.l. mánaðamót var þess minnst, að 35 ár eru liðin síðan íslendingar gerðust aðilar að Atlantshafsbandalaginu og gerðu síðan varnarsamninginn við Bandaríkin, sem njörvaði niður erlendan her í landinu og myndaði skilyrði þess, sem síðan hefur gerst, - að erlend herstöð veröur æ varanlegri stofnun og hersetan sjálfsagðari hlutur og framtíðarsýn. Þessi tímamót leiða hugann að þeirri staðreynd, að íslendingar hafa verið hersetin þjóð að fullu eða nokkru leyti í nærfellt hálfa öld, og að sjálfstæðistímabil þeirra á þessari frelsisöld varð harla stutt, eða ekki nema tveir áratugir. Höfum við fuilt sjálfstæði? Einhverjum kann að þykja það of mælt, að íslendingar hafi ekki haft fullt frelsi og sjálfstæði þann hálfa fjórða áratug, sem við höfum búið við bandaríska herstöðvasamninginn, en þá er vert að minna á eftirfarandi staðreyndir. Við ráðum ekki yfir hluta af íslandi. Þar gilda ekki íslensk lög nema að litlu leyti, ekki íslenskar reglur eða reglugerðir um samskipti ríkis og borgara, ekki íslensk lögsaga yfir erlendum mönnum sem dveljast á íslensku landi. Á margan annan hátt eru íslensk ríkisráð yfir landinu og þeim sem þarna dveljast rofin, og þeim var beinlínis afsalað með varnarsamningnum. Þetta er ómót- mælanlega skerðing á íslensku sjálfstæði. Eitt glöggt dæmi um þetta er einmitt að gerást þessa dagana til viðbótar því sem fyrir var. Það er yfirtaka bandarísks skipafélags á flutningum til herliðsins á íslandi samkvæmt bandarískum lögum. Öllum hlýtur að vera það kunnugt, að það er og hefur verið eitt skýrasta sjálfstæðiseinkenni íslendinga, að jafnframt sjálfstæðistökunni tóku þeir í sínar hendur alla flutninga til og frá landinu, annað hvort með eigin skipum eða leigu erlendra skipa, en höfðu öll þessi ráð í höndum. Nú á það að breytast svo, að erlenda ríkið í íslenska ríkinu suður á Miðnesheiði, sem hefur eigin lög, alls konar undanþágur frá íslenskum ríkisskyldum, ætlar að taka flutning- ana í eigin hendur, að bandarískum lögum. Það er ný sjálfstæðisyfirlýsing þess gegn íslenska ríkinu. Þjóðríki sem verður að búa við slíka hertöku á hluta lands síns og lögum, hvort sem er með samningi eða ekki, hefur ekki lengur fullt sjálfstæði. Þetta er vitanlega staðreynd, sem ekki verður á móti mælt. Hluti íslensks lands og ríkis er kominn í annarra hendur hvort sem er með hertöku eða eigin afsali. Kallaði nokkur þetta sjálfstæði 1930? Þeir sem nú eru nær sjötugir og hafa lifað meginhluta ævi sinnar við þetta ástand á Islandi, hljóta að spyrja sjálfa sig nokkurra samviskuspurninga. Þeir sem fermdust á árunum kringum 1930 og voru að vakna til skilnings á þjóðlífinu töldu að þeir væru sú hamingjukynslóð sem ætti að fá að búa í landinu við óskorað þjóðfrelsi og fullt sjálfstæði. Þetta voru glæstar vonir eftir allt, sem á undan var gengið, og ábyrgðin í samræmi við það. Engum kom þar til hugar að það gæti samrýmst fullu þjóðfrelsi og sjálfstæði að hafa í landinu erlendan her sem lyti lögunt annars ríkis og réði hluta landsins. Á áratugnum milli 1930 og 1940 hefðu allir svarað spurningu um það, hvort slíkt gæti kallast sjálfstæði, hiklaust neitandi sem hverri annarri fjarstæðu. Þetta var svo algilt þjóðarálit, að enginn stjórnmálaflokkur í landinu dirfðist að halda hinu gagnstæða fram alveg fram að 1950. Sjálfstæðiskynslóðin frá þriðja og fjórða áratugi aldarinnar, sem ól í brjósti rökstuddar vonir um að verða handhafi íslensks sjálfstæðis eftir myrkar aldir, hefur nú orðið að bergja þann beiska bikar í hálfa öld að una skertu sjálfstæði í landi sínu. Það er lífsósigur hennar. Var þetta nauðsynlegt? Árið 1946 voru allir meginflokkar landsins sammála um það, að herinn sem sat landið á stríðsárunum, ætti að fara og íslendingar að taka Keflavíkurflugvöll í eigin hendur, svo sem sjálfstæðu ríki bar og bauð. Þeir voru sammála um þá kröfu og hernunt var settur hálfs árs frestur til þess að hafa sig á brott, en beiðni Bandaríkjanna um herstöðvar til langs tíma var hafnað alveg og einróma. En herinn fór aldrei eins og allir vita. Síðan kom aðildin að Atlantshafsbandalaginu til. Rök mátti færa fyrir því þá, að hún væri ekki óeðlileg með þeim fyrirvara sem undirskriftinni var settur, að hérskyldi ekki vera her á friöartímum. ísland er hluti af þessu hnattsvæði og því hlaut það að eiga töluverða samleið með þjóðum þess og deila með þeim örlögum ef til ófriðar kæmi. En á þeim tíma kom hvorki þjóðinni, Alþingi né ríkisstjórn hennar til hugar að til mála kæmi að kaupa þá aðild því verði, að hér sæti erlendur her að staðaldri, jafnt í stríði sem friði. Hefði þá verið Ijóst. að sá böggull fylgdi skammrifi, hefði aðildin ekki komið til greina. Það vita allir, að þess vegna var fyrirvarinn settur að kröfu þjóðar og Alþingis. Herseta hér og aðild að Atlantshafsbandalaginu var því að sameiginlegum vilja þjóðarinnar þá tvö alveg aðskilin mál, og þessi staða íslands samþykkt og viðurkennd í samtökunum í orði kveðnu að minnsta kosti. Og á þessum skilyrðum hefðu íslendingar átt að standa hvað sem á dagana dreif. Það var þeirra haldrcipi. Varnarsamningurinn og erlenda hersetan hér 'á friðartímum var að sjálfsögðu afnám þessara skilyrða af hálfu íslendinga og jafnframt sjálfstæðisafsal að nokkru. í kjölfar þessa kom upp það nýja viðhorf tveggja stórra flokka, Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks, að halda því að þjóðinni sýknt og heilagt, að það væri í raun eitt og hið sama að vera í Atlantshafsbandalaginu og hafa hér erlendan her - það hlyti að fara saman. Þetta þjónaði sjónarmiðum beggja, þótt skoðanaandstæður þeirra væru áttirnar austur og vestur. íslenski málstaðurinn - að þetta væru aðskilin mál og ættu að vera það hefur orðið að þoka æ meira fyrir þessum áróðri. Og síðan höfum við, sem héldum okkur sjálfstæðiskynslóð orðið að jarða drauma okkar frá 1930 og búa við skert sjálfstæði í nær hálfa öld, hafa hér erlendan her á friðartímum í hálfan fjórða áratug - gegn heitstrengingum þjóðarinnar. Á slíku afmæli hljóta menn að spyrja: Var þetta nauðsyn- legt? Þurfti að skerða sjálfstæði landsins með þessum hætti allan þennan tíma og staðfesta slíkt ástand um ófyrirsjáanlega framtíð? Þurfti að fórna sjálfstæðisdraumum þessarar kyn- slóðar og næstu kynslóða á þessu altari? Eða hafa þetta ekki verið friðartímar í þeim skilningi sem réð fyrirvaranum við inngönguna í Atlantshafsbandalagið? Ber nú að líta svo á, að aðildin þar og erlend herseta séu eitt og sama málið og óaðskiljanlegt ástand? Svörin við þessum spurningum verða sjálfsagt mismunandi, en því verður þó vart á móti mælt, að síðustu fjórir áratugarnir hljóta að teljast friðartímar í hinum gamla og viðtekna skilningi. í okkar heimshluta hafa ekki orðið stríðsátök sem heitið geti því nafni milli þjóða. Teljum við hersetu hér nauðsynlega í samræmi við gamla fyrirvarann erum við farin að kalla mismunandi ófriðvænlegt ástand sama nafni og styrjaldarástand? Það var auðvitað ekki inntak fyrirvarans né heldur skoðun þjóðarinnar á sínum tíma. Að þora að lifa í frelsi Sé það friðarástand sem ríkt hefur í Evrópu síðustu fjóra áratugina talin næg ástæða til erlendrar hersetu hér, má ætla að hér verði erlendur her og skert sjálfstæði því samfara um ófyrirsjáanlega framtíð, eða um aldur og ævi. Það eru dapurlegar horfur fyrir sjálfstæðiskynslóðina frá 1930 sem nú hefur orðið að eyða ævinni 35 friðarár við erlenda hersetu þvert ofan í dýrustu drauma sína og allar heitstrengingar um herleysi á friðartímum. Við hefðum getað notið fulls sjálfstæð- is í herlausu landi þennan mannsaldur, ef við hefðum verið trú upprunalegum heitstrengingum og skilgreiningu og þorað að lifa í sjálfstæði við hættu. Ef við teljum þessi ár til styrjaldarára eins og hersetan vitnar um, getum við varla vænst þess ástands í heimsmálum á næstu áratugum eða jafnvel öldum, að við gætum kallað það friðarár. Ástandið verður jafnófriðvænlegt og það hefur verið, en þó geta það orðið friðarár, eins og síðustu áratugirnir. Við þetta ástand verðum við að búa og miða viðhorf okkar við það að halda fullu sjálfstæði án erlends hers í því friðarástandi. Annars glötum við því - af ótta við stríð - á friðartímum. Það sem hér skiptir máli er að þora að lifa í frelsi og sjálfstæði, þótt ófriðvænlegt sé, þora að hætta nokkru til þess, leggjast ekki svo lágt að selja sjálfstæðið fyrir einhvers konar öryggi - ímyndað eða raunverulegt. í neyðarhættu er hægt að biðja unt hjálp nágranna, en þegar hættan minnkargetum við ckki leyft honum að setjast upp á heimilinu, og taka þar ráðin. Þá glötum við sjálfum okkur. Hver maður er í lífshættu hverja stund. Þó sest hann ekki í hjólastól eða fer í stállunga af ótta við þann sjúkdóm, sem gæti dæmt hann til þess, meðan hann heldur heilsu. Þúsund ára friðarríkið er enn víðs fjarri. Heimurinn sem við búum í verður ófriðvænlegur ár og aldir, þótt friðartímar teljist á köflum. íslendingar halda aldrei frelsi og sjálfstæði nema þeir þori að lifa sjálfstæðu lífi á viðsjálum tímum en láti stríðsótta á friðartímum ekki reka sig inn í herkví. Það er mergurinn málsins. Þjóðin verður að þora að hætta sjálfri sér að einhverju leyti fyrir fullt sjálfstæði en má ekki una því hálfu vegna ímyndaðs öryggis. Fólki er nú að skiljast að friður verður ekki varðveittur með ógnarjafnvægi stórvelda í hróksvaldi gereyðingarvopna. Það er leiðin til tortímingar og styrjaldar. Eina friðarleiðin sem til er verður samstillt almenningsálit yfir landamæri gegn ógnar- jafnvæginu og gereyðingarvopnunum, samstilling fólks um lönd og álfur, sem þorir að hætta einhverju af sjálfu sér fyrir það að lifa sem mönnum sæmir í þjóðfrelsi, en ofurselja sig ekki vítisvél ógnarjafnvægisins. Sjálfstæði og frelsi vopnlausrar smáþjóðar eins og íslend- inga verður aldrei varðveitt í fullu gildi nema menn þori að hætta á að tefla því fram í viðsjálum heimi og í hinni sífelldu stríðshættu friðaráranna. Það verður ekki í fullu gildi nema menn þori að hætta á að glata því, þori að njóta þess. Hin leiðin, sem við höfum gengið síðustu fjóra áratugina, er að glata því að meiru eða minna leyti fyrir fram. -AK Andrés Kristjánsson skrifar

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.