Tíminn - 08.04.1984, Qupperneq 10

Tíminn - 08.04.1984, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 8. APRIL 1984 Rómantík við bláan sæ undir bylgjandi pálmatrjám. iru»i »ii ' 7t Lnréffnnm f ÍL JLll\ f l/Mli U Kynlegur er þessi staður. Hér er hlýtt á vetrum og hrtabeltisloftslag á sumrin. Petta er nokkurs konar blanda af afrískri pálmaströnd og Chicago. í hótelanddyrinu má Irta gervimarmara, gerviblóm og gervftennur. Um himininn bruna þotur fullar af ferðafólki í átt að alþjóðlega flugvellinum í Stór-Miami. Þoturnar eru sérstök martröð út af fyrír sig. Stór-Miami er annars háborg banka, viðskipta og fasteigna- sölu. Borgin er líka óopinber höfuðborg útlægra Kúbana, en þeir eru 56 prósent hinna 370 þúsund íbúa. Þarna hafa og einir 80 suður-amerískir milljónamæringar athafnamiðstöð sína og síðast en ekki síst Mafían og eituríyfjaverslunin. MIAl BEACH Scx hraðbrautir tcngja borgina við baðströndina á Mianti Beach, cn hún liggur á 14 kílómctra löngum skaga. Þar búa 90 þusund manns og lýtur staðurinn sinni eigin borgarxtjórn. Þcgar ekið er í langferðabílrilm eftir Collins Avenue meðfram sjónum, kem- ur í ljós að auðurinn fer minnkandi frá norðri til suðurs. Hér eru göturnar auðkenndar með númerum og á leiðinni milli áttugasta og sextugasta strætis ber mest á fallega hirtum görðum, lystigörð- um og golfvöllum. Milli sextugasta og fertugasta strætis ríkja steinsteypu- blokkir með eignaríbúðum og þar eru hótelin „Doral“, „Eden Rock“ og „Font- ainebleue." Loðvíks 14. Ijóminn, Ap- ollo-stytturnar og Feneyjabrunnarnir vitna um að ekkert hefur verið of evrópskt eða dýrt til þess að eigendurnir réðu við það. Milli fertugasta og tuttug- asta strætis eru göngugötur, verslunar- hverfi og veitingahús. „South-Beach“ En nú tekur að minnka glansinn. íbúðarhúsin verða verulega hrörlegri hótelin ódýrari oggamla fólkið fátækara. Við erum á „South-Beach.“ Ríku eftir- launaþegarnir i lúxushverfunum vita ekkert um aðstæður héma. Svo sem ríku Mendelson-hjónin, stóreignafólk frá Ohio. Þegar við spyrjum hvað þau séu að gera allan daginn svara þau: „We have fun, Darling.“ Nei, þau hafa aldrei verið þarna „níðurfrá". Nei, það er ekki þeirrá heimur. Þáð muridi aðeins koma þeim og jafnöldrum þeirra í vont skap að fara þangað. Víst er um það að uggvænlegan bla- hefur þetta umhverfi á sér þegar brenn- heit miðdegissólin lýsir upp þá hrörnúri manna og hluta sem hér á sér stað í Hitchcock-stíl. Til dæmis þegar sírenur sjúkrabílanna yfirgnæfa köllin í hátalar- arium við baðströndina: „Mister Silver- 'stejn, gjörið svo vel að koma í símann!" Stundum bregður fyrir ýmsum svip- mvndum af skuggahliðum ellinnar sem veröa eftirminnilegar: Stirðlegar hreyf- ingar manns sem mæðist við að hjóla á æfingahjóli við sundlaugina og tómlegt augnatillit öldungs er starir fram fyrir sig t lciðslu klukkan átta að morgni á bensínstöðina handan götunnar. Einnig fennur manni til rifja að sjá viðleitni ekkju einnar til þess að hressa upp á noturlega íbúð sína mcð suðuhellu, plasthengi fyrir baðkerið og myndum í plástramma, sem hún stillir upp á gamla kommóðu. Það er ekki mikið sem eftir verður, þegttr tryggingastyrkþegarnir í „South- Beach" hafa greitt föst útgjöld. Leigan er 150-400 dollarar á mánuði og styrkur- inn eftir atvikum 300-450 dollarar. Ýmsir cru það illa settir að þeir eiga ekki annað til að nærast á en pakkasúpur, túnfisk, svartar baunir eða kattamat. Jafnan er löng biðröð framan við ódýra matsölu- staðinn „Wolfies", en þar eru gúrkurnar Kennara vantar aö Gagnfræðaskóia Húsavíkur næsta skólaár. Kennslugreinar: Raungreinar og erlend mál m.a. viö framhaldsdeildir. Upplýsingar veita skólastjóri og yfirkennari í síma 96-41344 og 96-41720. Heimasímar 96-41166 og 96-41440. Skóianefnd ’ ^last^N og ál skilti / mörgum gerðum og litum, fyrir heimili og stofnanir. Plötur á grafreiti / mörgum stærðum. Nafnnælur # ýmsum litum, fyrir starfsfólk sjúkrahúsa og annarra stofnana Upplýsingatöflur með lausum stöfum Sendum í póstkröfu SKILTAGERÐIN ÁS Skólavörðustíg 18 Sími 12779 Vinsælu tímaritin FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ 86300 Bíla- og véla- viðgerðir BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ DVERGUR SF. Smiðjuvegi E 38, Kóp. Aðalfundur Aöalfundur Alþýðubankans hf. áriö 1984 verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu, Reykjavík, laugar- daginn 14. apríl 1984 og hefst kl. 14:00. ‘ Dagskrá: a) Venjuleg aöalfundarstörf í samræmi við ákvæði 18. gr. samþykkta bankans. b) Tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Aðgöngumiðar að fundinum og atkvæðaseðlar verða afhentir í aðalbankanum, Laugavegi 31, dagana 11., 12. og 13. apríl n.k. f.h. bankaráðs Alþýðubankans h/f Benedikt Davíðsson, form. Þórunn Valdimarsdóttir, ritari. Deildarfulltrúi Félagsmálastofnun Kópavogs óskar eftir aö ráöa deild- arfulltrúa í fjölskyldudeild. Menntun í félagsráðgjöf eöaönnursambærileg menntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 16. apríl. Jafnframt er umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu fjölskyldufulltrúa framlengdur til sama tíma. Umsóknareyðublöð liggja frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12. Upplýsingar veitir félagsmálastjóri í síma 41570. Félagsmálastjóri

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.