Tíminn - 11.04.1984, Qupperneq 2
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 1984
fréttir
Egypskir dagar á
Hótel Loftleiðum
■ Egypskir dagar húfust á Hútel Loftleiðum í gxrkvöldi og standa fram á
laugardagskvöld. I'etta er í þriðja sinn, sem Egyptalandskynning er haldin hér á
landi og að þessu sinni hefur Hútel Loftleiðir haft samvinnu við Flugleiðir, Egypt
Air og ferðaskrifstofuna Útsýn. En Útsýn ætlar að efna til Egyptalandsferðar í
oktúber í haust sem lið í heimsreisum sínum.
Egyptaland er cnn lítt numið af íslenskum ferðamönnum og tilgangur
kynningarinnar er m.a. að bæta úr því. Þar var eitt sinn vagga hcimsmenningarinn-
ar og fornminjar eru óteljandi. Til þess að kynna þessa menningu og landið, kom
hingað danshópurinn Nílardansararnir og mun hann skemmta gestum Hótels
Loftleiða. Hópur þessi hefur aðsetur í Svíþjóð og stjórnandi hans er dansahöfund-
urinn og trumhuleikarinn Bahi Barakat. Matarlistin er ekki skilin útundan og hafa
matreiðslumenn Hótels Loftleiða útbúið sérstakan egypskan matseðil í tilefni
kynningarinnar. -GB
Terms of Endearment
útnefnd besta myndin
— fékk alls fimm óskara
■ Bandaríska kvikmyndin „Terms of
Endearment" átti athygli 500 milljúna
sjúnvarpsáhorfenda um allan heim sem
fylgdust mcð alhendingu úskarsverð-
launanna í beinni útscndingu í fyrra-
kvöld. Myndin hlaut hvorki meira né
minna en fimm verðlaun. Leikstjúrinn,
James Brooks, var heiðraður fyrir hvort
tvcggja; leikstjúrn og handrit, Shirlcy
MacLainc, sem fúr með eitt stærsta
hlutverkið í myndinni, fékk verðlaun
fyrir bestan leik í kvenhlutverki og Jack
Nicholson, sem í myndinni leikur geim-
fara sem lifir á fornri frægð, var verð-
launaður fyrir bestan leik í karl-auka-
hlutverki. Þá var myndin sjálf valin sú
besta frá Bandaríkjunum.
„Terms of Endearment" fjallar um
samskipti móður og dóttur, sem leiknar
eru af Shirley MacLaine og Debra
Wingre og spannur miili 30 og 40 ár af
æviferli þeirra. M«><>nin er sérvitur og
sæmilega stæð ekkja sem á erfitt með að
sætta sig við að aldurinn skuli færast yfir
hana, þykir til dæmis alls ekki skemmti-
legt að verða amma. Dóttirin býr í
stormacömu hjónabandi og þegar hún
veikist af krabbameini reynir mjög á
sambandið við móðurina, sem ser franr
á mikla röskun á sínu lífi ef dóttirin
hefur það ekki af.
Robert Duvall var verðlaunaður fyrir
leik sinn í myndinni „Tender Mercies",
en þar fór hann með hlutverk drykkfellds
kúrekasöngvara, sem er aðalhlutverk
myndarinnar. Linda Hunt hlaut óskar
fyrir bestan leik í aukahlutverki kvenna
og var það fyrir túlkun hennar á karlkyns
stríðsljósmyndara í myndinni „The Year
of Living Dageously“.
Nýjasta mynd Ingmars Bergman
„Fanny og Alexander" var útnefnd besta
erlenda kvikmyndin. Sú mynd fékk einn-
ig verðlaun fyrir kvikmyndatöku, bún-
inga og listræna tjáningu.
- Sjú.
Motórarnir brunnir yfir
í báðum spilum Dagrunar
„Verksummerki
benda til að þjösn-
ast haf i verið á þeinrT
■ „Við liöfum vcriö að reyna að kom-
ast að því hvað hafi gerst síöast þcgar við
vorum inni til löndunar því það er Ijúst
að það hafa verið geysileg átök á þessum
spilum. Mútorarnir við þau voru báðir
brunnir yfir og túgin eru sums staöar
brunin langt inn á löngum kafla“, sagði
Viðar Axelsson, vélstjúri á togaranuin
Dagrúnu frá Bolungarvík. Dagrún hélt
til veiða sl. laugardag. Viðar sagði menn
hafa orðiö vara við að annaö spilið var
farið skömrnu eftir að farið var út, en
síðan hafi hitt fariö í fyrsta hali. Togarinn
varð því að halda til hafnar á ný og bjúst
Viöar í fyrsta lagi við að þeir kæmust út
aftur á fimmtudagskvöld ef viðgerð yrði
þá lokið á öðrum mútornum.
Spuröur hvort rétt væri hermt að
grunur lægi á að löndunarmenn liafi
notaðspilin heldurótæpilegasagði Viðar
erfitt að fullyröa neitt um það, en
verksummerki bentu til að þjösnast hafi
verið á þeim. Tógið er úr næloni og
brennur því ef það hitnar mjög mikið.
Áhafnarmenn sem venjulega sjá um að
binda skipið hafi rekið upp stór augu
þegar þeir sáu hvað tógið var illa farið,
enda aldrei séð neitt slíkt fyrr. Sþilin
sagði Viðar m.a. notuð til að hífa út
trollið og lyfta upp pokanum þegar híft
er. Einnig væru þau stundum notuð til
að hjálpa skrúfunni til að ná skipinu að
að aftan þegar lagt væri að bryggju.
Spurður um aflabrögðin um þessar
mundir sagði Viðar þá hafa liaft fréttir
af að menn væru að fá góðan. ufsa fyrir
sunnan eða suðvestan land og þeir á
Dagrúnu hafi því sett strikið suðurfyrir
þegar þeir fóru út s.l. laugardag. Þegar
komið var suður undir Látrabjarg varð
hins vegar Ijóst að þeir yrðu að snúa við
aftur. - HEI.
■ Vélstjúri sýnir Ijúsmyndara hve næiontúgið var sunis staðar illa brunmO.
Mynd Finnbogi.
Mannsins er
enn saknað
■ ÍHunars Viðar hæstaréttarlögmanns,
sem lögreglan í Hafnarfirði lýsti eftir í
gær. er enn saknað. Einar fór frá
Smáraflöt 48 í Garðabæ, þar sem hann
býr, að morgni fimmtudagsogsástsíðast
í Austurstræti í hádeginu sama dag.
Einar Viðar er 58 ára gamall 187
sentimetrar á hæð, grannvaxinn og grá-
hærður, klæddur í dökkbrúnan ryk-
frakka með belti, gráa skyrtu og gráar
buxur, þegar hann sást síðast.