Tíminn - 11.04.1984, Blaðsíða 18
22
MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 1984
Bros úr djúpinu eftir Lars Norén frumsýnt hjá LR:
Leikrit bannað börn-
um og viðkvæmu fólki
■ í kvöld frumsýnir Leikfélag Reykja-
víkur leikritið Bros úr djúpinu (Under-
jordens Leende) eftir sænska leikritahöf-
undinn Lars Norén, sem á örfáum árum
hefur skipað sér í röð fremstu leikrita-
höfunda. Lcikhús á öllum Norður-
löndum keppast við að fá leikrit hans til
sýninga og verk hans hafa nú einnig
verið sýnd í Þýskalandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum. Gagnrýnendur hafa
keppst við að hlaða hann lofi, hann
hefur verið nefndur „hinn nýi
Strindberg" og þar fram eftir götunum.
Bros úr djúpinu er fyrsta verk hans sent
flutt er hér á landi.
Segja má að það sem helst einkenni
leikrit Norens sé afskaplega sérstæður
og persónulegur stíll hans, óvenjulega
nærgöngul krufning á sálar- og tilfinn-
ingalífi fólks eins og það speglast í
daglegum samskiptum, fótfestuleysi hins
ráðvillta nútímamanns.
Leikritið Bros úr djúpinu fjallar um
ást og ástleysi, þörf okkar fyrir ást og
umhyggju, foreldravandann og ábyrgð
okkar á sjálfum okkur og okkar nánustu.
Aðalpersónur leikritsins eru listamenn,
hjónin Eðvarð og Helena, hann er
rithöfundur, sem ekki hefur skrifað staf
í fjögur ár, hún er ballerína og dansa-
höfundur. Þau eru nýbúin að eignast sitt
fyrsta barn, fæðingin hefur orðið Helenu
um megn, hún fengið taugaáfall og
neitað að annast barnið. Leikritið hefst
þegar hún kemur heim eftir þriggja
mánaða dvöl á geðsjúkrahúsi. Segja má
að verk Noréns geri óvenjumiklar kröfur
til leikara og er Bros úr djúpinu þar
engin undantekning. Með hlutverk hjón-
anna fara Hanna María Karlsdóttir og
Sigurður Skúlason. Móður Helenu leikur
Sigríður Hagalín, systurina Guðrún S.
Gísladóttir og vinkonuna leikur Val-
gerður Dan.
Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson,
Stefán Baldurssop þýddi leikritið,
Daníel Williamsson annast lýsingu,
Nanna Ólafsdóttir samdi dans og leik-
mynd og búningar eru eftir finnska
leikmyndateiknarann Pekka Ojamaa,
sem búinn er að vinna í flestum leikhús-
um Finnlands og víða utanlands, gerði
m.a. leikmyndina við Prestfólkið hér á
íslandi nýlega.
Sýningin á Brosi úr djúpinu er strang-
lega bönnuð börnum og hneykslunar-
gjörnu fólki er eindregið ráðlagt að
koma ekki á sýninguna. Ástæðan er sú
að í textanum er víða djarflega komist
að orði, og eins eru ákveðin atriði í
verkinu sem gætu komið við fólk.
Atvinna 2. Vélstjóra vantar á skuttogara. Upplýsingar í síma 94-6105. Súgþurrkunartæki Vil kauparafmotoreinfasa 220 volt 13-15 hameð eöa án blásara Upplýsingar í síma 93-4232
Tilkynning til launa- skattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina janúar, febrúar og mars er 15. apríl n.k. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtu- manns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið Tilkynning til sölu- skattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjald- dagi söluskatts fyrir marsmánuð er 15. apríl. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs ásamt söl uskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið
ÍÍP^GLUGGAR^® Y 06 HURÐIR ^ Vönduó vinna á hagstœðu verði. I Leitið tilboða. 1 1 ÚTIHURÐIR J Dalshrauni 9. Hf. Jm s Æm - Útboð Hveragerðishreppur óskar hér með eftir tilboðum í uppsetningu girðingar í kringum hverasvæðið í Hvera- gerði. Girðingin verður 775 m að lengd og 2 m há. Girðingarefnið er framleitt af Heras Sence Systems Hollandi. Verkinu skal vera lokið fyrir 15. júní 1984. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hveragerðis- hrepps, gegn 500 kr. skilatryggingu, og skal þeim skilað á sama stað eigi síðar en þriðjudaginn 24. apríl kl. 10. og verða tilboðin þá opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Sveitarstjórinn í Hveragerði.
Kvikmyndir
Sími 78900
SALUR 1
Heiðurs-konsúllinn
(TheHonoraryConsul)
ÍMÍÖHAÍTCAÍNÉ'' RICHARDŒRE
Splunkuný og margumtöluö stór-
mynd meö ún/alsleikurum. Micha-
el Caine sem konsúllinn og Ric-
hard Core sem læknirinn hafa
lengið lolsamlega dóma fyrir túlk-‘
un sína I þessum hlutverkum,
enda samleikur þeirra frábær.
Aöalhlutverk: Michael Caine, Ric-
hard Gere, Bob Hoskins, Elphi-
da Carrillo. Leikstjóri: John
Mackenzie.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
Hækkað verð.
SALUR2
Stórmyndin
Maraþon maðurinn
(Marathon Man)____
Þegar svo margir frábærir kvik-
myndagerðarmenn og leikarar
leiöa saman hesta sina í einni
^mynd getur útkoman ekki oröiö
önnur en sldrkostleg. Marathon
man helur fariö sigurför um allan
heim, enda meö betri myndum
sem gerðar hafa veriö. Aðalhlut-
verk: Dustin Hoffman, Laurence
Olivier, Roy Scheider, Marthe
Keller. Framleiðandi: Robert Ev-
ans (Godfather) Leikstjóri: John
Schlesinger (Midnight Cowboy)
Bönnuð börnum innan 14 ára
Sýnd kl. 5,7.30 og 10.
SALUR3
l
Porkys II
WSXL
imuNa&h
Fyrst kom hin geysivinsæla Porkys
sem allstaöar slö aðsóknarmet, og
var talin grínmynd ársins 1982.
Nú er það framhaldið Porkys II
daginn eftir sem ekki er síöur
smellin, og kítlar hláturtaugarnar. -
Aðalhlutverk: Dan Monahan, Wy-
att Mark Herrier. Leikstjóri: Bob
Clark.
Hækkað verð
Bönnuð börnum innan 12 ára
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Palli leiftur
(ChuChu and Philly Flash)
Sýnd kl. 11
SALUR4 V
Goldfinger
Byggö á sögu eftir lan Fleming.
Leikstjóri: Guy Hamilton
Sýnd kl. 5,7 og 9.
Oþokkarnir
New York búar fá aldeilis að kenna
á því þegar ralmagnið fer af.
Aöalhlutv: Jim Mitchum, Robert
Carradine
Bönnuð innan 16 ára
Sýnd kl. 11