Tíminn - 14.01.1986, Síða 2
2Tíminn
Leigubflastríðið í Reykjavík virðist vera að blossa upp aftur eftir að
borgarstjórn samþykkti að Sendibílar hf. fengju að vera áfram á Steindórs-
planinu í eitt ár meðan þeir leita að öðrum stað fyrir starfsemi sína.
Þessi mynd var tekin aðfaranótt sunnudags en þá höfðu leigubílstjórar
króað sendibíl af og hleypt úr dekkjum hans. Lögreglan kom á staöinn og
skakkaði leikinn.
Hvorki múrari
né frímúrari
„Sprengju“ máliö upplýst:
Gæsluvarðhald
og geðrannsókn
-til handa „sprengjumanninum“
Tvítugur piltur hefur viðurkennt
að hafa komið fyrir eftirlíkingu af
sprengju, fyrir utan Oddfellow-hús-
ið í Vonarstræti. í framhaldi af þeirri
játningu hefur hann verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald, og hcfur
pilturinn samþykkt að gangast undir
geðrannsókn.
Pilturinn játaði að hafa komið
hlutnum fyrir, við yfirheyrslur að-
faranótt laugadags. Nokkrum tím-
um áður hafði hann aðstoðað lög-
reglu við að fá sem gleggsta mynd af
„sprengjunni".
Pilturinn viðurkenndi einnig að
hafa tvívegis hringt til lögreglunnar,
og tilkynnt um sprengjur. í Tjarn-
argötu 14 og síðar í Vonarstræti 14,
sem er ekki til.
Lögreglan hefur tekið skýrt fram
að yngri pilturinn sem var í slagtogi
með sprengjumanninum, er ekki
viðriðinn málið. Þeir þekktust ekki
fyrir fimmtudagskvöldið. Það var sá
yngri sem sá til hettumannsins sem
ekkert spurst til.
E.S.
Leigubílastríð
blossar upp á ný
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
- sagði Davíð Oddsson borgar-
stjóri þegar hann lagði hornstein
að nýja Borgarleikhúsinu á laugar-
dag.
„Borgarmenn og leikhúsmenn,
sem brátt munu sameinast undir
heitinu Borgarleikhúsmenn, vel-
komnir,“ sagói Davíð Oddsson
borgarstjóri í upphafi hátíðlegrar at-
hafnar á laugardag þegar hann lagði
hornstein að nýja Borgarleikhúsinu á
89 ára afmæli Leikfélags Reykjavík-
ur. „Ég er ekki múrari og ekki einu
sinni frímúrari," sagði Davíð þegar
hann bjóst til að leggja hornsteininn
og það gekk bærilega hjá honum en
múrarameistarinn og verkstjórinn
komu honum til hjálpar á elleftu
stundu, því eitthvað gekk múrverk-
inu illa að loða saman.
Margir góðir gestir voru viðstadd-
ir, þ.á m. forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir. Davíð sagði að
stefnt væri að því að taka minni sýn-
ingarsal leikhússins í gagnið á þessu
ári. Tæknisýning Reykjavíkurborg-
ar í tilefni 200 ára afmælisins á þessu
ári yrði einnig staðsett í leikhúsinu.
Leikhúsið yrði hjns vegar tekið í
fulla notkun í sæptember 1988 og
Reykjavíkurborg mun hafa afnot af
húsinu fyrir ráðstefnur og fundi.
Rúmmál Borgarleikhússins er
59.000 m3 og gólfflötur 10.400 m2.
Form hússins og útlit einkennast af
sexhyrndum grunnflötum og miklu
þaki sem klætt er áli. í leikhús-
byggingunni eru tveir salir með sitt
SÉRSTÖK VIÐBÓTARHÖFUNDARLAUN FYRIR
ÁRIÐ 1985 LÖGÐUST VIÐ UM ÁRAMÓT.
Davíð Oddsson borgarstjóri er einbeittur á svip við múrverkið, þar sem hann er að leggja hornstein að nýja Borgar-
leikhúsinu. Tímamynd: Árni Bjama.
leiksviðið hvor. Stærri salurinn tekur
540 manns í sæti en sá minni 170-270
manns. Aðstæður og aðbúnaður all-
ur verður hinn glæsilegasti.
Framkvæmdir við húsið hófust
síðla árs 1976 og til byggingarinnar
hefur þegar verið varið 242 milljón
um. Á þessu ári er áætlað að verja 85
milljónum til verksins. Áætlaður
heildarkostnaður eru 535 milljónir á
verðlagi ársins 1983.
Inní hornsteininn voru lagðar
bygginganefndarteikningar af Borg-
arleikhúsinu. stofnskrá Borgar-
leikhússins og fyrsta fundargerð Leik-
félagsins frá 11. janúar 1897.
Mrún.
riðl985 varóvenjulegagottbókaár,-ogekki síst Kjörbókarár. Kjör-
bókareigendur vissu að Kjörbókin var góður kostur til þess að ávaxta sparifé:
Þeir vissu að hún bar háa
vexti.
Þeir vissu að samanburður
við vísitölutryggða reikn-
inga var trygging gagnvart
verðbólgu.
Peir ^issu að innstæðan
var algjörlega óbundin.
Þeir voru vissir um að þeir
fjárfestu varla í betri bók.
En þeir vissu samt ekki um
vaxtaviðbótina sem lagðist
við um áramótin. Svona er
Kjörbókin einmitt: Spenn-
andi bók sem endar vel.
Við bjóðum nýja sparifjár-
eigendur velkomna í Kjör-
bókarklúbbinn.
KJÖRBÓKINA
SEMUR ÞÚ SJÁLFUR
Tímamynd Sverrir.