Tíminn - 14.01.1986, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Tíminn
MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSH YGG JU
Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog
Framsóknarfélögin í Reykjavík
Framkvstj.: GuömundurKarlsson
Ritstjóri: Helgi Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: NíelsÁrni Lund
Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason
Innblaðsstjóri: OddurÓlafsson
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:
18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og
686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð í lausasölu 45.- kr. og 50.- kr. um helgar. Áskrift 450.-
Vopnaðir öryggisverðir
Það er uggvænleg staðreynd að íslensk stjórnvöld hafa
ákveðið að hafa vopnaða öryggissveit lögreglu við af-
greiðslu flugstöðvarinnar í Keflavík.
Lítið hefur farið fyrir undirbúningi þessa máls og má
með sanni segja að þessi ráðstöfun hafi komið nokkuð á
óvænt, enda þótt búast mætti við því að íslendingar yrðu
að vera viðbúnir voðaatburðum í tengslum við flug eins
og okkar næstu nágrannaþjóðir. Því miður virðist það
vera tilhneiging hryðjuverkahópa að færa út kvíarnar og
þá til staða þar sem öryggi er lítið en góð fréttaþjónusta,
því fyrir þeim vakir að koma sínum sjónarmiðum á
framfæri. Pað stríðsástand sem varir nú víða um heim er
ægilegt og langt í frá að við getum sett okkur í spor þeirra
sem við það búa. íslendingar hafa hingað til trúað því að
fjarlægð og hlutleysi landsins verndi okkur gegn viðlíka
voðaverkum og fréttir berast af utan úr heimi. Núerhins
vegar ljóst að stjórnvöld meta ástandið á þann veg að
ekki sé unnt að tryggja öryggi farþega og annarra sak-
lausra borgara nema með vopnum.
Á undanförnum árum og þó einkanlega á síðustu
mánuðum hefur fjölgað viðbjóðslegum árásum á af-
greiðslur flugfélaga. í langflestum tilvikum eru það
sjálfsmorðssveitir öfgasinnaðra hryðjuverkahópa sem
láta til skarar skríða og svífast einskis til að vekja athygli
á sínum málstað. Hversu ómannúðlegt og ótrúlegt sem
okkur kann að finnast það, þá er það staðreynd að fyrir
barðinu á þessum morðingjum verða hvað helst saklaus-
ir borgarar, börn jafnt sem fullorðnir. Reynsla annarra
þjóða sýnir, að menn eru hvergi óhultir gegn þessum
glæpalýð. Verður ekki annað séð en að yfirvöld taki
þessu máli réttum tökum enda þótt erfitt sé fyrir íslend-
inga að sætta sig við að ganga í gegn um hlið vopnaðra
lögreglusveita í hvert sinn er þeir ferðast til eða frá land-
inu.
Óopinber ríkisstyrkur
Nokkrar umræður hafa orðið um ríkisstyrk til dag-
blaðanna. Þingmenn höfðu á þessu máli misjafnar
skoðanir en sameiginlega tókst vinstri flokkunum að fá
fram hækkun á þessum lið á fjárlögum 1986. Nokkrir af
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins lýstu sig ósammála
þessari afgreiðslu enda telja þeir sig ekki þurfa á aðstoð
ríkisins að halda við útgáfu á sínum málgögnum.
En fleiri hliðar eru á þessu máli og sé það skoðað í
heild sinni kemur annað í Ijós. Verulegur hluti tekna
dagblaðanna fæst í gegnum auglýsingar og hefur Morg-
unblaðið algera sérstöðu í auglýsingatekjum miðað við
önnur dagblöð.
Það vekur athygli að nálega á hverjum degi birtast
heilsíðuauglýsingar í því frá ríkissjóði eða ríkisfyr-
irtækjum sem greitt er fyrir hæsta verð. Það sama verður
ekki sagt um önnur dagblöð. Verður því ekki á móti
mælt að Morgunblaðið hefur algera sérstöðu hvað varð-
ar auglýsingatekjur frá ríkissjóði á þennan máta og kem-
ur það því úr hörðustu átt þegar sjálfstæðismenn berjast
gegn hækkun á ríkisstyrk til dagblaðanna. Þótt lesendur
Morgunblaðsins séu margir má ekki gleyma því að fjöl-
margir landsmenn lesa það blað ekki og vakna þá spurn-
ingar hvort ríkissjóður sé einungis að auglýsa til lesenda
þess þegar hann og fyrirtæki hans einskorða auglýsingar
við það blað.
Ríkisstyrk getur verið úthlutað á margan máta.
Þriðjudagur 14. janúar 1986
Kosningaskjálfti
Sveitarstjórnarkosn-
ingar eru á næsta leiti
Senn líður að svcitarstjórnar-
kosningum og er ekki laust við að
nokkurs kosningaskjálfta sé að
verða vart hjá stjórnmálaflokkun-
um. Fréttir berast af því að sumir
tlokkanna eigi erfitt með að finna
frambióðendur á lista sína og á það
einkum við í Reykjavík. Sagt erað
þeir fulltrúar sem verið hafi í kjöri
hjá Alþýðuflokknunt vilji ekki gefa
kost á sér aftur og það santa hefur
reyndar heyrst frá framsóknar-
mönnum. Engin ástæða er þó til að
örvænta og munu línur í þessum
málum skýrast á næstu vikum. Al-
þýðubandalagið á við önnur
vandamál að stríða en þar gefa allt
of margir kost á sér til framboðs.
Fað er gamla sagan að þeir sem fyr-
ir eru þy kja ekki nógu frambærileg-
ir og telja aðrir sig betur fallna til að
stjórna en þeir sem fyrir eru. Sjálf-
stæðismenn hafa þegar lokið próf-
kjöri þar sem konur voru settar út í
kuldann enda ekki kvennaverk að
tjónka við Davíð borgarstjóra.
Þeirra málefni eiga ekki upp á pall-
borðið hjá drengnum þeim, ogyfir-
leitt ekki önnur sjónarmið en hann
sjálfur hefur. Þeir sem með honum
starfa innan Sjálfstæðisflokksins
kvarta undan einstrengingslegum
vinnubrögðum og að þeirra áhrif
séu lítil.
Davíð hefur mikið látið á sér
bera og kýs jafnan að láta það
koma fram að hann einn ráði. Það
er því ekki undarlegt þótt aðrir
flokkar vilji skoða vandlega hvaða
fólk þeir velja til að geta átt orða-
stað við hann.
Aðal kosningamál íhaldsins í
síðustu borgarstjórnarkosningum
var Grafarvogssvæðið. Menn hafa
tekið eftir því að þar hefur upp-
bygging orðið hröð og hvergi til
sparað að gera það svæði hið vist-
legasta. Búast má við að kapp verði
lagt á að fegra svæðið enn frekar og
jafnvel planta blómum er líða tek-
ur á vorið svo borgarstjórinn geti
farið þangað í fylgd fréttamanna og
bent á verk sín og talið þau harla
góð. Á sama tíma virðast önnur
svæði borgarinnar ekki njóta eins
mikillar athygli Davíðs, enda ckki
hans verk. Menn verða nú að eiga
eitthvað til að geta sýnt vinum sín-
um og gestum.
En hvað um það. Þótt vald Dav-
íðs sé mikið mega vinstri menn
ekki gefast upp. Nú er að blása í
herlúðra og þeim ber að velja sína
bestu menn í framboð, enda þótt
vitað sé að þeirra róður verði erfið-
ur, bæði í kosningum og einnig inni
í borgarstjórninni. Sjálfstæðis-
menn hafa ákveðið að fækka fúll-J
trúum í borgarstjórn til að tryggja
enn frekar völd sín. en minnihlut-
inn þar verður að hafa það hugfast
að þeir geta haft áhrif og komið
góðum málum á framfæri.
■ ■■ og kannski
þingkosningar
En Davíð borgarstjóri hefur víð-
ar áhrif en í borgarstjórn. Hann
krefst þess m.a. aðsjálfstæðismenn
verði spakir í ríkisstjórninni fram
yfir borgarstjórnarkosningar, því
hann óttast að upphlaup þeirra geti
orðið til þess að spilla fyrir stórum
sigri hans.
Sjálfstæðismenn á þingi sem
annars staðar eru á hinn bóginn
ekkert of ánægðir méð sína
frammistöðu. Peim finnst iila hafa
tekist til með að halda ríkisútgjöld-
um niðri, jafnvel eftir að þeirra for-
maður tók við embætti. Þar á ofan
virðist ekkert vcrða úr þeim skatta-
lækkunum sem formaðurinn hafði
lofað og þingflokkurinn ætlaði að
berjast fyrir. Til að skeyta skapi
sínu á einhverju hafa þeir öðru
hverju rokið upp af minnsta tilefni
þegar framsóknarmenn hafa haft
aðrar skoðanir á málum en þeir, og
jafnvel hótað stjórnarslitum.
Nú líður senn að því að þing
komi saman að nýju eftir jólaleyfi
þingmanna. Línur stjórnmálanna
munu þá skýrast og trúlega mun
hvessa töluvert í þingsölum í viss-
um málaflokkum. Menntamála-
ráðherra situr undir ámæli fyrir sín
vinnubrögð og er m.a. sakaður um
að hafa brotið lög.
Þá munu kjaramálin verða rædd
og notuð af stjórnarandstöðunni til
að kynda undir óánægju og sundur-
þykkju. Kannski mun sú umræða
og þau mál verða til þess að kosið
verði víðar cn í sveitarstjórnum á
komandi vori.
Því hefur stundum verið haldið
fram af andstæðingum Framsókn-
arflokksins að hann þori ekki út í
kosningar. Þetta er rangt. Hins
vegar hefur flokkurinn sýnt það í
gegn um árin að hann er ábyrgur
flokkur sem hleypur ekki frá hálfn-
uðu verki. Mjög mikið hefur áunn-
ist í tíð þessarar ríkisstjórnar og er
það ekki síst að þakka ábyrgum
vinnubrögðum forsætisráðherra og
öðrum ráðherrum framsóknar-
manna. Gífurlegt átak hefur verið
gert til að létta undir með hús-
byggjendum enda þótt langt sé í
land að þeirra vandi sé leystur. Þá
hefur landbúnaðarráðherra lagt
mikla vinnu í að endurskipuleggja
landbúnaðarframleiðsluna og í
samráði við bændastéttina er stefnt
að þvf markmiði að framleiðslan sé
í samræmi við innanlandsneyslu.
Þjóðin hefur fylgst með störfum
sjávarútvegsráðherra og er það
samdóma álit nær allra landsmanna
að sjávarútvegsmálum hafi hann
stýrt farsællega og betur en aðrir
ráðherrar í langan tíma. Fram-
sóknarflokkurinn óttast því ekki
dóm þjóðarinnar þegar þar að
kemur.