Tíminn - 14.01.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 14.01.1986, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 14. janúar 1986 Tíminn 7 VETTVANGUR Kristinn Snæland Oss þykir leitt Á kjördæmisþingum, miðstjórn- arfundum, flokksþingum og fleiri samkomum framsóknarmanna síð- astliðinn áratug eða lengur, hefur verið rætt um vexti. Háir vextir hafa verið flokkaðir með hinu illa, einkanlega vegna þeirrar áráttu að valda verðbólgu. Ástæða þess er einfaldlega sú að flest fyrirtæki og fjárglæframenn geta velt af sér háu vöxtunum út í verðlagið og þar með á herðar almennings. Þetta þótti oss framsóknarmönnum leitt og því höfum við verið á móti háum vöxtum og hækkunum .vaxta. Með stöðugri setu í ríkisstjórnum þenn- an tíma höfum við að sjálfsögðu verið í aðstöðu til þess að vinna að lækkun vaxta. Framámenn okkar svo "sem til dæmis Steingrímur og Páll Pétursson hafa jafnvel í fjöl- miðlum látið hafa eftir sér að þeir væru á móti háum vöxtum eða ein- hverri tiltekinni hækkun vaxta. Þeim hefur jafnvel þótt leitt, þegar háir vextir hafa verið að sliga hús- byggjendur, fyrirtæki eða fram- leiðendur. Hverjir eiga að greiða Hafskipstapið? Hverjir eiga að greiða okurvextina sem kaupmenn leggja á vórurnar, sem þeir ieysa út með okurlánum? Hverjtr eiga að greiða húsaieigu þeirra húsa sem ráðherrar hafa tekið á leigu en nýtast ekki? Hverjir eiga að greiða þann hluta námslána sem aldrei verður greiddur? Þrátt fyrir allt Prátt fyrir að almennt sé viður- kennt að háu vextirnir séu að drepa niður athafnir einstaklinga og fyrir- tækja og setja landsmenn endan- legaáhausinn, hækkavextirennog stjórnmálamennirnir segja sem svo. Það verður að hugsa um hags- muni sparifjáreigenda (fjár- magnseigenda/ fjárglæframanna) og svo erum það ekki við, heldur (helvítið) hann Jóhannes sem ræð- ur þessu. Það er með öðrum orðum vegna hagsmuna hins almenna sparifjáreiganda sem vextir eru sífellt hækkaðir, í því skyni að inni- stæða sparifjáreigandans standist- verðbólguna og bæti auk þess við sig lítilræði. Flestum hefur þótt sanngjarnt að gæta hagsmuna sparifjáreigandans. Sparifé má ekki brenna upp í eldi verðbólgunn- ar, er viðkvæðið og fáir þora að mótmæla. Nú skal á það bent að sú verðbólga seni háu vextirnir valda, kemur niður á sparifjáreigendum eins og öðrum landsmönnum í hærra vöruverði og dýrari þjón- ustu. Með spariskírteinum ríkis- sjóðs, gull eða öndvegisbókum bankanna eru landsmenn og þó einkanlega sparifjáreigendur blekktir til þess að trúa því að sparifjáreign sé gulls ígildi. Vegna hárra vaxta eru vörur og þjónusta dýrari en ella og þrátt fyrir allt og þrátt fyrir 7% vexti umfram verð- bólgu,á innistæðuna í gullbókinni, tapar sparifjáreigandinn á vaxta- stefnu Steingríms og Páls. Hverjireiga aðtapa? Þessari spurningu má snúa á marga vegu, til dæmis: Hverjireiga að greiða Hafskipstapið? Hverjir eiga að greiða okurvextina sem kaupmenn leggja á vörurnar, sem þeir leysa út með okurlánum? Hverjir eiga að greiða húsaleigu þeirra húsa sem ráðherrar hafa tek- ið á leigu en nýtast ekki? Hverjir eiga að greiða þann hluta námslána sem aldrei verða greidd? Og lengi mætti spyrja enn. Hitt er Ijóst að ráðherrar, bankastjórar og banka- ráðsmenn auk fjölmargra framá-| manna meðal þjóðarinnar, sem gegna stöðum sem gefa há laun,. ekki síst vegna þeirrar ábyrgðar sem sögð er fylgja starfinu, er í raun meira og minna ábyrgðrlaus Iýður, sem þó er áreiðanlega sam- inála um eitt. Almenningur skal borga fyrir öll okkar mistök, látum það bara ekki koma fram á gull- bókum sparifjáreigenda. Til þess að sýnast verðum við svo að slátra stöku sinnum einhverjum sauðnum úr eigin röðum, það þykir almenn- ingi bera vott um röggsemi og dugnað. (Dæmi: brottrekstur Sig- urjóns Valdimarssonar frá lána- sjóði ísl. námsmanna). Það sem núverandi ríkisstjórn kemur ekki auga á, en er hin eina rétta og sanngjarna leið, sú að þeir greiði sem eiga fé. Ef þjóðin á í fjárhagserfiðleikum, (sem ekki þarf að efast um), þá hljóta ráða- menn vorir að leita til þeirra sem eiga fjármagn, en þar á meðal er einmitt fólkið sem á gullbækurnar. Höfuðmeinsemd núverandi stjórnarstefnu er sú, að með full- kominni óbilgirni er verið að færa fjármagn til í þjóðfélaginu, frá hin- um almenna baslara. sem sjaldan á fé í bók, til fjárglæframanna og sparifjáreigenda með öndvegis eða gull bækur. Mér og fleiri framsókn- armönnum þykir ekki nóg, að Steingrími, Páli og hinum full- trúum okar á alþingi, þyki þetta leitt. Við krefjumst aðgerða. Hvaðáað gera? Meðal annars, skattleggja vaxta- tekjur til fulls, skerpa skil milli nauðsynlegar framfærslueyðslu og óþarfa og skattleggja óþarfann rækilega. Meta fjárfestingar til dæmis eftir hversu líklegt er að þær skapi auknar þjóðartekjur og skattleggja þær því meir sem búast má við að þær verði baggi á þjóð- inni. Hafa þó hugfast, fyrst og síð- ast að bestir borgunarmenn eru vit- anlega þeir sem eiga fé, fjármála- menn og sparifjáreigendur. Spor í sandi Á tónleikum sinfóníuhljómsveitar fslands 9. janúar var frumflutt sinf- ónía eftir John Speight, Joseph Ognibene lék einleik í hornkonsert Richards Strauss, og hljómsveitin flutti „Furur Rómaborgar“ eftir Ott- orino Respighi. Tónleikarnir voru allvel sóttir og listafólkinu var vel fagnað; öllum bárust blómvendir, stjórnandanum Páli P. Pálssyni, ein- leikaranum Joseph Ognibene og tónskáldinu John Speight. John Speight fæddist í Englandi 1945 og lærði söng og tónsmíðar við Guildhall-skólann í London 1964- 72. Það ár fluttist hann til íslands og er nú íslenskur ríkisborgari og mjög virkur í tónlistarlífi hér, bæði sem söngvari, tónskáld og tónlistarkenn- ari í Tónskóla Sigursveins D. Krist- inssonar. Mér telst svo til, að þetta verk Johns Speight sé fyrsta sinfónía ís- lendings sem hér er frumflutt síðan í febrúar 1982, þegar frumflutt var Symfónía Hallgríms Helgasonar. Verkið var samið á einu ári, frá júní 1983 til júlí 1984, með styrk úr tón- skáldasjóði Ríkisútvarpsins. Sinfóní- an er mikið verk, tekur milli 30 og 40 mínútur í flutningi, og tónskáldið líkir henni við þrískipta altaristöflu þar sem þættirnir þrír svara til hinna þriggja myndhluta. Þótt ég væri ekki beinlínis upphafinn af hinni nýju sin- fóníu þótti mér hún með betri nýjum hljómsveitarverkum sem ég hefi heyrt. En síðan ekki söguna meir. Hugleiðum aðdragandann að þessum 40 mínútna flutningi í Há- skólabíói 9. janúar 1986: John Speight er atvinnutónlistarmaður með 6 ára nám að baki í Guildhall School of Music - áður hefur hann sjálfsagt lært á píanó o.þ.h. Hann eyðir heilu ári í að semja þetta verk, sem síðan þarf að skrifa út í 80 rödd- um eða svo, og hlýtur til þess styrk frá hinu opinbera. Sinfóníuhljómsveit Islands, skipuð sprenglærðum atvinnumönnum í hljóðfæraleik, öll- um með margra ára tónlistarnám að baki, æfir verkið mörgum sinnum. og loks er það frumflutt að viðstödd- um 600-800 áheyrendum. Páll P. Pálsson hefur legið yfir handritinu til að undirbúa æfingar og tónleika. Flutningur verksins er sem sagt af- rakstur gríðarmikillar vinnu margra tuga okkar menntuðust og færustu tónlistarmanna, og verk sem þetta kemur fram hér á landi örsjaldan - sinfóníur e.t.v. á 3ja ára fresti, kons- ertar og smærri hljómsveitarverk dá- lítið oftar. En fjölmiðlar veita þess- um viðburði enga athygli - verkið er flutt einu sinni í Háskólabíói og einu sinni í útvarp, síðan ekkert. Áheyr- endur og hljóðfæraleikarar sitja uppi með daufa endurminningu, John Speight með sölnaðan blómvönd og nýtt ópusnúmer, að vísu reyndara tónskáld en áður. Er þetta mat íslendinga og ís- lenskra fjölmiðla á því hvað er frétt- næmt og merkilegt og hvað ekki? Ef poppari með frumstæðustu gítar- kunnáttu gengur úr einni hljómsveit listrænna jafningja í aðra erþví sleg- ið upp í blöðunum; ef tvítugur rit- höfundur gefur út fyrsta hefti ævi- minninga sinna eða tannlæknir eða laxveiðimaður heldur málverkasýn- ingu - þá vantar ekki heilsíðuviðtöl og myndskreyttar fréttir. Ég minnist þess ekki að hafa séð neitt viðtal við John Speight, forsvarsmenn tón- skálda né Sinfóníuhljómsveitarinnar um þennan atburð sem væri að fara í hönd, þar sem 80 fremstu hljóm- Svava Bernharðsdóttir lágfiðlu- leikari og David Knowles píanóleik- ari héldu tónleika í Norræna húsinu 10. janúar, og mun þetta hafa verið frumraun Svövu á opinberum tón- leikum. Svava hóf fiðlunám austur á Selfossi 8 ára og hélt því áfram til tví- tugs í ýmsum löndum, íslandi, Eþí- ópíu og Bandaríkjunum. Þá skipti hún yfir á lágfiðlu og hefur stundað þau fræði hér á landi, í Hollandi og í Bandaríkjunum, þar sem hún er enn við nám. Á efnisskrá voru þrjú verk, Gömbusónata í G-dúr eftir Bach, Sonata per la Grand Viola eftir Pag- anini, og Lágfiðlusónata óp. 147 eftir Shostakovitsj. David Knowles lék listarmenn landsins mundu frum- flytja nýtt íslenskt stórverk með samstilltu átaki. Slíkt fréttamat, og slíkt listrænt mat, segir ekki fallega sögu um menningarstig íslendinga. Joseph Ognibene, fyrsti hornleik- ari Sinfóníuhljómsveifarinnar, er einnig íslendingur, af bandarísku bergi en kvæntur íslenskri konu. Jos- eph var frábær hornleikari þegar hann kom hingað fyrir fimm árum eða svo, og er það enn, enda spilaði hann konsertinn ævintýralega vel. Hornið er meðal allra erfiðustu hljóðfæra að ná fullkomnum tökum á, en jafnfram eitt hinna göfugustu, og það er mikill sómi fyrir oss að hafa meðal vor slíkan listamann sem Jos- eph Ognibene er. Og Páll P. Pálsson er hinn þriðji íslendingur af erlendri rót sem tekið hefur þátt í að lyfta æðra tónlistarlífi þjóðarinnar. Upphaflega kom hann hingað frá Austurríki sem tromp- etleikari, en síðan 1971 hefur hann verið fastráðinn stjórnandi Sinfóníu- hljómsveitarinnar og verið sívaxandi í því starfi. Hin síðustu ár hefur hann, í stuttu máli sagt, verið mjög góður. Eins og á þessum tónleikum, sem kunnugt er, misstu Islendingar að mestu af þróun æðri tónlistar Evrópu með á sembal í fyrsta verkinu en á pí- anó í hinum. Tvö síðari verkin eiga það sameiginlegt, að höfundarnir voru komnir að fótum fram þegar þeir sömdu þau; efnisskráin segir það á fárra vitorði að Paganini hafi látið sér detta í hug að „skipta yfir á lágfiðlu" eftir að aldur tók að færast yfir hann, og skrifað þá þessa sónötu handa vini sínum, en látist síðan áður en til kasta kom að gerast sjálf- ur lágfiðlusnillingur. Og lágfiðlusón- ata Shostakóvitsj er hans síðasta verk, þar semferfram uppgjörsjúks og biturs manns við tilveruna. Gömbusónatan var hins vegar samin á hamingjusamasta tímabili Bachs, þegar hann var í Köthen, og engin A lágum nótum frá 16. til 20. aldar; nú sækja fáeinar þúsundir þeirra tónleika meira eða minna að jafnaði, og mest er þessi bylting að þakka erlendum mönnum sem hingað kom: Urbancic, Abra- ham, ýmsum af hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitarinnar og fleir- um. En ennþá er grunnt á klöppina. Þegar Darwin lagði upp í heimsreisu sína með mælingaskipinu Beagle árið 1832 voru með í för þrír Eld- lendingar, sem FitzRoy skipstjóri hafði haft með sér ári fyrr til Bret- lands til að siðmenntast og læra kristindóm. Sá var fyrir þeim sem nefndist York Minister og klæddist á enska vísu og með bowler-hatt. Fyrstu nóttina sem þeir Darwin lágu í tjöldum á strönd Eldlands laumuð- ust frumbyggjarnir, naktir, í tjöldin og rændu ferðamennina. Þar var með í för York Minister, ogbúinn að kasta klæðum og kristindómi. Svona djúpt risti siðmenningin. En hér á landi er verið að tala um að reisa tónlistarhöll. Sigurður Steinþórssun Svava Bernharðsdóttir. sérstök sorg í huga nema síður væri. Svava Bernharðsdóttir spilaði af miklu öryggi. Hún hefur mjögfalleg- an tón og prýðilega og áreynslulausa tækni. Samt voru tónleikarnir frem- ur í daufara lagi, og olli því að hluta til verkefnaval, en kannski að hluta til algengt einkenni lágfiðluleikara að vilja halda sig frekar í skuggan- um. Því hefur að vísu verið haldið fram, í þessum pistlum eða einhvers staðar annars staðar, að í brjósti sér- hvers lágfiðlara leynist Paganini (og það Paganini á sínu besta skeiði), en hann braust ekki út í þetta sinn. Svava spilaði sem sagt mjög fallega, en líkt og einleikarar vilja gjarnan hafa smá frjálsan einleikskafla í hverjum konsért til að geta sýnt hvað þeir séu fingafimir og sterkir í tækninni, þá ættu ungir tónlistar- menn sem eru að geifla á saltinu í fyrsta sinn að hafa a.m.k. eitt skrautstykki á efnisskránni til að glansa með. Sem Svava gerði ekki. Þetta voru annars mjög vandaðir tónleikar og samspil þeirra Davids og Svövu með miklum ágætum. Enda fögnuðu áheyrendur, sem fylltu Norræna húsið, vel, og fengu aukalag í endann, þrjár þjóðlagaút- setningar eftir Þorkel Sigurbjörns- son. Sig.St.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.