Tíminn - 14.01.1986, Qupperneq 13
Þriðjudagur 14. janúar 1986
Tíminn 13
Listum borgið
næstu áratugina
- sagði Halldóra Jónsdóttir þegar Listahátíð unga
fólksins var sett á Kjarvalsstöðum
Listahátíð unga fólksins var sett
með pompi og prakt að Kjarvals-
stöðum á laugardag að viðstöddum
Davíð Oddssyni borgarstjóra og
fleiri gestum. Blásarasveit Sinfóníu-
hljómsveitar æskunnar lék undir
stjórn Odds Björnssonar, Halldóra
Jónsdóttir fulltrúi unga fólksins flutti
ávarp og félagar frá Dansnýjungu
Kollu sýndu dans.
Á sýningunni sem stendur í viku
eru 173 listaverk eftir ungt fólk á
aldrinum 14-24 ára. Kennir þar
margra grasa; olíumálverk, glerlista-
verk, akrýlmyndir, pastelmyndir,
grafíkmyndir, skúlptúr og fleira.
Einnig verða sýnd myndbönd,
haldnir verða rokktónleikar í Tóna-
bæ og margt fleira verður á dagskrá
sem nánar verður auglyst síðar.
„Pegar þið gangið um sýninguna,"
sagði Halldóra Jónsdóttir í ávarpi
sínu, „munið þið sannfærast um að
listum landsins er borgið næstu ára-
tugina."
Sýningin verður opin alla vikuna
frá kl. 14-22. Allir eru velkomnir oe
aðgangur ókeypis. Mrún
Félagar úr Dansnýjungu Kollu sýna dans á setningarathöfn Listahátíðar unga fólksins sem hófst s.l. laugardag.
Tímamynd: Árni Bjarna.
Borgarstjórnarkosningar 1986
Borgar- og sveitarstjórnarkosn-
ingar fara fram á komandi vori, lík-
lega í lok maí. Aðdragandi að slíkum
kosningum einkennist yfirleitt af
miklum vangaveltum vegna skipun-
ar framboðslista og svo undirbúningi
vegna sjálfrar kosningabaráttunnar.
Af því tilefni var leitað til helstu
stjórnmálafiokka og samtaka sem
láta sig lands- og sveitarstjórnarmál
varða og spurt um stöðu mála á
hverjum bæ fyrir sig.
Kosin uppstillingamefnd
„Staðan hjá okkur í Reykjavík er
þannig að fulltrúaráð framsóknarfé-
Íaganna hélt fund í síðustu viku í
framhaldi af ákvörðun sem tekin var
áður um að prófkjör yrði ekki
haldið, heldur kosin uppstillingar-
nefnd. Stofnað verður til níu manna
nefndar sem verður þannig mynduð
að þessi þrjú félög hér í borginni til-
nefna tvo fulltrúa hvert og síðan til-
nefnir fulltrúaráð þrjá til viðbótar,"
sagði Steinþór Þorsteinsson formað-
Á ' vegum Búnaðarsambands
Suðurlands verður efnt til fræðslu-
funda á búnaðarsambandssvæðinu
síðari hluta janúarmánaðar. Verður
þar m.a. rætt um tilraunamálin,
fóðurö.flun, efnagreiningar og fleira.
Sagt verður frá uppbyggingu til-
raunarstöðvarinnar á Stóra Ármóti,
og fyrirhuguðum framkvæmdum þar
á þessu ári. Sýndar verða kvikmynd-
ur fullrúaráðs framsóknarfélag-
anna í Reykjavík.
Steinþór sagði að það væri stcfnt
að því að uppstillingarnefndin yrði
fullskipuð fyrir lok þessarar viku. Að
því loknu kæmi hún strax saman og
hæfi undirbúning þeirra verka sem
fyrir liggja. Engin sérstök tímatak-
mörk eru á því hvenær nefndinni
beri að hafa lokið störfum, en verk-
efni hennar mun m.a. felast í því að
velja eftirmann Kristjáns
Benediktssonar í fyrsta sæti fram-
boðslistans því hann hefur lýst því
yfir að hann muni ekki bjóða sig
fram á ný.
Er uppstillingamefndin hefur lokið
störfum mun hefjast kynning fram-
bjóðenda og kynnt verður afstaða
flokksins til borgarmálefna. Haft
verður samráð við þá sem í framboði
verða um hvaða málefni borgarbúa
þyki brýnust um þessar mundir og
áhersluatriðum hagað í samræmi við
það.
„Kjörnefndin er bundin af átta
efstu sætunum úr prófkjörinu hér í
ir frá landbúnaðarsýningu á Selfossi
1958 og ’78.
Fyrsti fundur verður á Kirkju-
bæjarklaustri föstudaginn 17. jan.
kl. 14.00 og sama dag í Ketilsstaða-
skóla í Mýrdalkl. 21.00. Þriðjudag-
inn 21. jan. Hvoli á Hvolsvelli kl.
21.00 og síðustu fundir verða föstu-
daginn 22. janúar að Borg í Gríms-
nesi kl. 14.00 og sama dag í Þjórsár-
veri kl. 21.00.
Reykjavík. Hún kemur til starfa aft-
ur nú á fimmtudaginn og mun þá lík-
lega ganga frá sínum málum. Listinn
sem kemur úr því verður svo lagður
fyrir fulltrúaráðið hér í Reykjavík og
þar verður tekin endanleg ákvörðun
um skipan framboðslistans. Sá fund-
ur getur svo breytt listanum ef út í
það er farið,“ sagði Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Gunnlaugur sagðist ekki vita til
þess að menn hygðust breyta skipan
efstu sæta listans og hann hafði ekki
heyrt þess getið að einhver þeirra sem
hlaut mest fylgi í prófkjörinu hefði
boðist til að láta eftir sitt sæti, en ó-
ánægjuraddir hafa heyrst innan
flokksins vegna þess hversu hlut-
deild kvenna er lítil í efstu sætum
framboðslistans.
Aðspurður um tilhögun kosn-
ingabaráttunnar sagði Gunnlaugur
að í raun mætti segja að flokksmenn
væru alltaf að undirbúa sig fyrir
kosningaslag og því hefði ekki verið
tiltekinn neinn ákveðinn dagur
vegna undirbúnings fyrir vorið. Þó
mætti vænta þess að farið yrði að
huga að þeim málum þegar endan-
lega væri búið að ganga frá
framboðslistanum.
Forval um mánaðamótin
„Forvalið hjá Alþýðubandalaginu
í Reykjavík verður 1. og 2. febrúar.
Þar munu 22 frambjóðendur taka
þátt . Kjörnefnd vinnur svo lista úr
úrslitum forvalsins með tillögum um
þau þrjátfu nöfn sem þar þurfa að
vera og hún skilar því síðan til
endanlegrar ákvörðunar félagsfund-
ar,“ sagði Kristján Valdimarsson
skrifstofustjóri Alþýðubandalags-
ins.
Kristján sagði að þess væri ekki að
vænta að formleg kosningabarátta
hæfist fyrr en framboðslisti lægi
fyrir. Flokksfélagið í Reykjavík hef-
ur ráðið starfsmann og kosninga-
stjóra sem heitir Steinar Harðarson
og mun hann annast skipulagningu
starfsins í höfuðborginni.
Framboðsfrestur lengdur
„Framboðsfrestur hefur verið
lengdur til 21. janúar og að því loknu
verður haldinn fundur í fulltrúaráð-
inu þar sem verður tekin ákvörðun
um prófkjörsdag," sagði Birgir Dýr-
fjörð á skrifstofu Alþýðuflokksins er
hann var spurður um framboðsmál í
Reykjavík.
Að sögn Birgis hófst undirbúning-
ur kosningabaráttunnar innan
flokksins í haust. Þá hófu
borgarmálahópar störf þar sem á-
kveðnum verkefnum var skipt niður
á félaga. Þá sagði Birgir að Álþýðu-
llokkurinn yrði sjötugur þann 16.
mars og þá yrði mikið um fögnuð og
fundahöld. Frá þeini tíma mætti
gcra ráð fyrir að kraftur færðist í
kosningabaráttuna af hálfu Alþýðu-
flokksmanna.
„Við erum ekki farnar aö huga að
skipan framboðslista hér í Rcykja-
vík, en kosningaundirbúningur er
hafinn hjá okkur. Við eigum þvílíkt
úrval af konum í borginni að við
þurfum ekki að hafa áhyggjur af
listamálum fyrr en alveg undir
lokin,“ sagði Guðrún Jónsdóttir
starfsmaður Kvennaframboðsins.
Guðrún sagði að enn heföi ekki
verið rætt hverskonar aðferð verður
notuð til að velja frambjóðendur né
heldur hverjir kunni að veljast til
framboðs. Að öðru lcyti væru hjólin
farin að snúast hvað varðar almenn-
an undirbúning, nokkrir fundir
hcfðu verið haldnir og fleiri fyrirhug-
aðir á næstunni. Guðrún bætti því
við að það yrði farið fram af fullum
krafti með sömu hugmyndafræði og
áður „því að við höfum ekki enn
breytt þjóðfélaginu eins og við
viljum.“
í samtali við Tímann sagði Guð-
mundur Einarsson formaður BJ að
ekki yrði um formlegt framboð sam-
takanna að ræða í Reykjavík vegna
borgarstjórnarkosninganna. Hann
ítrekaði þó þá skoðun sína að ef ein-
stakir stuöningsmenn BJ hefðu
áhuga á því að hreyfa þeim málum í
borginni, þá væri slíkt í fyllsta sam-
ræmi við þær yfirlýsingar sem hefðu
vcrið gcfnar af forystumönnum BJ
síðastliðið sumar. SS
VEIÐIHORNIÐ
Eggert Skúlason:
Verðáveiðileyfum
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur sent frá sér verðskrá fyrir komandi
veiðitímabil. Þróun á einstökum veiðileyfum er á hinaýmsu vegu. í Elliða-
ánum hækkar verð fyrir hálfan dag um 70 prósent, eða í krónur 2700. Ann-
arsstaöar eru hækkanir óverulegar, og sumstaðar engar, eins og í Brynju-
dalsð.
Listinn lítur svona út:
Elliðaár...................... 2700 krónur fyrir hálfan dag.
Leirvogsá....................... 9800 krónur á dýrasta tima
Brynjudalsá..................... 4300 krónur á dýrasta tíma
Langá........................... 7900 krónur á dýrasta tíma
Gljúfurá ....................... 7400 krónur á dýrasta tíma
Miðá í Dölum.................... 5900 krónur á dýrasta tíma
Norðurá ....................... 18000 krónur á dýrasta tíma
Sogið, Alviðra ................. 4900 krónur á dýrasta tíma
Sogiö, Bíldsfell ............... 5200 krónur á dýrasta tíma
Sogið, Ásgarður ................ 6400 krónur á dýrasta tíma
Sogið, Syðri Brú ................ 4500 krónur allan tímann
Ölfusá-Laugarbakkar............. 1800 krónur á dýrasta tíina
Hvítá-Snæfoksstaðir............. 3900 krónur á dýrasta tíma
Stóra Láxá í Hreppum ........... 7000 krónur á dýrasta tíma
Breiðdalsá...................... 2000 krónur á dýrasta tíma
Eflaust er að margir sakna Grímsár og Svartár á þessum lista. Svartá
verður boðin út, og ekki Ijóst enn hverjir verða með sölu á veiðileyfum þar.
Grímsá verður að mestu leigð útlendingum í sumar, en íslendingum gefst
kostur á að blcyta þar í færi, bæði í byrjun og lok vciðitímans.
Fræðslufundir
ffyrir bændur