Tíminn - 17.01.1986, Blaðsíða 1
BANKAR og sparisjóöir, fyrir utan Iðnaöar-
bankann hafa sameinast um rekstur hraðbanka sem
veröa settir upp í Reykjavík, Garöabæ, Hafnarfirði og
Akureyri. Hraöbankar þessir veröa 10 alls og veröa
þeirteknir í notkun í lokfebrúar.
GUÐBRANDUR GÍSLASON blaða-
maöur hefur veriö ráöinn framkvæmdastjóri Kvik-
myndasafns íslands og veröur hann jafnframt for-
stööumaður Kvikmyndasafns íslands. Aörir umsækj-
endur voru Elínborg Stefánsdóttir, Guöbjörg Gústafs-
dóttir og Gunnar H. Árnason.
KRISTÍN EINARSDÓTTIR fékk fyrstu
verðlaun, 50.000 krónur, í leikritasamkeppni Þjóöleik-
hússins, í tilefni af lokum kvennaáratugsins. Verð-
launaverkiö heitir Draumur á hvolfi. Önnur og þriöju
verðlaun skiptust jafnt á milli Elísabetar Jökulsdóttur
og Kristínar Bjarnadóttur. Alls bárust 11 einþáttungar
í samkeppnina.
ALÞJÓÐA heilbrigöisstofnunin sagöi í gær aö
stofnuð yrðu sérstök samtök til að vinna gegn AIDS,
en a.m.k. 20.000 manns hafa fengið veikina um allan
heim og þar af hefur helmingurinn látist. Tala AIDS-
sjúklinga tvöfaldast nú árlega.
MOKAFLI var á loönu í gær. Frá miðnætti í
fyrrinótt til kl. 14.00 í gær höföu 25 bátar tilkynnt um
fullfermi á miðunum. Meginhluti loönuflotans var á
Hvalbakssvæðinu en nokkrir voru sunnan við
Langanes.
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
handtók á þriðjudag mann sem grunaður var um aö
hafa ætlað aö komast yfir húseign meö sviksamlegum
hætti. Maöurinn var nýlega dæmdurfyrirfjársvik og þá
gerður gjaldþrota og því þótti þaö grunsamlegt þegar
hjá honum fannst kaupsamningur þar sem hann ætl-
aöi að kaupa hús úti á landi og borga út í því rúma
milljón á árinu.
BANDARISKI sjóherinn birti í gær tölur um
að síöan 1965 heföu mörg hundruð óhöpp oröið með
kjarnorkuvopn. Þessi skýrsla hefur oröið til aö ýta enn
frekar undir umræður um hvaö kjarnorkuvopn séu viö-
sjárverö og gætu sprungið af minnstatilefni, þráttfyrir
aö varnarmálaráöuneytiö bandaríska neiti slíkum
staöhæfingum.
KAFARINN sem fannst látinn í grennd viö
Grindavík hét Hjalti Pálmason. Hann var til heimilis aö
Selsvöllum 7 í Grindavík. Hjalti heitinn var fæddur
tólfta desember árið 1966.
DANSKA stjórnin hótar þjóðaratkvæðagreiöslu
um fyrirhugaöar breytingar á Efnahagsbandalagi
Evrópu ef danska þingið samþykkir þær ekki.
Breytingarnar, sem stuðla aö frjálsari viöskiptum inn-
an EBE og auka vald Evrópuþingsins, voru samþykkt-
ar á ráðherrafundi í seinasta mánuöi. Danskir jafn-
aðarmenn eru á móti breytingunum en minnihluta-
stjórn Pouls Schluters vonast til þess aö þingmenn
stjórnarandstööunnar hlaupist undan merkjum og
breytingarnar verði samþykktar.
Nú nú, maður verður að treysta á hagstæða strauma
og réttan kosningabyr
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 1986-12. TBL. 70. ÁRG.
Verk fyrir
steðja og
fegurðar-
drottningu
Hólmfríður Karls-
dóttir sýndi á sér
nýja hlið í gær-
kvöldi þegar hún
spilaði á steðja í
Háskólabíói við
undirleik Sinfóníu-
hljómsveitar ís-
lands. Annars var
Sinfóníuhljóm-
sveitin í aðalhlut-
verkinu í gærkvöldi
og lék Vínartónlist
fyrir fullu húsi.
Tímumynd Árni Bjarna
Reglugerö um búmark loks fyrirliggjandi:
Sérreglur fyrir bændur
sem nýlega hófu búskap
Síðasta hönd var lögð á
langþráða reglugerð í land-
búnaðarráðuneytinu í gærdag
sem segir til um búmarksskipt-
ingu á verðlagsárinu. Þegar eru
liðnir fjórir og hálfur mánuður
af verðlagsárinu og margur
bóndinn orðinn langeygur eft-
ir niðurstöðu ráöuncytisins.
Bjarni Guðmundsson aö-
stoðarmaður landbúnaðarráð-
herra veitti Tímanum innsýn í
Mjólkurbú Flóamanna:
Mjólkurduft fram-
leitt í stórum stíl
- síðustu þrjá mánuði ársins 1985
Mjólkurbú Flóamanna fram-
leiddi 300 þúsund tonn af
mjólkurdufti síðustu þrjá mán-
uði ársins, 1985. Duftið var
framleitt úr þeirri mjólk sem
búinu barst, og var umfram þá
mjólk sem annaði eftirspurn.
Osta- og smjörsalan er sölu-
aðili fyrir Mjólkurbú FJóa-
manna, og er megnið af duftinu
selt til Sviss.
Tækjakostur sá sem notaður
er til þurrkunar á duftinu trygg-
ir að það lendir í svokölluðum
„Extra graid'" flokki, sem er há-
gæða vara.
Birgir Guðmundsson fram-
leiðslustjóri mjólkurbúsins
sagði í samtali við Tímann í gær
að hann teldi að verðmæti
duftsins væri síst minna en fyrir
osta sem unnir væru úr umfram
mjólk í mjólkurbúum. Hann
rökstyður þá skoðun sína með
því að hægt er að selja duftið
svotil strax eftir framleiðslu, á
meðan að ostagerð tekur allt
upp undir þrjá mánuði. Þá er
lítil sem engin rýrnun á duft-
inu. _ES
reglugerðina í gærdag. „Reglu-
gerðin gengur í meginatriöum
út á þær tillögur sem Stéttar-
sambandið hefur lagt lauslega
fram. Framleiðslumagn mjólk-
ur sem um var samið í haust
verður skipt milli mjólkur-
framleiðenda, í grundvallaratr-
iðum eftir rcglu sem byggist á
því að búmarkið telur tvöíalt á
móti framleiðslu þriggja síð-
ustu verðlagsára. Þetta er meg-
inreglan sem notuð vcrður við
skiptingu þessa magns,“ sagði
Bjarni.
Hann sagði reglugerðina fela
í sér ýmsar sérreglur sem taka
tillit til þess aö rnilda sveillur á
milli þessara tveggja ára. Bæði
þessa árs og síðasta.
„Gengið er inn á svæðahug-
myndina. Landinu er skipt í
þrjátíu framleiðslusvæði.
Einnig eru í reglugerðinni sér-
reglur sem miða að því að veita
þeim sérstakan rétt sem hafa
verið að hefja framleiðslu síð-
ustu árin, til jrcss að mæta auk-
inni fjármagnsþörf þeirra sem
staðið hafa í uppbyggingu síð-
astliðin ár,“ sagði Bjarni.
Mikil gagnrýni hel'ur komið
fram, á það hversu langan tíma
hefur tekiö að ganga frá ofan-
nefndri reglugerð. Bjarni sagði
að gagnrýni af hendi Fram-
leiðsluráðs væri vafasöm,
vegna þess að landbúnaðar-
ráðuneytið mun hafa óskað eft-
ir tillögum í júlímánuði um út-
færslu á búmarksskipting-
unni. „Þær tillögur komu að-
eins að hluta í nóvember. Það
er ekki síður, ef hægt er að tala
um orsök fyrir þeim tíma sem
þetta hefur tekið, hversu erfið-
legaþeim hefur gengið að vinna
sínar tillögur sem ráðuneytið
óskaði eftir," sagði Bjarni.
Stéttarsamband bænda hefur
óskað eftir stjórnarfundi um
málið og verður hann haldinn á
morgun.
- ES
Fyrsta einkaþotan keypt?
- íslenskur aðili hefurfengiðflugrekstrarleyfi
Nokkrir íslenskir athafna-
menn íhuga nú þann mögu-
leika að kaupa einkaþotu af
gerðinni Citation II. Vélin er
af þeirri gerðinni sem við-
skiptajöfrar erlendis nota
gjarnan þegar farið er á ráð-
stefnur um langan veg. Ekki
er hægt að upplýsa hverjir
það eru sem hafa kannað hugs-
anleg kaup á vélinni. Þó segja
heimildir Tímans að Flug-
stöðin hf. standi á bak við
fyrirtækið.
Aðili sá sem hefur augastað
á vélinni hefur flugrekstrar-
leyfi, en þegar sótt var um
sérstakt leyfi til samgöngu-
málaráðuneytisins varð að
kanna málið sérstaklega, þar
sem vélin vegur rúm sex tonn.
Að sögn Birkis Guðjóns-
sonar deildarstjóra hjá sam-
göngumálaráðuneytinu eru
viss skil í leyfisveitingum fyrir
flugrekstrarleyfum þegar vél
er yfir 5,7 tonn. Hann sagði
að ráðuneytið hefði í þessu
tilfelli ákveðið að líta framhjá
þyngdarákvæðunum. „Það er
þó ekki um stefnumarkandi
ákvörðun að ræða,“ sagði
Birkir. - ES