Tíminn - 17.01.1986, Blaðsíða 11
lOTíminn
Námskeið í náttúruvernd
- Landvarðanámskeið -
Náttúruverndarráð auglýsir námskeið í náttúruvernd.
Tilgangur námskeiðsins er að gefa fólki innsýn í náttúru-
vernd á íslandi, þjálfa það til að hafa eftirlit með friðlýst-
um svæðum og fræða fólk um náttúru landsins.
Þátttakendur í námskeiðinu skulu vera orðnir 20 ára og
hafa staðgóða framhaldsmenntun.
Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður.
Þátttaka í námskeiði sem þessu er skilyrði fyrir ráðningu
til landvörslustarfa á vegum Náttúruverndarráðs, en
tryggir þátttakendum þó ekki slík störf.
Námskeiðið verður haldið á Akureyri og í Mývatnssveit
og fer fram eftirfarandi daga:
14.15. og 16. mars á Akureyri, 4.5. og 6. apríl á Akureyri
og 24.-27. apríl í Mývatnssveit.
Skriflegar umsóknir, með heimilisfangi og síma; er
greina frá menntun, aldri, störfum, áhugamálum og öðru
sem máli skiptir, skulu berast Náttúruverndarráði, Hverf-
isgötu 26,101 Reykjavík, fyrir 10. febr. 1985.
IAGSBBUN
Verkamannafélagið Dagsbrún
Tillögur
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs um stjórn
og aðra trúnáðarmenn félagsins fyrir árið 1986 liggja
frammi í skrifstofu félagsins frá og með mánudeginum
20. janúar 1986. Öðrum tillögum ber að skila í skrifstofu
Dagsbrúnar fyrir kl. 17.00 þriðjudaginn 21. janúar 1986.
Kjörstjórn Dagsbrúnar
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Vill ráða strax eða síðar eftir samkomulagi hjúkrunarfor-
stjóra fyrir 15. febrúarn.k.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Egilsstaðir —
Hjúkrunarfræðingar
Viltu breyta til!
Við auglýsum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa frá 1. mars
eða síðar eftir samkomulagi.
Flutningur á staðinn ykkur að kostnaðarlausu. Bjóðum
upp á húsnæði. Leitið frekari upplýsinga um vinnustað
og launakjör, hjá hjúkrunarforstjóra í síma 97-1631 og
97-1400.
Sjúkrahúsið Egilsstöðum
Föstudagur 17. janúar 1986
Föstudagur 17. janúar 1986
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
HSÍ og Adidas bindast böndum:
Stór samningur
Oll landslið HSI munu leika í
í fyrradag kynntu forráðamenn
Handknattleikssambands íslands og
Adidas-fyrirtækisins á íslandi stóran
samning sem þcssir aðilar hafa gcrt
með sér. Samningur þessi hljóðar
lauslega áætlað uppá fimm og hálfa
milljón oger reyndar þegar kominn í
gagniö.
í samningnum felst að Adidas
verður bakhjarl HSÍ í búninga-
málum og öðrunt fatnaði er lands-
liðsmenn okkar og konur nota. Þá er
einnig um skó að ræða. Þannig munu
öll landsliö íslands spila í fatnaði frá
Adidas
Adidas næstu þrjú árin, en það er
samningstíminn.
Að sögn forráðamanna beggja eru
þeir afar ánægðir með þennan
samning. íslensku landsliðin hafa
þegar spilað 25 landsleiki frá því í
desember en þá tók samningurinn
gildi.
Einnig mun Adidas verða með
getraun í sambandi við HM í Svissog
felst hún í því að þátttakendur eru
beðnir um að segja til um frá hvaða
framleiðendum búningar þriggja
efstu liðanna í HM eru. Verður get-
raunin kynnt síðar.
Meistarakeppnin í tennis:
McEnroe úr leik
í fyrstu umferð
Brad Gilbert sigraði landa sinn McEnroe 2*1
í fyrradag hófst í New York svo-
kölluð Mcistarakeppni í tennis
(Masters). Til þessarar keppni er
boðið þeim 16 tennisleikurum sem
bestum árangri náðu á síðasta ári.
í fyrstu umferð uröu úrslit þau að
Johan Kriek frá Bandaríkjunum
sigraði Stcfan Edberg frá Svíþjóð,
Boris Becker sigraði Paul Annacone
frá Bandaríkjunum, Mats Wilander
sigraði Bandaríkjamanninn Scott
Davis og Andres Gomez frá Ecua-
dor sigraði Henri Leconte frá
Frakklandi. Gomez kom inní keppn-
ina vegna þcss að J immy Connors frá
Bandaríkjunum veiktist rétt fyrir
hana og verður því ekki með.
Þá gerðust þeir undarlegu hlutir
að Brad Gilbert frá Bandaríkjunum
vann landa sinn John McEnroe 2-1.
Nú, Jarryd frá Svíþjóð vann landa
sinn Nyström og Lendl sigraði Tom-
as Smid frá Tékkóslóvakíu. Þá vann
Tim Mayotte sigur á Frakkanum
Yannick Noah.
Heimsbikarkeppnin á skíðum:
Gutensohn er góð
Hún sigraði í bruni í gær og er nánast óstöðvandi um
þessar mundir
Austurríska skíðakonan Katrín
Gutensohn sigraði á brunmóti í
heimsbikarkeppninni á skíðum sent
haldið var í St.Vincent í Frakklandi í
Atrennulaus stökk
Meistaramót íslands i at-
rennulausuni stökkuni fcr
frani í K.R.-heiniilinu við
Frostaskjól þann 26. janúar
og hefst það kl. 13.00. Þátt-
tökutilkynningar skulu lierast
til Guðrúnar Ingólfsdóttur að
Barónsstíg 43, Reykjavík
ellegar í sínia 12891 fyrir 22.
janúar næstkomandi.
Boltarog bensín
Eins og kunnugt er þá
gerðu HSI og OLÍS með sér
samning scm felur m.a. í sér
að HSI fær ákvcðna upphæð
af hverjum scldum hensín-
lítra sem OLÍS selur. Þá eru á
bensínstöðvum Olís gefnar
myndir af landsliðsmönnuin
Islands. Þeir sem ná að safna
saman í heilt landslið fá hand-
holta að gjöf frá OLÍS og
HSI. Nú þegar hafa verið af-
hentir um 150 handboltar af
þcim 400 sem til ráðstöfunar
eru. Það er því enn hægt að ná
sér í handbolta.
gær. Hún vann þar með sinn annan
sigur í bruni á þessu tímabili og er nú
orðin efst að stigum f þeirri keppni.
Gutensohn, sem er 19 ára gömul,
fór niður erfiða brautina á 1:31,17 en
næst Itcnni kom svissneska stúlkan
Brigitte Oertli á 1:31,23. Þriðja varð
svo Lauric Graharn frá Kanada.
„Ég vissi frá byrjun að éggæti unn-
ið þessa keppni því ég var vel upp-
lögð og fór niður án þess að gera
nokkur mistök," sagði Gutensohn
hoppandi kát eftir kcppnina, en hún
sigraði einnig í bruni í Bagdenstein í
Austurríki í síðustu viku.
Oertli var ánægð með annað
sætið: „Gutensohn er í þvílíku formi
að annað sætið var sem sigur fyrir
mig,“ sagði sú svissneska.
Enski deildarbikarinn:
Dregið í gær
I gærdag var dregið í undanúrslit-
unt enska deildarbikarsins. Aston
Villa eða Arscnal leikur gegn Ox-
ford eða Portsmouth og O.P.R. eða
Chelsea leikur gegn Liverpool eða
Ipswich. Eins og sést á enn eftir að
útkljá allar viðureignirnar í átta liða
úrslitum keppninnar.
Fyrri leikirnir í undanúrslitunum
fara fram þann 11. eða 12. febrúarog
síðari leikirnir þann 4. eða 5. mars.
Þjálfarafundur
Handknattleikssamband Islands
og landliðsnefnd kvenna hafa ákveð-
ið að gangast fyrir þjálfarafundi með
öllum þjálfurum kennaflokka hér á
landi. Fundurinn verður á laugar-
daginn 18. janúar og hefst kl. 10.00
fyrir hádegi í fundarsal ÍSÍ í Laug-
ardal.
Á dagskrá fundarins verdur:
HM-B kvenna 1986. Hilmar Björnsson gefur
yfirlit af undirbúningi og keppninni og
sýndar verða videomyndir frá keppninni.
Erindi um íþróttaiökanir kvenna.
Hvað erum við ad gera í dag - hvad þarf ad
gera. Þjálfarar unglinga og deildarlida
kvenna segja álit sitt á uppbyggingu og
þjálfun í kvennahandknattleik.
Valur - Fram, leikur i l.d.kvenna í Höllinni
kl. 15.30.
Kaffi - Umrædur.
Landsliðsnefnd kvenna hvetur alla þjálf-
ara og forrádamenn félaganna og aðra þá er
áhuga hafa á uppbyggingu kvennahand-
knattleiks á íslandi til að mæta.
Atli Hilmarsson og félugar fengu ekki rönd við reist gegn sovéska birninum.
Bikarkeppnin í körfu:
Stélu sigrinum
KR var yfir mest allan tímann
Njarðvíkingar sigruðu KR-inga í
fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum
bikarkeppninnar í körfu í gærkvöldi.
Leiknum, sem fram fór í Hagaskóla,
lauk þannig að Suðurnesjamennirnir
skoruðu 89 stig á móti 88 stigum
Vesturbæinganna. Að loknum
venjulegum leiktíma var staðan jöfn
82-82 og því þurfti að framlengja,
þar reyndust Njarðvíkingar sterkari.
KR-ingar voru yfir mest allan tím-
ann og voru nokkrir klaufar að missa
niður forskotið í lokin. Þeir misstu
þrjá menn út af með fimm villur.
Jóhannes Kristbjörnsson skoraði
35 stig fyrir gestina og Valur Ingi-
mundarson var með 21. Þeir tveir
ásamt Helga Rafnssyni voru bestu
menn Njarðvíkinga.
Garðar Jóhannsson og Birgir Mik-
aelson voru atkvæðamestir í KR-lið-
inu. Garðarvarmeð 23 stigogBirgir
með 21. Þess má geta að Þorsteinn
Gunnarsson fyrirliði KR lék þatna
sinn lOO.meistaraflokksleik.
Sivebeck til Man.Utd.
í gærkvöldi lét enska liðiö
Man. IJtd. loks verða af því
að gera samning við danska
landsliðsmanninn Johnny Si-
vebeck frá Vejle. Máliö hefur
lengi vafist fyrir Ron Atkin-
son framkvæmdastjóra Man.
Utd. cn mikil meiðsl í liði
hans hafa sjálfsagt valdið
nicstu uni ákvörðun hans, að
fá Sivebeck til liðsins.
Sheff. Wed. sigraði
Sheff. Wed sigraði W.B.A.
með þremur mörkum gegn
tveimur í ensku bikarkeppn-
inni í gærkvöldi. „Llgluriiar"
fara því áfram.
Molar...V Molar...n Holar...
...Frönsk nefnd sem sér um verðlaun
til handa íþróttamönnum kausJ í gær
sovéska stangastökkvarann Sergei
Bubka sem besta íþróttamann heims
á síðasta ári.
Bubka var fyrsti maðurinn til að
fara yfir sex metra í stangarstökki,
gerði það á móti í júlí síðastliðnum.
Næstir í kjörinu voru millivegar-
lengdahlaupararnir Steve Cram frá
Englandi og Said Aquita frá Mar-
okkó...
...Kanarnir slá ekki slöku við í körf-
unni sinni og í fyrrinótt voru nokkrir
leikir. Boston sigraði Nuggets 123-
100, Trail Blazers náðu sigri á Pacers
109-104 Nets unnu 76ers 123-89,
Pistons unnu Bulls 123-115, Rockets
náðu sigri á Spurs 119-113, Knicks
sigruðu Dallas 116-112, Clippers
mörðu Supersonics 110-103 ogGold-
en State unnu sjaldgæfan sigur á
Utah 150-104 sem er án efa eitt hæsta
skor í NBA deildinni...
...Nú er búið að ákveða að verð-
launaféið fyrir sigur á Opna Breska
Meistaramótinu í golfi verði mun
hærra en áður hefur þekkst. Mótið
verður að þessu sinni í Turnberry í
júlí. Sigurvegarinn fær í sinn hlut um
4 milljónir króna en sá sem hafnar í
öðru sæti mun hafa með sér heim um
3 millur...
...Nokkrir leikir voru í spænsku
bikarkeppninni í knattspyrnu,
fjórðu untferð í vikunni:
Sevilla-Castilla 1-1, Castellon-At.
Bilbao 0-0, Lerida-Barcelona 0-1,
Tenerife-Sabadell 1-0, Real Oviedo-
Celta 1-0, Racing-At. Madrid 1-0 og
Real Madrid-Huelva 5-0.
Baltic Cup handknattleikskeppnin í Danmörku:
íslendingarnir horfðu á stóra
Sovétmenn raða inn mörkum
Okkar menn skoruðu níu mörk í síðari hálfleik- Það eru góðufréttirnar-Sovétmenn gersigruðu íslenska liðið 27-12
Frá Magnúsi Magnússvni fréttaritara Tímans á Baltic
Cup keppninni í Danmörku:
Hvað er hægt að segja. Þetta var algjört
„burst". Sovétmennirnir voru í miklum
ham og ætluðu sér greinilega ekki að láta
sama leikinn endurtaka sig og á móti
Dönum ■ fyrrakvöld þegar þeir töpuðu
óvænt. Þeir voru dulítið taugaóstyrkir í
byrjun og varð einatt litið á varantanna-
bekkinn á fyrstu mínútunum. Þar sátu
þjálfari og fararstjórar og vildu greinilega
að menn legðu sig alla í þessa viðureign.
Það gerðu Sovétmenn líka. Þeir röðuðu
inn mörkunum á meðan Islendingum
gekk ekkert að skora og þegar upp var-
staðið voru tölurnar 27-12 á markatöfl-
unni, staðreynd sem ekki verður haggað.
Það var byrjunin sem fór illa á móti A-
Þjóðverjum en í gærkvöldi héldu okkar
menn í Sovétrisana fyrstu tíu mínúturnr
síðan ekki söguna meir. Kristján Arason
skoraði á 7. mínútu 3-3 en eftir það gerðu
íslensku strákarnir ekki mark í fyrri hálf-
leik. Staðan þegar gengið var til leikhlés
var 3-12.
í síðari hálfleiknum náðu okkar menn
að skora fyrsta markið. Það var líklega
eina góða fréttin úr þeim hálfleik. Sovét-
nrenn tóku til við fyrri iðju og skoruðu
hvert markið á fætur öðru, sum hver mjög
glæsileg. Þeir komust í 24-7 en íslending-
ar náðu að klóra aðeins í bakkann undir
lokin og tapa „aðeins" með 15 marka
mun, 27-12.
Sovétmenn eru ofar í handboltastigan-
um en við íslendingar, það er engin
spurning. Hins vegar var tapið í gær-
kvöldi alltof stórt. Skýringar? íslenska
liði var, jú, þokkalegt í vörn en sóknar-
leikurinn var í molum og markvarslan
nær engin.
Kristján Arason var markahæstur
leikmanna íslenska liðsins, skoraði fimm
mörk og þar af voru tvö úr vítum. Þorgils
Óttar Mathiesen kom næstur með þrjú
mörk og þeir Atli Hilmarsson, Alfreð
Gíslason. Jakob Sigurðsson og Þorbjörn
Danir sigruðu Pólverja
Frá Magnúsi Magnússyni fréttaritara Tím-
ans á Baltic Cup keppninni í Danmörku:
Danir hafa svo sannarlega náð sér eftir
tapið gegn íslendingum í fyrsta leiknum á
Baltic Cup. í gærkvöldi sigruðu þeir Pól-
verja með 28 mörkum gegn 21 og var sá
sigur sanngjarn. Leikurinn fór fram í
íþróttahöllinni í Randers.
B-landslið mætti hins vegar ofjörlum
sínum er þeir kepptu við A-Þjóðverja í
gærkvöldi. Hið frábæra lið Austur-Þjóð-
verja sigraði örugglega með 24 mörkum
gegn 17.
Austur-Þjóðverjar eru eina liðið sem
ekki hefur tapað leik í keppninni og eru af
flestum álitnir vera með besta og skemmti-
legasta lið keppninnar. Þeir eiga að vísu
eftir að mæta „sovéska birninum" og ef
sami kraftur verður í honum og gegn ís-
lendingum mega jafnvel Austur-Þjóðverj-
arnir vara sig.
Jensson skoruðu eitt mark hver. Allir
leikmenn okkar hafa yfirleitt ef ekki alltaf
leikið betur en í íþróttahöllinni í Grá-
steini í gærkvöldi.
Jæja, verum nú jákvæð. Sovétmenn
eru heimsmeistarar og með geysisterkt lið
og sérlega hávaxið. Vörn þeirra er sú
besía í handboltanum og það er því engin
skömm aö tapa fyrir því, þó heldur illa
hefði farið í gærkvöldi.
íslendingar leika gegn liði Pólverja í
kvöld og cr von að betur takist nú til. Pól-
verjar töpuöu fyrir B-landsliði Dana og
okkar menn eiga að geta haft í fullu tré
við þá. Sigur, og tapið gegn Sovétmönn-
uni fellur í gleymskunnar dá.
Evropukeppni landsliða í knattspyrnu:
Þær sjö sterku valdar
Heimsmcisturunum sjálfum ítölum mun ekki verða raðað niður meðal sjö
sterkustu þjóðanna þegar dregið verður í riðla Evrópukeppni landsliða í febrúar
næstkomandi, að því er heimildir innan knattspyrnusambands Evrópu hernta.
Dregið verður í sjö riðla og munu sjö sterkustu þjóðirnar, að dómi knattspyrnu-
sambands Evrópu, ekki lcnda saman í riðli. Þessar þjóðir hafa þegar verið valdar
að sögn heimildarmannsins og var farið eftir riðlaárangri í síðustu Evrópukcppni
svo og árangri í undanriðlum heimsmeistarakeppninnar.
Þjóðirnar sjö sem forréttindanna njóta eru Danir og Englcndingar sem voru
fyrst settar í þennan hóp. Hinar fimm eru Evrópumeistararnir sjálfir Frakkar,
Belgíumenn, Hollendingar, PortúgalarogSpánverjar.
Þær þjóðir sem vinna sína riðla munu komast í úrslitin sem haldin verða í V-
Þýskalandi í júní 1988. Gestgjafarnir Þjóðverjar komast beint í úrslitakeppnina.
Saunders sagðiaf sér
Ron Saunders framkvæmdastjóri enska 1. deildarliðsins Birmingham sagði af
sér í gærdag, aðeins tveimur sólarhringum eftir að lið hans beið ósigur gegn utan-
deildarliðinu Altrincham í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar.
Saunders kom til Birmingham frá nágrannaliðinu Aston Villa fyrir fjórum árum
en Aston Villa leiddi hann til sigurs í 1. deildinni árið 1981. Uppsögn Saunders
kemur ekki á óvart - Birmingham er í næst neðsta sætinu í 1. deildinni og á við
mikla fjárhagsörðugleika að stríða.
Tíminn 11
Ski-doo Formula MX. Óvenju skemmtilegur alhliða
sleði. Þýður, kraftmikill. Verð ca. 315.000.
Ski-doo Tundra. Traustur, léttur, lipur, sparneytinn,
með löngu belti og farangursgrind. Verð ca. 175.000.
Aktiv Panther. Langur, er meiriháttar sleði, e.t.v.
það fullkomnasta á markaðnum: 500 cc. Rotax-
motor. Beltið 16“, lengd 397 sm, 2 gírar, áfram (hár
og lágur) og 1 afturábak. Verð til björgunarsveita
186.000, aðrir 368.000.
Með rafstarti
Einnig fyrirliggjandi aftansleðar og not-
aðir sleðar og mikið af varahlutum.
Gísli Jónsson & Co. hf.,
Sundaborg 41, sími 686644
Ski-doo Skandic 377 R með afturabakgir. Lang-
mest seldi sleðinn til björgunarsveita og þeirra sem
þurfa að ferðast af öryggi. Traustur, léttur, lipur og
sparneytinn. Verð f. björgunarsveitir 128.000, aðrir
268.000.
St. Jósefsspítali
Landakoti
Aðstaða sérfræðings í geislagreiningu við Röntgen-
deild St. Jósefsspítala, Landakoti, er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar n.k.
Viðkomandi þarf að hafa starfsreynslu við „Nuclear
Medicine11.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fyrri störf
skal senda til yfirlæknis spítalans.
St. Jósefsspítali, Landakoti.
Ársstaða aðstoðarlæknis við barnadeild, St. Jósefs-
spítala, Landakoti, er laus til umsóknar. Staðan veitist frá
1. júní 1986.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar n.k. Umsóknir með
upplýsingum um námsferil og fyrri störf skal senda til yfir-
læknis barnadeildar.
St. Jósefsspítali, Landakoti