Tíminn - 07.02.1986, Side 4
4 Tíminn
Elísabet drottningarmóðir varð 85 ára 5. ágúst sl. Hún er í miklu uppáhaldi hjá barnabörnunum, svo sem
sjá má á myndinni. Þarna eru þau öll: Karl krónprins, Edward, Anna og Andrew.
Andrew prins og Sarah
SPEGILL
Konungleg trúlofun
á næsta leiti ?
- spyrja bresku blöðin
Andrew prins í Bretlandi er orð-
inn 25 ára og þykir mikið kvenna-
gull, eins og sjá má í blöðum. Það
var ekki lítið fjaðrafokið þegar
hann var að slá sér upp með Koo
Stark þegar hann kom heinr úr
Falklandseyjastríðinu. í gegnum
árin hefur það ekki þótt svo merki-
legt þó unga menn - nýkomna úr
svaðilför og lífsháska langi til að
njóta lífsins, en það er ekki svo
auðvelt fyrir þá konunglegu. Fylgst
er með hverju fótmáli þeirra.
Síðan Koo Stark málið var efst á
baugi hefur ungi maðurinn auðvit-
að lifað sínu lífi og verið orðaður
við margar stúlkur, því um leið og
hann sést með stúlku eru ljós-
myndarar komnir á kreik og svo er
farið að bollaleggja hvort þarna sé
einhver alvara á ferðum.
Nú hefur mátt sjá í fréttaskeyt-
um frá Englandi að talað er um al-
varlegt ástarsamband Andrew
prins og stúlku sem nefnist Sarah
Ferguson. Faðir hennar major
Ronnie Ferguson er gamall vinur
bresku konungsfjölskyldunnar og
hefur umsjón með pólóhestum
Karls prins og veðhlaupahestum
hirðarinnar. Flann sagði í viðtali
við breska blaðamenn í gær, 6.
febr., þegar hann var spurður um,
hvort trúlofun væri væntanleg á
næstunni: „Það er traust samband-
ið milli þeirra, og tíminn leiðir í ljós
hvort trúlofun og gifting verður úr
því.“ Hann bætti síðan við, að dótt-
ir sín segði sér það sem hún sjálf
vildi tala um „og ég hnýsist ekki í
málin nánar.“
Sagt er að Elísabet drottning sé
Andrew prins og Sarah Ferguson á Ascot-veðreiðunum.
hlynntþessuvalisonarsíns.enhún og Sarah hefur verið gestur við
hefur þekkt stúlkuna árum saman hirðina öðru hverju frá barnæsku.
Föstudagur 7. febrúar 1986
ÚTLÖND
PARIS — Sprengjutilræðin í Parísundanfarnadagahafa
vakið upp umræður í kosningabaráttunni er varða lög og
reglur. Kosningarnar mikilvægu fara fram í mars. Hið virta
dagblað Le Monde sagði sprengjutilræðin þjóna þeim til-
gangi að þrýsta á frönsk stjórnvöld að láta að kröfum þeirra
sem halda fjórum Frökkum í gíslingu í Líbanon.
MADRÍD — Tveir menn létu lífið þegar byssumenn
hentu handsprengju og skutu á herbíl í Madríd í gær. Annar
mannanna var varaflotaforingi er gat rakið ættir sínar til
Kristófers Kólumbusar.
KUWAIT — Olíumálaráðherra Kuwait endurtók spá
sína að olíuverð myndi falla niður í 10 dollara á tunnu tækist
OPEC ríkjunum og þeim olíuútflutningsríkjum sem eru utan
bandalagsins ekki að na samkomuiagi. Hin opinoera tretta-
stofa í Alsír (APS) sagði að stjórnvöld í Alsír, Líbýu og íran
hefðu ákveðið, eftir viðræður sín á milli, að bera saman ráð
sín við önnur útflutningsríki.
TOKYO — Embættismenn í Japan lýstu áhyggjum sín-
um vegna lækkandi olíuverðs sem þeir sögðu geta aukið á
hagstæðan vöruskiptajöfnuð þjóðarinnar en um leið geta
leitt til spennu í samskiptum við aðrar þjóðir.
BAHRAIN — Tankskiþið Avocet, sem ber fána Kýpur,
varð fyrir eldflaugaárás í Golfflóanum og létust fjórir áhafn-
armeðlimir og aðrir særðust þegar eldur braust út. íranir
virðast standa að baki árásinni.
NICOSIA — Stjórnvöld á Kýþur hafa varað starfsmenn
bandaríska sendiráðsins við hugsanlegum árásum hermd-
arverkamanna. Háttsettur embættismaður sagði viðvörun-
ina hafa verið tekna alvarlega.
TEL AVIV — Yitzhak Shamir utanríkisráðherra sagði að
ísraelarmyndu handsama leiðtoga Palestínuskæruliða fyrr
eða síöar þrátt fyrir að ekkert slíkt hefði tekist þegar líban-
ska flugvélin var neydd til lendingar í vikunni. (Trípóli varaði
foringi úr harðlínuhópi palestínskra skæruliða almenna
borgara við að ferðast með ísraelskum og bandarískum
flugfélögum.
MANILA — Stjórnvöld á Filippseyjum brutu sín eigin
kosningalög og gáfu bandarískum eftirlitsmönnum leyfi til
að fara inn á kosningastaði og fylgjast með að allt færi lög-
lega fram. Kosið verður til forseta á Filippseyjum í dag.
Liosmenn Corazon Aquino hafa sakað stuéningsmenn
Ferdinands Marcosar forseta um að hagræða atkvæðum í
að minnsta kosti þremur sveitahéruðum.
FRETTAYFIRLIT
NEWSINBRIEF
PARIS — The latest bombings in Paris highlighted the
law and order issue in the run-up to France’s crucial March
legislative elections. The respected daily Le Monde says
the attacks are aimed at pressuring France to grant dem-
ands of gunmen holding four French hostages in Lebanon.
MADRID — Two people, one a Spanish vice-admiral
descended from Christopher Columbus, died when gun-
men threw a grenade and fired at af navy car here, police
said.
KUWAIT — Kuwait’s oil minister repeated an earlierfor-
ecast that oil prices would drop to 10 dollars a barrel unless
OPEC and non-OPEC producers reach agreement. Alger-
ia’s news agency APS said Algeria, Libya and Iran agreed to
consult other oil-exporting states after talks on how to halt
the slide in oil prices.
TOKYO — Japanese officials expressed concern that
tumbling oil prices could boost the nation’s trade surplus
and aggravate friction with the rest of the world.
BAHRAIN - A missile attack apparently made by Iran
set the Cyprus-flag tanker Avocet ablaze in the gulf, killing
four crewmen and injuring another, shipping sources said.
NICOSIA — Cyprus has warned the U.S. embassy it is
targeted for a terrorist attack, official sources said. The
threat is being taken seriously, a top official added.
TEL AVIV — Foreign Minister Yitzhak Shamir said Isra-
el would capture Palestinian guerrilla leaders, despite the
failed bid to net them by intercepting a Libyan plane yester-
day. In Tripoli, a hardline Palestinian guerrilla chief has
warned civilrans to avoid U.S. and Israeli airlin.
MANILA — Philippine authorities broke their own elect-
ion rules and said official U.S. observers could enter polling
stations to watch for cheating in tomorrow’s presidential el-
ection. Aides to opposition leaderCorazon Aquino accused
supporters of President Ferdinand Marcos of rigging the
vote in a least three provinces.