Tíminn - 07.02.1986, Side 5
Tíminn 5
Föstudagur 7. febrúar 1986
ÚTLÖND
Atak gegn eyðingu
París-Reuter
Francois Mitterrand forseti
Frakklands og Hclmut Kohl kanslari
V-Þýskalands fóru fram á í gær að
þau ríki Afríku, sem eiga í erfiðleik-
um vegna síaukins uppblásturs
lands, tái aukna fjárhagsaðstoð.
Mitterrand og Kohl héldu báðir
ræður á fundi alþjóða skógarráðsins
og sögðu þar að meiri háttar vísinda-
og efnahagslegt átak væri nauðsyn-
legt ef snúa ætti við eyðingu skóga í
Afríku.
Kohl sagði á fundinum, sem sóttur
var af tíu leiðtogum í Evrópu og
Afríku sem og ráðherrum frá fimnt-
tíu löndum, að eyðing skóga og
breyting gróðurlands í eyðimörk
væri „ógnun við líf fólks í Afríku".
Leiðtogarnir báðir lofuðu auknu
fjármagni í aðgerðir gegn þessari þró-
un á næstu árum.
Skógar heimsbyggðarinnar
ntinnka um eina ellefu milljón hekt-
ara á ári hverju sem er svipað og allt
skógasvæði í Frakklandi.
Munu „Cory“ Aquino og varaforsetaefnið Laurel sigra í forsetakosningunum á Filippseyjum sem fram fara í dag eða
mun Marcos (innfellda myndin ) halda velli?
Marcos eða Aquino?
Kosið til forseta á Filippseyjum í dag
Nýja Jórvík:
Heiðarieiki
vandfundinn
Kosið verður til forseta á Filipps-
eyjum í dag og má búast við miklum
sviptingum í þjóðlífi þar í landi hvort
sem Marcos forseti verður endur-
kjörinn ellegar Corazon „Cory“ Aq-
uino nái kjöri.
Stjórnvöld á Filippseyjum breyttu
um stefnu í gær þegar þau tilkynntu
að bandarískum eftirlitsmönnum
væri nú frjálst að fylgjast með gangi
mála á kosningastöðum landsins.
Hin tuttugu manna eftirlitsnefnd
undir stjórn þingmannsins Richard
Lugar er hins vegar ekki líkleg til
afreka í baráttunni gegn hugsanlegu
svindli í kosningunum, þar sem tæp-
lega níutíu þúsund kosningastaðir eru
á við og dreif um landið.
Dagblað í Manila birti frétt í vik-
unni þar sem sagt var að fimmtíu
menn væru að störfum fyrir stjórn
Marcosarog hefðust við í kjallara há-
skólans þar í borg. Ynnu þeir dag og
nótt við að falsa kosningarseðla.
Hafði dagblaðið þetta eftir heimild-
um innan leyniþjónustu hersins.
Að minnsta kosti 51 maður hefur
látið lífið í ofbeldisaðgerðum sem
tengjast kosningarbaráttunni. Á
eynni Mindanao í suðurhluta
landsins, þar sem kommúnistar hafa
barist af alefli gegn stjórn Marcosar
allt frá því hún komst til valda, hefur
fólk flúið heimili sín af ótta við enn
frekari ofbeldisaðgerðir eftir að
kosningunum lýkur.
Marcos hefur verið iðinn við að
bendla Aquino við kommúnista en
hún neitaröllu slíku. Yfirmenn hers-
ins hafa ekki tekið beint undir með
yfirlýsingum Marcosar þó er óvíst
hvort herinn muni styðja Aquino
sigri hún i kosningununt. Sin kardin-
áli, yfirmaðurkaþólsku kirkjunnará
Filippseyjum, hefur hins vegar beint
og óbeint lýst yfir stuðningi Guðs við
Aquino og gæti það atkvæði vegið
þungt á vogarskálunum.
(Byggt á Reuter og The Ohscrver)
Nýja Jórvík-Reuter
Maðurinn sem stjórnaði aðgerð-
um gegn útbreiddri spillingu í Nýju
Jórvík hefur sagt af sér eftir að hafa
sjálfur orðið að mæta fyrir rannsókn-
arnefnd vegna meintra mistaka í
starfi.
Edward Koch borgarstjóri var
reiður og vandræðalegur þegar hann
tilkynnti fréttamönnum um uppsögn
Patricks McGinley en hann hefur ný-
lega verið ákærður um að hafa falsað
lífeyrisumsókn fyrir einn starfs-
ntanna sinna.
McGinley, fyrrum dómari í af-
brotamálum og aðstoðarmálafærslu-
maður í Manhattan, sagði í viðtali
við fréttamenn að hann væri saklaus
af þessari ákæru: „Ég þekki reglurn-
ar betur en llestir aðrir og myndi
aldrei brjóta þær“, sagði McGinley.
McGinley er annar forstöðumað-
ur stjórnardcildar innan borgarinnar
sem segir upp á skömmum tíma.
Áður hafði Ánthony Ameruso, for-
stöðumaður umferðardeildarinnar
þurft að hætta störfum vegna
hneykslismáls innan hennar. Þar
hafa þegar nokkrir starfsmenn verið
reknir og málið tekið til ýtarlegrar
rannsóknar.
Það var einmitt McGinley sem
stjórnaði þcirri rannsókn.
Kínverjum stendur
Afmælisspáin a||s ekki á sama
alveg afleit
- um lækkun olíuverðs - Bjóðast til að auka
ekki framleiðslu sína
Lundúnir-Reutcr
Breskir veðurfræðingar héldu upp
á 125 ára afmæli veðurspáa þar í landi
í gær með því að spá verstu veðrum
sem komið hafa yfir landið í vetur.
Búist er við áframhaldandi snjó-
stormum sem hafa reyndar þegar
valdið miklum umferðartruflunum og
lokað einum stærsta flugvelli
landsins.
Talsmaður bíleigendasambandsins
sagði vegi lokaða allt frá Skotlandi
niður til Sussex. Miklarumferðari-
truflanir voru á Ml, aðalþjóðvegi
þeirra Englendinga, en hann tengir
saman Norður-England og Lundúni.
Að sögn eins björgunarmannsins
mynduðust þar allt upp í 40 kíló-
metra langar bílalestir.
Mesti snjórinn féll í Austur-Skot-
landi, Norður-Englandi og vestur af
Lundúnum, allt upp í 15 sentimetra
snjólag að sögn veðurfræðinga.
Gatwick, annar aðalflugvöllur
Lundúnaborgar, lokaðist í fjórar
klukkustundir í gær en lestarferðir
hafa hingað til gengið að mestu án
trafala.
Veðurfræðingar spá áframhaldi á
óveðrinu. Fyrsta opinbera veðurspá-
in í Bretlandi var birt árið 1861 og
var þá reyndar einnig varað við mikl-
um stormum.
UTLOND
Umsjón: Heimir
Bergsson
Pekíng-Reuter
Stjórnvöld í Kína hafa lýst stuðn-
ingi sínum við allar tilraunir OPEC
ríkja til að hækka aftur olíuverð og
hafa boðist til að hafa framleiðslu-
magn sitt á þessu ári það sama og í
fyrra.
Hin opinbera fréttastofa Nýja
Kína hafði eftir Zheng Dunxun, for-
seta fyrirtækis þess sem sér um út-
flutning og innflutning á efnaiðnað-
arvörum, að þetta boð kínverskra
stjórnvalda væri sett fram í því skyni
að koma á uppbyggjandi viðræðum
milli OPEC ríkjanna og þeirra olíu-
útflutningsríkja sem eru utan við
OPEC.
Kínverjar eru ekki aðilar að
OPEC en olíuútllutningur er nú orð-
inn þeirrastærstagjaldeyristekjulind
og hefur aukist gífurlega á síðustu
árum. Kínverjar fluttu út 21,35 mill-
jón tonn af olíu á fyrstu níu mánuð-
um síðasta árs en árið áður nam út-
flutningurinn á fyrstu níu mánuðun-
um 15,4 milljónum tonna.
Olíuverð fellur nú stöðugt og fór
niður um eina tvo dollara á mörkuð-
um í vikunni eftir að fréttist að
OPEC ríkin hygðust ekki minnka
daglega framleiðslu sína.
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja kínversk stjórnvöld hafa mik-
inn áhuga á, að hjálpa til við að náol-
íuverði upp á nýjan leik, sérstaklega
þar sem viðskiptahalli Kínverja var
meiri í fyrra en nokkru sinni áður
eða 7,6 milljarðar dollara.
Olíuverð lækkar stöðugt og sumir spá að það fari jafnvcl niður í tíu
dollara á tunnu áður en langt um líður.
o
0RL0FSHUS A SPANI
r m m
FYRIRTÆKI - STARFSMANNAFELOG
Við komum til ykkar og kynnum þennan nýja möguleika. - Upplýsingar á skrifstofunni að
Laugavegi 28,2. hæð. - Umboðsskrifstofan - Suomi Sun Spain - Sími 622675.