Tíminn - 07.02.1986, Síða 15
Föstudagur 7. febrúar 1986
Tíminn 15
Hugarfarsbreyting
og björgun mannkyns
H
l f býður þér þjónustu sína við ný-
byggingar eða endurbætur eldra húsnæðis
Við sögum í steinsteypu fyrir dyrum, gluggum, stigaopum, lögnum
- bæði í vegg og gólf.
Ennfremur kjarnaborum við fyrir lögnum í veggi og gólf.
Þvermál boranna 28 mm til 500 mm.
Þá sögum við malbik og ef þú þarft að láta fjarlægja reykháfinn þá
tökum við það að okkur.
Hífir leitast við að leysa vanda þinn fljótt og vel, hvar sem þú ert
búsettur á landinu.
Greiðsluskilmálar við allra hæfi
Höfðingi sem nær tökum á mikl-
um herjum, er verða sigursælir undir
stjórn hans, og sem sýna hinum sigr-
uðu mikla grimmd, hlýtur að vera
djöfulmagnaður, þannig, að hann
þiggur magnan sína frá einhverjum
höfðingja í víti annars hnattar, þar
sem hertækni og samstilling herja er
á miklu hærra stigi en hér gerist. Sem
dæmi má nefna höfðingja, eins og
Djengis Kahn, Karlamagnús keis-
ara, Naopóleon, Hitler o.m.fl.
Því miður hefur hetjuljóma stafað
af nöfnum þvílíkra höfðingja, sem
leitt hafa ómælanlegar hörmungar
yfir einstaklinga og heilar þjóðir.
Heimska mannkyns hefur svo mikil
verið, að hinir grimmustu harðstjór-
ar hafa hlotið mesta hylli. Ofmat
heimsins á þessum grimmdarseggj-
um hefur mjög aukið á hörmungar
mannlífsins. Og vanmat á bestu og
vitrustu mönnum hefur mjög miðað
að hinu sama.
Heimska mannanna er ein aðalor-
sökin fyrir aukningu helstefnunnar á
okkar jörð. Ofmat á hinu illa og
ósanna og vanmat á hinu góða og
sanna hlýtur að leiða til rangstefnu.
Rétt mat almennings á þessum þátt-
um tilverunnar hlýtur að vera algjör
forsenda þess, að hægt verði að
breyta um stefnu hér á jörð. Og til
þess að slíkt geti orðið rétt verður
fjöldinn að geta skilið hið sanna eðli
lffsins, gg skilið að frá háþróuðum
lífsstöðvum annarra hnatta er þá
hjálp að fá, sem ein getur dugað til
þess, að hér verði breytt um stefnu.
Við verðum að taka upp nánari vit-
og lífsambönd við þá, sem góðvild-
ina hafa og viljann og máttinn til að
Á stjörnum geimsins og hvergi annarsstaðar eru stöðvar lífsins og eins og
nauðsyn er á samböndum við lengra komnar lífsstöðvar eins stafar hinn mesti
háski af samböndum við staði, þar sem rangstefnan hefur náðað þróast. -
Myndin sýnir stjörnuþyrpinguna M-13, en hvergi mun himinsýn fegurri á að
líta, en frá einhverri jarðstjörnu á slíkum sólnasæg.
hjálpa okkur, en við verðum sjálfir búa, sem svo mikil er þörfin á, og
aðhafavitá, aðveraþarmeðíverki. sem ekki má dragast, ef ekki á illa
Annars getum við ekki vænst þess, að fara.
að sú breyting gerist á högum jarðar- Ingvar Agnarsson
Bílasími 002-2183
Fífuseli 12
109 Reykjavík
sími91-73747
KRANALEIGA • STEINSTEYPUSÖGUN • KJARNABORUN
Allsherjar-
42# atkvæðagreiðsla
Allsherjaratkvæðagreiðsla vegna kjörs stjórnar og
trúnaðarmannaráðs árið 1986 ferfram á skrifstofu
félagsins Skólavörðustíg 16, Reykjavík, dagana
14. og 15. febrúar n.k. Kjörfundir eru þannig:
Föstudaginn 14. febrúar kl. 14.00-22.00. Laugar-
daginn 15. febrúarkl. 10.00-20.00. Boristhafatveir
listar: A-listi borinn fram af stjórn og trúnaðar-
mannaráði og B-listi borinn fram af Bjarna Jakobs-
syni og fleirum. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu
Iðju frá og með 7. febrúar kl. 12.00. Fullgildir
félagsmenn hafa einir kosningarétt. Kærufrestur er
til loka kjörfundar.
Reykjavík, 7. febrúar 1986.
Kjörstjórn Iðju.
Vítaverður
málflutningur
Hr. ritstj., gleðilegt nýtt ár 1986.
Nokkur orð á nýbyrjuðu ári. Við
verðum öðru hverju að herða okkur
upp og birta hugsjónir okkar, því í
daglegu lífi vanrækjum við einatt að
stemma stigu við hinu kuldalega
ranglæti. Það kann að fara eyðingu
sinni fram með kyrrð og spekt, og
valda samfélaginu óbætanlegum
skelfingum og bölvun ef enginn segir
neitt.
Ég hverf hér örstutt til baka yfir á
nýliðið ár til sjónvarpsþátta í des-
ember en þeir verða sjálfsagt lengi
minnisstæðir öllum þeim sem á þá
horfðu, en þar sátu fyrir svörum
nokkrir alþingismenn okkar.
Umræðuefnið var svívirðilegt
hneyksli sem kom upp í einum ríkis-
bankanum, Útvegsbanka fslands.
Hundruð milljónir króna höfðu
runnið þaðan út án þess að ábyrgð
væri fyrir hendi og peningarnir því
glataðir. Hvernig getur svona átt sér
stað? Hversvegna eru þeir ábyrgu
ekki teknir fastir? Menn sem er
trúað fyrir fjármunum bera ábyrgð á
þeim, því verður ekki haggað. f
nefndum sjónvarpsþáttum var for-
maður bankaráðs Valdimar Indriða-
son spurður útí þetta ógnvekjandi
spillingarástand og hann svaraði
orðrétt. „Það geta alltaf komið fyrir
óhöpp“, hugsið ykkur að leggja það á
borð frammi fyrir alþjóð að það sé
óhapp að spóla hundruðum milljóna
út úr höndum sér án ábyrgðar. Nei,
þetta flokkast aldrei undir það
hugtak, hér er verk unnið af ásettu
ráði.
Óhapp þjóðarinnar er að Alþingi
hafi kosið Valdimar og hans lið í
bankaráð. Það hlýtur að vera krafa
þjóðarinnar að allt starfslið og
bankaráð Útvegsbanka fslands
verði nú þegar leyst frá störfum, því
verður aldrei treyst fyrir peningum
framar.
í sjónvarpsþáttunum reyndu al-
þingismenn að gera sem minnst úr
þessari spillingu, sem er ekkert ann-
að en glæpastarfsemi. Þeir sögðu að
það væri ekkert nýtt að fyrirtæki
yrðu gjaldþrota og færu á hausinn,
svo þetta væri bara ósköp venjulegt,
en j^ar áttu þeir við Hafskip, og
bentu á fyrirtæki úti í heimi sem
höfðu farið á hausinn, og átti það að
réttlæta glæpastarfsemi Utvegsbank-
ans. Svona málflutningur er víta-
verður af hverjum sem er og þá ekki
síst af alþingismönnum, sem ættu að
hafa siðferðið í fyrirrúmi. Svona
málflutningur er örugglega til þess
að losa um siðferði og uppreisnarhug
fólksins í landinu. Þó tók út yfir allan
þjófabálk þegar sumir alþingismenn
í þessum fyrirspurnarþáttum vildu
flokka umrædda spillingu og glæpa-
starfsemi undir slys. Slys er ekkert
það sem er gert með ásettu ráði. Það
vita allir, nema þá alþingismenn.
Hvað hefur orðið af Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og lögreglu lands-
manna? Hversvegna var ekki þetta
mál tekið föstum tökum einsog refsi-
varslan gerir ráð fyrir í glæpamálum?
Þjóðin neitar því að Alþingi setji
lög til þess að fjalla um sín eigin
afbrot, þá er réttarríkið búið að
vera. Hérna hafa valdhafarnir gripið
til stjórnarathafnar í stað refsivörsl-
unnar og verður því þessari ríkis-
stjórn ekki treyst, hún hlýtur að hafa
misst traust þjóðarinnar. Aldrei hef-
ur það passað betur en núna að
segja, réttlætið fari til fjandans svo
stjórnin lifi. Frægur maður sagði eitt
sinn, sem er rétt „Ef lögunum er að-
eins framfylgt af embættismönnum
stjórnarinnar, eru þau úr sögunni."
Ég get ekki betur séð en að forráða-
menn þjóðarinnar teymi landsmenn
til glötunar með því að kynda undir
því spillingarástandi sem blómstrar á
höfuðborgarsvæðinu.
1 nýútkomnu tímaritinu Time,
skrifar Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti grein þar sem hann hvetur til
þjóðarsamstöðu um að uppræta
glæpastarfsemi í Bandaríkjunum.
Reagan segir í greininni „Markmið
okkar er einfalt", að uppræta samtök
þessara manna, gera eigur þeirra
upptækar og loka þá bak við lás og
slá, en þar eiga þeir heima. Og hann
bætir við „Við skulum ætla okkur
sigur gegn þessari starfsemi og þeim
mönnum sem henni stjórna. Samn-
ingar koma ekki til greina eða mála-
miðlun, það gildir engin slökun
gagnvart skrílnum," segir Reagan í
greininni.
Fólkið, sem valdhafarnir ráða yfir
óskorað, vill bera virðingu fyrir þeim
sem réttlátum drottnurum, og þeir
vilja sjálfsagt birtast í því ljósi að
fólkið trúi á þá. íslenskir valdhafar í
dag birtast ekki í ljósi hinna réttlátu
drottnara og verður því vart lagður
mikill trúnaður á þá.
Ég lýk þessum pistli með því að
segja „Allt frá því að hneyksii Út-
vegsbankans komst upp, hefur bank-
inn leyft sér að dingla gulleplum
framan í landsmenn á skjánum, sem
kristalia spillingarástand stjórnvalda
þessa lands í öndvegis hræsni.“
Magnús Guðmundsson,
nn. 6257-7908
Patreksfirði
Kjörská
v/kosninga um áfengisútsölu í Garðabæ
Kjörskrá vegna kosninga um áfengisútsölu í
Garðabæ sem fram á að fara 22. febrúar 1986 ligg-
ur frammi almenningi til sýnis á skrifstofu bæjar-
sjóðs Sveinatungu á opnunartíma skrifstofunnar
frá 7. febrúar 1986. Skriflegar kærur vegna kjör-
skrárinnar skulu hafa borist skrifstofu bæjarsjóðs
eigi síðar en 18. febrúar nk. Kjörskrá er miðuð við
manntal 1/12 1985.
Utankjörstaðakosning fer fram á skrifstofu
Garðabæjar dagana 12.-21. febrúar 1985 á
opnunartíma skrifstofunnar.
HÚSAÞJÓNUSTAN SF.
Tökum að okkur alla málningarvinnu, utan-
sem innanhúss, hvar á landi sem er.
Einnig: Sprunguviðgerðir og þéttingar- Háþrýsti-
þvott Sílanúðun - Alhliða viðhald fasteigna.
Tilboð - Mæling - Tímavinna.
Skiptið við ábyrga fagmenn, með áratuga reynslu.
Upplysingar í síma 91-61-13-44
Til sölu
Gömul málverk og bækur, svo og prjónsuppskriftir
af peysum, vettlingum, umferðarhúfum o.fl. Sími
14172.