Tíminn - 07.02.1986, Blaðsíða 16
16 Tíminn
flokksstarf
Framsóknarfélög
Fundir meö stjórnum og trúnaðarm&nnum félaga veröa haldnir sem
hérsegir:
Norðurland Vestra
Hvammstanga í Félagsheimilinu fimmtudaginn 6. febr. kl. 21.00
Blönduósi í Hótel Blönduósi föstudaginn 7. febr. kl. 21.00.
Siglufirði í Hótel Höfn laugardaginn 8. febr. kl. 16.00.
Sauðárkróki í Framsóknarhúsinu sunnudaginn 9. febr. kl. 14.00.
Halldór Ásgrímsson mætir á fundina á Hvammstanga og á Blönduósi,
En Guömundur Bjarnason mætir á fundina á Siglufiröi og Sauðárkróki.
Finnur Ingólfsson formaöur SUF og Guörún Jóhannsdóttir LFK mæta
á alla fundina á Norðurlandi Vestra.
Félag framsóknarkvenna í Reykjavík
Fundur veröur mánudaginn 10. febrúar kl. 20.30 aö Hótel Hofi Rauð-
arárstíg 18. Dagskrá:
1. Formaður Sigrún Magnúsdóttir ræöir félags- og flokksmálin.
2. Gerður Steinþórsdóttir segir okkur frá Nairobi ráðstefnunni 1985.
3. Gestur fundarins er Kristján Benediktsson borgarfulltrúi.
Kaffi og bollur.
Stjórnin
P.S. Mætum vel á þorrablótið 7. febrúar.
Þorrablót -
Reykjavík
Framsóknarfélögin í Reykjavíkefnatil Þorrablótsföstudaginn7. febrú-
ar á Hótel Hofi. Halldór E. Sigurðsson fyrrv. ráðherra flytur minni
Þorra. Veislustjóri veröur Þráinn Valdimarsson. Miöapantanir og
nánari upplýsingar á skrifstofu flokksins sími 24480.
Miðaverð kr. 750.- pr. mann
Fulltrúaráðið
Konur Seyðisfirði
Landssamband framsóknarkvenna heldur nám-
skeiö fyrir konur á öllum aldri dagana 7., 8. og 9.
febrúar nk. í gamla skólanum á Seyöisfiröi og hefst
það kl. 20.
Veitt verður leiösögn í styrkingu sjálfstrausts
ræðumennsku, fundarsköpun o.fl. Leiðbeinandi
verður Inga Þyrí Kjartansdóttir. Þátttaka tilkynnist
til Jóhönnu í síma 2232 og Þórdísar í síma 2291.
LFK.
Akranes
Framsóknarfélögin á Akranesi hafa ákveöiö aö efna til prófkjörs vegna
framboðslista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor.
Fer prófkjöriö fram dagana 22. og 23. febrúar. Framboösfrestur er til
miðvikudagsins 12. febrúar. Þeir einir geta verið í framboði sem eru fé-
lagar í Framsóknarfélögunum á Akranesi. Framboðum skal koma til
Björns Kjartanssonar, Jörundarholti 31 eöa Halldórs Jóhannssonar,
Esjubraut 10 fyrir 12. febrúar.
Kosninganefndin
Ungt fólk með Framsókn
Stjórnarmenn úr FUF í Reykjavík veröa til viðtals að Rauöarárstíg 18
alla föstudaga kl. 14.00 - 16.00. Allt áhugafólk hvatt til aö líta inn og
spjalla um starfið. Kaffiö á könnunni.
Stjórn FUF
Borgnesingar - Félagsvist
Spiluð veröur félagsvist í Hótel Borgarnesi föstudaginn 7. febrúar kl.
20.30.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Borgarness.
' Föstudagur 7. febrúar 1986
DAGBÓK
Kjartan Bjargmundsson, Sigurður Karlsson og Valgerður Dan í Sex í sama rúmi.
Miðnætursýningarí
Austurbæjarbíói
Sex í sama rúmi
Fyrsta miðnaitursýningin á leikritinu
Sex í sama rúmi verður annað kvöld
(laugard.) kl. 23.30 í Austurbæjarbíói.
Vegna mikillar aðsóknar í Iðnó varð að
flytja sýningarnar í Austurbæjarbíó, því
ekki er rúm fyrir tvær sýningar í gangi í
einu í húsinu.
Framvegis verður Sexiö því sýnt á laug-
ardagskvöldum í Austurbæjarbíói.
Leikurinn fjallar um tvo barnabókaút-
gefendur sem lenda í klúðri með ástamál-
in. Blaðadómar sögðu m.a.: „Gestir á
frumsýningu skemmtu sér konunglega...“
(Mbl.) „Kvöldskemmtun sem enginn þarf
að vera svikinn af...“ (Tíminn), „...mikið
af gömlu góðu Iðnóstemmningunni..."
(Þjóðv.) o.fl.
Með hlutverk í leikritinu fara Þorsteinn
Gunnarsson, Valgerður Dan, Hanna
María Karlsdóttir. Kjartan Ragnarsson,
Kjartan Bjargmundsson, Margrét Úlafs-
dóttir, Lilja Þórisdóttir. Rósa Þórsdóttir
og Sigurður Karlsson. Leikmynd og bún-
inga gerði Jón Þórisson, lýsingu annaðist
Daníel Williamsson en Jón Sigurbjörns-
son er leikstjóri.
Winný’s við Hlemm
opnar eftir endurbætur
Winný’s hamborgarastaðurinn við
Hlemm tók nýlega stakkaskiplum. Eig-
endur. hjónin Óskar Valdemarsson og
Eygló Ólafsdóttir, hafa l’átið endurnýja
innréttingar í veitingasal og margt annað
svo staðurinn hefur fengið stórbrcytt og
nýtt útlit. Þau hafa rekið þennan ham-
borgarastað s.l. 2 ár.
Eigendur sögðu að „víkingasveit" iðn-
aðarmanna hefði unnið að breytingunum
yfir eina helgi í miðjum janúar og lokið
verkinu svo hægt var að opna aftur kl.
10.(K) á þriðjudagsmorgun. Þeir segjast
hafa á boðstólum úrvals hamborgara og
samlokur, og nú eftir breytinguna, einnig
fjölbreytt úrval fiskrétta og pítur. Hjá
Winný's er opið alla daga kl. 10.00-22.00
ogásunnud. 11.00-22.00.
(Tímamynd Sverrir)
Laddi bregður sér í margar persónur á
Hótel Sögu. Hér sjáum við hann í einu
gervinu - og Halli bróðir cr honum til
halds og trausts.
Hótel Saga
um helgina
Á föstudaginn eru einkasamkvæmi
bæði í Súlnasal og Átthagasal, en opið
verður á Mímisbar til kl. 03.00, þar sem
Dúettinn André og Kristján leika fyrir
gesti. Opið er í Grillinu og á Astra-Bar,
en þar leikur Reynir Jónasson létta og
þægilega tónlist fyrir matargesti.
Á laugardaginn: Laddi kemur fram á
Sögu í Súlnasal á laugardagskvöld og hans
„fylgisveinar". Kynnir er Haraldur Sig-
urðsson. Hljómsveit Magnúsar Kjartans-
sonar leikur fyrir dansi til kl. 03.00. Húsið
opnað kl. 19.00 og matur borinn fram frá
19.30. André Bachntann og Kristján Ósk-
arsson halda uppi fjörinu á Mímisbar.
Grillið er opið til kl. 00.30 og sömuleiðis
Astra-Bar og þar leikur Reynir Jónasson
fyrir matargesti. ( Átthagasal er einka-
samkvæmi á laugardagskvöldið.
Sunnudagur: Kynningarfundur Útsýn-
ar í Átthagasal vcrður sunnud. 9. febrúar
kl. 15.00-17.00.
Árshátíð
Kvæðamannafélagsins Iðunnar
Kvæðamannafélagið Iðunn heldur árs-
hátíð í Drangey, Síðumúla 35, föstudag-
inn 7. febrúar. Hún hefst kl. 19.00 með
þorramat, skemmtiatriðum og dansi.
Miðapantanir eru hjá Grími í síma
11953 og hjá Ólafi í síma 681057.
Spilakvöld hjá
Húnvetningafélaginu
Félagsvist verður spiluð á vegum Hún-
vetningafélagsins í Reykjavík í félags-
heimilinu Skeifunni 17, laugardaginn 8.
febrúar kl. 14.00.
Allt spilafólk velkomið meðan húsrúm
leyfir. Kaffiveitingar
Húnvetningafélagið.
Neskirkja
félagsstarf aldraðra
Samverustund aldraðra á morgun,
laugardag kl. 15.00. Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir, Reynir Sigurðsson tónlistar-
maður og fleiri koma í heimsókn.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Safnaðarfélag Ásprestakalls hefur kaffi-
sölu eftir messu, sunnud. 9. febr. í Safn-
aðarheimili Áskirkju.
Aðalfundur Safnaðarfélags Ásprestakalls
verður haldinn mánudaginn 10. febrúar
kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf, osta-
kynning og kaffiveitingar.
Aðalfundur
Kvenfélags Breiðholts
Aðalfundur Kvenfélags Breiðholts
verður haldinn í Brciðholtsskóla mánu-
daginn 10. febrúar kl. 20.30.
Gestur fundarins verður Erla Stefáns-
dóttir með erindi: Heimurinn frá sjónar-
horni sjáandans.
Stjómin.
Árshátíð Breiðfirðingafélagsins
verður haldin laugardaginn 8. febrúar
kl. 19 í Domus Medica. Miðasala verður í
dag. fimmtudag, kl. 17.30-20 í Domus
Medica.
Pallborðsumræður
um kristna trú
í Norræna húsinu
í kvöld kl. 20.30 gengst Kristilegt stúd-
entafélag fyrir almennum fundi í Norræna
húsinu um kristna trú. Yfirskrift fundar-
ins er: „Viðhorf mitt til Krists”.
1 upphafi fundar flytja framsöguerindi
' þau: Árni Bergmann rithöfundur, sr.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Sigurður A.
Magnússon rithöfundur og Sigurður Páls-
son deildarstjóri. Þau munu síðan taka
þátt í pallborðsumræðum og svara fyrir-
spurnum er fram kunna að koma á fundin-
um. Að lokum segir í fréttatilkynningu fé-
lagsins: „Spurningin um það hver Jesús
Kristur var og hvað hann kenndi í raun og
veru er vissulega ein mikilvægasta spurn-
ingin er varðar gildi kristinnar trúar í nú-
tímanum, þess vegna þarf að ræða hana af
fullri alvöru og af tvíefldum áhuga nú þeg-
ar sá tími nálgast er við munum minnast
1000 ára kristni í landinu."
STÝRT
V1ÐHALD
VÉtA , TÆKIA oð
HANNV1RK3A
upplýslngar og
leidbeinlngar
\\ v . \ riuaKxt«ia«#Mmrwxnnu*
Ritfélags
málmiðnaðarfyrirtækja:
Stýrt viðhald véla, tækja og
mannvirkja
Eitt stærsta viðfangsefni málmiðnaðarfyr-
irtækja hér á landi eru viðgerðir og við-
haldskipa, véla, tækjaogmannvirkja. Fé-
lag málmiðnaðarfyrirtækja kynnir nú
breytt vinnubrögð við slíka vinnu. Hér er
um að ræða afrakstur mikils undirbún-
ingsstarfs og skipulagningu og miðað að
því að auka hið svonefnda „innra eftirlit"
sem er forsenda góðs árangurs í stjórnun.
í meðfylgjandi riti, sem sent hefurverið
til hundraða fyrirtækja og stofnana, er
gerð grein fyrir umræddu viðhaldskerfi,
sem kallað hefur verið „stýrt viðhald" en
slíkt skipulagt eftirlit eykur rekstrar-
öryggi og minnkar líkur á óvæntum bilun-
um, sem oft verða dýrar.
Nú þegar eru nokkur fyrirtæki að taka
upp „stýrt viðhald” og hafa þau sent menn
á námskeið hjá Félagi málmiðnaðarfyrir-
tækja til þess að tileinka sér þær aðferðir
sem unniðer eftir.
Ágrip af sögu Félags lýðræðis-
sinnaðra stúdenta
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta,
var stofnuð í febrúar árið 1935 og varð því
50 ára á sl. ári. í því tilefni gefur félagið út
rit, sem rekur sögu þess.
Páll Björnsson skrifar greinina: Vaka
1935-1985, og segir þar frá bakgrunni og
forsögu félagsins. Síðan er rakin stofnun
Vöku og stefnumörkun. fyrsti form.
félagsins var Jóhann Hafstein, en t ritinu
eru myndir af formönnum félagsins í
gegnum árin og stjórnum.
Haustið 1984 fóru Vökumenn að ræða
um að láta rita ágrip af sögu félagsins og
varð úr að Páll Björnsson. sagnfræði-
nemi, tók það að sér, Ráðgert var að ritið
kæmi út í sambandi við afmælishátíða-
höld, en ritun sögunnar reyndist tíma-
frekari en ráð var fyrir gert. „En hér er rit-
ið komið. Það er von okkar að það verði
lesendum til fróðleiksogjafnvel skemmt-
unar.“ segir í formála.