Tíminn - 07.02.1986, Síða 19
Tíminn 19
Föstudagur 7. febrúar 1986
lllllllllllllllllllllll ÚTVARP/SJÓNVARP 1 1111111111111111111 llllllWlllllllllinillllllllIlllll lllllllflllllllll lllllllll lllllll lllllll
Sjónvarp kl. 22.45:
LJÓSÁRAFERÐAR-
UNDIRBÚNINGUR
Ljósár heitir á íslensku frönsk-
svissnesk bíómynd frá 1980, sem er
föstudagsmynd Sjónvarpsins í
þetta sinn. Sýning hennar hefst ki.
22.45.
Jónas er 25 ára stórborgarbarn
sem hefur ekki fundið sér neinn
fastan sess í tilverunni. Yoshka cr á
sjötugsaldri, einrænn einbúi sem
nágrannarnir segja ekki vera með
öllum mjalla.
Yoshka á sér þann draum aðgeta
iJotið „Ijósár í burtu" og hefur eytt
lífi sínu í undirbúning þess ævintýr-
is. Jónas gerir sér strax Ijóst þegar
fundum þeirra tveggja ber saman,
að örlög hans eru ráðin og hann
tekur þátt í undirbúningi Yoshka,
sem vegur og metur hæfileika Jón-
asar til að meðtaka þá þekkingu
sem hann hefur aflað sér.
Með aðalhlutverk fara Trevor
Howard og Mick Ford. Myndin er
nteð enskum texta og þýðandi er
Ólöf Pétursdóttir.
Ljósár hlaut verðlaun i Cannes
árið 1981.
Jónas «g Yos-
hka undirbúa
ferðina miklu.
Sjónvarp kl. 21.50:
Sherlock Holmes leysir
gátuna um dansmennina
Ævintýri Sherlocks Holmes
standa stöðugt fyrir sínu, þó að
aldurinn sé farinn að færast yfir
sögurnar. Það sýndi sig sl. föstu-
dag, þegar Sjónvarpið sýndi fyrsta
þáttinn af sjö, sem sýndir verða
jafnmarga föstudaga.
í kvöld kl. 21.50 verður sýnd
saga nr. 2 og enn gefst tækifæri til
að fylgjast með Sherlock Holmes
og vini hans Watson lækni leysa
dularfullt mál, sem í fyrstu virðist
óleysanlegt.
Sherlock Holmes er margt til lista
lagt.
Séra Gunnar Björnsson les eigin
þýðingu á bókinni undir sjóngieri
eftir C.S. Lewis.
Utvarp kl. 11.10:
Nýframhaldssaga:
„Sorg undir
sjóngleri“
eftir C.S. Lewis
Kl. 11.10 í dagbyrjar lestur nýrr-
ar framhaldssögu í útvarpinu. Pað
er sagan Sorg undir sjóngleri eftir
C.S. Lewis sem séra Gunnar
Björnsson hefur þýtt og les.
C.S. Lewis er íslendingum að
góðu kunnur. Andrés Björnsson
fyrrum útvarpsstjóri þýddi tvær
bækur hans, Rétt og rangt og Guð
og menn. Fyrir nokkrum árunt
kom út ein frægasta bók Lewis,
Með kveðju frá Kölska, í þýðingu
séra Gunnars Björnssonar.
C.S. Lewis var prófessor í ensk-
um bókmenntum við háskölann í
Oxford á Englandi. Hann lést árið
1963, 65 ára að aldri. Á námsárum
sínum var Itann trúleysingi, en hóf
síðar á ævi að lífa trúarlífi og rækja
kirkjuna. Hann var ritsnillingur og
skrifaði inargt og mikið á fræða-
sviði sínu. En þekktastur er liann
þó fyrir bækur um kristna trú og
hafa þær hlotið gífurlegar vinsæld-
ir.
Bókin Sorg undir sjónglcri var
rituð eftir að höfundur missti konu
sína að undangenginni erfiðri
sjúkralegu. Þetta eru hugleiðingar
syrgjanda.
Bókin heitir á frumniálinu „A
Grief Observed".
Föstudagur
7. febrúar
7.00 Veðurtregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Emil i
Kattholti" eftir Astrid Lindgren. Vilborg
Dagbjartsdóttir les þýðingu sina (5).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleikar,
þulurvelurog kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá
kvöldinu áður sem Sigurður G. Tómas-
son flytur.
10.10 Veöurfregnir.
10.25 Lesið ur forustugreinum dagblað-
anna.
10.40 Sögusteinn" Umsjón: Haraldur I.
Haraldsson JFrá Akureyri).
11.10 „Sorg undir sjóngleri", eftir C.S.
Lewis. Séra Gunnar Björnsson byrjar
lestur þýðingar sinnar.
11.20 Morguntónleikar. a. Orgelkonsert í
F-dúr op. 4. nr. 4 eftir Georg Friedrich
Hándel. Simon Preston leikur með Men-
in-hljómsveitinni; Yehudi Menuhin
stjórnar. b. Grandenborgarkonsert nr. 5 í
G-dúr eftir Johann Sebastian Bach. Há-
tíðarhljómsveitin í Luzern leikur; Rudolf
Baumgartner stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Ævintýramaður,"
- af Jóni Ólafssyni ritstjóra. Gils Guö-
mundsson tók saman og les (27).
14.30 Sveiflur - Sverrir Páll Erlendsson.
(Frá Akureyri)
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veöurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Konsert i a-moll
op. 102 fyrir fiðlu, selló og hljómsveit eftir
Johannes Brahms. Anne-Sophie Mutter
og Antonio Meneses leika með Fílharm-
óníusveitnni í Berlín; Herbertvon Karaj-
an stjórnar.
17.00 Helgarútvarp barnanna. Stjórnandi:
Vernharður Linnet.
17.40 Úr atvinnulifinu - Vinnustaðir og
verkafólk. Umsjón: Hörður Bergmann.
18.00Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Margrét Jónsdóttir flytur
þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka. Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.30 Frá tónskáldum. Atli Heimir Sveins-
son kynnirSónötu VIII eftir JónasTómas-
son.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundasgsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma (11)
22.30 Næturljóð eftir Frédéric Chopin. Al-
exei Weissenberg leikur á pianó.
22.55 Svipmynd. Þáttur Jónasar Jónasson-
ar. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur - Jón Múli Árnason.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl. 03.00.
10.00 Morgunþáttur. Stjórnendur: Páll Þor-
steinsson og Ásgeir Tómasson.
12.00 Hlé.
14.00 Pósthólfið í umsjá Valdisar Gunn-
arsdóttur.
16.00 Léttir sprettir. Jón Ólafsson stjórnar
tónlistarþætti með iþróttaívafi.
18.00 Hlé.
20.00 Hljóðdósin. Stjórnandi: Þórarinn
Stefánsson,
21.00 Dansrásin. Stjórnandi: Hermann
Ragnar Stefánsson.
22.00 Rokkrásin. Stjórnendur: Snorri Már
Skúlason og Skúli Helgason.
23.00 Á næturvakt með Vigni Sveinssyni
og Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár mínútur kl.
11.00,15.00,16.00 og 17.00.
Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá
mánudegi til föstudags.
17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík
og nágrenni - FM 90,1 MHz.
17.03-18.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri
og nágrenni - FM 96,5 MHz.
Föstudagur
7. febrúar
19.15 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
19.25 Denni (Dennis) Norsk barnamynd um
hvolp sem þjálfaður er sem blindrahund-
ur. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
(Nordvision - Norska sjónvarpiö)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Rokkarnir geta ekki þagnað 3.
Grafík Tónlistarþáttur fyrir táninga.
Umsjón: Jón Gústafsson. Stjórn upptöku:
Björn Emilsson.
21.00 Þingsjá Umsjónarmaður Páll
Magnússon.
21.15 Kastljós Þáttur um innlend málefni.
21.50 Ævintýri Sherlock Holmes. Annar
þáttur. Breskur myndaflokkur í sjö þátt-
um sem gerðir eru eftir smásögum Conan
Doyles. Aðalhlutverk: Jeremy Brett og
David Burke, í þáttunum eru rakin ævint-
ýri frægasta spæjara allra tima, Sherlock
Holmes og sambýlismanns hans og
sagnaritara, Watsons læknis. Þýðandi
Björn Baldursson.
22.40 Seinni fréttir.
22.45 Ljósár (Les annees lumiere) Frönsk-
svissnesk biómynd frá 1980. Leikstjóri
Alain Tanner. Aðalhlutverk: Trevor How-
ard og Mick Ford. Myndin gerist á Bret-
landseyjum og er leikin á ensku. Ungur
auðnuleysingi kynnist furðulegum
draumóra- og uppfinningamanni og nem-
ur af honum nýstárlegan lifsskilning.
Myndin hlaut verðlaun í Cannes áriö
1981. Þýðandi Ólöf Pétursdóttir.
00.35 Dagskrárlok.
lllllllllll KVIKMYNDIR — ,
Aðalpersónur myndarinnar; bíllinn, stelpan, strakurinn og skuggiun af
Cliff Robertson.
Brummmmmmmm
ÆSILEG EFTIRFÖR (Shaker run).
Leikendur: Cliff Robertson, Leif Carrett,
Lisa Harrow.
Pað er alls ekki algilt að leikarar
fari með aðalhlutverk í kvikmynd-
um. Teiknaðar fígúrur hafa lögum
komið í stað þeirra og ýmis dýr
hafa líka farið mcð aðalhlutvcrk í
kvikmyndum og reyndar einnig
sjónvarpsþáttum. Hvcr man ekki
eftir Lassý eða Benji eða Kermit
froski eða Rikk-Tin-Tin eða hvað
þau hétu öll þessi krúttlegu kvik-
indi. Síðan vita þeir sem séð hafa
japanskar hryilingsmyndir frá
sjötta áratugnum að aðalleikarar
þeirra mynda voru öllu svakalegri
skepnur.
En nú á seinni tímum hafa ýmis
tæki og tól haldið innreið sína í
kvikmyndirnar og sætta sig stund-
um ekki við minna en aðalhlut-
verkið. Tölvur ýmiskonar hafa orð-
ið áberandi í myndum á borð við
„Personal Computer," lítil og
krúttleg vélmenni í myndum eins
og „Star Wars" og „Rocky IV,"
vélsagir og borvélar í hryllings-
myndum sem nýorðinn ritstjóri
Tímans bannaði fólki að sjá á sín-
um tíma, vélbyssur og rafknúin
morðvopn hafa oft skyggt á aðal-
leikara hörkuspennandi myndanna
og ýmiskonar tækniundur skipta
mun meira máli í „Jantes Bond" cn
Roger sjálfur Moorc.
En það tæki sem oftast hcfur fariö
meðaðalhlutverk í kvikmyndum er
bifreiðin. Allt frá því „Bullitt" kom
á markaðinn hafa „bílaeltinga-
leikjamyndir" streymt frá kvik-
myndaframleiðendum. Og það er
ekki einungis í slíkum niyndum
sem bíllinn þykir ómissandi heldur
spilar hann stórt hlutverk í banda-
rískum gamanmyndum því fátt ku
vera fyndnara en þegar bílar keyra
hvor á annan og ef þeir springu
síðan í loft upp er íullvíst að allir
bíógestir skemmti sér konunglega.
Kvikmyndin Shaker run er
dæmigerð bílamynd. Par má sjá bíl
stökkva yfir marga meðbræður
sína, skransa í beygjum, rúlla upp
malbikinu, snúa við á punktinum
eða hvaðþetta heitirallt saman. Ég
er nú ekki mikill kunnáttumaður
um bíla en ég gat ekki betur séð en
bílnum færist þetta vel úr hendi, ef
hægt er að segja það um híla.
Mun minna mæddi á þeim
lcikurum myndarinnar sem voru af
holdi og blóði, einkum sökum þess
að handrit myndarinnar gaf leikur-
unum ekki mörg tækifæri á því að
leggja mjög hart að sér við leik.
Enda hefði það þá dregiö athygli
áhorfenda frá aðalatriði myndar-
innar scm var viðureign bleika bíls-
ins við alla hina.
En mikil ósköp var gaman að sjá
Cliff Robertson eftir margra ára
hlé. Hann lék bílstjórann í mynd-
inni og var sá klárasti í heimi. En
þar sem hann liafði Ient í því að
drepa sinn besta vin á kapp-
akstursbrautinni þurfti hann að
afla sér peninga með meðölum sem
honum voru vart samboðin. Hvort
Cliff hafi drepið sinn besta vin í
einhverju kvikmyndaverinu veit ég
ekki, en cinhvern veginn hafði égá
tilfinningunni að honum þætti þessi
mynd sér ekki samboðin.
★STJÖRNUGJÖF
TÍMANS
HEIÐUFS PRIZZIS (Prizzi’s Honor) ★★★★
ST. ELMOS FIRE ★★★★
ALLT EÐA EKKERT (Plenty) ★★★
BYLTINGIN (Revolution) ★★★
STIGAMENN (Restless Natives) ★★★
AFTUR TIL FRAMTÍÐAR (Back to the Future) ★★
LÖGGULÍF ★★
MAD MAX (The Tunderdome) ★★
ROCKY IV ★★
SILVERADO ★★
SJÁLFBOÐALIÐAR (Volunteers) ★★
UNDRASTEINNINN (Cocoon) ★★
VÍSINDATRUFLUN (Weird Science) ★★
ÞAGNARSKYLDAN (Code of Silence) ÖRVÆNTINGARFULL LEIT AÐ SUSAN ★★
(Desperately Seeking Susan) ★★
BOLERO ★
ÆSILEG EFTIRFÖR (Shaker’s run) ★
D.A.R.Y.L. O
LÖGREGLUSKÓLINN (Police Academy II) O
ÆTTARGRAFREITURINN (Mausoleum) 0
ÖKUSKÓLINN (Moving Violations) 0
★★★★★ = Frábær ★★★★ = Ágæt ★★★ = Góð
★★ = Þokkaleg ★ = Slæm O = Afleit