Tíminn - 22.02.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur22. febrúar 1986
Búnaðarþing:
Jarðræktarlögin
eru ef st á baugi
Búnaðarþing verður setl á mánu-
dag. Samkvæmt venju sækja það 25
fulltrúar og er þetta síðasta þing
þcssa kjörtímabils.
Að sögn Jónasar Jónssonar bún-
aðarmálastjóra munu nokkur mikil-
væg mál liggja fyrir þinginu. Þar á
meðal má nefna jarðræktarlög, bú-
fjárræktarlög, breytingar á lögum
um rannsóknir í þágu atvinnuveg-
anna þ.e. þeim kafla sem á við rann-
sóknir í þágu landbúnaðarins og svo
loks félagsmálin sem lúta að innra
skipulagi. Jónas gat þess að venju-
lega kæmu að auki fyrir þingið öll
þau mál er liggja fyrir Alþingi og
varða landbúnaðinn, en þau væru
ekki mörg eða mikil í ár.
„Það er ákveðin verkaskipting á
milli Búnaðarþings og þings Stétta-
sambands bænda og deilurnar um
fullvirðisréttinn heyra frekar undir
Stéttasambandið. Pað er hins vegar
ekkert útilokað að þessi mjólkurmál
verði eitthvað rædd,“ sagði búnaðar-
málastjóri er hann var spuröur hvort
að málefni kúabænda kæmu sérstak-
lega til umræðu á þinginu.
- SS
KEA leigir
rekstur KSÞ
Miklir rekstrarörðugleikar hafa að
undanförnu hrjáð Kaupfélag Suður-
Þingeyinga á Svalbarðsströnd. í
kjölfar óska KSÞ urn samstarf við
Kaupfélag Eyfirðinga var undirrit-
aður leigusamningur milli þessara
tveggja aðila I. febrúar sl. Leigu-
samningurinn kvcður á um að KEA
leigi til sex mánaða allar rekstrarein-
ingar KSÞ að skrifstofuhaldi og
vöruflutningum undanskildum.
Hafþór Helgason viðskipta-
fræðingur mun hafa yfirumsjón með
rekstri KSÞfyrirhönd KEA. Hafþór
sagði að um væri að ræða 3 verslanir,
kjötvinnslu og kartöfluvcrksmiðju,
sem starfræktar yröu áfram. Hins
vegar myndi aðalskrifstofa KEA og
Bifreiðadeild KEA annast bókhald
Bachtónleikar
í Dómkirkjunni
Áttundu tónleikar í tónleikaröð
með öllum orgelverkum J.S. Bach
verða haldnir í Dómkirkjunni á
mánudag kl. 20.30. Þar verða leikin
verkin Prelúdía og Fúga í C-dúr,
Partía við „Allein gott in der Höhe
sei Ehr“, Sónata nr. I í Es-dúr. Fúga
í g-moll, sálmforleikur og loks hin
svokallaða dóríska Toccata og fúga.
Organleikararnir Guðmundur H.
Guðjónsson, Árni Arinbjarnarson
og Guðmundur Gilsson leika. Að-
gangur er ókeypis.
og vöruflutninga. Einnig mun slátur-
húsinu á staðnum verða lokað um
sinn, og stórgripum slátrað á Akur-
eyri vegna betri nýtingar vinnuafls.
Varðandi sauðfjárslátrun á hausti
komanda er allt óljóst, cnda leigu-
tími KEA útrunninn er að því
kemur. Ennfremur kont fram að
unnið væri að því að tryggja rekstrar-
grundvöll kartöfluverksmiðjunnar á
staðnum um langa framtíð. Verk-
smiðjan hefur verið rekin með tapi
undanfarið, og að halda slíku áfram
væri óafsakanlegt við félagsmenn
KEA. Verksmiðjan hefur yfir mjög
fullkomnum vélum að ráða, og
Fransmann kartöflurnar standast
fyllilega gæðalegan samanburð.
Hins vegar er því ekki að leyna, að
leyfður er innflutningur á frönskum
kartöflum, sem niðurgreiddareru úti
í Evrópu, og því við ramman reip að
draga með verðsamanburð.
Verið er að kanna hvað áður tald-
ar rekstrareiningar gefa af sér, og
hvaða möguleikar eru fyrir hendi, en
endanlegt mat mun ekki liggja fyrir
fyrr en í júlí.
Hvað gerist þegar leigusamning-
urinn rennur út 1. ágúst veit enginn.
Hins vegar gæti svo farið að eignir
KSÞ yrðu boðnar upp á samnings-
tímabilinu, þar sem KEA yfirtók
ekki skuldir félagsins.
Staðan er því nijög óljós í dag, og
mikil óvissa í kringum þetta allt sam-
an sagði Hafþór Helgason að lokuni.
- Hía
Samningamálin:
Samningafundir hafa staðið fram á nótt undanfarna daga, en það hefur aftur fengið suma til að velta því fyrir sér
hvort niðurfærsluleiðin sé hálfgert myrkraverk! Myndin sýnirf.v. Magnús L. Sveinsson formann Verslunarmanna-
félags Reykjavíkur, Magnús Gunnarsson framkv. Vinnuveitendasambandsins, og Björn Þórhallsson varaforseta
ASI. (Tímamynd Árni Bjarna)
Hvað er niðurfærsluleiðin?
Samningar eru nú búnir að vera
lausir í um 8 vikur og enn hefur
ekki tekist að berja saman ramma-
samninga, hvorki hjá BSRB ogrík-
inu né á hinum almenna vinnu-
markaði.
Það sem hæst ber í þessum samn-
ingaviðræðum er að deiluaðilar
hafa ákveðið að láta reyna á hvort
ekki sé hægt að fara hina svoköll-
uðu niðurfærsluleið, þar sem samið
er um minni hækkun kaups í prós-
enturn gegn því að verðlag verði
fært niður og kaupmáttur haldist
a.m.k. óbreyttur eða aukist eitt-
hvað.
Þessi leið er talin vera sérstak-
lega æskileg nú, vegna þess að horf-
ur eru góðar um verulega bætt við-
skiptakjör í kjölfar lækkandi olíu-
verðs og hækkandi fiskvcrðs. Hug-
myndir manna um hversu mikil
aukning þjóðartekna mun verða
cru nokkuð breytilegar, sumir tala
um 6% eða jafnvel meira, cn aðrir
eru varkárari og tala um 3-4%
aukningu þjóðartekna.
Þegar talað er um að greiða nið-
ur verðlag er átt við að ýmsum
þáttum, sem áhrif hafa á fram-
færsluvísitöluna, cr haldið í
skefjum. Þessar stærðir, scm hægt
er að breyta, s.k. breytistærðir, eru
síðan settar inn í reiknimódel um
verðbólgu, eða verðbólguforrit,
sem reiknar þróun verðlags út árið.
Niðurstaðan veltur því á þeim töl-
um sem nienn láta breytistærðina
hafa. Flest verðbólguforrit hafa
þrjár grunn-breytistærðir. en það
eru í fyrsta lagi laun að frádreginni
framleiðni (sem finnur launakostn-
að á framleidda einingu), í öðru
lagi innflutningsverð, og í þriðja
lagi opinber þáttur, niðurgreiðslur
og óbeinir skattar.
Af ákvörðunarþáttum um hvort
niðurfærsluleiðin sé fær, er það
fyrst og fremst launaliðurinn sem
aðilar vinnumarkaðarins geta haft
áhrif á í þessum samningum, en
ríkissjóður og ríkisstjórnin þarf að
taka pólitíska ákvörðun um að hafa
áhrif á hina þættina. Allir hafa
þessir þættir áhrif á útkomuna og
því er samstarf aðila vinnumarkað-
arins og ríkisstjórnarinnar svo
mjög í brennidepli í þessum samn-
ingum.
Ríkisstjórnin svaraði sem kunn-
ugt er þann 11. febrúar erindi aðila
vinnumarkaðarins um aðgerðir
varðandi aðra og þriðju breyti-
stærðina.
Um innflutningsverð hefur ríkis-
stjórnin gefið vilyrði fyrir því að
gengi krónunnar verði haldið
föstu, en það kemur í veg fyrir að
verð á innfluttum vörum hækki
vegna þess að fleiri krónur þarf til
að kaupa vöruna erlendis en hún er
seld í erlendum gjaldmiðli.
Varðandi niðurgreiðslur og
óbeina skatta hefur ríkisstjórnin
lýst sig reiðubúna til að beita sér
fyrir ákveðnum aðgerðum, s.s. að
lækka verð ýmissar opinberrar
þjónustu og að áhrifa olíuverðs-
lækkunarinnar gæti fyrr hér á iandi
en ella hefði orðið. Auk þessa
sagðist ríkisstjórnin mundi lækka
beina skatta í samræmi við breyttar
forsendur og að hún myndi lækka
nafnvexti.
Á grundvelli þessa og að gefnu
því að launahækkanir verði innan
vissra marka telur ríkisstjórnin og
reiknimeistarar hennar að verð-
bólga geti verið innan við 9% á ár-
inu.
Þær samningaviðræður sem stað-
ið hafa síðustu daga og standa enn
þegar þetta er skrifað snúast hins
vegar um að ríkið komi enn meir
inn í dæmið en gert er ráð fyrir í
svörum ríkisstjórnarinnar frá 11.
febrúar. Hugmyndir eru uppi um
að tollar á hátollavörur sem vega
þungt í framfærsluvísitölunni verði
lækkaðir, búvöruverð verði lækk-
að með því að nota útflutningsbæt-
urnar til að greiða niður búvörur
sem íslendingar borða í stað þess
að greiða niður til útflutnings, að
óbeinir skattar verði lækkaðir og
fleira. Samhliða þessu komi til auk-
in aðstoð í húsnæðismálum með
breyttu fyrirkomulagi lífeyrissjóð-
anna og opinberu byggingasjóð-
anna.
Með þessu móti skapast meira
svigrúm varðandi launabreyti-
stærðina, og þar af leiðandi unnt að
semja um kaupmátt eða kaupmátt-
araukningu með minni launabreyt-
ingum. Um þetta er nú verið að
semja og þegar (ef) samningsaðilar
hafa komið sér niður á ákveðnar
tillögur verður farið með allt heila
dæmið til ríkisstjórnarinnar, sem
síðan verður að vega og meta
(endurreikna) hvort dæmið gengur
upp frá þeirra bæjardyrum séð.
-BG
SAMNINGARNIR
OG EFNAHAGSMÁLIN
Framsóknarfélag Reykjavíkur efnir til fundar á
Hótel Hofi n.k. mánudagskvöld 24. febrúar kl. 20.30.
Fundarefni:
Samningarnir og efnahagsmálin
Frummælandi Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra.
Fundurinn er öllum opinn.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Dómsmálaráðuneytið:
Blaðaskrif gefa
rangar hugmyndir
- um hagræðingartillögurnar
Dómsmálaráðuneytið hefur sent
frá sér athugasemd við blaðaskrif
síðustu daga, þar sem fjallað hefur
verið um gagnrýni lögregluþjóna í
Hafnarfirði og Kópavogi, á breyting-
ar sem norskir ráðgjafar IKO grupp-
en hafa lagt til.
í athugasemdinni segir að um-
fjöllunin hafi ekki gefið rétta mynd
af tillögunum, þar sem gefið hafi ver-
ið í skyn að tillögurnar miði að því að
skerða þjónustu og öryggi íbúa í
Kópavogi og Hafnarfirði.
„Tillögur IKO gruppen miða
þvert á móti við að lögreglan leggi
mun meiri áherslu á fyrirbyggjandi
störf, með því að þau verði skipu-
lögð og stjórnað af meiri festu, en
gert er í dag,“ segir orðrétt í athuga-
semdinni.
Síðastliðið haust var gerð úttekt á
því hversu margir komu í heimsókn á
lögreglustöðvarnar í Árbæ, Hafnar-
firði og Kópavogi, á tímabilinu frá
klukkan 12 á miðnætti og fram til
klukkan 8 að morgni. Til jafnaðar
komu 2,6 menn í Hafnarfirði, 2,8 á
Árbæjarstöðina og 4,3 á Kópavogs-
stöðina.
Loks segir í athugasemdinni að til-
laga IKO-gruppen sé að allar lög-
reglustöðvar, ncma aðalstöðin í
Reykjavík verði lokaðar yfir blá-
nóttina. „Þannig eiga t.d lög-
reglumenn í Kópavogi ekki að vera
bundnir inni á stöðvum um nætur,
við að bíða eftir útkalli eða taka á
móti gestum, heldur sinna öðrum
störfum m.a. með því að halda uppi
öflugu eftirliti í Kópavogi.“
- ES