Tíminn - 22.02.1986, Page 4
4 Tírtíihh'1
tfiéldét SS'UIPSÍJIBPUS-I
taugardagur 22. februar 1986
llllllllllllllllllllllllllll SPEGILL
FÓRNARLAMB
LIVE AID?
Síðan Bob Geldof, írski popp-
arinn í Boomtown Rats, tók for-
ystu í að vekja athygli á hungruð-
um börnum í Eþíópíu með öllu
því brauki og bramli sem hann
þekkir úr poppheiminum og stór-
kostlegum árangri, hefur líf hans
sjálfs gjörbreyst.
Sjálfsagt hefur Bob ekki gert
sér grein fyrir þeim afleiðingum
sem það kynni að hafa á líf hans
sjálfs, þegar hann varð svo miður
sín eftir að hafa séð sjónvarpsút-
sendingu frá þurrka- og hungur-
svæðunum í Eþíópíu að hann
hófst sjálfur handa um að bæta
hag hinna hrjáðu. Haustið 1984
safnaði hann saman fjölmörgum
þekktustu poppurum Bretlands
til að gefa sameiginlega út plöt-
una „Do They Know It’s
Christmas“ sem varð metsölu-
plata fyrir jólin það ár. Og komst
reyndar líka á vinsældalista fyrir
síðustu jól.
Með þcssu framtaki Bobs rúll-
aði boltinn af stað. Næst voru það
Live Aid tónleikarnir frægu í júlí
á síðasta ári. Árangurinn af þeim
tónleikum er ennþá að skila sér,
enda er Bob óþreytandi að fylgj-
ast með því að peningarnir sem
hafa safnast verði notaðir á þann
hátt sem þeim var ætlað. Hann
hefur margrekið sig á að það er
ekki eins sjálfsagt mál og ætla
mætti.
Vegna þessara mannúðarstarfa
hafa aðdácndur hans gefið
honum viðurnefnið „Sankti Bob"
sem hann er aldeilis öskureiður
yfir. „Það er skelfileg hugmynd,
ég kæri mig alls ekki um að vera
álitinn „helgur maður". Geisla-
baugar eru þungir og ryðga auð-
veldlega. Eg get ekki hegðað mér
eins og ætlast er til af helgum
mönnum,“ segir hann.
Hann vill ekki viðurkenna að
öll frægðin og viðurkenningin sé
of þung að bera. Hins vegar finnst
honum óbærileg ábyrgð að allir
skuli ætlast til þess af honum und-
ir öllum kringumstæðum að hann
einn viti best og eigi að taka loka-
ákvörðun í hinum ótrúlegustu
málum.
Honum er það ljóst að margir
aðdáenda hans krefjast þess að
hann verði sæmdur friðarverð-
launum Nóbels, en segir: -Ég er
ekki viss um að ég sé sá maður
sem þetta fólk heldur að ég sé. Ég
get ekki uppfyllt hugmyndir þessa
fólks um mig.
Bob Geldof hefur verið önnum
kafinn við alls kyns góðgerða-
starfsemi síðan hann fór að beita
sér fyrir að leysa málefni hungr-
aðra. School-Aid hefur verið
hleypt af stokkunum, Sports-Aid
fer af stað í maí nk., hann á í við-
ræðum við æðstu menn heilbrigð-
ismála um bólusetningar í þriðja
heiminum. Alltaf er leitað til
iBobs Geldof. Og framundan er
ræða hans á Evrópuþinginu og
hann á að koma fram á þingi Sam-
einuðu þjóðanna.
Þetta er tímafrekt starf og
erfitt, svo að honum hefur ekki
■ gefist tími til að stunda músíkina,
eins og hann segist þó myndi
vilja. Enda segir hann það nú
vera sinn draum að taka til við
hana á ný, en fyrst verði hann að
koma ýmsum málum í lag, þó að
ekki líti út fyrir að hungri verði
útrýmt í Afríku á næstunni.
Bob Geldof lét ekki við það sitja að hafa forgöngu um að safna fé til hungraöra. Hann liefur líka eltir fremstu getu
fylgst með því að þei peningar færu til þcirra nota sem þeir voru ætlaðir. Hér er hann í hópi skjólstæðinga sinna.
Spennandi kvikmynd
í undirbúningi
Það hefur heyrst að leikarinn
Michael Caine og rithöfundurinn
Frederick Forsyth (Sjakalinn o.fl.)
hafi byrjað samvinnu um kvik-
mynd eftir metsölubók Forsyth
„The Fourth Protocol".
„Freddie átti í erfiðleikum við að
afla fjár til þess að byrja mynda-
töku og undirbúningsvinnu að
myndinni, einkum vegna þess að
Bandaríkjamenn eru orðnir svo-
lítið smeykir við framleiðslu
mynda um hryðjuverkamenn og ill-
virki þeirra“, sagði Caine, sem
verður aðalmaður í myndinni og
velur leikara. Hann kynnti áætlanir
þeirra Forsyth á blaðamannafundi.
Þeir hafa stofnað fyrirtæki til að
fjármagna og stjórna myndinni,
sem áætlað er að kosti 11 milljón
dollara. Kvikmyndað verður í
Finnlandi og London og byrjar
myndataka nú í apríl.
Þessi bók Forsyth’s hefur selst í
meira en 7 millj. eintökum víða um
heim, og er söguþráðurinn um
það, að Sovétmenn ætli sér að eyði-
leggja vestrænt samstarf með því
að styðja til valda öfgafulla vinstri-
stjórn - lengst á vinstri kantinum!
Forsyth hafði í eitt og hálft ár
verið að reyna að afla fjár til þess
að kvikmynda bókina, en líklega
hefur mönnum ekki litist á sögu-
þráðinn og getið sér til að myndin
yrði varla vinsæl hjá almenningi.
„Þetta var mikill vonbrigðatími hjá
mér, og hvað eftir annað þegar ég
hélt að nú væri ailt klappað og klárt
þá fór allt í vaskinn,“ sagði rit-
höfundurinn. Nú hefur hann fengið
góðan stuðningsmann þar sem er
Michael Caine ræðir við blaða-
menn.
leikarinn Michael Caine.
Upplýst varð á þessum blaða-
mannfundi, aðs.l. ár hafi verið eitt-
hvert það erfiðasta hjá kvikmynda-
framleiðendum um árabil. „Maður
opnaði varla svo dagblað, að ekki
blasti við frétt af erfiðleikum hjá
kvikmyndaiðnaðinum," sögðu þeir
félagarnir, en sögðust samt vera
bjartsýnir á fyrirtæki sitt.
lllllllllllll ÚTLÖND 11 iiiiiiiiii
FRÉTTAYFIRLIT
R eu tei
SEOUL — Landflótta flug-
maður frá Kína lenti MIG-19
vél sinni nálægt Seoul. Við-
varnarkerfi fór í gang við lend-
ingu þess kínverska og yfirvöld
í Suður-Kóreu tilkynntu um
yfirvofandi loftárás. Kínversk
stjórnvöld kröfðust framsals
flugmannsins.
TYRE Líbanon - ísraelskar
hersveitir héldu enn áfram að
leita tveggja hermanna sinna
er rænt var í Suður-Líbanon.
Hernaðarsinnar úr hópi mú-
hameðstrúarmanna shita birtu
Ijósmynd af föngunum tveimur.
LUNDÚNIR — Stjórnvöld í
íran sögðu heri sína hafa skot-
ið niður fimm írakskar her-
flugvélar og hafa íranir því
skotið alls fimmtíu vélar niður
síðan innrás þeirra „Dawn 8“
hófst í Suður-lrak. Hernaðaryf-
irvöld í írak sögðu flughersinn
hafa farið meira en 200 árásar-
ferðir yfir stöðvar írana.
MANILA — Ferdinand Mar-
cos forseti fór hörðum orðum
um „ruddaskap þeirra sem töp-
uðu og nútíma heimsvalda-
sinna“ sem hann sagði gera lít-
ið úr sjálfsvirðingu Filippsey-
inga. Mótmæli vegna svika og
ofbeldis í kosningunum þann
7. febrúar síðastliðinn héldu
áfram að aukast.
RÓM — Lífvörður kom í veg
fyrir að borgarskæruliðum tæk-
ist að myrða embættismann er
starfar á skrifstofu Bettino
Craxi forsætisráðherra. Líf-
vörðurinn skaut konu eina til
bana á strætum Rómaborgar
en hún var í hópi árásarmann-
anna.
PARÍS — Bolaji Akinyemi
utanríkisráðherra Nígeríu
reynir nú að miðla málum í
Chad-deilunni og sagði hann í
gær aó ríkisstjórn sín ætlaði að
reyna að efna til friðarráð-
stefnu í þeim tilgangi að binda
enda á hið 25 ára gamla borg-
arastríð í Chad.
BONN — Hans-Dietrich
Genscher utanríkisráðherra V-
Þýskalands lýsti yfir áhyggjum
vegna áhugaleysis stjórnvalda
í Bonn og NATO á samningum
við Sovétstjórn um eyðingu
meðaldrægra kjarnorkuflauga.
LUNDÚNIR — Fyrrverandi
yfirmanni [ bandariska sjó-
hernum var í gær enn haldið í
varðhaldi að kröfu bresks
dómstóls. Maðurinn er sakað-
ur um að hafa ætlað að láta
óvinum í té upplýsingar er
reynst gætu þeim gagnlegar.
MOSKVA — Sovésku and-
ófsmennirnir Alexei og Olga
Lusnikov, sem tilheyra óopin-
berum hópi friðarsinna, héldu í
gær frá Moskvu til Vínarborgar
að sögn móður Alexeis.
JÓHANNESARBORG
— Stjórnvöld í Suður-Afríku
lýstu yfir ánægju með að tekist
hefði að ná samkomulagi um
endurgreiðsluráskuldumþeim
sem hrjáð hafa efnahagslíf
landsins. Sérfræðingar búast
við betri tímum í efnahagslífi
S-Afríku.
NÝJA DELHI — Tveirsíkh-
ar sem sakaðir eru um morðið á
Indíru Gandhi unnu mál gegn
einangrunarvistun í dauða-
klefa, sem þeir hafa þurft að
búa við. Dómstóll í Nýju-Delhi
sagði endanlegan dóm yfir
þeim enn ekki vera fallinn.
Y