Tíminn - 22.02.1986, Qupperneq 5
Laugardagur 22. febrúar 1986
Tíminn 5
Ekki brotið
á hertog-
anum ríka
Strassborg-Reuter
Mannrétlindadómstóli Evrópu
dæmdi í máli cinu í gær og á
dómsniðurstaðan vafalaust eftir
að koma sér illa fyrir hertogann af
Westminister sem fór mcð málið
fyrir dómstólinn.
Hertoginn, hinn 34 ára ganrli
Gcrald Grosvenor, cr stærsti
landcigandinn í Brctlandi og fór
hann mcð mál sitt fyrir mannrétt-
indadónrstólinn þegar hann var
neyddur til að sclja 200 íbúðir
sínar.
Eignir þcssar hefur hann orðið
að selja síðan Verkamannaflokk-
urinn kom í gegn lögunr árið 1967
cr beindust að því að auðvelda
hinum verr settu í þjóðfélaginu
að komast yfir eignir.
Hertoginn, scm á stærsta hluta
húsa þeirra sem standa í fínustu
hverfum Lundúnaborgar, Mayfa-
ir og Belgravia, tclur að tneð
þessum lögum hafi sjálfsögðum
mannréttindum hans vcrið ógnað
- það telur dómstóllinn Itins vegar
ekki.
Talsmenn mannréttindadóm-
stólsins sögðu sölu cignanna hafa
verið í þágu almennings og því
hefði ekki verið brotið gegn
mannréttindum hertogans ríka.
Af cignum þeint sem hertoginn
af Westminister á í Lundúnum ntá
nefna bandaríska sendiráðið við
Grosvenortorg, Connaught hötel-
tö og öll húsin við Belgravetorg.
Indland:
Verðhækkanir
á vondum tíma
Margt bendir nú til að Rajiv
.Gandhi forsætisráðherra Indlands
og stjórn hans muni eiga erfitt upp-
dráttar á stjórnmálasviðinu þar í landi
á næstunni. Þingið á Indlandi varsett
að nýju nú í vikunni eftir nokkurt hlé
en margir þingmannanna létu ekki
sjá sig við opnunina í mótmælaskyni.
Gandhi þarf að kljást við mörg
vandamál á næstu vikum. Miklar
verðhækkanir á nauðsynjavörum
eru mest í sviðsljósinu unt þessar
nrundir og hafa fjöldamótmæli vegna
þeirra verið gífurleg.
Þar með er þó ekki allt talið. Of-
beldissinnaðir síkhar í Punjabhéraði
hafa færst allir í aukana að undan-
förnu og valda stjörn Gandhis hinum
mestu áhyggjum. Þá hafa skærur milli
hindúa og múhameðstrúarmanna í
nyrstu héruðum landsins blossað
upp af krafti á síðustu dögum.
Vinsældir Gandhis hafa annars ver-
ið nokkuð miklar á Indlandi síðan
hann tók við forsætisráðherra-
embættinu síðla ársins 1984 eftir
morðið á móður hans Indíru
Gandhi. Verðhækkanirnar ollu hins
vegar mikilli almennri reiði í landinu
og vinsældir forsætisráðherrans
fengu verulegt bakslag.
Lögregla handtók í vikunni um
10.000 manns, þar á meðal nokkra
þingmenn og stjórnmálaleiðtoga, er
ætluðu að ganga til þinghússins og
mótmæla þar verðhækkunum. Þann
sama dag var forseti landsins Zail
Singh einmitt að setja þingið.
Verðhækkanir á hlutum eins og
brauði og eldunarolíu virðast hafa
sameinað hina fimmtán stjórnar-
andstöðuflokka í baráttunni gcgn
stjórn Gandhis. Talsmenn stjórnar-
andstöðunnar, sem fram að þessu
hefur verið frekar ^undruð, hafa
hvatt til allsherjarverkfalls í landinu
næstkomandi miðvikudag vegna
hinna nýju verðhækkana.
Það eru þó ekki aðeins veröhækk-
anirnar sem valda stjórnvöldum
áhyggjum. Oflieldi rneðal síkha í
Punjabhéraði á Norður-Indlandi
hefur færst í aukana að nýju og hafa
sjó manns verið skotnir þar til bana
st'ðan á miðvikudag. Síkhar eru í
meirihluta í héraðinu og öfl innan
hóps þeirra vinna að stofnun nýs
ríkis.
Bardagar milli hindúa og
múhameðstrúarmanna í hinum vin-
sælu ferðantannahéruðum nyrst á
Indlandi, Jammu hafa einnig ver-
ið hinir hörðustu síðustu daga og lög-
reglu er þar fyrirskipað að skjóta á
staðnum brjótist ofbeldi út.
Það virðist því vera nokkuð erfiðir
tímar framundan hjá Rajiv Gandhi
og ríkisstjórn hans við að ná sættum
milli stríðandi hópa í þessu víðáttu-
mikla og fjölmenna landi. Verð-
hækkanirnar nýju gætu átt eftir að
gera það verk enn erfiðara.
(Byggt á Reuter og Newsweek)
Rajiv Gandhi þykir hafa staðið sig ágætlega í forsætisráðherrastólnum. Nú erú
hins vegar blikur á lofti og Gandhi og stjórn hans þurfa að glíma við mörg
vandamálin þ.á m. vaxandi ókyrrð meðal síkha (innfellda myndin) í Punjab-
héraði.
Sjónvarp í
Sovétríkjunum:
Leiðinlegur
fréttatími
IVfosskva-Reuter
Dagblaðið í Sovétríkjunum
gagnrýndi nýlega fréttaflutning í
sjónvarpi þar í landi og kvað hann
leiðinlegan og hugmyndasnauð-
an. Sagði blaðið kvöldfréttir sjón-
varpsins vera svo leiðinlegar að
flestir sjónvarpsáhorfendur
gengju í burt frá tækjum sínum til
að þurfa ekki að horfa á skömm-
ina.
Dagblaðið Sovietskaya Ross-
iya, sem á síðustu mánuðum hef-
ur verið fremst í flokki við að
benda á það sem aflaga fer í
sovésku þjóðfélagi, gagnrýndi
sérstaklega flutning innlendra
frétta.
Blaðið sagði allar tölfræðilegar
upplýsingar vera settar fram án
nokkurs samanburðar og frétta-
skýrendur einatt endurtaka það
sem fréttaþulurinn hefði sagt rétt
áður.
Fólk er dauðleitt á fréttunum
„vegna þess að það er mikill mun-
urá lífi, skoðunum ogáhuga fólks
í landinu og því hvernig þessir
hlutir eru túlkaðir í sjónvarps-
þáttum okkar,“ sagði í grein
Sovietskaya Rossiya.
Glæpamenn
hankaðir
á erfðum
Lundúnir-Reuier
Taka fingrafara og vafasöm
blóðpróf gætu brátt átt eftir að til-
heyra fortíðinni hjá rannsóknar-
lögreglumönnum um allan heim -
breskir vísindamenn eru nefni-
lega að þróa tækni þar sem morð-
ingjar ellegar nauðgarar, nema
hvort tveggja sé, geta þekkst ör-
ugglega af blóði eða sæðisbfettum
sem þeir skilja eftir sig.
Erfðafræðingurinn Alec
Jeffreys tilkynnti fyrir sextán
mánuðum að hann hefði fundið
leið til að einangra og Ijósmynda
litningabönd í einstaklingum,
sem hver hefur sína einstöku
erfðaeiginleika.
Á þessari aðferð hafa vísinda-
mennirnir David Werett og Peter
Gill byggt en þeir aðstoða nú lög-
regluyfirvöld við að finna ná-
kvæmari leiðir til að hafa upp á
misindismönnum.
Á síðustu árum hafa blóð-
flokkapróf aðallega verið notuð í
glæpamálum en þau eru eins og
gefur að skilja frekar takmörkuð.
Maðurinn sem dat!
ofan í hafragraut
Durban-Rcutcr
Fangavörður í Suður-Afríku lá
þungt haldinn í sjúkrahúsi þar í landi
í gær eftir að hafa fallið ofan í stóran
ketil fullan af hafragraut .
Sibusiso Mkhize heitir vörðurinn
og er hann þrjátíu ára að aldri.
Kappinn var við vörslu í fangelsinu
en ekki tókst honum betur til en svo
að á gangi sínum um eldhús staðarins
féll hann ofan í hafragrautarpott
einn mikinn og feitan.
Talsmaður fangelsisstjórnarinnar
sagði Mikhize hafa farið hálfan í kaf en
ekki var haldið að einhver hefði stað-
ið að baki dýfingu Mkhize í pottinn.
Kohl kanslari er
ekki eins vinsæll
- eftir að tilkynnt var um rannsókn vegna
ákæru á hendur honum
Bonn-Reuter
Samkvæmt skoðanakönnun sem
birtist í gær hafa vinsældir Helmuts
Kohl kanslara V-Þýskalands
minnkað verulega meðal kjósenda
í landinu. Kohl á nú yfir höfði sér
dómsmál vegna ákæru um að hann
hafi gefið falskan vitnisburð fyrir
þingnefnd.
Hin virta INFAS stofnuH gaf í
gær út niðurstöður könnunar sem
hún lét gera um miðjan febrúar og
kom þar í ljós að vinsældir kanslar-
ans höfðu fallið um 6% frá því í
byrjun mánaðarins.
Alls sögðust 37% aðspurða vilja
Kohl áfram sem kanslara en aftur á
móti vildu 51% fá sósíaldemókrat-
ann Jóhannes Rau, aðalandstæð-
ing Kohls í kanslaraembættið. f
byrjun mánaðarins hafði Kohl
stuðning 43% en 50% studdu Rau.
Almennar kosningar fara fram í
landinu í janúar á næsta ári.
Sérfræðingar sögðu vinsældir
Kohl aðallega hafa minnkað vegna
hins einstaka ákærumáls sem hann
tengist og einnig væru nú lög um
verkfallsrétt og öryggismálefni
honum andsnúin.
Ríkissaksóknarar í borginni Ko-
blenz tilkynntu síðastliðinn mánu-
dag að þeir myndu hefja rannsókn
á ásökunum um að Kohl hefði bor-
ið Ijúgvitni frammi fyrir þingnefnd
einni er fékkst við rannsókn á ólög-
legum flokksframlögum.
Kohl er fyrsti kanslarinn sem
verður fyrir opinberri rannsókn
fyrir dómi á meðan hann er við
störf.
Helmut Kohl kanslari V-Þýskalands (fyrir miðju) gæti átt eftir að þurfa að svara fyrir ýmislegt á næstunni,