Tíminn - 22.02.1986, Page 12
14 Tíminn
ÍÞRÓTTIR
Laugardagur 22. febrúar 1986
Pétur Guðmundsson á ÍR-árum sínum. Hann spilar nú í Bandaríkjunum og
gæti orðið löglcgur ineð íslenska landsliðinu á þessu ári.
íþróttamaður Reykjavíkur 1985:
Sigurður Pétursson
Sigurður Pétursson golfmaður úr
Golfklúhhi Reykjavíkur var valinn
íþróttamaður Reykjavíkur fyrir árið
1985. Það er íþróttaráð Reykjavíkur
sem stendur að þessu kjöri árlega.
Sigurður fékk afhentan verðlauna-
grip þann sem fylgir nafnbótinni í
hófi í Höfða í gær.
Sigurður er vel að þessum titli
kominn. Hann varð á síðasta ári ís-
landsmeistari, stigameistari og
sveitamcistarí. Þá var hann þátttak-
andi í HM í golfi sem fram fór í
Portúgal. Par lenti sveit GR í fjórða
sæti og Sigurður í 3.-4. sæti einstakl-
inga. Sigurður var fvrst valinn í
landslið íslands aðeins 16 ára og hef-
ur spilað flest alla leiki fyrir Islands-
hönd síðan 1976. Sigurður er26 ára
giftur Guðrúnu Ólafsdóttur og eiga
þau 3 syni.
Tíminn óskar Sigurði til hamingju
með nafnbótina fþróttamaður
Reykjavíkur 1985.
Sigurður Pétursson tekur við verðlaunagripunum sem fylgja nafnbótinni íþróttamaður Reykjavíkur úr hendi Júlíusar
Hafstein forinanns íþróttaráðs Reykjavíkur. Á milli þeirra er Magnús L. Sveinsson forseti borgarstjórnar.
Tímamynd Sverrir
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Njarðvíkingar efstir
Frá Leifi Garðarssyni í Keflavík:
Njarðvíkingar stungu Keflvíkinga
af í leik liðanna í úrvalsdeildinni í
körfu er lt'ða tók á seinni hálfleik og
sigruðu 103-83. Þar með eru Njarð-
víkingar sigurvegarar í Úrvalsdeild-
inni áður en úrslitakeppnin hefst.
Pað er núna Ijóst að Njarðvíkingar
og ÍBK keppa annarsvegar í úr-
slitunum og Haukar og Valur hins-
vegar. Staðan íleikhlévar51-45fyrir
Njarðvík. Jóhannes skoraði 29 stig í
gær og Valur 28. Hjá ÍBK skoraði
Guðjón24ogSigurðurgerði21. Val-
ur skaut mikið í síðari hálfleik en
hitti þá úr þremur þriggja stiga
skotum.
Einar Bollason landsliðsþjálfari í körfuknattleik:
„Miklar gleðif réttir“
- Tillaga frá íslendingum og fleirum hlýtur nú hljómgrunn hjá FIBA - Hún er þess
eðlis að Pétur Guðmundsson mun fá að spila með íslenska landsliðinu í körfuknattleik
„Þetta eru miklar gleðifréttir og
enn merkilegri fyrir þá sök að það
vorum við íslendingar sem hreyfðum
þessu máli á þingi FIBA á Möltu síð-
astliðið sumar,“ sagði Einar Bolla-
son landsliðsþjálfari íslands í körfu-
knattleik er Tíminn færði honuni
þær fréttir að tillaga um að leyfa
þeim leikmönnum sem spila með at-
vinnumannaliðum eða hafa spilað
með atvinnumannaliðum í körfu-
knattleik að spila með landsliðum
sínum í öllu keppnum á veguin
FIBA. Þetta þýðir að Pétur Guð-
mundsson gæti spilað með íslenska
landsliðinu í körfuknattleik. Hingað
til hefur hann ekki getað það þar sem
|hann var atvinnumaður í NIJA
körfuknattleiksdeildinni í Bandaríkj-
lunum og síðan á Brctlandi.
„Þetta eru í raun stórkostlegar
fréttir því ég var flutningsmaður að
þcssu máli á Möltu þar sem íslend-
ingar ásamt Norðurlandabúum.
Skotum og írum stóðu að tillögu
þcssa efnis. Það sem síðan hcfur
gerst er að V-Þjóðverjar hafa eignast
tvo leikmenn sem spila í NBA deild-
inni. Formaður laga- og leikreglna-
nefndar FIBA er einmitt frá V-
Þýskalandi og er ég talaði við liann
síöastliðið sumar þá var hann svart-
sýnn á að þessum reglum yrði breytt.
Nú þegar þetta skiptir Þjóðverjana
máli þá er þetta allt annað og ég á
von á því að málið renni í gegn á
þingi FIBA í Barcelona í sumar,"
sagði Einar Bollason og var kátur.
V-Þjóðverjarnir tveir sem spila í
NBA eru Detlef Schrempf og Uwe
Blab og spila þeir báðir með Dallas.
Þá eiga Búlgarir orðið leikmann í
NBA-deiIdinni svo málið er þeim
skylt líka.
„Ég held að við íslendingar getum
verið dálítið upp með okkur af þess-
um fréttum en um leið sýnir þetta að
þegar málin eru orðin skyld „stóru
í gegn. Ég var sjálfur ánægður þegar
ég frétti af þessum tveimur Þjóðverj-
um í NBA og vissi að það myndi
styrkja okkur í baráttunni fyrir því
að fá að nota Pétur Guðmundsson í
leikjum Islands," sagði Einar að
lokum.
FIBA mun taka þessa tillögum til
umræðu og jafnvel afgreiðslu á þingi
sínu í Barcelona í sumar og nú er
bara að vona að hún verði samþykkt
og þá fáum við stóran og sterkan
miðherja í lið okkar.
A-Þjóðverjarsterkir
Austur-Þjóðverjar sigruðu Portú-
gali í vináttulandsleik í knattspyrnu
sem fram fór í Braga í Portúgal.
Leikurinn endaði 3-1 og beittu A-
Þjóðverjar mikið skyndisóknum í
leiknum með góðum árangri á með-
an Portúgölum gekk illa að finna
marknetið. Tliom skoraði fyrst fyrir
Þjóðverjana og Kirsten bætti öfðu
við. Það var svo Ernst sem kom þeim
í 3-0 áður en Gomes skoraði úr víti
einskonar huggunarmark fyrir
Portúgali.
Þessir stæðilegu kappar skipa landsliðshóp í kraftlyftingum sem fór í gær til
Kalifomíu til að keppa þar gegn heimamönnum. Þetta verður einskonar lands-
leikur í kraftlyftingum milli íslands og Kaliforníu.
Tímamynd Sverrir
Blizzardbikarmót
- áskíðumumhelgina-Mjögfjölmennt
Bikarmót skíðasambands íslands i
13-14 ára flokki.
Um helgina verður Blizzardmótið
haldið í Bláfjöllum. Á laugardag
verður keppt í svigi stúlkna og stór-
svigi drengja. Á sunnudag keppa
stúlkurnar í stórsvigi en drengirnir í
svigi. Mótið hefst báða dagana kl.
11:00. Um 120 keppendureruskráð-
ir á mótið og hafa sjaldan eða aldrei
verið fleiri keppendur í þessum
flokki. Greinilegaer mikið líf um
þessar mundir á skíðasvæðum
landsins, og búast má við hörku-
keppni á mótinu.
Útilíf í Glæsibæ gefur vegleg verð-
laun og styður mótshaldara sem er
skíðadeild Ármanns við framkvæmd
mótsins.
Þá verður einnig í dag fyrsta mótið
í íslandsgöngunni svokölluðu. Þetta
er Skógargangan sem fram fer á
Egilsstöðum. Hún er 25 km og er
skráning í gönguna hjá skíðaráðum
og í síma 97-1353.
Bikarglíma íslands
Bikarglíma íslands fer fram í
íþróttahúsi Kennaraháskólans í dag.
Keppnin hefst kl. 14:00 og eru yfir
tuttugu keppendur skráðir til leiks í
bæði fullorðinsflokki og unglinga-
flokki.
Þegar að lokinni Bikarglímunni
verður stofnfundur Glímudómara-
félags íslands haldinn í húsakynnum
ÍSÍ í Laugardai. Hefst hann kl.
15:00.
Þá verður Glímuþing haldið á
sunnudaginn 23. mars á sama stað og
verður það nánar auglýst er að því
kemur.
M0LAR
■ I fyrrinótt voru leikir í NBA
körfuknattleiknum í Bandaríkj-
unum. Boston tapaði sínum leik
naumlega fyrir Nuggets 100-102.
Bucks unnu Rockets 120-113 í
rosaviðureign. Pistons unnu Cavs
109-107 og Kings unnu Spurs 107-
105. Greinilega jafnir leikir í
NBA.
■ Nú eru taldar nokkrar líkur á
því að banninu sem hvílt hefur á
enskum liðum varðandi þátttöku
í Evrópukeppnum í knattspyrnu
verði aflétt. Harry Cavan frá N-
írlandi sem á sæti í stjórn FIFA
sagði við blaðamenn um daginn
að Danir hefðu komið með til-
lögu þessa efnis á fund hjá FIFA
og hún hlotið góðar undirtektir.
Annar fundur verður hjá FIFA í
apríl og þá mun málið skýrast enn
frekar.
■ Heimsbikarkeppninni í frjáls-
um íþróttum árið 1989 hefur verið
valinn staður í Barcelona á Spáni.
Barcelona og Birmingham á
Englandi kepptust um að fá leik-
ana og hafði spánska sólarborgin
vinninginn.
■ Peter Múller sigraði í bruni í
heimsbikarkeppninni á skíðum
sem fram fór í Áre í Svíþjóð í
gær. Hann kom niður á undan
Michael Mair frá Ítalíu sem varð
annar og Marc Girardelli frá
Lúxemborg sem varð þriðji.
Þetta er annar sigur Múllers í
bruni í heimsbikarkeppninni á
þessu ári.