Tíminn - 22.02.1986, Page 15
Laugardagur 22. febrúar 1986
llllllllllllllllllll BRIDGE 1II111I11111I1111I111I1III1
Sigrún 9, húsið sem Bridgesambandið var að kaupa ásamt Reykjavíkurborg.
Tímamynd-Sverrir
Bridgesambandið
kaupir nýtt húsnæði
Kaupsamningur undirritaður á fimmtudaginn
Bridgesambandið hefur keypt
húseign við Sigtún 9 að hálfu á móti
Reykjavíkurborg og undirritaði
Björn Theódórsson forseti Bridge-
sambandsins kaupsamninginn fyrir
hönd sambandsins á fimmtudaginn.
Húsnæðið er alls 350 fermetrar,
m.a. þrír sæmilegir salir. Kaupverð-
ið var alls níu og hálf milljón króna
og þar af sér Reykjavíkurborg um
helminginn. Áætlað er að nýta húsið
sem tómstundaheimili fyrir aldraða
og öryrkja á daginn en á kvöldin
verða grænu borðin dregin fram.
Einnig verður skrifstofa Bridge-
sambandsins í húsinu.
Björn Theódórsson sagði í samtali
við Tímann að þessi kaup væru fyrst
og fremst hugsuð til eflingar á
bridgestarfsemi í landinu, og slíkt
hlyti að leiða af því að Bridgesam-
bandið hefði öðlast fastan samastað.
Með tilkomu húsnæðisins væri hægt
að sinna félagslegi uppbyggingu
betur, koma á fót fastri kennslu og
fræðslustarfsemi.
Bridgefélögin koma til með að
njóta góðs af kaupunum því þau fá
inni í húsinu fyrir lægri leigu en þau
þurfa víðast hvar að greiða nú. Einn-
ig myndu stærri mót á vegum Bridge-
sambandsins verða haldin í húsinu
og æfingar en Björn sagði að stærri
mót, s.s. íslandsmótin, yrðu áfram
haldin í besta mögulega húsnæði.
Húsið verður afhent í desember í
ár og starfsemin getur hafist af full-
um krafti í janúar 1987. Allirbridge-
spilarar hljóta að fagna þessum
áfanga í sögu bridgeíþróttarinnar á
íslandi og þakka þeim sem gerðu
þetta mögulegt, ekki síst Guðmundi
Kr. Sigurðssyni sem eins og kunnugt
er gaf Bridgesambandinu íbúð í
haust og sú gjöf stendur undir þess-
um kaupum nú.
Bridgesamband Breiðfirðinga
Staðan í aðaltvímenning félagsins. þeg-
ar aðeins 6 umferðum er ólokið, er þessi:
Guðm. Thorsteinsson-Gísli Stcingrímss. 730
Helgi Nielsen-Alison Dorosh 673
Jón Stefánsson-Magnús Oddsson 602
Sveinn Þorvaldss.-Hjálmar Pálss. 602
Sveinn Sigurgeirss.-Baldur Ámas. 548
Jóh. Jóhannsson-Kristjáns Sigurgeirsson 505
Örn Scheving-Steingr. Steingrímsson 398
Albert Þorsteinss.-Sig. Emiisson 391
Bridgedeild Rangæinga
Eftir sjö umferðir í aðalsveitakeppni fé-
lagsins er staða efstu sveita þessi:
Gunnar Helgason .................. 154
Sigurleifur Guðjónsson............ 147
Gunnar Alexandersson.............. 142
Bridgefélag Sigluf jarðar
Að loknum 6 umferðum í aðalsveita-
keppni félagsins eru þessar sveitir efstar:
Valtýr Jónasson.................. 137
Þorsteinn Jóhannsson............. 134
Bogi Sigurbjörnsson.............. 108
Birgir Björnsson .................. 96
Bridgefélag Sauðárkróks
Úrslit þriggja kvölda tvímennings-
keppni á vegum félagsins uröu þessi:
Einar Sveinsson-Skúli Jónsson 697
Bjarki Tryggvason-Halldór Tryggvason 683
Sigurgeir Angantýss.-Páll Porsteinsson 624
Jón Örn Bender-Gunnar Þóröarson 616
Ö.Þ. Fljotum
íslandsmótið í
sveitakeppni 1986
Dregið hefur verið í riðla í undan-
keppni íslandsmótsins í sveitakeppni.
Þrír fyrst nefndu riðlarnir verða spilaðir á
Loftleiðum, en D-riðillinn á Egilsstöðum.
Spiladagar eru 14.-16. marsn.k.
A-riðill:
1. Vilhjálmur Þ. Pálsson, Selfossi
2. Stefán Pálsson, Reykjavík
3. Jón Hjaltason, Reykjavík
4. Sveit Vestfjarða
5. Þórður Elíasson Akranesi
6. ÓlafurTýrGuðjónsson, Suðurlandi
B-riðill:
1. GrímurThorarensen, Kópavogi
2. Ragnar Jónsson, Kópavogi
3. Sig. B. Þorsteinsson, Reykjavík
4. Hermann Lárusson, Reykjavík
5. Ásgrímur Sigurbjörnsson, Siglufirði
6. Pólaris Reykjavík
C-riðill:
1. Kristján Blöndal, Reykjavík
2. Kristján Jónsson Blönduósi
3. Páll Valdimarsson. Reykjavík
4. Esther Jakobsdóttir, Reykjavík
5. Samvinnuferðir/Landsýn, Reykjavik
6. MagnúsTorfason, Reykjavík
D-riðill: (Egiisstöðum)
1. Jón Aðall, Fljótsdalshéraði
2. Delta, Reykjavík
3. Sigurjón Tryggvason, Reykjavík
4. Gunnlaugur Guðmundsson, Akureyri
5. Erla Sigurjónsdóttir, Hafnarfirði
6. Aðalsteinn Jónsson. Eskifirði
Keppnisgjald pr. sveit er kr. 8.000,- og
þurfa greiðslur ásamt nöfnum allra spilara
í undankeppninni að hafa borist skrifstofu
(Ólafi Lárussyni) Bridgesambands íslans,
í síðasta lagi mánudaginn 10. mars nk.
Reykjavíkursveitir eru sérstaklega
áminntar um að koma greiðslunni áleiðis.
Öll forföll sveita skal einnig tilkynna
sem allra fyrst. svo fuegt sé að gera viðeig-
andi ráðstafanir.
Tvær efstu sveitirnar úr hverjum riðli
(alls 8) komast stðan í úrslitakeppnina.
sem hefst á skírdag á Loftleiðum, alls 7
umferðir.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu BSÍ.
Framhaldsskólamótið 1986
Framhaldsskólamótið í sveitakeppni
1986, var spilað í Gerðubergi í Reykjavík
um síðustu helgi. 16 sveitir mættu til leiks,
sem er mjög góð þátttaka. Spilaðar voru 7
umferðir eftir Monrad-fyrirkomulagi.
Sigurvegarar í ár, varð sveit Menntaskól-
ans á Laugarvatni-B. sveit. Hana skip-
uðu: Agnar Öm Arason, Ásmundur Öm-
ólfsson, Sigurjón Helgi Björnsson og
Sigþór Sigþórsson.
I 2. sæti, eftir harða keppni við sigur-
vegarana, varð svo sveit Flensborgar-
skóla, en hana skipuðu: Björn G.
Karlsson, Marinó Guðmundsson, Njáll
Sigurðsson og Þorvaldur Logason.
Röð efstu sveitanna varð þessi:
Menntaskólinn að Laugarvatni B-sveit 137
Rensborgarskóli 134
Menntaskólinn að Laugarvatni A-sveit 123
Menntaskólinn við Sund 115
Menntaskólinn á Akureyri 109
Keppnisstjóri var Hermann Lárusson.
Þetta er í sjötta eða sjöunda sinn í röð,
sem Laugarvatn sigrar framhaldsskóia-
mótið, enda löngum verið sterkir spilarar
á ferðinni þaðan. Nægir þar að nefna nöfn
eins og Sævar Þorbjörnsson, Guðmund
Hermannsson, Skafta Jónsson og Júlíus
Sigurjónsson, auk Skúla Einarssonar og
ýmsa fleiri (Baldur Kristjánsson m.a.).
Mótið þótti takast vel. I beinu fram-
haldi af þessu móti er ekki úr vegi að viðra
þær hugmyndir, hvort ekki sé grundvöllur
fyrir samræmdri framhaldsskólakeppni í
tvímenning.
Hvernig hljómar það?
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga Rvík
Eftir 14 umferðir í aðaltvímennings-
keppni deildarinnar, barometer með
þátttöku 44 para. er staða efstu para þessi:
Björn Hermannsson-Lárus Hermannsson 275
Jón Þorvarðarson-Þórir Sigursteinsson 260
Jörundur Þórðarson-Sveinn Þorvaldsson 215
Jón Viðar Jónmundsson-Þórður Þórðarson 178
Baldur Ásgeirsson-Magnús Halldórsson 164
Ármann J. Lárusson-Sigurður Sigurjónsson 161
Minnt er á, að spilamennska næsta
þriðjudag hefst ekki fyrr en 19.45, vegna
strákanna okkar í Sviss (HM).
Bridgefélag Reykjavíkur
Nú er aðaltvímenningskeppnin
hálfnuð. Þessi pör hafa flest stig:
Jón Baldursson-Karl Sigurhjartarson 486
Hrólfur Hjaltason-Oddur Hjaltason 385
Ragnar Magnússon-Valgarð Blöndal 358
Guðm. Sv. Hermannsson-Björn Eysteinsson 289
Jón Sl. Gunnlaugsson-Björgvin Þorsteinsson 234
Jón Hjaltason-Hörður Arnþórsson 222
Stefán Guðjohnsen-ÞórirSigurðsson 195
Rúnar Magnússon-Stefán Pálsson 193
Frá Bridgesambandi íslands
Minnt er á skráningu í íslandsmót
kvenna og yngri spilara í sveitakeppni,
sem spilað verður í Gerðubergi í Brcið-
holti. helgina 1.-2. mars nk.
Skráningu lýkur hjá Bridgesambandi
íslands, miðvikudaginn 26. febrúar n.k..
kl. 16. Eftir þann tíma, gcta væntanlegir
keppendur ekki búist við að fá að vera
með.
Einnig ítrekar Bridgesamband (slands
umsóknir í landsliðsflokka. Það er í Opinn
flokk og Kvennaflokk sem munu keppa á
Norðurlandamótinu og yngri flokk, sem
keppir á Evrópumótinu. Skráningarfrest-
ur rennur út 20. mars n.k.
Meistarastigaskrá Bridgesambands (s-
lands er að sjá dagsins Ijós þessa dagana.
Henni verður dreift til allra aðildarfélaga
innan vébanda sambandsins, svo fljótt
sem auðiðer. (henni verður að finna allar
þær upplýsingar sem varða aimennt
bridgestarf í landinu, svo og nöfn allra
sem hlotið hafa meistarastig í keppnum á
vegum skipulagðs bridgestarfs fram til
dagsins í dag (miðað við síðustu áramót
ca).
Þátttökugjald fyrir (slandsmótið í
sveitakeppni pr. sveit, verður kr. 8.000.
Undanrásir verða spilaðar á Loftleiðum
(þrír riðlar) og á Egilsstöðum (einn riðill)
dagana 14.-16. mars nk. Þátttökugjaldið
og nöfn spilara í viðkomandi sveitum
verða að berast skrifstofu Bridgesam-
bandsins fyrir 3. mars n.k. Forráðamenn
svæðasambanda eru ábyrgir fyrir greiðslu
og skilum á nöfnum spilara.
Þátttökugjald fyrir íslandsmótið í tví-
menningskeppni verður kr. 2.500 pr. par,
en þær verða spilaðar í Gerðubergi í
Reykjavík, dagana 12.-13. apríl n.k. Má
búast við geysilegri þátttöku í þá kcppni,
enda er hún opin öllum spilurum innan
Bridgesambandsins. 24 efstu pörin úr
undankeppninni spila svo til úrslita, dag-
ana 26.-27. apríl á Loftleiðum.
Bridgesamband íslands vinnur að því
þessa dagana að útbúa sérstök fargjöld á
öll mót á vegum sambandsins, í samráði
við Flugleiðir. Þessi sérstöku fargjöld
munu liggja fyrir innan skamms. Upplýs-
ingar þar að lútandi verða auglýstar síðar.
Bridgefélag Hafnarfjarðar
Spilaðar hafa verið 4 umferðir af 23 í
barómeter-tvímenningskeppni félagsins.
Þessir hafa lyft sér hæst frá núllinu.
Þórarinn Sófusson-Guðni Þorsteinsson 79
Magnús Jóhannsson-Hörður Þórarinsson 62
Jón Pálmason-Árni R. Hálfdánarson 58
Kristófer Magnússon-Guðbrandur Sigurbergss. 39
Þorbergur Ólafsson-Murat Serdar 29
Jón Sigurðsson-Jens Sigurðsson 27
Tíminn 19
Bakarameistari
óskast
Óskum að ráða bakarameistara tii
starfa við brauðgerð okkar á Höfn í
Hornafirði, sem fyrst.
Aliar nánari upplýsingar gefa Kári
Eiríksson, bakarameistari og Her-
mann Hansson kaupfélagsstjóri,
sími 97-8200.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
Höfn, Hornafirði
AÐALFUNDUR
verður haldinn miðvikudaginn 26. febrúar
1986 kl. 20.00 í Domus Medica v/Egilsgötu.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Samningamál, tillaga um
heimild til verkfallsboðunar.
3. Önnur mál.
Ath.: Reikningarfélagsins liggjaframmi í skrif-
stofunni mánudaginn 24. febr. og þriðjudaginn
25. febr. kl. 16.00 til 18.30 báða dagana.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félag járniðnaðarmanna
||i LAUSAR STÖÐUR HJÁ
’l' REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Skrifstofumaður óskast á skrifstofu gatnamála-
stjóra. Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Upplýsingar veitir yfirverkfræðingur gatnamála-
stjóra í síma 18000.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð, á sér-
stökum umsóknareyðublöðum, sem þar fást, fyrir
kl. 16.00 mánudaginn 3. mars n.k.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hitaveitu
Reykjavíkur óskar eftir tilboöum í efni og smíði á 6 stálgeym-
um á Öskjuhlíð. Hver geymir rúmar um 4000 rúmmetra.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi 30,
Reykjavík, gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 15. apríl n.k. kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍXURBORGAR Frfkirkjuvtgi 3 — Simi 25800
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Norðurlandsveg,
Svalbarðseyri-Víkurskarð.
Helstu magntölur:
Lengd 5.8 km
Fyllingar 30.000 m3
Burðarlag 30.000 m3
Öllu verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. sept. 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins, Mið-
húsavegi 1, 600 Akureyri og Borgartúni 5,105 Reykjavík
frá og með 24. febrúar 1986.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14:00 hinn 10. mars 1986.
Vegamálastjóri