Tíminn - 07.03.1986, Blaðsíða 1
RAUSTIR
MENN
25050
StttDIBiUKTÖDin
SÆNSKA dagblaðið sagði í grein að
sérstakur hópur á vegum lögreglunnar ynni
nú að því að rannsaka hugsanlega aðild hins
róttæka verkamannaflokks kúrda (PPK) að
morðinu á Olof Palme. Sá hópur er sagður
vera efst á listanum yfir þá aðila er hugsan-
lega hafa staðið að baki morðinu. [ gær voru
tveir Júgóslavar handteknir af dönsku lög-
reglunni í sambandi við morðið en þeim síð-
an sleppt.
ERRÓ hefur verið valinn fulltrúi íslands á
Feneyjabíennalnum í sumarog verðamynd-
ir Errós sýndar í Alvar Alto skálanum sem
íslendingar hafa fengið á leigu næstu árin.
Erró mun á sýningunni sýna yfirlit yfir hinar
frægu „Scapamyndir" sínar. Sýningarnefnd-
ina fyrir íslenska myndlist skipa Einar Hákon-
arson, Gylfi Gíslason og Jóhannes Jóhann-
esson en framkvæmdastjóri nefndarinnar er
Gunnar B. Kvaran listfræðingur.
VERÐ Á RÆKJU og hörpudisk var
ákveðið í gær eftir marga og langa fundi yfir-
nefndar Verðlagsráðs, og gildir verðið frá 1.
febrúar til 31. maí. Verðið miðast við óskel-
fletta rækju i vinnsluhæfu ástandi og er31,80
kr.kg miðað við 160 stykki eða færri, 26,50
miðað við 161-220, 23,00 miðað við 221-
240, 21,00 miðað við 241-260, 20,00 miðað
við 261-290,17,00 miðaðvið 291-320,15,00
miðað við 321 -350 og 8 kr. miðað við 351 eða
fleiri. Verð á hörpudisk í vinnsluhæfu ástandi
var ákveðið kr. 13 fyrir 7 cm og yfir og kr. 11
fyrirfisk á milli 6-7 cm.
JÓHANN J. ÓLAFSSON stór
kaupmaður var í gær kjörinn formaður Verzl-
unarráðs íslands. í ræðu sem Ragnar Hall-
dórsson fráfarandi formaður Verzlunarráðs-
ins hélt á fyrri degi aðalfundar ráðsins í gær
hvatti hann alla félagsmenn til að sameinast í
baráttunni við verðbólguna. Hann benti á að
verðlag á íslandi hefði hundraðfaldast á síð-
ustu 12 árum og því hefðu ýmsir velt því fyrir
sér að hætta að nota íslensku krónuna í
utanríkisviðskiptum en nota þess i stað
gjaldmiðil helstu viðskiptaþjóðanna.
SVEINN EINARSSON var kjör-
inn formaður Leikskáldafélags Islands á
aðalfundi félagsins fyrir skömmu en fráfar-
andi formaður, Örnólfur Árnason, gaf ekki
kost á sér til endurkjörs. Sex nýir félagar
gengu í félagið á fundinum, þau Arni Ibsen,
Gunnar Gunnarsson, Olga Guðrún Árnadótt-
ir, Steinunn Sigurðardóttir, Valgarður Egils-
son og Þórarinn Eldjárn.
DAGSBRUN samþykkti kjarasamn-
ingana með 125 atkvæðum gegn 47 á fundi í
fyrrakvöld. Tillaga kom fram á fundinum aö
fella samningana en hún var felld með svip-
uðum mun. Talsverðrar andstöðu gegn
samningunum gætti í máli þeirra sem tóku til
máls á fundinum. Hingað til hafa samning-
arnir verið samþykktir á öllum félagsfundum,
yfirleitt mótatkvæðalítið eða laust.
HITAVEITUR munu ekki allar lækka
gjaldskrá sína eins og iðnaðarráðuneytið
hefur farið fram á við þær. Á fundi stjórnar
Sambands íslenskra hitaveitna var sam-
þykkt ályktun þar sem mótmælt var harðlega
þeim vinnubrögðum sem viðhöfð voru við
gerð nýafstaðinna kjarasamninga, þ.e. að
aðilar vinnumarkaðarins og ríkisstjórnin taki
ákvarðanir sem byggja á lækkun gjaldskrár
hitaveitna án nokkurs samráðs við þær. Þá
segir að margar hitaveitur standi tæpt fjár-
hagslega og lækkun gjaldskrár þessara
veitna leiði af sér aukin rekstrarlán sem krefj-
ist hlutfallslega hærra orkuverðs síðar.
KRUMMI
Hækkaði álagning um leið og tollar lækkuðu?
Verðlagsstofnun kannar
verð á nýjum bifreiðum
Ábendingar um undanbrögð!
Verðlagsstofnun gerði í gær og
fyrradag umfangsmikla könnun á
verði nýrra bifreiða með tilliti til
þess hvort að nýleg tollalækkun
hefur skilað sér að fullu til kaup-
enda. Undanfarið hefur orðið vart
við dæmi þess að innflytjendur t.d.
bifreiða og heimilistækja hafi ekki
lækkað vöru sína sem skyldi og
hækkað þannig um leið eigin álagn-
ingu. Niðurstöður könnunarinnar
munu að öllum líkindum verða
gerðar opinbcrar í dag.
í samtali við Tímann sagði Ge-
org Ólafsson verðlagsstjóri að á
heildina litið virtist sem að tolla-
lækkanir hefðu skilað sér nokkuð
vel í samsvarandi verðlækkunum.
Hins vegar bætti hann við að stofn-
uninni hcfðu borist ábendingar um
hið gagnstæða, án þess að hægt
væri að tilgreina cinstaka aðila fyrr
en fyrrnefndar niðurstöður lægju
fyrir.
Gert er ráð fyrir að unnið verði
úr gögnum cftirlitsmanna fram eft-
ir degi í dag og tilkynning send út
að því loknu. Þess má geta að
Verðlagsstofnun gerði átak í að
skrásetja verð ýmissa annarra
vöruflokka cn bifreiða áður en
tollalækkanirnar komust í
framkvæmd, þannig að saman-
burður í frekari verðkönnunum
ætti að reynast auðveldur.
- SS
Þessi jeppi valt þegar hann lenti í árekstri við annan bíl á mótum Hofsvallagötu og Hringbrautar um kl. 18.15 í gærdág. Þrír voru iluttir á slysadeild
en meiðsl þeirra voru ekki aivarleg.
FULL0RÐINN PRAKKARI
EDA GEÐSJÚKLINGUR?
Ýmsir hafa orðið fyrir barðinu á mjög sannfærandi lygalaup
Akurnesingar fengu undarlega
heimsókn um helgina. Þar var á
ferðinni vellríkur athafnamaður,
að því er virtist. Sagðist maðurinn
vera frá Vestmannaeyjum, og jafn-
framt að hann væri skipstjóri á
togara þaðan.
Fyrst skaut maðurinn upp kollin-
um á Bárunni, bjórstofu þeirra
Akurnesinga. Þar eyddi hann eins
og brjálæðingur að sögn heima-
manna. Virtist hann hafa ómælt fé
handa á milli. Þegar leið á kvöldið
hafði hann boðið þó nokkrum
mönnum vinnu um borð í togaran-
um, og eins við viðgerð á honum,
þar sem hann var á leið í slipp í
Reykjavík. Boðið var freistandi,
sérstaklega þar sem skipstjórinn
sagðist vera nýkominn af fundi
með Halldóri Asgrímssyni sjávar-
útvegsráðherra, þar sem hann
hefði fengið loforð fyrir stærri
kvóta.
Árslaun sín sagði hann ekki af
lakari endanunt. Hann hafði fengið
12 milljónir síðastliðið ár, og því
orðið að fjárfesta. Hann keypti
villu á Arnarnesinu. Rafvirki
nokkur var ráðinn til þess að setja
upp „ljósasjó" í stofunni, og jafn-
frarnt bauð hann neðri hæðina til
leigu.
Loks bauö hann konu nokkurri
vinnu sem ráðskona á jörð hans
undir Eyjafjöllum. Þegar helgin
var liðin og mcnn ætluðu að fara að
pakka var athafnamaðurinn ríki
farinn. Þegar hringt var í útgerðina
t' Eyjum kom í ljós að ekkert af því
sem maðurinn hafði sagt stóðst.
Maðurinn hafði einfaldlega logið.
Tíminn hafði samband við út-
gerðina í Eyjum og staðfestu þeir
að menn hefðu verið að hringja og
spyrjast fyrir um skipspláss.
Maðurinn var tekinn í vörslu
rannsóknarlögreglunnar á þriðju-
dag, vegna kæru frá fyrirtæki í
Reykjavík. Hann hafði svikið út
freðfisk fyrir 30 þúsund krónur í
nafni fyrirtækisins. Fleiri sögur
hafa heyrst um þennan mjög svo
sannfærandi fullorðna prakkara.
Hann á að hafa ráðið sig sem
dönskukennara í Hveragerði, hann
ætlaði að kaupa Sölva Bjarnason á
sínum tíma, og hafði fengið 40
milljóna lán til þess. T>á hefur
heyrst að liann hafi pantað frysti-
tæki í togara hér við land.
Maðurinn gengur nú laus.
- ES