Tíminn - 07.03.1986, Side 2

Tíminn - 07.03.1986, Side 2
2 Tíminn Föstudagur 7. mars 1986 Stjórnarfrumvarp: Lögverndun húsgagna- og innanhússarkitekta Fyrrum Vestfjarðafræðslustjóri: Dæmdur í fangelsi fyrir skjalafals Lagt hefur verið fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um breytingar á lögum um rétt manna til að kalla sig verkfræðinga, húsameistara, tæknifræðinga eða byggingafræð- inga. Gert er ráð fyrir að þar við bætist „húsgagna- og innanhúss- hönnuðir". Engum má veita það starfsheiti nema þeim sem hafa stundað nám og lokið fullnaðar- prófi við listiðnaðarskóla eða aðra sérskóla sem stéttarfélag hús- gagna- og innanhússhönnuða viðurkennir sem fullgildan skóla í þeirri grein. f lok greinargerðar sem fylgir frumvarpinu segir m.a.: „Með frumvarpi þessu fylgir bréf frá Fé- lagi húsgagna- og innanhússarki- tekta, dags 27. apríl 1984, um mál- efni þetta, en viðræður hafa tarið fram frá því í febrúar 1984 milli fulltrúa ráðuneytisins og félagsins um réttindamál þessa starfshóps. Telja verður eðlilegt að þcir sem að húsgagna- og innahússhönnun starfa fái lögverndað starfsheiti, svo sem er um sambærilegar stéttir." Fyrrverandi fræðslustjóri Vest- fjarða hefur verið dæmdur í 5 mán- aða fangelsi og 39 þúsund króna sekt fyrir fjárdrátt og skjalafals á árunum 1976 til 1982. Mál þetta kom upp árið 1983 og var fræðslustjórinn ákærður fyrir að hafa dregið að sér rúmlega 41 þús- und kr. með því að falsa leigubíla- nótur og póstburðargjaldskvittanir. Fræðslustjóranum var vikið úr starfi í júlí 1983 þegarákæran vargefin út. Sakadómur Kópavogs dæmdi í málinu þar sem fræðslustjórinn átti lögheimili í Kópavogi. Þar var talið sannað að fræðslustjórinn hefði dregið að sér 39 þúsund krónur sem honum var gert að endurgreiða en að auki var hann dæmdur til fimm mán- að fangelsisvistar og gert að greiða málskostnað. Guðgeir Eyjólfsson fulltrúi kvað upp dóminn. Fræðslustjórinn fyrrverandi hefur áfrýjað dómi þessum til Hæstaréttar og ríkissaksóknari hefur einnig áfrýjað dómnum til þyngingar. - GSH Fyrirspurnir Eftirtaldar fyrirspurnir hafa varið lagðar fram á Alþingi: Til samgönguráðherra um framkvæmd þingsályktunar um öryggisbúnað fiski- og farskipa- hafna frá Jóni Sveinssyni. Til iðnaðarráðherra um úrræði vegna Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar frá Jóni Sveins- syni. Til samgönguráðherra um tekj- ur Ferðamálaráðs frá Steingrími J. Sigfússyni. Til dómsmálaráðherra um endurskoðun laga um fasteigna- sölu frá Steingrími J. Sigfússyni. Til samgönguráðherra um fjár- veitingar úr Ferðamálasjóði frá Steingrími J. Sigfússyni. Ýi i Forsíða bæklings þar sem ferðaskrif- stofan Útsýn kynnir sumarleyfisfcrð- ir þær sem boðið er upp á í ár. Útsýn 1986: „Aukinn kaupmáttur áferðalögum“ - Kjörorð Útsýnar í sumar „Aukinn kaupmáttur á ferðalög- unT' er kjörorð ferðaskrifstofunnar Útsýnar fyrir 32. sumaráætlunina sem nú cr verið að kynna, en verð á ferðum Útsýnar er nærri óbreytt frá síðasta ári. Útsýn hefur náð stórum leigu- samningi við Flugleiðir og flýgur Boe- ing 727-200 vél félagsins í leiguflugi á hverjum fimmtudegi til Ítalíu, Portú- gals og Spánar. Einnig hefur Útsýn gert sérsamning við Flugleiðir um lækkuð fargjöld á ýmsum áætlunar- Ieiðum. Þá hefur Útsýn tekist að halda óbreyttu verði á flestum gististöðum sínum erlendis frá fyrra ári og sum- staðar náð fram lækkun verðs. Útsýn býður upp á nýja áfanga- staði á Ítalíu. t.d. Savoia í heilsu- lindabænum Abano Terme skammt frá Feneyjum og Garda við Gardavatn. Að auki er boðið upp á rótgróna staði eins og Lignano og Bibione. Af öðrum ferðamögulcikum Út- sýnar má nefna Algarve í Portúgal en þar verður boðið upp á nýja gisti- staði,Costa del Sol á Spáni. Sumar- hús í Þýskalandi og Englandi, Ensku rivieruna, Mallorca og Frönsku rivi- eruna. OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG . : KL. 14- NISSAN CHERRY NISSAN SUNNY . BESTBÚNIR A BESTA VERÐINU Eigum enn gott úrval NISSAN BÍLA á verði og kjörum sem enginn stenst BETRIKAUP BJÓÐAST VARLA ÞAÐ ER ALLTAF HEITTÁ KÖNNUNNI - VERIÐ VELKOMIN Tökum flesta notaða bíla upp í nýja. S|| IIMGVAR HELGASON HF, III Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.