Tíminn - 07.03.1986, Qupperneq 3
Föstudagur 7. mars 1986
Tíminn 3
Lögvernd fer fram á ný lög á mannamáli:
Lögmenn og fógetar rétt-
hærri en kröf uhafar?
„Við gerum þá kröfu að sett
verði ný lög um lækkun kostnað-
ar vegna fjárnáma og uppboða
(bæði kostnaðar lögmanna og
fógeta), sem í mörgum tilfellum
er hærri en höfuðstóll skuldar-
innar“, segir m.a. í bréfi sem
Lögvernd hefur sent dómsmála-
ráðherra.
Bent er á að oft sé það þessi
gífurlegi kostnaður sem komi í
veg fyrir að kröfuhafi fái skuld
sína greidda, þótt hans réttur
hljóti að eiga að vera númer eitt
en ekki réttur lögmanns og fóg-
eta eins og nú sé raunin á.
Lögvernd kveðst undanfarnar
vikur hafa haldið uppi fyrir-
spurnum um hvert sá gífurlegi
kostnaður renni sem hlýst af
uppboðum og fjárnámum. Þótt
ekki hafi tekist að fá nákvæmar
upplýsingar í því efni líti út fyrir
að umtalsverðar upphæðir renni
til starfsmanna borgar- og bæjar-
fógetaembætta. „Teljum viðþað
í meira lagi óeðlilegt að starfs-
mönnum embætta sé gefinn
kostur á að hagnast á óhamingju
og niðurlægingu samborgar-
anna,“ segir í bréfinu.
Jafnframt er bent á að lög séu
oft óskiljanleg ólöglærðu fólki
og því auðvelt fyrir lögfróða að
rangtúlka þau. Lög sem ekki séu
skiljanleg hverjum manni beri
að fella úr gildi og semja önnur
ný á mannamáli.
Þá er bent á það að alræði-
svald ríkissaksóknarageri ísland
að lögregluríki. Það sé réttur
hvers manns að fá mál sín ítar-
lega rannsökuð og því óviðun-
andi að ríkissaksóknari geti vís-
að frá hvaða málaflokki sem er í
stað þess að láta þau ganga tii
dómstóla.
Algengt sé að saklaust fólk
verði fórnarlömb samvisku-
lausra fjárglæframanna og á
hinn bóginn að fólk sé ákært
saklaust. í allt of mörgum tilfell-
um sé málum vísað frá án þess að
hugað sé að því að fórnarlömbin
bíði þess aldrei bætur.
-HEI
Ellert vaknar til lífsins:
5 millj. í handboltann
Sex þingmenn hafa lagt fram á
Alþingi þingsályktunartillögu um
fjárstuðning við Handknattleiks-
samband íslands. Tillagan gerir ráð
fyrir að fjármálaráðherra veiti HSÍ
5 milljónir króna í styrk vegna „frá-
bærrar" frammistöðu íslenska
landsliðsins í heimsmeistarakeppn-
inni í Sviss.
Fyrsti flutningsmaður tillögunn-
ar er Ellert B. Schram, en aðrir eru
þeir Jón Baldvin Hannibalsson,
Stefán Guðmundsson, Steingrímur
J. Sigfússon, Friðrik Sophusson og
Guðmundur Einarsson.
í greinargerð þeirra félaga segir
m.a.: „Frammistaða íslenska
handknattleikslandsliðsins í heims-
meistarakeppninni í Sviss hefur
vakið þjóðarhrifningu. Með glæsi-
legum leik gegn bestu liðum heims
hafa íslensku landsliðsmennirnir
unnið hug og hjörtu ungra sem
gamalla Islendinga. Hver svo sem
endanleg úrslit verða í heimsmeist-
arakeppninni hafa handknattleiks-
menn okkar sýnt og sannað með
fræknum sigrunt og frábærunt leik
að íþróttirnar verðskulda stuðning
og styrk þings og þjóðar. Afrek
íslenska landsliðsins hafa ekki
aðeins þýðingu inn á leikvellinum.
Þau vekja athygli á landi og þjóð.
En umfram allt efla afrek landsliðs-
ins þjóðarmetnað, samstöðu og trú
þjóðarinnar allrar á eigin getu og
hlutverk í samfélagi þjóðanna. ís-
lendingar eru stoltir af liði sínu og
þjóðerni þegar glæsimörkin birtast
á sjónvarpsskjánum."
-SS
Stjórn félagsins „í Grófinni". Frá vinstri: Wernir Rasmussun, Kolbrún
mörgólfsdóttir, Haraldur Theodórsson formaður, Gerður Hjörlcifsdóttir,
Þórður Þórisson og lengst til hægri er forvígismaður félagsins Einar Egilsson.
(Tiniainynd Róbert)
GRÓFARKAUPMENN
STOFNA SAMTÖK
T uttugu verslanir, fyrirtæki og eig-
endur fasteigna stofnuðu félagið „í
Grófinni" fyrir skömntu og nær fél-
agssvæðið yfir Aðalstræti og hluta af
Vesturgötu, Tryggvagötu og Hafn-
arstræti. Það má segja að mið-
punkturinn sé þar sem gamla Grófin
var og svæðið nái yfir kjarna
kaupstaðarins 1786. Aðalmarkmið
félagsins er að - vekja athygli á
svæðinu, sögu þcss, menningar- og
athafnalífi,- efla mannlífásvæðinu,
- stuðla að snyrtilegu og fögru um-
hverfi, og - vcrnda hagsmuni fé-
lagsmanna.
Félagið var stofnað að frumkvæði
Einars Egilssonarog hefurverið kos-
in fintm manna stjórn. Formaður er
Haraldur Theodórsson frá Verzl.
Geysi og með Itonum eru Gerður
Hjörleifsdóttir frá ísl. heimilisiðn-
aði, Kolbrún Björgólfsdóttir frá
Koggu, Wernir Rasmusson frá
Ingólfsapóteki og Þórður Þórisson
frá S.S.
Á blaðamannafundi er félagið hélt
kom fram að mikill einhugur er með-
al félagsmanna um að auka sögulegt
gildi hverfisins og hafa margar og
margvíslegar hugmyndir komið fram
hjá þeint.
Ætlar félagið að taka þátt í hátíð-
arhöldum vegna 200 ára afmælis
Rcykjavíkurborgar. Ekki er alveg
Ijóst hvernig, en eins og Einar Egils-
son sagði „Afmælisbarnið er raunar
hér, það má ckki gleyma að Ingólfur
steig á land í Grófinni"
Eyjólfur ungur, Bjarni og Steinunn, eða Jakob Þór Einarsson, Sigurður Karls-
son og Margrét Helga Jóhannsdóttir í hlutverkum sínum í Svartfugli.
Leikfélag Reykjavíkur:
Sýnir Svartfugl
næsta þriðjudag
Hjá Leikfélagi Reykjavíkur verð-
ur frumsýnd 11. mars ný leikgerð á
Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson.
Svartfugl fjallar sem kunnugt er um
morðin á Sjöundá árið 1802.
Sjöundá er innsti bær á Rauða-
sandi og þar var um aldamótin 1800
tvíbýli. Árferði var um þessar mund-
ir mjög hart; hafís, kuldi og hungurs-
neyð, féfellir var tíður og jafnvel
mannfellir. Á Sjöundá gerðust um
veturinn og vorið 1802 þeir atburðir
sem nefndir hafa verið eitt frægasta
sakamál fslandssögunnar, en þá var
Bjarni Bjarnason sakaður um að
hafa myrt sambýling sinn Jón Þor-
grímsson bónda og sfðar einnig konu
sína Guðrúnu Egilsdóttur. Bæði
þessi morð átti hann að hafa framið
með aðstoð konu Jóns, Steinunnar
Sveinsdóttur.
Sögumaður er séra Eyjólfur Kol-
beinsson kapellán að Saurbæ og gerist
leikurinn í hugarheimi hans er hann
rifjar upp fyrrgreinda atburði fimmt-
án árum seinna. Séra Eyjólfur hafði
bein afskipti af málinu og má segja
að örlög hans hafi verið samtvinnuð
hinum ömurlegu örlögum sem þau
Bjarni og Steinunn hlutu.
Gunnar Gunnarsson skrifaði
skáldsöguna Svartfugl í Danmörku
og kom hún út þar árið 1929. Þá
hafði hann rækilega kannað öll
dómsskjöl varðandi málið og kynnt
sér aðstæður og atburðarás. Svart-
fugl kom út í íslenskri þýðingu
Magnúsar Ásgeirssonar árið 1938 og
aftur lítið breytt í þýðingu höfundar
1971.
Leikstjóri er Bríet Héðinsdótir,
tónlist við leikritið samdi Jón Þórar-
insson, Steinþór Sigurðsson gerir
leikmynd og búninga en David Walt-
ers annast lýsingu.
Með helstu hlutverk fara: Jakob
Þ. Einarsson, Þorsteinn Gunnars-
son, Sigurður Karlsson, Margrét H.
Jónannsdóttir, Gísli R. Jónsson,
Valgerður Dan, Karl Guðmunds-
son, Gísli Halldórsson og Sigrún E.
Björnsdóttir.
Þ.I.
Karl Möller
leikur Ijúfa
tónlist
fyrir matargesti
Þríréttuð
máltíð
11P
Pónik og Einar leika fyrir dansi
Kiddi og Óli
sjá um
DISKÓTEKIÐ
OG LJÓSIN
40ÁRA
EDDA OG JULLI
skemmta af sinni
alkunnu snilld.
PÁLMI GUNNARSSON
á miðnætursviði.
Og svo er það
NYJA DISKOTEKIÐ
Það flottasta í Evrópu
Húsið opnað kl. 20, opið til kl. 03. Sími 23333