Tíminn - 07.03.1986, Síða 4
t m
■
■
'WMí
'
Ulii
Skemmtiatriði hjá svvitinni „Hattifattar'
40 ARA AFMÆLI
KÓPA
Kristján Guðmundsson bæjarstjóri í Kópavogi afhendir skátafélaginu
100.000,- kr. afmælisgjöf frá bænum.
IKOPAVOGI
antýsdóttir og Ása Sjöfn Lórens-
dóttir.
í tilefni 40 ára afmælis félagsins
var mikil hátíð sem byrjaði í Kópa-
vogskirkju. Við það tækifæri voru
eldri skátar og aðrir velunnarar
heiðraðir. Síðan var kvöldvaka og
skemmtun um kvöldið í Mennta-
skólanum í Kópavogi. Á sunnudag
var síðan kaffisamsæti í Félags-
heimili Kópavogs. Þar var góður
gleðskapur, svo sem sjá má af með-
fylgjandi myndum.
22. febrúar 1946 var haldinn
formlegur stofnfundur Skátafé-
lagsins Kópa. Það var jafnframt
fyrsta félagið sem stofnað var í
Kópavogi. Nú í febrúar var því fé-
lagið 40 ára.
Árum saman var félagið í nokkr-
um húsnæðiskröggum, en 1970
réðst það í að festa kaup a' húsinu
Borgarholtsbraut 7 og þar er félag-
ið til húsa í dag.
Sumarið 1963 var hafist handa
um skálabyggingu undir hlíðum
Esju í Þverárdal. Tók það verk
nokkuð langan tíma og var fyrst
lokið í ágúst 1959. Skálinn heitir
Þristur og hefur verið notaður mik-
ið allt frá því að hann gat talist
íveruhæfur.
Skátafélagið hefur nú fengið til
afnota kjallara undir dagheimilinu
við Efstahjalla austast í Kópavogi
og eru uppi stór áform um aukið
skátastarf í bænum.
í dag eru starfandi ljósálfa- og
ylfingasveitir, skátasveitir, drótt-
skátasveitin Andrómeda og
svanna- ogrekkasveitin Atóm,sem
er nýstofnuð af 18 ára og eldri fé-
lögunt. Mömmusveitin Urturhefur
stutt við bakið á félaginu, og einnig
á skátafélagið góðan bakhjarl þar
scm Lionsklúbburinn Muninn er,
en hann var stofnaður af gömlum
skátum.
Skáti stendur heiðursvörð um íslenska fánann, en hjá honum standa: Stef-
án Trjámann Tryggvason aðstoðarfélagsforingi, Hrefna Tynes fyrrverandi
skátahöfðingi og María R. Gunnarsdóttir aðstoðarskátahöfðingi.
Núverandi stjórn félagsins skipa:
Gauti Torfason félagsforingi, Stef-
án Tryggvason aðst. félagsforingi,
Angantýr Vilhjálmsson, Guðrún
A. Björnsdóttir, Guðrún Jónsdótt-
ir, Jón Aðalbjörn Jónsson, Katrín
Oddsdóttir, Áðalbjörg Ósk Ang-
4 Tíminn
Föstudágur7. mars 1986
ÚTLÖND
r /FIRLIT
FREITA
Reu tei r
HELSINGJAEYRI -
Danska lögreglan handtók í
gær tvo Júgóslava í tengslum
við morðið á Olof Palme. Þeir
komu yfir í ferju frá Svíþjóð og
voru handteknir að beiðni
sænsku lögreglunnar þar sem
annar þeirra var talinn líkjast
nokkuð persónunni sem
sænska lögreglan birti mynd af
og lýst er eftir um allan heim.
MANILA — i fréttatilkynn-
ingu frá dómsmálaráðuneytinu
á Filippseyjum var sagt að mál-
ið vegna morðsins á Benigno
Aquino, þar sem 26 hinna
ákærðu voru sýknaðir, yrði lík-
lega tekið upp að nýju ef sann-
að yrði að réttarhöldin hefðu
verið sett á svið.
FRANKFURT — Stjórnvöld
í V-Þýskalandi lækkuðu al-
menna vexti frá 4% niður í
3,5% í þeirri von að ríkisstjórn-
ir Bandaríkjanna og Japans
færu að dæmi þeirra.
MOSKVA — Mikhail Gor-
bachev leiðtogi Sovétríkjanna
gagnrýndi í lokaræðu sinni á
27. þingi kommúnistaflokksins
það sem hann kallaði þrá
bandarískra stjórnvalda eftir
sérstöku öryggi síns eigin
lands. Hann sagði Sovétríkin
ekki ætla að gefa Bandaríkjun-
um tilefni til hernaðaraðgerða.
BEIRÚT - Franskirstjórnar-
erindrekar reyndu í gær allt
hvað þeir gátu til að komast að
afdrifum Frakka eins er rænt
var í Líbanon. Öfgasinnuð
samtök múhameðstrúar-
manna tilkynntu í fyrrakvöld
um „aftöku" Frakkans.
BELGRAD — Kurt Wald-
heim fyrrverandi aðalritari
Sameinuðu þjóðanna fékk
heiðursmerki frá nasistum fyrir
frækilega framgöngu í hernað-
araðgerð gegn júgóslavnesk-
um þjóðfrelsissinnum í seinni
heimsstyrjöldinni að því er
dagblað eitt í Belgrad sagði í
grein í gær. Waldheim hefur
neitað ásökunum um að hann
hafi verið í tengslum við nas-
ista. Hann er nú í framboði til
næstu forsetakosninga í Aust-
urríki sem fram fara í maí.
GENF — Bandarískir og
sovéskir ráðamenn komu til
fundar í gær sem sagt er að
fjalli um hugsanlega brottför
kúbanskra herja frá Angóla.
JÓHANNESARBORG -
Skrifstofa samtaka er berjast
fyrir frelsun svarta baráttu-
mannsins Nelson Mandela
eyðilagðist af eldi sem samtök-
in sögðu vera að undirlagi
stjórnvalda í Suður-Afríku
Lögreglan sagðist halda að um
íkveikju hefði verið að ræða.
LUNDÚNIR — Hin opinbera
fréttastofa í Líbýu sagði upp-
reisnarmenn í Chad hafa náð á
sitt vald tveimur bæjum og
sækja nú hratt suður á bóginn.
Fréttastofan gaf upp nöfn bæj-
anna sem hún sagoi vera Ka-
lait og Oum Chalouba.
BRUSSEL — Umhverfis-
málaráðherrar ríkja Evrópu-
bandalagsins hófu fundarhöld
í gær þar sem reyna á að kom-
ast að samkomulagi um sam-
hæfðar aðgerðir gegn iðnaðar-
mengun. Stjórnmálaskýrendur
telja ólíklegt að af samkomu-
lagi verði.