Tíminn - 07.03.1986, Page 7
Tíminn 7
VETTVANGUR
ll!ll!ll!!ll!ll!l!ll!l!!l!llll!i!!!!l!!ll!lll!!lli!l!!!l!iil!l!!l!llllllil!lll!l!!!!l!l!ll!llllilli!lllllll!l
Guðmundur Lárusson, bóndi Stekkjum:
Þýðir ekki að láta sem vanda
málin séu ekki til staðar
Það er þriðjudagur 18. febrúar
og með póstinum berst að vanda
dagblaðið Tíminn. Við lestur
blaðsins rek ég augun í grein sem
ber yfirskriftina „Opið bréf til
Guðmundar Lárussonar form. Fé-
lags kúabænda á Suðurlandi1- frá
Ólafi Eggertssyni, Berunesi við
Djúpavog.
í bréfi þessu sem virðist hafa orð-
ið til vegna viðtals undirritaðs við
Guðm. Stefánsson hagfr., rang-
túlkarÓ.E. skoðanirmínarogsnýr
á versta veg, sennilega til að leiða
athyglina frá raunveruleikanum.
En lítum á málin af skynsemi en
ekki með upphrópunum og slag-
orðum, sem hingað til hafa ekki
orðið bændum til framdráttar í
þeirri erfiðu stöðu sem blasir blá-
kalt við í dag.
Samkv. samningum ríkis og
Stéttarsambands bænda um 107
millj. ltr. þetta ár og 106 millj. ltr.
það næsta er í raun stefnt að því að
neysla innanlands og framleiðsla
haldist í hendur, enda í samræmi
við stefnuyfirlýsingu núverandi
ríkisstjórnar og bein afleiðing af
hruni markaða fyrir mjólkurvörur
erlendis. Því kemur bændum í
mjólkurframleiðslu til með að
fækka stórlega í kjölfar þessara
samninga um undanhald í hefð-
bundnum búskap, hvort sem okkur
líkar betur eða ver. Og hvernig á að
standa að undanhaldinu? A að
skipuleggja það þannig að mjólk
verði framleidd þar sem einhver
Ieið er að selja hana eða á að láta
undanhaldið ráðast af því hverjir
fara á hausinn og gefast smám sam-
an upp og ganga eignalausir frá
ævistarfi sínu. Stjórnvöld eiga sinn
stóra þátt í því ástandi sem við
stöndum frammi fyrir í dag. Því
verða bændasamtökin að gera þá
Og hvernig á að standa
að undanhaldinu? Á að
skipuleggja það þann-
ig að mjólk verði fram-
leidd þar sem einhver
leið er að selja hana
eða á að láta undan-
haldið ráðast af því
hverjir fara á hausinn
og gefast smám sam-
an upp og ganga
eignalausirfrá ævi-
starfi sínu.
kröfu að þeim bændum sem hætta
mjólkurframleiðslu nú verði gert
kleift að snúa sér að öðrum grein-
um eða hreinlega keyptir frá búum
sínum sem þess óska í mun ríkara
mæli en felst í fyrirgreiðslu Fram-
leiðnisjóðs. Ó.E. segir í bréfi sínu
„Sannarlega hefur bændastéttin á
undangengnum árum sótt styrk
sinn í samstöðu og sterka félags-
lega uppbyggingu.“ Þetta er í sjálfu
sér fallegt slagorð en hvað á Ö.E.
við? Felst t.d. sterk félagsleg upp-
bygging í því misrétti bænda í fjöl-
mennum sýslum á aðild að Stéttar-
sambandsfundi, þar sem vægi at-
kvæða er aðeins brot af því sem
bændur í fámennari sýslum hafa
eða er hér átt við ólýðræðislega
kosningu til Búnaðarþings. Við
skiptingu fullvirðisréttar einstakra
svæða minnkar hlutdeild M.B.F.
um 530 þús. ltr. að heildarverð-
mæti um kr. 12 millj. eða sem svar-
ar 17.000 kr. á hvern framleiðanda.
Það tók reiknimeistara Bændahall-
arinnar 5 mánuði að komast að jafn
slæmri niðurstöðu sem þessari og
ala þar með á sundrung og ósætti
milli landshluta. Það getur aldrei
orðið bændastéttinni til góðs að
einstakir bændur sæki styrk sinn í
vasa annars bónda og ekki er held-
ur lengur hægt að tala um samvinnu
þar sem einn er gefandinn en hinn
þiggjandinn.
Þú segir mér að „skoða tölur yfir
þjóðarframleiðslu á mann í hinum
ýmsu kjördæmum og sveitarfélög-
um“. Kynni þá að vera að fremur
ætti að skera annars staðar. Hvað
felst í þessum orðum? Er hér gefið í
skyn að leggja beri hagfræðilegt
Þaö getur aldrei orðiö
bændastéttinni til góös
að einstakir bændur
sæki styrk sinn í vasa
annars bónda og ekki
er heldur lengur hægt
aö tala um samvinnu
þar sem einn er gef-
andinn en hinn þiggj-
andinn.
mat á niðurskurð bændastéttarinn-
ar, það skyldi þó aldrei blunda í
hugskoti þínu óheft afl frjálshyggju
og eigin hagsmuna?
Hins vegar eru þær tölur sem þú
bendir á hæpin viðmiðun og mun
réttara að skoða tölur scm snúa
beint að mjólkurframleiðslunni
t.d. tölur um greiðslur úr verðmiðl-
unarsjóði mjólkur, en cins og þér
hlýtur að vera kunnugt sem inn-
leggjanda á Djúpavogi þá fá þau
mjólkursamlög utan 1. verðlags-
svæðis sem standa verst rekstrar-
lega séð, greiðslur úr þessum sjóði
sem námuásl. ári um53.6millj. kr.
Þar eru taldar til ýmsar orsakir, t.d.
óhagkvæm rekstrareining, stór
hluti mjólkur fer í vinnslu á lítt selj-
anlegri vóru og margt fleira kemur
þar til. Verðmiðlunargjald er nú
kr. 1,25 sem leggst ofan á verð til
neytenda og á þannig sinn þátt í því
að skaða samkeppnisaðstöðu
mjólkur gagnvart öðrum drykkjar-
vörum á markaði.
Erekki kominn tími til aðathuga
hvers vegna sum mjólkursamlög
þurfa ár eftir ár milljónir úr vösum
neytenda til síns reksturs og getum
við vænst þess um ókomna framtíð
að neytendur sætti sig við að standa
undir slíkum rekstri, því við bænd-
ur skulum hafa það hugfast að án
ánægðra neytenda á íslenskur land-
búnaður ekki bjarta framtíð og við
skulum líka minnast þess að til eru
þau öfl í þjóðfélaginu sem bæði
leynt og Ijóst stefna að innflutningi
landbúnaðarvara og ef íslcnskir
bændur geta ekki sýnt það og sann-
að að okkar ágætu vörur standast
verðsamanburð munu þessi öfl
sækja enn fastar á en nú er þegar
orðið með hverskyns innflutningi
matvæla sem keppa grimmt um
hylli neytenda og hcfur þegar orðið
nokkuð ágengt.
Að lokum, þær aðgerðir sem
framundan cru í hefðbundnum bú-
greinum koma til með að valda
mikilli röskun á búsetu bænda í
framtíðinni og það þýðir því miður
ekki að stinga höfðinu í sandinn og
láta sem vandamálin séu ekki til
staðar, það hefur nógu lengi verið
gert og árangurinn blasir blákalt
við augum.
Guðmundur Lárusson,
Stekkum, Sandvíkurhr.,
Árnessýslu.
Þórarinn Þórarinsson:
Mesta vandamál landbúnaðar
ins er vitlaus vaxtastefna
Sá, sem þetta ritar, hefur sem
blaðamaður og ritstjóri Tímans,
fylgst með landbúnaðarmálum um
rúmlega hálfrar aldar skeið. Það hef-
ur vissulega verið fróðlegt að fylgjast
með þróun landbúnaðarins á þessum
tíma. Fyrir rúmlega hálfri öld var
landbúnaðurinn í mörgum sveitum í
svipuðu horfi og á söguöld. Þegar ég
var að alast upp, mun taðkvörnin og
kerra hafa verið einu tækin í minni
sveit, sem ekki hafa verið til á sögu-
öldinni. Að öðru leyti var notast við
sömu verkfæri og á söguöldinni, en
vafalítið hafa þau tekið ýmsum
breytinguni til bóta frá fyrri tíma.
Þeir. sem minnast þessara tíma,
hljóta að hrífast af þeim umskiptum,
sem orðið hafa í sveitum landsins síð-
ustu áratugina og það engu síður
þeir, sem ólust upp í sveitum, þar
sem landbúnaðurinn var lengra
kominn en í minni sveit, þarsem sjó-
sókn var líka stærri atvinnugrein en
landbúnaðurinn. Víða við strendur
landsins lifðu menn meira á sjávaraf-
urðum en landbúnaðarafurðum. Það
þarf ekki að undra þótt byggðin hafi
grisjast þar, síðan sjósókn lagðist
niður.
Hér verður ekki reynt að draga
upp mynd af hinum undraverðu um-
skiptum, sem orðið hafa í sveitum
landsins. Áhrifin af hinni miklu
framsókn bændanna hafa orðið marg-
vísleg. Þörf er miklu færra fólks við
sjálf landbúnaðarstörfin en áður, en
starfslið við vinnslu afurðanna hcfur
hins vegar margfaldast. Það eru því
fleiri en bændur, sem eiga afkomu
sína og framtíð undir því að blóm-
legur landbúnaður haldist í landinu.
Þessi mikli árangur hefur náðst,
þótt margar og mismunandi plágur
hafi sótt landbúnaðinn heim á þess-
um tíma, eins og búfjárpestir, mark-
aðshrun og verðfall. Bændastéttin
hcfur sigrast á þeim. Á síðari árum
hefur hins vegar sótt að landbúnað-
inum ný plága. Það er enn ekki séð
fyrir, hvort bændastéttin sigrast á
henni eða hvort hún leggur ekki að-
eins útkjálkana, heldur blómlegustu
sveitirnar í auðn.
Þessi plága er vitlaus vaxtastefna.
Landbúnaðurinn hefur þá sér-
stöðu, að hann skilarekki fljótfengn-
um arði. Svipað gildir um hann og
efnalitla íbúðarbyggjendur, að hann
þarf að búa við vaxtalág lán til lengri
tíma. Þá skilar hann öruggari og var-
anlegri arði en flestar atvinnugreinar
aðrar.
Það var eitt mcginatriði í landbún-
aðarstefnu Framsóknarflokksins,
þegar hann hóf baráttu sína fyrir við-
reisn sveitanna, að landbúnaðinum
væru tryggð vaxtalág lán til lengri
tíma. Af hliðstæðum ástæðum studdi
hann baráttu Alþýðuflokksins fyrir
verkamannabústöðum, sem nytu
hagstæðra vaxtakjara. Meðan Fram-
sóknarflokkurinn réð landbúnaðar-
stefnunni, var hún fyrst og fremst
byggð á grundvelli hagstæðra vaxta-
kjara.
Þessi vaxtastefna reyndist einnig
hagstæð neytendum. Umræddur
vaxtastuðningur við landbúnaðinn
átti drjúgan þátt í því að hægt var að
halda söluverðinu hóflegu. Meðan
þessi vaxtastefna ríkti voru svokall-
aðar niðurgreiðslur á útsöluverði
næstum óþekktar. Þær komu fyrst
verulega til sögu í tíð utanþings-
stjórnarinnar 1942-44 í þcim til-
gangi að halda dýrtíðarvísitölunni
niðri. Hámarki sínu munu þær hafa
náö í tíð minnihlutastjórnar Alþýðu-
flokksins 1959 í glímu hennar við
dýrtíðarvísitöluna.
Með tilkomu svonefndrar við-
reisnarstjórnar, sem kom til valda
fyrir árslok 1959, hófst breyting í
vaxtamálum landbúnaðarins. Nýir
oddvitar í bankamálum landsins
kröfðust þess, að landbúnaðurinn
nyti engrar sérstöðu í vaxtamálum.
Smátt og smátt hafa þeir þokað
stefnu sinni áleiðis. Vaxtakjör land-
búnaðarins hafa farið síversnandi.
Því vofir nú gjaldbrot yfir hundruð-
um ungrabænda. I stað þess að halda
vaxtakjörunum í hófi, hafa komið
niðurborganir og útflutningsuppbæt-
ur.
Ef koma á landbúnaðinum á heil-
brigðan grundvöll verður að létta af
honum þeirri plágu, sem hávaxta-
stefnan er. Það er sama og að rétta
ungum bændum hengingaról, að
bjóða þeim gengistryggð lán með
8% vöxtum. Undir þeim kringum-
stæðum veröur seint losnað við vax-
andi niðurborganir og útflutnings-
bætur í einhverju formi.
Alveg sama gildir um þá, sem eru
að koma sér upp íbúð í fyrsta sinn.
Þeir geta ekki frekar en landbúnað-
urinn risið undir sömu vöxtum og at-
vinnugreinar, sem gcta skilað fljót-
fengnum arði.
Stærsta vandamál landbúnaðarins
nú er vitlaus stefna í vaxtamálum
hans. Hún þrengir að vísu ekki eins
að þcim hluta bændastéttarinnar,
sem er óháður lánum að ráði. Hún
leggst þeim mun þyngra á ungu
bændurna, sem hafa ráðist í myndar-
legar framkvæmdir, en gjaldþrot
vofir nú yfir vegna vaxtakjaranna.
Bændur eiga að gera kröfuna um
breytta og bætta stefnu í lánamálum
landbúnaðarins að meginkröfu
sinni. Auknar niðurgreiðslur bæta
ekki hlut þeirra bænda, sem mest
þurfa á aðstoð að halda. Eigi land-
búnaðurinn að búa við óbreytt lána-
kjör, leggur það fyrst ungu bænd-
urna að velli og síðan landbúnaðinn
allan.