Tíminn - 07.03.1986, Page 12
Föstudagur 7. mars 1986
16 Tíminn
BÓKMENNTIR
MOLD OG MYRKUR
Aðalstelnn Ásberg Slgurðsson:
Jarðljóð,
Fjölvautgáfan, 1985
Það er einkenni á þessari ljóðabók
að verkin í henni eru nánast án
undantekninga innleitin, myrk og
torskilin. Þetta eru alvarleg verk sem
kannski höfða meira til skynjunar en
skilnings. Líka er þess að geta, að
líkt og aðrar Ijoðabækur Fjölva-
útgáfunnar er þessi ágætlega gerð úr
garði. Hún er skreytt dúkristum eftir
Guðjón Davíð Jónsson og öll hin
snyrtilegasta.
Fyrsti hluti bókarinnar nefnist
Atriði og flytur sjö ljóð. Þar er meðal
annars mynd af gamalli konu í her-
bergi sínu, önnur af gamalli slattuvél
sem er orðin að leikfangi barna, og
nýstárlegt ættjarðarljóð sem nefnist
ísland og lýsir frostavetri með aug-
um barns, m.a. þannig:
Við áttum stórt
farsælt ísland
þennan kalda vetur.
Þá er þarna lýsing á nýkomnu
sjónvarpi, mynd af jarðarför, önnur
af manni sem rær einn á báti sínum,
og loks vísnaljóð sem er torskilið en
myndrænt og getur kannski betur en
margt annað staðið sem fulltrúi fyrir
í 11. FLOKKI 1985—1986
Vinningur til íbúðarkaupa, kr. 500.000
41392
Vinningar til bílakaupa, kr. 100.000
6074 42860 43716 64950
10333 43002 43790 73401
Utanlandsferðir eftir vali, kr. 40.000
3390 19932 40668 53253 70366
7214 21228 41083 53360 72215
9196 22737 41566 55076 72533
9508 24242 41628 55691 72656
9607 26033 42390 56193 73023
10437 28524 43831 56588 73566
11753 29356 44513 59560 73767
13188 33931 46018 61188 74084
14554 35665 46077 63178 74089
16627 36367 46188 64966 77895
18746 36500 47894 69221 78814
19051 37529 51791 70154 79930
Húsbúnadur eftir vali, kr. 10.000
1492 18012 28870 44943 62354
2715 18164 29079 45757 64721
4280 18356 29361 46803 65358
4618 18850 30946 48421 66291
497.5 18990 30970 48670 66664
5021 19657 31284 49808 67645
5067 20412 31397 50772 68520
5718 20749 34330 51017 68532
7895 22665 34768 51169 69151
8653 23586 34891 51199 69953
9099 24085 37651 51426 69971
9882 24113 38548 51788 70141
10387 24774 38749 53883 71082
10662 25160 38807 54357 72245
10848 25195 38987 54414 72859
12267 25623 40338 54900 74941
12668 25692 40627 57630 74974
14203 25948 42027 59035 77747
14370 26312 43686 60168 78082
15042 26324 44072 60186 78238
16307 27108 44306 60396 78963
17357 27549 44902 61795 79988
Húsbúnaður eftir vall, kr. 3.000
12 9261 15597 24780 33178 38247 45130 55248 63483 73719
110 9404 15909 25304 33180 38473 45264 55330 63546 73858
512 9477 15989 25310 33184 38506 45676 55781 63669 74374
520 9892 16013 25316 33260 38525 46139 56146 64060 74386
547 10155 16035 25396 33379 38577 46162 56156 64499 74440
614 10264 16127 25667 33450 38759 46231 56206 64697 74462
1193 10270 16204 25788 33513 38769 46398 56712 64872 74585
1204 10339 16393 25950 33837 39085 46643 56790 64996 74586
1468 10622 16650 26012 33932 39611 47039 57170 65253 74878
1503 10684 16900 26229 33944 39867 47148 57455 65299 74962
1669 10790 16903 26249 34004 40149 47231 57456 65594 75083
1885 10857 17160 26282 34263 40388 47768 57508 65662 75384
2023 10984 17396 26292 34295 41058 • 47835 58312 65709 76199
2248 11216 17459 26842 34317 41151 47960 58494 65824 76293
2415 11260 17500 26886 34419 41157 48568 58612 66000 76390
2748 11626 18726 26909 34639 41255 48942 58632 66242 76685
3105 11672 19158 26977 34671 41273 48960 58661 66624 76953
3223 11740 19330 27098 34735 41389 48963 58675 66768 76964
3246 11968 19464 27129 34765 41391 49102 58838 67049 76988
3263 12175 19569 27145 35177 41398 49228 58869 67073 77119
3303 12182 19573 27249 35279 41437 49300 58914 68030 77240
3588 12285 19881 27288 35372 41702 49895 59262 68226 77650
3780 12502 20093 27373 35383 41945 49965 59288 68438 77965
4364 12713 20533 27482 35870 42088 50070 59694 68576 78176
4731 12751 20742 27586 35974 42115 50095 59921 68918 78197
4816 12800 20816 28067 36032 42208 50221 60367 69166 78414
5024 13005 20904 28125 36033 42477 50494 60487 69402 78530
5295 13229 20959 28520 36201 42521 51212 61034 69441 78736
5656 13317 21180 28566 36359 42532 51225 61046 69893 78981
6044 13446 21638 . 28810 36381 42610 52050 61396 70427 79192
6456 13610 21739 28887 36421 42641 52171 61410 70626 79322
6516 13823 21857 28994 36573 42953 52862 61469 70655 79345
6567 14179 22224 30024 36619 43264 52944 61502 71364 79501
6621 14335 22512 30169 36635 43767 53064 61840 71386 79746
6854 14441 22522 30411 36668 43808 53403 61841 71437
6936 14590 22613 30956 36747 44196 53435 61900 71826
7119 14648 22888. 31118 36762 44481 53908 62417 72332
7409 14868 22992 31666 37221 44614 53930 62468 72453
7665 14893 23320 31915 37446 44783 54404 62684 72460
8126 14896 23581 31939 37678 44927 54434 62823 72572
8265 15046 23774 32033 37817 45017 54619 63001 72695
8843 15256 23790 32507 37894 45094 55107 63197 72697
8904 15280 24697 32540 37979 45111 55192 63471 73500
Afgralótla húabúnaðarvinnlnga halat 15. hvars mánaóar
og tlandur tll mánaðamóta.
ljóðagerð Aðalsteins Ásbergs. Það
heitir í landslagi minninganna og er
svona:
í landslagi minninganna
svíkurðu jafnan lit.
Pú ert blindari en myrkrið
hræddari en óttinn
svikulli en ótryggðin.
Pú ert deginum Ijósari
en líf þitt hvergi neitt
sem hönd á festir.
í landslagi minninganna
leggurðu oft á flótta.
Annar hluti nefnist Vettvangur,
og þar er líklega einna helst að segja
að fengist sé við jörðina - moldina -
og tengsl hennar við dag og nótt.
Þetta er kannski loðin skilgreining,
en einnig má segja að þarna sé lýst
tengslum manns og moldar, ásamt
þeim ugg sem nóttin vekur honum.
Þó er það ekki einhlítt, en nóttin
sækir þó býsna sterkt á skáldið, til
dæmis:
Nóttin
vekur til lífs.
Nóttin
er naflastrengur
næsta dags...
Og óttinn við hana er líka nærri:
Nóttin
er neonskær
götudrós.
Rangsnúin
kvikmynd
kveður sér hljóðs.
Dauðinn hefur
lagt frá sér Ijáinn
og dregið upp
marghleypu.
Þriðji hluti nefnist Svið, og hann
er safn af átta prósaljóðum. Þau
flytja hvert um sig mynd, og flestar
eru þær af einhverju uggvænlegu, en
jafnframt sundurlausu, til dæmis
Svið III:
... lyftir blæjunni frá fölu andlitinu...
tvö eða þrfu spor og tárin dansa í
mjúkri
hrynjandi niður kinnarnar... brosir
svo
feimnislega... tárin dansa...
kvikkstepp út
úr mynd...
Þetta er vel gerð myndasmíði- og
minnir raunar í mörgu á nútíma mál-
aralist, sem innblásturinn má hér vel
vera sóttur til.
Loks er svo fjórði og síðasti hluti
bókarinnar sem nefnist Víðátta. í
honum eru enn tíu Ijóð, nokkuð sitt
úr hverri áttinni að því er efni ~
varðar. Þau eiga það þó aftur sam-
eiginlegt að fjalla að verulegum
hluta um ýmsa þætti úr mannlegu til-
finningalífi, og að vera myrk,
innhverf, dul og vfsa til skynjunar.
Það fer ekki á milli mála að bókin
er vel gerð og hægt að mæla með
henni við ljóðaleséndur. Á einum
stað fjallar höfundur um hörundsár-
an mann og lætur hann segja:
En láttu
grófan sandpappír
orðanna
eiga sig!
Hér er vel gerð líking, nöprum
orðum er líkt við hrjúfa áferð sand-
pappírs, og vel á haldið.
En af slíkum líkingum er annars
lítið í bókinni. Einnig er form ljóð-
anna ákaflega óbundið, og rími og
ljóðstöfuni lítið beitt skipulega. Það
er dálítið álitamál hve víðtæka skír-
skotun myrk og torskilin yrkisefni
eiga til nútímafólks almennt. Að
minnsta kosti verða slík efni þá að
vera íklædd fimlega gerðum búningi
ef þau eiga að geta náð almannahylli.
Mér sýnist að dálítið meiri natni við
form og myndmál hefði hér enn get-
að bætt árangurinn töluvert. Þetta
gildir jafnt þótt bókin sé tvímæla-
laust forvitnileg og vel gerð eins og
hún liggur fyrir, og það sé hafið yfir
efa að hún hafi átt fullt erindi hérút á
bókamarkaðinn.
Eysteinn Sigurðsson.
PLOTUR
Sálargotterí
Jesus & Mary Chain: Psychocandy
Hljómsveit þessi hefur vakið
mikla athygli undanfarið bæði í
Bretlandi og víðar, m.a. hér á landi.
Platan hefur selst hér mjög vel í
búðum, að því er virðist mun betur
en nokkur átti von á, því hún er upp-
seld lengi í einu og hver sending rifin
út.
Jesus & Mary Chain er einstök
hljómsveit. Hún blandar saman ýms-
um áhrifum, pönki, sækadelíu og
poppi 7. áratugarins, auk áhrifa frá
t.d. Einstúrzende Neubauten. Jafn-
vel má greina áhrif frá rokkabillý-
tónlist, sem sennilega eru komin í
gegn um Cramps. Það er greinilegt
að meðlimir Jesus & Mary Chain
hafa hlustað á þá hljómsveit og sk.
pcychobillytónlist hennar.
Áhrifin má meðal annars sjá í
nafni plötunnar, Psychocandy. Þetta
þýðir „Sælgæti fyrir sálina", eða
eitthvað því um líkt. Ekki er annað
hægt að segja en að þetta sé rétt-
nefni. Það fyrsta sem maður tekur
eftir er hversu áferð tónlistarinnar,
ef svo má að orði komast er ólík
flestu öðru sem heyrst hefur. Það er
þessi skerandi gítar sem maður býst
við að skafi innan úr hljóðhimnunum
á manni á hverri stundu. Þetta er
ekki klisjukenndur heavy-metal
gítar, heldur eitthvað allt annað og
skemmtilegra, en er samt ættaður úr
feedbacktradition heavy-metal tón-
listar. Munurinn er m.a. sá að Jesus
& Mary Chain byggir á popptónlist
en ekki blús- eða rokktónlist af
þyngri gerðinni. Auk þess er söngur-
inn gjörólíkur öllum heavy-metal
söng, þcssum rembingslega semi-
óperusöng sem Eiríkur Hauksson og’
aðrir í þeim dúr stunda. Jim Reid,
söngvari Jesus & Mary Chain er
þvert á móti ákaflega svalur og lætur
tilfinningar lítt koma við sögu. Hann
minnir oft á Lou Reed.
Auk þess semja þeir Jesúsmenn
skemmtileg lög. Lög eins og Never
Understand, Juste like Honey, The
Living End o.fl. eru skemmtileg
popplög, sem maður fer að raula og
blístra eftir smátíma. Jesus & Mary
Chain er semsagt ekki eins og marg-
ar aðrar framúrstefnuhljómsveitir,
óaðgengilegur skipulagslaus hávaði.
Hér fallast í faðma framúrstefnuleg-
ur hljómur og frumstætt popp. Að
ýmsu leyti minnir Jesus & Mary Cha-
in á Sex Pistols, en Sex Pistols voru
þó miklu rokkaðri, eða eins og Siggi
Sverris bárujárnari segir: Sex Pistols
voru heavy-metal hljómsveit með
pönksöngvara. En sameiginlegt eiga
þessar hljómsveitir að þær blása nýj u
lífi í tónlist síns tíma. Langtímaáhrif
Jesus & Mary Chain verða þó líklega
mun minni en Sex Pistols. ÁDJ
(9 af 10).