Tíminn - 07.03.1986, Qupperneq 20
Hálstöflur
meðVISA
ÞAÐ VAR EKKI DAGUR ÍSLANDS á hm í Svíss í gær.
Islendingartöpuðu fyri/Svíum 23-27. Ungverjarunnu hinsvegarKór-
eumenn og því munu Islendingarnir spila um 5.-6. sætiö í keppninni.
ÞaöþýöirsætiáÓLíSeoulsemer
frábær árangur. Betri er flestir
þorðu aö vona. Leikurinn í gærvar
hinsvegar þannig aö honum er
best að gleyma. Guömundur
Guömundsson var bestur íslend-
inganna.
x jr \
'SMWMSSi
Tíminn
Föstudagur 7. mars 1986
lceland Seafood Ltd:
Söluaukning
í Bretlandi
- mest í rækju
og þorskflökum
Mjög vel hefur gengið að
selja fiskafurðir íslendinga á
erlendum mörkuðunr það sem
af er þessu ári. Eins og Tírninn
hefur greint frá jókst sala gíf-
urlega hjá Iceland Seafood
Corporation í Bandaríkjunum
í janúar og febrúar, og frá sölu-
fyrirtæki Sambandsins og Sam-
bands frystihúsa í Bretlandi
Iceland Seafood Ltd. berast
einnig fregnir af mikilli sölu-
aukningu.
Heildarsalan hjá Iceland
Seafood Ltd. í Bretlandi í janú-
ar og febrúar var 4,3 milljónir
sterlingspunda, en á sama tíma í
fyrra var hún 1,7 milljón sterl-
ingspunda. Salan hefur því 2,5
faldast og nemur aukningin 2,6
milljónum punda eða rúmlega
150 milljónum króna.
Mestan þátt í þessari aukn-
ingu á aukin sala á pillaðri
rækju og frystum þorskflökum
og nam rækjusalan alls um 1,3
milljónum punda, sem er fjór-
földun í verðmæti og þreföldun
í magni frá fyrra ári.
Iceland Seafood Ltd. verður
sex ára á þessu ári en fyrir-
tækið var stofnað í árslok 1980
og hóf starfsemi í ársbyrjun
1981. Heildarsalan á fyrsta ár-
inu nam 3,5 milljónum punda,
en í fyrranam heildarsalan 19,1
milljón punda. - BG
Orkukönnun Félags íslenskra iðnrekenda:
Raforkan þrefalt dýr
ari hér en í Noregi
- en dísilolían ódýrust á íslandi
Að raforkuverð skyldi vera
hátt í þrisvar sinnum hærra á
íslandi en á hinum Norður-
löndunum, en dt'silolía aftur á
móti lang ódýrustu hér á landi
þótti skjóta skökku við að mati
Félags ísl. iönrekenda - en
þetta var meðal niðurstaðna
sem fengust út úr orkukönnun
sem FÍI gekkst fyrir og hefur nú
birt niðurstöður úr. Verð á
bensíni var á sama tíma um
23% hærra hér en á Norður-
löndununt að meðaltali (15-
45%). Verð er hér miðað við 1.
júlí 1984, en forsendur hafa
síðan breyst, kannski ckki síst
með þeirri lækkun á orkuverði
sem hér á sér stað þessa dag-
ana.
Raforkuverðið í framan-
greindum samanburði er með-
alverð til iðnfyrirtækja með
minnaen 100.000 kWs. notkun
á ári (þriðjungur allra fyrir-
tækjanna í könnuninni), en
þau greiddu orkuna samkvæmt
almennum orkutaxta, 3,65 kr.
fyrir kílówattsstundina. Sam-
svarandi verð var þá 2,01 kr. í
Danmörku og 1,17 kr. í Noregi
þótt skattar og gjöld af rafork-
unni næmu þá 42% af verðinu í
öllum þessum þrent löndum.
Verð að frádregnum þessum
álögum var því 0,82 kr./kws í
Noregi en 2,57 kr. hér á landi,
eða um þrefalt hærra til ís-
lensku fyrirtækjanna.
Á sama tíma var verð dísilol-
íu aftur á móti 28% hærra að
meðaltali á Norðurlöndunum
en hér (15% í Svíþjóð til 54%
hærra í Finnlandi). Verðið var
m.a.s. lægst hér þótt skattar og
gjöld væru frádregin, en þau
voru frá 11% hér á landi, 18-
19% í Noregi og Svíþjóð og 28-
29% í Danmörku ogFinnlandi.
Útsöluverðið var hér 8,90 kr. á
lítra en hæst í Finnlandi 13,70
kr.
FÍI bendi á í þessu sambandi
að fyrri helming síðasta árs
jókst olíunotkunin um 10% hér
á landi á sama tíma og 4% sam-
dráttur varð í raforkusölu.
Skattar og gjöld af bensíni
voru hæstir hér, 60% en þó
ekki miklu hærri en í Dan-
mörku (53%) og Noregi
(51%). í Svíþjóð voru skatt-
arnir 44% og lægstir 35% í
Finnlandi. Verð á lítra var þá
22,30 kr. hér á landi, lægst
15,30 kr. í Svíþjóð en á bilinu
18,70-19,30 kr. í hinum
löndunum þrem.
- HEI
Nýtt íbúðarhúsnæði FEF að Öldugötu 11. Á mvndinni sést húsnefndin: Jóhann Kristjónsdóttir, Marta Jörgensen,
Edda Ragnarsdóttir, Guðný Kristjánsdóttir, Helga Jónsdóttir, Haukur Geirsson. Mvnd:Svcrrir
Félag einstæðra foreldra:
Öldugata 11 í gagnið
Félag einstæðra foreldra
hefur tekið húseignina að
Öldugötu 11 í notkun sem
skammtíma heimili fyrir
húsnæðislausa félagsmenn.
Um skeið hefur FEF notað
Skeljanesó ísamatilgangiog
því verða húsin tvö í næstu
framtíð.
Félagið fékk Öldugötuna
afhenta 1. ágúst sl. og mánuði
síðar var hafist handa við að
lagfæra og breyta í samræmi
við fyrirhugaðan rekstur. Nú
eru sex íbúar fluttir inn, en tíu
fjölskyldur geta búið samtím-
is í húsinu og verutími hverr-
ar fjölskyldu er sex mánuðir
í senn. Húsaleiga er Iág og
ekki er krafist fyrirfram-
greiðslu, nema að því leyti að
hver mánuður er borgaður
fyrirfram. Skilyrði fyrir bú-
setu í húsnæði FEF er að við-
komandi sé einstætt foreldri,
ekki í sanibúð, félagsbundið í
FEF og skuldlaust við félags-
sjóð.
Húsnefnd hefur haft um-
sjón með breytingunum og
fylgist með rekstri hússins.
Húsvörður á Öldugötu 11 er
Valgerður Þorbjörnsdóttir.
Mestu útlán Húsnæðisstofnunar frá upphafi vega:
Húsnæðislánin 65-90% meiri en árin 1981 -83
Heildarútlán Húsnæðis-
stofnunar ríkisins námu
2.666,2 milljónum króna (um
11 þús. að meðaltali á hvern
íslending) árið 1985 og eru
það mestu útlán stofnunar-
innar frá upphafi vega, að því
er segir í fréttabréfi stofnun-
arinnar. Farna var um 3,4%
raunvirðisaukningu að ræða
frá metárinu 1984. Bæði árin
1984 og 1985 urðu útlán
Byggingasjóð ríkisins um 65-
90% hærri að raunvirði en
þau voru á tímabilinu 1981-
1983.
í fréttabréfinu er reiknað
með samtals 3.260 milljóna
króna útlánum byggingasjóð-
anna á yfirstandandi ári - þar
af760millj. úrB.V.-sem tal-
ið er svipað raunvirði og
1985. En þær tölur munu
væntanlega breytast í kjölfar
yfirstandandi aðgerða.
Hámarkslán sem gilda fyrir
2ja til 4ra manna fjölskyldur á
tímabilinu jan.-mars 1986
eru: Nýbyggingarlán 994.000
kr., G-lán til kaupa fyrstu
íbúðar 497.000 kr. og við
íbúðaskipti 248.000 kr.
Fastar ársgreiðslur (af-
borgun og vextir) á lánstím-
anum, miðað við verðlag í
febr. 1986, eru rúmlega 55
þús. af nýbyggingarlánunum,
tæp 36 þús. af hærri G-lánun-
umog tæplega 18þús. afþeim
lægri. Pessar upphæðir skipt-
ast nú niður í 4 afborganir á
ári, en við þær bætast síðan
verðbætur miðaðar við hækk-
un vísitölu frá því lánið var
veitt til greiðslumánaðar.
Þess má geta að fyrsta árið
eru aðeins greiddir vextir og
því um lægri greiðslur að
ræða en hér er getið.
Þess má geta að nýbygging-
arlán fyrir 2ja til 4ra manna
fjölskyldu var 205.000 á
miðju ári 1982 (uppreiknað til
febrúarvísitölu 1986 væri það
um 767 þús. og ársgreiðsla af
því um 41 þús. kr.). Ibúðar-
verð á fasteignamarkaðinum
var þá í kringum 10-11 þús.
kr. á fermetra, eða 800-900
þús. fyrir 80 fermetra íbúð.
Byrjunarlaun á fiskvinnslu-
taxta voru þá 6.205 þús. á
mánuði en lögbundin lág-
markslaun 6.797 kr. á mán-
uði. Pessar tölur getur hver
og einn borið saman við nú-
verandi lán, laun og verð.
- HEI