Tíminn - 15.03.1986, Page 5
Laugardagur 15. mars 1986
Albanía:
Tíminn 5
Dyrnaropnast
- þó ekki uppá gátt
Francois Mitterrand forseti Frakklands bíður sjálfsagt óþreyjufullur eftir úrslitum kosninganna á morgun. Þá mun
ráðast hver stjómi með honum fimmta lýðveldinu.
Frakkland:
„Sambúðarvandamál“
sigri hægrimenn
Þingkosningar fara fram á morgun
París-Reuter
Stjórnmálaleiðtogar í Frakklandi
luku kosningabaráttu sinni f gær-
kvöldi með ræðum þar sem innan-
landsmál voru efst á baugi. íbúar
landsins hafa því daginn í dag til að
hugsa sig um og ákveða við hvaða
flokk þeir krossi í þingkosningunum
á morgun.
t gær var óljóst um gang mála í Lí-
banon þar sem frönskum gíslum er
enn haldið og forðuðust stjórnmála-
leiðtogarnir að nefna þáð mál, svo'
ekkert trufli tilraunir stjórnar
Laurent Fabius forsætisráðherra við
að fá gíslana lausa.
Laurent Fabius sagðist í lokaræðu
sinni vonast til að meirihluti hinna 37
milljóna kjósenda styddi áframhald-
andi stjórn Sósíalistaflokksins sem
verið hefur við völd síðustu fimm
árin Skoðanakannanirbendaþótil
að Fabius forsætisráðherra verði
ekki að ósk sinni og hægri flokkarnir
vinni nauman meirihluta á þingi.
Vinni hægri flokkarnir sigur í
kosningunum á morgun kemur upp
áðuróþekkt vandamál í sögu fimmta
lýðveldisins. Forseti landsins er
nefnilega Francois Mitterrand sem
er sósíalisti og þarf hann þá að deila
framkvæmdavaldinu með pólitísk-
um andstæðingum sínum. Mál þetta
sem Frakkar kalla „sambúð" hefur
verið efst á baugi í allri umræðu fyrir
kosningarnar á morgun.
„Sambúðarvandamálið" hefur
vakið uþp harðar deilur meðal
stjórnarandstæðinga á hægri
vængnum. Jacques Chirac leiðtogi
Gaullista er skipa helsta stjórnar-
andstöðuflokkinn RPR, hefur hald-
ið fram að slík „sambúð" sé mögu-
leg. Líklegt þykir að Chirac setjist í
forsætisráðherrastólinn vinni hægri
flokkarnir kosningarnar.
Raymond Barre, vinsælasti
íhaldsmaður Frakka, segir hinsvegar
„sambúð“ vinstrisinnaðs forseta og
hægrisinnaðrar ríkisstjórnar ekki
geta gengið og hefur vitnað óspart í
Charles De Gaulle heitinn, stofn-
anda fimmta lýðveldisins, niáli sínu
til stuðnings.
Samkvæmt stjórnarskrá fimmta
lýðveldisins hefur forseti vald yfir
utanríkismálum og varnarmálum
landsins og það er því nokkuð Ijóst
að vandamál eiga eftir að koma upp
vinni bandalag hægriflokka sigur í
kosningunum eins og skoðanakann-i
anir hafa bent til.
Svo virðist sem Ramiz Alia hinn
nýi leiðtogi Albaníu sé áhugasamari
um aukin samskipti við vestrænar
þjóðir heldur en tengsl við kommún-
ista.
Alia tók við völdum á þessu
minnsta og mest einangraða komm-
únistaríki Evrópu á síðasta ári eftir
lát Envers Hoxha sem stjórnað hafði
landinu í anda Stalíns í fjóra áratugi.
Hoxha var mikill stalínisti og lét
aldrei af sannfæringu sinni í þeim
efnum. Hann sagði oft Albaníu vera
eina kommúnstaríkið í heiminum og
gagnrýndi bæði Kínverja, sem voru
bandamenn Hoxha á árunum milli
1961 og 1978, og Austur-Evrópu-
þjóðir fyrir að hverfa frá hinni
„sönnu stefnu". Tengsl Albaníu við
aðrar þjóðir hafa því ávallt verið lítil
og íandið sannarlega það leyndar-
dómsfyllsta í Evrópu.
Á síðustu árum Hoxha og eftir að
Alia tók við leiðtogastarfinu hafa
stjórnvöld í Albaníu gefið greinilega
bendingu um að þau hafi áhuga á
auknum efnahagslegum samskiptum
við þjóðir á borð við Ítalíu og
Frakkland. Þá hafa stjórnvöld í Al-
baníu sýnt vilja til að stofna til
stjórnmálatengsla við bæði V-Þýska-
land og Bretland og er reyndar búist
við að V-Þjóðverjar opni sendiráð í
höfuðborg landsins Tirana á þessu
ári.
Bundinn hefur verið endi á opin-
bert stríðsástand milli Albaníu og
Grikklands og landamæri ríkjanna
eru nú opin þ.e. fyrir þá fáu sem leyfi
hafa til að fara þar yfir.
Albanía hefur opnað dyr sínar lít-
ið eitt en enginn skyldi þó halda að
þær verði rifnar upp á gátt á næst-
unni. Þó má örugglega segja að þetta
leyndardómsfulla land sé aðgengi-
legra nú en það hefur verið síðustu
fjörutíu árin.
(Stuðst við Sviss Press Review)
Ókyrrð í
Kampala
Kampala-Rcutcr.
Ríkisstjórnin í Uganda hefur beð-
ið þegna sína að sýna stillingu og
friðsemd og taka lögin ekki í sínar
hendur. Tilkynning þessi kom í kjöl-
farið á glæpum og ofbeldisaðgerðum
sem mikið hefur borið á síðustu daga
í kringum höfuðborgina Kampala.
Paul Semogerere innanríkisráð-
herra sagði að embættismenn þeir er
tengdust fyrri stjórnvöldum hefðu
margir hverjir mátt þola barsmíðar
og í sumum tilvikum hefðu þeir verið
drepnir.
Síðasta fórnarlamb ofbeldisað-
gerðanna var lögfræðingurinn Flavi-
ani Kyambadde sem skotinn var til
bana á heimili sínu í fyrrinótt.
Nýlega brutust 27 fangar út úr ör-
yggisfangelsinu í Luzira sem er að-
eins fáeinum kílómetrum austur af
Kampala og setja margir flótta
þeirra í samband við aukin rán og
aðrar ofbeldisaðgerðir í kringum
Kampala.
í höfuðborginni sjálfri er einnig
farið að bera á nokkurri ókyrrð
vegna endurkomu hermanna sem
hliðhollir voru Tito Okello fyrrver-
andi leiðtoga landsins.
Svíþjóð:
Oryggi er í
hávegi haft
Stokkhólmur-Reuter
Miklar öryggisráðstafanir hafa
verið gerðar vegna útfarar Olofs
Palme sem fram fer frá ráðhúsinu í
Stokkhólmi í dag. Viðstaddir jarðar-
för Palme verða leiðtogar og sendi-
fulltrúar rúmlega hundrað ríkja.
Lögreglan í Stokkhólmi erviðöllu
búin og munu um 1500 einkennis-
klæddir lögreglumenn sjá um að allt
fari fram samkvæmt áætlun. Þá eru
um 200 öryggisverðir og ótilgreindur
fjöldi óeinkennisklæddra lögreglu-
manna á vakt.
Viðstaddir útförina verða meðal
annars George Shultz utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, Nikolai Ryz-
hkov forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, Francois Mitterrand forseti
Frakklands og Rajiv Gandhi for-
sætisráðherra Indlands.
„Við erum ekki áhyggjufullir en
erum á verði,“ sagði Leif Hallberg
lögreglufulltrúi og bætti við að allar
öryggisráðstafanir hefðu verið sér-
lega vel skipulagðar.
Þjóðarleiðtogararnir munu sækja
minningarathöfnina í ráðhúsinu sem
byggt var árið 1920 og þykir jafnan
vera tilkomumesta bygging höfuð-
borgarinnar. Lögreglan hefur sagt
tiltölulega auðvelt að gæta þeirrar
byggingar.
Allar verslanir verða lokaðar og
öll atvinnutæki munu stöðvast í Sví-
þjóð í dag vegna útfararinnar sem
sjónvarpað verður beint og m.a. til
íslands.
Útför Olofs Palme verður gerð í dag.
Fjöldi þjóðarleiðtoga verður við-
staddur útförina sem fram fer í
Stokkhólmi.
ÞU
HORF___
INNÍ
SKÁPANA
ÍDAG
HVAÐ ER ÞAÐ SEM BARNIÐ
Kemst það í hættuleg efni og lyf í eldhúsi, baðherbergi eða
bílskúr?
Hreinsaðu burt allt slíkt sem ekki ergeymt á barnheldum stað.
EN MENGAÐU EKKI UMHVERFIÐ MEÐ ÞVÍ.
Láttu það ekki í öskutunnu eða klósettskál.
í DAG!
Verðum við allar helstu bensín-
stöðvar landsins í dag kl. 1—6.
Tökum við hættulegum efnum
og eyðum þeim á öruggan og
skaðlausan hátt.
SLYSAVARNAFÉIAG ÍSIANDS
1 ^ o
Æ • ■
11 ÍÉÉ
■■.. ■ ■