Tíminn - 15.03.1986, Qupperneq 23

Tíminn - 15.03.1986, Qupperneq 23
Laugardagur 15. mars 1986 llllilM ÚTVARP/SJÓNVARP lllllililllllllllllllílllllllli -:/i!!i'!!íill!Í!^Í'liil^llli!SI!líliill!ll!lll!lll Sjónvarpið og Rás 1 laugardag kl. 21.05: Hvaða lag fer til Bergen? Bein útsending frá útför Olofs Palme í dag kl. 12.45 liefst bein útsend- ing í sjónvarpi frá útfararathöfn Olofs Palme, forsætisráðherra, í Stokkhólmi. Stefán Jóhann Stefánsson, fréttamaðurútvarpsins í Svíþjóð, lýstir athöfninni. Út- sendingin stendur til um kl. 16.15. I upphafi útsendingar er 15 mín. inngangur, þar sem kynntir eru gestir og það sent fram fer. Kl. 13 hefst minningarathöfn í Ráðhúsinu í Stokkhólmi. Aðal- ræðu flytur Ingvar Carlsson, ný- skipaður forsætisráðherra Svía. Síðan verður fylgst með ferð lík- fylgdarinnar um götur Stokkhólms til Adolf Frederikskirkju þar sem Olof Palme verður jarðsettur. Brottnámið úr kvennabúrinu Á morgun kl. 15 sýnir’Sjónvarp- ið óperuna Brottnámið úr kvenna- búrinu eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Flytjendur eru Sinfóníu- hljómsveit Berlínarútvarpsins und- ir stjórn Georg Solgi og söngvar- arnir Anneliese Rothenberger, Werner Krenn. Peter Pasetti. Osk- ar Dzerwenka, Judith Blegen og Gerhard Stolze. Söguþráður er einfaldur: Spænskur aðalsmaður kemur til Tyrklands til að frelsa sína heitt- elskuðu úr kvennabúri, og óperan cr í léttum dúr. Þýðandi er Oskar Ingintarsson. Hin glæsilega Annaliese Rothen- berger fer með aðalhlutverkið í óperunni. Brottnámið úr kvenna- búrinu, sem flutt verður í Sjón- varpinu á morgun kl. 15. Bobbysocks eru komnar til landsins og kvöld. - svarið fæst í kvöld í kvöld kl. 21.05 rennur stóra stundin upp. Þá hefst bein útsend- ing úr sjónvarpssal í Sjónvarpinu og á Rás 1 frá úrslitakeppninni um hvaða íslenskt lag verður þess heið- urs aðnjótandi að taka þátt í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu 1986 sem fram fer í Bergen 3. maí nk. Nú Itafa allir haft tækifæri til að kynnasérþau 10 lögsem valin voru til úrslitakeppninnar og hafa kannski meira að segja myndað sér skoðun um hvaða lag sé best fallið til að tryggja sér sigursætið. Eins og vera ber í keppni sem þessari hafa komið fram ábendingar um að ein- hver laganna eigi ekki heirna í keppninni, þar sem brotnar hafi verið hinar og þessar reglur sem henni hafa verið settar, en þau dcilumál verða úr sögunni þegar úrslitakeppnin hefst. Það verður auðvitað mikið um dýrðir í stjónvarpssal í kvöld. Þar koma enn einu sinni fram söngvar- arnir Björgvin Halldórsson, Eirík- ur Hauksson, Erna Gunnarsdóttir og Pálmi Gunnarsson og flytja úr- valslögin ásamt „Stórsveit Sjón- varpsins" undir stjórn Þóris Bald- urssonar og Gunnars Þórðarsonar, sem útsettu lögin. Fimm manna dómnefnd velur síðan sigurlagið og höfundur/höfundar veita verðlaun- um sínurú viðtöku. Kynnir verður „La’r det svinge“ í sjónvarpssal í (Tímamynd Sverrir) Jónas R. Jónsson. Og til að auka á dýrðina heiðra norsku stúlkurnar Elisabeth Andreasson og Hanne Krogh, sjálfar Bobbysocks, sigurvegararn- ir frá í fyrra, samkomuna með nær- veru sinni og syngja þrjú lög. Sjónvarp laugardag kl. 12.45: Sjónvarp sunnudag kl. 15 Laugardagur 15. mars 7.00 Veðurtregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Tónleikar, þulur velur og kynnir. 7.20 Morguntrimm. 7.30 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 8.30 Lesið úr forustugreinum dagblað- anna. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga Helga Þ. Stephensen kynnir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál Endurtekinn þáttur frá kvöldinu áður sem Örn Ólafsson flytur. 10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga, framhald. 11.00 Heimshorn - Portúgal Ólafur Angan- týsson og Þorgeir Ólafsson taka saman þátt um þjóðlif, menningu og listir i Portúgal á líðandi stund. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.50 Hér og nú Fréttaþáttur í vikulokin. 15.00 Miðdegistónleikar a. „Rienzi", for- leikur effir Richard Wagner. b. Fiðlukons- ert op. 36 eftir Arnold Schönberg. Swi Zeitlin leikur með Sinfóníuhljómsveit út- varpsins í Munchen; Rafael Kubelik stjórnar. 15.50 Islenskt mál Gunnlaugur Ingólfsson flytur þáttinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Listagrip Þáttur um listir og menn- ingarmál. Umsjón: Sigrún Björnsdóttir. 17.00 . Framhaldsleikrit barna og unglinga: .„Árni 1 Hraunkoti“ eftir Ármann Kr. Einarsson. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Sögumaður: Gísli Alfreðsson. Þriðji þáttur: „Týndipilturinn". Leikendur: Hjalti Rögnvaldsson, Anna Kristín Árngrímsdóttir og Steindór Hjör- leifsson. (Áðurflutt 1976). 17.35 „Empire Brass“ blásarakvintettinn leikur tónlist eftir Tommaso Albinoni, Wolfgang Amadeus Mozart, Viktor Ewald, Claude Debussy o.fl. (Hljóðritun frá tónleikum í Austurbæjarbíói i fyrra). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 „Sama og þegið“ Umsjón: Karl Ágúst Úlfsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason. 20.00 Leikrit: „Á sumardegi i jurtagarði“ eftir Don Hayworth. 21.05 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu 1986 - Urslit islensku keppninn- ar. Bein útsending úr sjónvarpssal. Stór- sveit sjónvarpsins leikur þau 10 lög sem kynnt hafa verið að undanförnu. Söngv- arar: Björgvin Halldórsson, Eiríkur Hauksson, Erna Gunnarsdóttir og Pálmi Gunnarsson. Útsetning og hljómsveitar- stjórn: Gunnar Þórðarson og Þórir Bald- ursson. Gestir verða Bobbysocks sem sigruðu í siðustu söngvakeppni. Fimm manna dómnefnd velur sigurlagið og af- hent eru verðlaun. Kynnir: Jónas R. Jónsson. 22.25 Veðurfregnir. 22.30 Fréttir. Dagskrá. Orð kvöldsins. 22.45 Lestur Passiusálma (42). 22.55 Bréf frá Danmörku Dóra Stefáns- dóttir segir frá. 23.25 Danslög 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar Umsjón: Jón Örn Marinósson. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á RÁS 2 til kl. 03.00. 10.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Sigurður Blöndal. 12.00 Hlé. 14.00 Laugardagur til lukku Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00 Listapopp Stjórnandi: Gunnár Salv- arsson. 17.00 Hringborðið. Erna Arnardóttir stjórn- ar umræðuþætti um tónlist. 18.00 Hlé. 20.00 Bylgjur Ásmundur Jónsson og Arni Daníel Júlíusson kynna framsækna rokk- tónlist. 21.00 Djassspjall Stjórnandi: Vernharður Linnet. 22.00 Bárujárn Þáttur um þungarokk i umsjá Sigurðar Sverrissonar. 23.00 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur- jónsson. 24.00 Á næturvakt með Heiðbjörtu Jó- hannsdóttur. 03.00 Dagskrárlok. Laugardagur 15. mars 12.15-16.15 Útför Olofs Palme Bein send- ing frá Stokkhólmi. Stefán Jóhann Ste- fánsson segir frá athöfninni. 16.00 íþróttir og Enska knattspyrnan Um- sjónarmaður Bjarni Felixson. 19.25 Búrabyggð (Fraggle Rock) Tiundi þáttur Brúðumyndaflokkur eftir Jim Henson. Þýðandi Guðni Kolbeinsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Augiýsingar og dagskrá 20.35 Staupasteinn (Cheers) Lokaþáttur Bandarískur gamanmyndaflokkur. Þýð- andi Guðni Kolbeinsson. 21.05 Söngvakeppni sjónvarpsstöðva í Evrópu 1986 Urslit islensku keppninn- ar. Bein útsending úr sjónvarpssal. í þessari dagskrá verða flutt þau tiu lög sem kynnt hafa verið að undanförnu. Stórsveit Sjónvarpsins leikur. Söngvarar: Björgvin Halldórsson, Eiríkur Hauksson, Erna Gunnarsdóttir og Pálmi Gunnars- son. Útsetning og hljómsveitarstjórn: Gunnar Þórðarson og Þórir Baldursson. Gestir verða Bobbysocks sem sigruðu í Söngvakeppninni i fyrra. Þær koma fram og syngja þrjú lög. Fimma manna dóm- nefnd velur sigurlagið og höfundur/ höfundar taka við verðlaunum sínum. Kynnir Jónas. R. Jónsson. Útsendingu stjórnar: Egill Eövarðsson. 22.30 Kærastinn (The Boy Friend) Bresk dans- og söngvamynd frá 1971. Leikstjóri Ken Russel. Aðalhlutverk: Twiggy ásamt Christhopher Gable, Tommy Une og Max Adrian. Myndin gerist á kabarettsýningu á þriðja áratugi aldarinnar. Stjarnan hefur tognað á fæti og aðstoðarstúlka leikstjór- ans, Twiggy, veröur að hlaupa í skarðið. Henni er það ekki óljúft hlutverk þar sem mótleikarinn er draumaprinsinn hennar. Þýöandi Baldur Hólmgeirsson. 00.25 Dagskrárlok. Tíminn 23 FRAMTÆKNI s/f Vélsmiðja Járnsmiði - Viðgerðir Vélaviðgerðir - Nýsmiði Skemmuveg 34 N 200 Kópavogur lceland Tel. 91-641055 BÍLALEIGA Útibú /' kringum landið REYKJAVÍK:.... 91-31815/686915 AKUREYRI:...... 96-21715/23515 BORGARNES:.............93-7618 BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489 HÚSAVÍK:........96-41940/41594 EGILSSTAÐIR:...........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR:.....97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303 interRent Aðalfundur Flugleiða hf. verður haldinn fimmtudaginn 20. mars 1986 í Kristalssal Hótel Loftleiða og hefst kl. 13.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. samþykkta félagsins. 2. Breytingar á samþykktum félagsins. 3. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Aögöngumiöar og atkvæöaseðlar verða afhentir á aöalskrifstofu fé- lagsins Reykjavíkurflugvelli, frá og meö 13. mars n.k. frá kl. 08.00 til 16.00. Afhending atkvæðaseðla lýkur á hádegi fundardag. Stjórn Flugleiða hf. Útboð Fyrir hönd byggingarnefndar sjúkrahúss og heilsu gæslustöðvar St. Fransiskureglunnar í Stykkis- hólmi óskar VST hf. eftir tilboðum í loftstokka í ný- byggingu sjúkrahússins. Um er að ræða um 4700 kg af blikki auk annars. Verkinu skal skila í áföngum á árunum 1986 og 1987. Útboðsgögn verða afhent hjá VST í Ármúla 4., Reykjavíkfrá 17. mars. Tilboð verða síðan opnuð þar þriðjudaginn 8. apríl kl. 11.00. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN HF VERKFRÆÐIRÁÐGJAFAR FRV Iðnaðarhúsnæði - Hvolsvöllur Til leigu er ca. 170 ferm. húsnæði á Hvolsvelli. Heppilegt fyrir léttan iðnað. UpplýsingargefurÓlafurSigfússon, sími 99-8124.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.