Tíminn - 18.03.1986, Blaðsíða 11
10 Tíminn
’t----
Þriðjudagur 18. mars 1986
Þriðjudagur 18. mars 1986
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
'íii'T-ffrMtiwniiairrilnflBi
Norskur handknattleikur:
Stavanger deildarmeistari
Annar titilinn sem félagið vinnur undir stjórn Helga Ragnarssonar - Jakob var bestur - Helgi hugsanlega á
förum til Ski - Tekur Morten Stig við af honum?
Frá Magnúsi Magnússyni fréttaritara Tímans i
Noregi:
Stavanger, liðið seni Helgi Ragn-
arsson þjálfar, tryggði sér sigur í
norsku deilclarkeppninni í hand-
knattleik um helgina. Stavanger
vann þá neðsta liðið í deildinni,
Rcfsstad, með 34 mörkum gegn 25.
Jakob Jcrnsson var besti leikmaður
Stavangerogskoraði hann sex mörk.
Á sama tíma og þessi leikur var þá
tapaði Fredriksborg Ski, sem Gunn-
ar Einarsson þjálfar, fyrir Skien 26-
27. Ski hefði getað náð Stavenger að
stigum en það hefði ekki skipt máli
þar sem markatala Stavanger var
miklu betri. Bæöi þessi lið fara nú í
úrslitakeppni ásamt Urædd og Skien
en sú keppni hefur ekki mikið gildi
og gefur lítið annað en heiður í aðra
hönd.
Norsk blöð hafa að undanförnu
sagt að Helgi væri á förum frá Stav-
anger og til Ski. Þá hefur Sveinn
Bragason sem spilar með Stavenger
ákveðið að konta heim. Jakob ntun
hinsvegar verða um kyrrt hjá
Stavanger að öllum líkindum. Hvort
V-þýskur handknattleikur:
Morten Stig gæti verið á leið til Stav-
anger.
Molar.
■ ítalska 1. deildarliðiö AC Mi-
lanó tikynnti í gær að liðið hcfði
fest kaup á iniðvallarspilaranum
Danicl Massaro frá Fiorentina.
Þetta er liður í upphyggingu sjón-
varpseigandans Bcrlusconi, sem
nýverið eignaðist mcirihluta í lið-
inu, í að gera það að stórvcldi.
■ Læknir sá sem nýverið skar
Zico, stjörnu Brasilíumanna í
knattspyrnunni, upp vegna
mciðsla í hné sagði fyrir stuttu að
Zico myndi ekki þurfa annan
uppskurö vegna þcssara mciðsla.
I'á bætti hann við að Zico gæti
fariö að æfa eftir rúma viku og
ætti að vera orðinn góður fyrir
HM í Mexíkó. Brasilíumenn tóku
þessum fréttum með mikilli gleði.
■ V-þýska stúlkan Traudl Hac-
her mun ekki keppa meir í heims-
hikarkeppninni á skíðum. Ástæð-
an er sú að hún mciddist á ælingu
fyrir keppni í Bandaríkjunum um
daginn og þarf að skera hana upp
á hné. Hacher var efst í stiga-
kcppninni í risasvigi fyrir síðustu
helgi.
■ Þjálfari v-þýska landsliösins í
knattspyrnu, Franz Beckcnba-
uer, hefur gelið landa sínum,
Bernd Schuster, sem spilar með
Barcclona á Spáni, fjögurra vikna
frest til að ákvcða hvort hann vilji
vera nieð í undirbúningi Þjóð-
verja fyrir HM í Mcxíkó. Becken-
hauer sagði þctta um daginn eftir
að Þjóöverjar unnu Brasilíunieiin
í vináttuleik. Hann hefur marg-
sagt að hann myndi fagna því að
geta notaö jaln góðan niiðvallar-
spilara í sínu liöi og Schuster er.
■ Kuwait hcfur rekið knatt-
spyrnuþjálfara sinn liinn enska
kjaftask Malcolm Allison cftir
aðeins níu inánuði í starfi. Allison
er Ijórði þjálfarinn scm Kuwait
rekur á Ijórum árum.
Atli sleit hásin
|- og verður 1 rá í að minnsta kosti þrjá mánuði - Hamlen og Wanne duttu úr bikarnum
Frá Cfiiðmundi Kurlssyni í l'yskalaiidi:
Deildarbikarkeppnin setti svip
sinn á handknattleikinn í Þýskalandi
um helgina. „íslensku liðin“ léku öll
og gekk á ýmsu. Sorglegasta atvikið
átti sér stað í leik Gunzhurg og
Grimsheim. Þegar um 10 mínútur
voru til loka leiksins þá slitnaði hásin
á öðrum fæti Atla Hilmarssonar og
varð að fara með hann á sjúkrahús í
skyndi. Er víst að Atli verður frá
keppni í a.m.k. þrjá mánuöi. Gunz-
burg unnu þó lcikinn 24-20.
í öðrum leikjum hjá íslensku
Atli Hilmarsson meiddist illa um helgina og verður lengi frá.
Stjörnukvöld í Höllinni í kvöld:
Hver er besti troðarinn?
I kvöld verður sannkallað stjörnu-
kvöld í Laugardalshöll er sniðið
verður í kringum pressulpik í körfu-
knattleik. Það verður margt til
skemmtunar á þessu kvöldi sem
landsliðsnefnd í körfuknattleik,
NIKE á íslandi og Samtök íþrótta-
fréttamanna standa fyrir. Skemmt-
Perryman frá Spurs?
Hefur fengið frjálsa sölu eftir drjúg ár hjá liðinu
Steve Perryntan, fyrirliða Totten-
ham t' ensku knattspyrnunni, hefur
verið gefin frjáls sala. Þetta þýðir að
honum er frjálst að fara til hvaða liðs
sem hann vill. Þessi ákvörðun var
tekin eftir að slitnaði uppúr samn-
ingaviðræðum hans við Tottenham
um nýjan samning. Tottenham vildi
semja til eins árs en Perryman vildi
gera samning til tveggja ára. Pcrry-
man er 34 ára og hefur spilað 860
sinnum með Tottenham. Hann
hefur verið fvrirliði síðan 1974
og í liðinu síðan 1967. Hann hefur
leikið einn landsleik fyrir England
(gegn íslandi) og verið valinn knatt-
spyrnumaður ársins einu sinni.
unin hefst kl. 20.00 með leik ís-
landsmeistara KR í innanhússknatt-
spyrnu gcgn Reykjavíkurúrvali sem
Magnús Jónatansson stjórnar. Tals-
vcrðar líkur eru á því að Argentínu-
maðurinn Marcelo Housemann spili
með KR. Þá verða Vígamenn frá
Karatesambandinu á ferðinni svoog
Stjörnulið Ómars Ragnarssonar og
eldri gullaldarmenn úr handknatt-
leiknum munu skjóta nokkrum föst-
um boltum. Þá verður í hálfleik á
pressuleiknum í körfuknattleik
fyrsta troðslukeppnin sem fram fer
hér á landi. Munu þar mætast þekkt-
ar stjörnur ásamt nokkrum þeim sent
troða af snilld. Aðgöngumiðar ntunu
kosta 200 krónur og 100 krónur fyrir
börn.
Liverpool áfram
sent Helgi Ragnarsson fer til Ski eða
eitthvaö annað þá hefur hann sterka
samningsstöðu eftir velgengni Stav-
anger á þessu ári.
Blöðin í Noregi segja að fyrirliði
danska landsliðsins í handknattleik,
Mortcn Stig Christiansen, muni
verða þjálfari Stavanger á næsta
tímabili. Myndi hann þá verða spil-
andi þjálfari. Morten Stighefurátt í
viðræðum við Stavanger en ekki er
þó búið að ganga frá neinu sam-
komulagi.
strákunum gerðist það lielst að
Dankersen sigraði lið úr4. deild með
23 mörkum gegn 17. Páll skoraði þrjú
mörk en sagðist hafa átt í vandræð-
um þar sem klístur er ekki leyft í 3.
og 4. deild og því ekki í þessum leik.
Essen sigraði Handewitt með 30
mörkum gegn 20. Þar varð Alfreð
Gíslason fyrir hnjaski á hné eftir að
hafa verið búinn að skora fimm
mörk. Meiöslin cru ekki alvarlcg.
Kristján Arason og félagar hjá
Hamlen töpuðu fyrir Nettlestedt 20-
27 og skoraði Kristján 7 mörk.
Bjarni Guðmundsson skoraði fjögur
mörk í tapi fyrir liði úr 3. deild og er
Wanne þar með úr leik. Sigurður
Sveinsson sat á bekknum er Lemgo
vann Alt Jurden 24-20. Sigurður
reiknar með að spila í næsta leik.
Sjö hjá Stuttgart
Frá Gudmundi Karlssyni í Fýskalandi:
Ásgeir Sigurvinsson lék ekki með
Stuttgart er liðið fór á kostum gegn
Dússeldorf. Stuttgart sigraði 7-0 sem
er stærsti sigur liðsins á útivelli.
Klingsman skoraði fimm markanna.
Lárus Guðmundsson lék ágætlega
og lagði upp mark á leik Uerdingen
og Dortmund sem Uerdingen vann
2-0.
Bremcn og Bayern unnu bæði á
útivöllum og halda Brimaborgarar
þar með fjögurra stiga forskoti í efsta
sæti deildarinnar:
Dusseldorf-Stuttgart............. 0-7
Köln-Hanover..................... 3-0
Mannheim-Bayern Miinchen......... 0-4
Nuremberg-Shalke................. 3-1
Frankfurt-Werder Bermen.......... 0-2
Uerdingen-Dortmund............... 2-0
Hamborg-Saarbriicken ............ 4-0
Bochum-„Gladbach" ............... 2-2
Kaiserslautern-Leverkusen 4-1
Stada efstu liöa:
Werder Bremen 27 18 6 3 73 36 42
Bayern Munchen 27 17 4 6 60 28 38
„Gladbach" 25 13 8 4 55 35 34
Hamborg 24 12 4 8 39 23 28
L^verkusen 25 10 8 7 48 38 28
Stuttgart 26 11 6 9 52 38 28
Uerdingen 23 10 5 8 35 49 25
Chris Waddle var í landsliðsstuði er hann skoraði á móti Birmingham um helgina.
Enska knattspyrnan:
Everton rétt slapp
- í viðureign sinni við Chelsea - United tapar enn einu sinni - Liverpool vann
sannfærandi - Waddle og Hoddle frábærir - Martin rekinn útaf
Frá Rafni Rafnssyni í Englandi:
Jöfnunarmark frá Kevin Shccdy
þegar um fjórar mínútur voru til
leiksloka í viðureign Everton og
Chelsea í Goodison Park á sunnu-
daginn tryggði Everton þriggja stiga
forskort í ensku deildinni. Liðið á
þar að auki leik til góða á Liver-
pool sem vermir annað sætið eftir
góðan sigur á Southampton. Chelsea
er nú í fjórða sæti á eftir Manchester
United. Chelsea er átta stigum á eftir
Everton en á þrjá leiki til góða sem
gætu reynst liðinu vel þar sem Chels-
ea er úr leik í báðum bikarkcppnun-
um.
Lundúnapiltarnir frá Chelsea
þurftu aðeins 12 mínútur til að skora
á Goodison. Markvörður Chelsea,
Eddie Niedzwiecki, átti þá þrumu-
sendingu fram völlinn og enginn átt-
aði sig á tuðrunni fyrr en Gerry
Murphy frá Chelsea var búinn að
senda hana í netið, 0-1. Everton sótti
mjög í síðari hálfleik en Niedzwiecki
var í svaka formi og varði vel hvað
eftir annað. Það var síðan varamað-
ur Everton, Adrian Heath sem slapp
laus rétt fyrir leikslok og sendi vel á
höfuðiðáSheedysemskallaði inn, 1-
1.
Liverpool virtist vera á leiðinni til
glötunar er mistök Grobba mark-
varðar urðu til þess að Lawrence
náði forystu fyrir Southampton rétt
eftir leikhlé. Svo var þó ekki. Vit-
andi það að Dalglish yrði vondur eftir
leik ef þeirynnu ekki þá tóku leik-
menn Liverþool sig saman í andliti
og fótum og þeir Wark og Rush skor-
uðu mörk með nokkurra mínútna
millibili. Eftir þetta var Liverpool
miklu betra.
Manchester United varð að sætta
sig við enn eitt tapið þrátt fyrir að
Atkinson hafi keypt enn einn leik-
manninn í síðustu viku. Davenport
sem kom frá Forest skoraði reyndar
mark í leiknum gegn QPR en það var
dæmt af. Það var Byrne sem skoraði
sigurmark QPR rétt fyrir leikslok.
Leikur þessi var hálfgerð martröð
fyrir Frank Stapleton hjá United sem
ekki virðist vera með á nótunum um
þessar rnundir. Hann fékk tvö
dauðafæri í leiknum en klúðraði
báðum á eftirminnilegan hátt.
Arsenal náði sigri á West Ham í
Lundúnaderbyleik liðanna. Tony
Woodcock skoraði eina mark leiks-
ins. Alvin Martin hjá West Ham var
rekinn af velli í Ieiknum og ekki bætti
það úr skák fyrir West Ham sem
þurfti á stigum í þessum leik að halda
til að eiga von á toppbaráttunni.
Tottenham er að ná sér á strik.
Liðið vann auðveldan sigur á Birm-
ingham 2-1 og segir markatalan ekki
Blak:
Stíf helgi Þróttara
- unnu fyrstu viðureignina gegn ÍS um íslandsmeistaratitilinn og komust í úrslit bikarsins
Það þurfti að framlengja leik Wat-
ford og Liverpool í ensku bikar-
keppninni í gærkvöldi áður en úrslit
fengust. Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 1-1 en í framlcnging-
unni þá skoraði Ian Rush sigurmark
Liverpool í seinni liluta framlenging-
arinnar. Liverpool mætir því Sout-
hampton í undanúrslitunum á i
White Hart Lane. John Barnes náði
forystu fyrir Watford með marki
beint úr aukaspyrnu. Ian Rush
komst síðan einn í gegn er 4 mínútur
voru eftir af leiknum en var felldur og
eftir rekistefnu skoraði Mölby úr vít-
inu og framlengja varð. Þá reyndist
Rush betri en enginn.
Þróttarar spiluðu tvo mikilvæga leiki í
blakinu um helgina og unnu þá báða.
Á föstudagskvöldið lcku Þróttarar við ÍS í
úrslitakeppni þessara liða um íslandsmeist-
aratitilinn í blaki. Þróttarar unnu þann leik
3-1 og næsta viðureign liðanna um titilinn
verður á föstudaginn kemur. Vinni Þróttarar
þá, þá verða þeir fslandsmeistarar en annars
þarf þriðja leikinn á milli liðanna. Leikurinn
á föstudag var skemmtilegur. ÍS vann fyrstu
hrinuna 15-12 eftir baráttu og voru síðan
komnir vel yfir í næstu hrinu áður en Þróttar-
ar vöknuðu til lífsins og unnu hana 15-13.
Þriðja hrina endaði síðan 15-3 fyrir Þrótt og
þrátt fyrir að Stúdentar hefðu haft yfir 9-6 í
fjórðu hrinu þá unnu Þróttarar 15-12.
Á sunnudag spiluðu Þróttarar síðan gegn
Víkingum í undanúrslitum bikarkeppninnar
og unnu 3-0. Ekki var þetta síður baráttu-
leikur fyrir Þróttarana. Hrinurnar fóru 15-
13, 15-10 og 16-14. Með þessum sigri sínurn
eru Þróttarar komnir í úrslitaleik bikar-
kcppninnar og mæta þar Stúdentum (að
sjálfsögðu) í úrslitaleik á morgun. Leikurinn
verður í Hagaskóla oghefst kl. 19.00. Strax á
eftir verður úrslitaleikurinn í bikarkeppni
kvenna.
Skotland:
Hearts tapar ekki leik
Hearts jafnaði lcikjamet, án taps, í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með því að
sigra Motherwell 2-0 á laugardaginn. Þar með hefur Hearts spilað 24 leiki í röð án þess
að bíða ósigur. Mörk Hearts á laugardaginn gerðu Alex McDonald og John Roberts-
son. Önnur lið sem elta Hearts af krafti misstu öll stig um helgina. Dundee United tap-
aði unnum leik gegn Celtic niður í jafntefli er MacLeod jafnaði fyrir Celtic rétt fyrir
leikslok. Þá gerði Aberdeen aðcins jafntefli gegn St. Mirren. Miller jafnaði fyrir Aber-
deen undir lok leiksins.
allt. Þeir Hoddle og Waddle voru frá-
bærir í leiknum og gladdist Bobby
Robson landsliðsþjálfari verulega
við þá sjón en hann var meðal áhorf-
enda á leiknum. Kennedy skoraði
fyrir Birmingham en Waddle og Ste-
ven skoruðu mörk Spurs.
Sheffield Wednesday náði sigri í
Coventry með marki frá Sterland og
Oxford náði óvæntum sigri á Luton á
gervigrasinu 1-2. Price skoraði fyrir
heimamcnn en Aldridge jafnaði úr
víti og Charles skoraði sigurmarkið.
Watford vann eins og Sheffield og
Oxford á útivelli. Terry skoraði
mark þeirra á Maine Road og varaöi
Liverpool við leik liðanna á mánu-
dagskvöldið (í gær).
Newcastle fór létt með Ipswich.
Wilson náði reyndar forystu fyrir
Ipswich en Beardsley, Withehurst og
Cascoigne tryggðu sigur Newcastle.
Notthingham Forest og Aston
Villa skildu jöfn á City Ground í
Nottingham. Clough skoraði úr víti
fyrir heimamenn en Walters skoraði
fyrir gestina. WBA og Leicester
skildu einnig jöfn. Varardi og
Mckenzie skoruðu fyrir heimamenn
en Seeley náði báðum mörkum Leic-
ester.
f 2. deild var stórleikur á nrilli
Charlton og Portsmouth. Ports-
mouth náði mjög mikilvægum sigri
með mörkum frá Channon og
O’Challagan. Norwich og Portsmo-
uth cru að stinga af í 2. deild.
Vináttuleikur í knattspyrnu:
Brössunum skellt
- Ungverjar unnu þá í þriðja sinn - Lokatölur 3-0
Ungverjar áttu ekki í erfiðleikum
með að sigra kalda Brasilíumenn í
vináttulandsleik þjóðanna í knatt-
spyrnu sem frarn fór í Búdapest á
sunnudaginn. Leiknum lyktaði 3-0
fyrir Ungverjana sem voru nrun á-
kveðnari og undirstrikuðu þar með
að þeir eru með eitt af betri liðum í
Evrópu í dag.
Brasilíumenn komust aldrei inní
þennan leik. Veður var mjög kalt og
Ungverjar gáfu þeim heldur aldrei
frið til að byggja upp sitt netta spil.
Miðjumennirnir hjá Ungverjum,
sérstaklega þeir Detari og Hannich,
réðu lögum og lofum í þessum leik.
Detari skoraði fyrir heimamenn
strax á fimmtu mínútu og þaðvar nóg
til að vara Brassana við. Þeir urðu að
bíða í um 20 mínútur áður en þeir
gátu sett saman nægilega góða sókn
til að ógna marki Ungverja-. Þá átti
Elzo skot að marki sem sleikti stöng-
ina og Renato komst í gott færi stuttu
seinna en klikkaði.
Ungverjar geröu síöan útum leik-
inn í upphafi síðari hálflciks er vara-
maðurinn Kovacs skoraði eltir að
Leao, markvörður Brassanna, hafði
varið frá Detari en misst frá sér tuör-
una. Undir lok leiksins bætti síðan
Esterhazy við marki eftir sendingu
frá Detari.
Ungverjar hafa spilað fjórum
sinnum gegn Brössunum og unnið
þrjá leiki en gcrt eitt jafntefli. Eru
Ungverjar eitt af fáum liðum sem
Brassarnir hafa ekki unnið.
Þjálfari Ungvcrja, Gyorgy Mezcy,
sagði cftir leikinn að hann væri
ánægður með sína menn cn væri
jafnframt viss um að Brassarnir
myndu vinna HM í Mexíkó. Tele
Santana þjálfari Brassanna sagðist
vera þokkalega ánægður með fcrð
þeirra til Evrópu. „Við lékum án sex
lciknranna sem munu spila með í
Mexíkó en mér tókst þó að líta á
nokkra nýliða í leik undir pressu og
það hjálpar."
Morten Frost vann léttilega á All-England mótinu.
All-England í badminton:
ENGLAND
ÚRSLIT
1. deild:
Arsenal-West Ham 1-0
Birmingham-Tottenham . . . 1-2
Coventry-Sheff. Wed 0-1
Luton-Oxford 1-2
Man. City-Watford 0-1
Newcastle-Ipswich 3-1
Nott. Forest-Aston Villa . .. 1-1
Q.P.R.-Manchester United . 1-0
Southampton-Liverpool . . . 1-2
West Brom.-Leicester 2-2
Everton-Chelsea 1-1
2. deild:
Barnsley-Bradford 2-2
Blackburn-Millwall 1-2
Brighton-Stoke 2-0
Charlton-Portsmouth 1-2
Fulham-Wimbledon 0-2
Huddersfiéld-Shrewsbury . . 1-0
Hull-Sunderland 1-1
Middlesbrough-Leeds 2-2
Norwich-Carlisle 2-1
Oldham-Crysal Pal 2-0
Sheff. United-Grimsby 1-1
3. deild:
Blackpool-Wigan 1-2
Bristol City-Notts County . . . 3-0
Bury-Bournemouth 3-0
Cardiff-Gillingham 1-1
Derby-Darlington 1-1
Doncaster-Wolves 0-1
Plymouth-Walsall 2-0
Reading-Newport 2-0
Rotherham-Bristol Rovers . . 2-0
York-Chesterfield 2-0
Brentford-Bolton 1-1
4. deild:
Cambridge-Scunthorpe 0-1
Chester-Preston 2-0
Crewe-Rochdale 4-2
Northampton-Peterborough . 2-2
Orient-Exeter 2-2
Port Vale-Tranmere 0-0
Southend-Aldershot 2-0
Swindon-Burnley 3-1
Torquay-Hereford 2-1
Colchester-Mansfield 0-0
Halifax-Wrexham 5-2
Hartlepool-Stockport 1-1
SK0TLAND
Urslit:
Celtic-Dunee United 1-1
Clydebank-Hibernian 1-3
Dundee-Rangers 2-1
Hearts-Motherwell 2-0
St. Mirren-Aberdeen 1-1
Staðan:
Hearts 29 15 9 5 46 28 39
Dundee United 28 13 10 5 44 24 36
Aberdeen 28 13 9 6 50 25 35
Celtic 27 12 9 6 42 32 33
Rangers 30 12 7 11 43 33 31
Dundee 29 12 6 11 38 45 30
Hibernian 29 9 6 14 43 52 24
St. Mirren 27 9 5 13 33 43 23
Clydebank 29 5 6 18 25 60 16
Motherwell 26 5 5 16 24 46 15
STAÐAN
1. deild:
Everton 32 20 6 6 72 36 66
Liverpool 33 18 9 6 65 36 63
Man. United 31 18 5 8 52 25 59
Chelsea 29 17 7 5 47 30 58
Arsenal 30 16 7 7 39 32 55
Sheff. Wed. 31 15 7 9 50 46 52
West Ham 27 15 6 6 42 25 51
Luton 32 14 9 9 49 35 51
Newcastle 30 13 9 8 45 44 48
Nott. Forest 31 14 5 12 53 44 47
Tottenham 32 13 5 14 49 39 44
Watford 28 12 6 10 47 43 42
Man. City 33 11 8 14 36 43 41
Southampton 32 11 7 14 41 43 40
Q.P.R. 33 11 4 18 33 51 37
Coventry 33 9 8 16 44 57 35
Leicester 31 8 10 13 45 56 34
Oxford 31 8 8 15 47 58 32
Ipswich 31 8 5 18 25 45 29
Aston Villa 31 5 11 15 33 50 26
Birmingham 33 7 4 22 25 53 25
West Brom. 32 3 8 21 27 75 17
2. deild:
Norwich 32 20 7 5 67 30 67
Portsmouth 32 18 5 9 53 28 59
Wimbledon 31 16 7 8 42 29 55
Charlton 29 15 6 8 53 33 51
Hull 33 13 10 10 56 48 49
Sheff. United 31 13 8 10 51 45 47
Brighton 30 13 7 10 51 44 46
Crystal Pal. 31 13 7 11 38 37 46
Oldham 33 13 6 14 51 51 45
Barnsley 31 11 10 10 34 33 43
Grimsby 33 11 9 13 48 51 42
Stoke 32 10 12 10 39 42 42
Millwall 29 12 4 13 44 44 40
Blackburn 32 10 10 12 40 47 40
Bradford 29 12 4 13 35 43 40
Huddersfield 32 10 10 12 43 52 40
Shrewsbury 33 11 6 16 41 51 39
Leeds 32 11 6 15 42 54 39
Sunderland 32 9 8 15 34 50 35
Middlesbrough 31 8 8 15 31 41 32
Fulham 28 8 4 16 29 40 28
Carlisle 30 6 6 18 29 58 24
Morten Frost sigraði
Danski badmintonmaðurinn
Morten Frost undirstrikaði það að
hann er sá besti í heiminum í dag eft-
ir sigur á All-England mótinu sem
lauk um helgina. Frost sigraði Mal-
asíumanninn Misbun Sidek nokkuð
aðveldlega í einliðaleik karla 15-2 og
15-8. Þetta er i þriðja sinn sem Frost
vinnur All-England mótið. Að vísu
tóku bestu badmintonleikarar Kína
og Indónesíu ekki þátt í mótinu en
Frost sagði að það hefði ekki skipt
máli. „Ég er viss um að ég hefði sigr-
að hvort sem þeir hefðu verið með
eður ei. Það hlýtur að vera undir
þeim komið hvort þeir spila eða
ekki,“ sagði Frost.
í kvennaflokki sigraði s-kóreska
stúlkan Kim Yun-Ja en hún vann
kínversku stúlkuna Qian Ping í úr-
slitaleik 11-6 og 12-11.
». *