Tíminn - 20.04.1986, Qupperneq 4

Tíminn - 20.04.1986, Qupperneq 4
4 Tíminn Sunnudagur 20. apríl 1986 Khaddafy djöfull! - Kristján Þ. Ben- ediktsson, flugmaður, búsettur í Líbýu segir meðal annars frá við- horfum líbýskra til Bandaríkjanna. „Hvernig er ástandið? Þetta hefur gengið upp og ofan í tæpt ár núna. Bandaríkjaher kom siglandi þarna þrisvar með ógnunum og það var nú í fjórða sinn sem þeir létu verða af þeim.“ „Reagan segist vera með sönnur fyrir sök Khaddafys á hermdarverkum við Bandaríkjamenn í Evrópu. Hann hefur ekki lagt fram neitt órækt.“ „Nei! Khaddafy er ekki geðveikur. Hann er að vísu enginn engill, - en það er gert svo mikið úr einhverjum illverkum úti í heimi og honum kennt um.“ „Það er hugsanlegt að nú ríði yfir alda hryðjuverka í Evrópu." „Khaddafy er óútreiknanlegur!" Þessi orð lét Kristján Þráinn Ben- ediktsson falla á miðvikudaginn var í viðtali við blaðamann Tímans. Kristján hefur verið búsettur í Líbýu undanfarin fimm ár en er nú kominn í heimsókn ti! íslands, - heimsókn sem upphaflega átti að vera stutt, en vegna átaka Reagans og Khaddafy má vera að hann ílendist unt sinn. Kristján er þó staðráöinn í að halda aftur til Líbýu þegar hægist um, enda starfar hann þar sem flugmaður á vegum bandarísks áætlunarflugfé- lags innan Líbýu. Kristján hcfur einnig flogið í Lí- beríu og Malasýu „en bæði ævintýra- þrá og svo ástandið hér heima í flugmálum rak mann út á sínum tíma,“ sagði Kristján. „Ég kont ekki heim vegna yfirvof- andi hættu í Lýbíu. Ég kem hérna heim alltaf öðru hvoru. Ég get ekki sagt, að það hafi ólgað neitt hatur í brjóstum Líbýubúa í garð Bandaríkjanna jtegar ég fór þaðan fyrir tveimur vikum. Banda- ríkjaher hafði komið þarna þrisvar með ógnunum á síðast liðnu ári og það var nú í fjórða sinn sem þeir létu verða af þeim. Maður var hættur að nenna að fylgjast með þessu og orðinri nálf ónæmur fyrir þessu hern- aðarbrölti. En þetta lá alltaf í loftinu og menn bjuggust alveg eins við arasinm. Moammar Khaddafy þungurábrúneftirtilræði viðhann íTripólí 1984. Pú telur ekki að Khaddafy hafi þorað að ganga svona langt í ögrun- um sínum við Bandaríkin í þeirri von, að Bandaríkin myndu aldrei gera hernaðarlega árás? „Ég held að árásin þjappi mönnum meira saman að baki Khaddafy." Ég efast um að Khaddafy hafi ekki gert ráð fyrir því. Það hafa legið þarna úti fyrir ströndum allt upp í fjörutíu bandarísk herskip samtals og auðvitað hefur hann fundið til þess og hugsað sinn gang.“ Hvað segja Líbýumenn um þann orðróm að Líbýa sé hreiður hermd- arverkamanna og örugg borg þeirra ? „Þeir trúa því ekki. Líbýumenn eru algjörlega á móti hermdarverk- um og ofbeldi. Þeir eru ekkert ólíkir okkur hvað þetta snertir og alls ekki eins og hinn vestræni heimur ímynd- ar sér þá, - blóðþyrstir hundar sem espast upp við vopnaskak. Reagan segist geta fært sönnur fyrir sök Khaddcfys á ýmsum hermdarverk- um og morðtilræðum við Banda- ríkjamenn í Evrópu. Samt sem áður hefur hann ekki getað lagt fram neitt órækt. Að sjálfsögðu kviknar í manni efi og fyrir bragðið verða orð Reagans sterkt vopn í höndum Khaddafys í áróðursstríðinu. I þessu tilfelli er það auðvitað sá stærri sem ræðst á minni máttar ríki. En Khaddafy hefur tekist, á 16 ára stjórnarferli sínum sem byltingar- leiðtoga, að vekja þjóð sína og gera hana meðvitaða um gildi þess að vera sjálfstæð þjóð í eigin landi. Hann hefur ávallt kynnt undir ætt- jarðarástina og að sjálfsögðu styður þjóðin við bakið á honum eins og nú stendur á. Ég held satt að segja, að þetta verði til þess að þjappa mönn- um meira saman á bak við Khaddafy og auðvitað taka nágrannalöndin upp hanskann fyrir hann, - þrátt fyrir fornar erjur og deilur. Hann hefur ekki bara fengið samúð þeirra, heldur og allflestra vestrænna ríkja einnig." Pað er stutt síðan helgablað Tím- ans birti grein um leiðtoga Líbýu en í henni stóð meðal annars: „Eftir að herforinginn ungi velti hinum dug- litla kóngi Idris úr valdastóli árið 1969, hcfur hann skarað glóðum elds að höfði sér um allan heim. Ástæðan er sú að hann hefur ekki viljað fara að dæmi annarra valda- ræningja, hygla sjálfum sér í næði og treysta völd sín, heldur hefur hann viljað gerast byltingarleiðtogi. Tvö markmið setur Khaddafy á oddinn: Að vinna að einingu arabaþjóðanna og mynda ríki Palestínuaraba, um leið og ísrael verður afmáð. Pótt margir arabaleiðtogar séu á sama máli, þá fylgja þeir skoðunum sínum ekki eftir af sömu hörkunni.“ „Það er rétt. Hann hefur gert margt fyrir þjóðina. Hann er einn af fáum einræðisherrum ef ekki sá eini, sem hugsar um þjóð sína og kúgar hana ekki. Hann er ekki bara að hugsa um bankareikninginn sinn í Sviss og eig eigurnar í New York. Sjálfur er Khaddafy vel menntaður og þegar hann bylti stjórninni árið 1969 var landið ein eyðimörk og fólk bjó við kröpp kjör. Hann hinsvegar gat nýtt olíugróðann þjóð sinni í hag. Sérhverri líbýskri fjölskyldu er tryggð íbúð og 42 þúsund króna mánaðartekjur. Ætlast er til að fjöl- skyldan geti veitt sér að eiga bíl og sjónvarp og öll læknisþjónusta er ókeypis. Efnahagur Líbýu byggist ein- göngu á olíulindum í jörðu. Til þess að drífa upp olíuframleiðslu í landinu laðaði stjórn Khaddafys til sín út- lenda snillinga í hverju fagi, með því að bjóða þeim gull og græna skóga. Þannig hefur nær menntunarsnauðri þjóð tekist að byggja upp ríkt þjóð- félag, útrýmt fátækt og allir þegnarn- ir eru nú bæði lesandi og skrifandi. Það er búið að byggja ótrúlega mikið upp þarna og Líbýumenn hafa auðvitað þurft aðstoðar við. Öll byrjun er erfið. Þarna liafa verið byggðar upp hafnir, sett upp síma- kerfi, reistar verksmiðjur og hvað- eina. Það er búið að gera svakalega mikið síðan Khaddafy komst til valda. Hann má eiga það. Pessi orð eru oft höfð um Hitler líka, því að hann lagði hraðbrautir, útrýmdi atvinnuleysi og .,..! „Þeir tveir eiga lítið sameiginlegt. Khaddafy er ekki geðveikur. Hann er alveg óvitlaus. Hann er ekki sá ljóti, illi maður sem vestrænir frétta- stjórar lýsa. Ég er ekki að segja að hann sé engill, - en hann er enginn djöfull heldur. Hryðjuverk eru blás- in svo upp í blöðum, honum kennt um og hann látinn líta svo illa út og gert mikið mcira úr en raunverulega er.“ Hvað með þann ótta vestrænna ríkja, að holskefla hryðjuverka muni dynja yfir Evrópu í kjölfar árásar Bandaríkjanna? Er hann ástæðu- laus? „Ég veit ekki en ég vona það. Yfirleitt eru slíkar yfirlýsingar bara í nösunum á honum. En maður veit ekki hvað gerist ef hann sér ævistarf sitt fara í súginn, þjóð sína, ef hann missir konu sína og börn, - þá er náttúrlega hugsanlegt og ekki ólík- legt að hann grípi til örþrifaráða. Auðvitað tekur hann þessu ekki hljóðalaust. Hann hefur gert usla og látið gamminn geysa af minna tilefni en því, að Bandaríkjamenn senda sprengjur á höfuðborg hans.“ Reagan hefur kallað Khaddafy .,hættulegasta mann í heimi". Breska blaðið Guardian segir hann „meistara og herra hryðjuverka- manna“. Sadat sálugi kallaði hann „algjöran djöful í mannsmyndTel-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.